Njörður - 14.03.1918, Side 3

Njörður - 14.03.1918, Side 3
NJÖRÐUR. 19 Járn- og málm-steypan Eýrsiirói tekur að sér að steypa úr allskonar málmum. — Afgreiðir allt svo fljótt, sem kostur er á. Með virðiugu Carl 3?o\a.lseas.. X XXafrrarstrset-i Y? IV ýkomið: Át-súkkulaði (milka). Hebe-mjólk. Suðu-Súkkulaði. Fldfæri. Bakarí $. Halldórssonar. Litla búöin, Steypuhúsg. 5 hefur nú fengið ýmsar vörur, svo sem: Hina alþektu Hebemjólk. Landsins besta kaííi. Melís. Strausykur. Hveiti, (Pilsberri Best). Gerpúlver. Eggjapúlver. Sitróndropa. Rúsínur. Sveskjur. Hafra- mjöl. Rúgmjöl. Kaffibrauð, margar tegundir. Sæt saft. Niðursoðna ávexti. Kringlur. Tvibökur. Manchettskyrtur. Lina flibba. Lin brjóst. Ýmsar smávörur, svo sem: Maskinunálar. Skelplötutölur. Tvinna. Nælur o. m. fl. Úrvals Kegnkápur fyrir dömur og herra með góðu verði. Þeir sem vilja fá góða vöru með sanngjörnu verði versla í Litlu búðinni. Með virðingu Jón Brynjólfsson. ~Cj tgerðarnaenn! Verslun S. Guflmundssonar hófur ennþá nokkuð af ireiðarfaor'u.m svo sem: 1 tt 1 Va tb. 2 tt 2V2 ^ og 3 <tL línum. — Svo og rI'1 n n ni a. — Ennfremur eru til hinar ómissandi sveru Bambússtengur. Svo og: Uppsettar lóðir úr 3 pd. og 3T/2 pd. linum, 90 faðma langar og snúnar niðurstöður. Bara hálft annað ár. (Lauslega þýtt.) (Pramh.) Hávaxni, ljóshærði sveitapiltur- inn, eem gjörði feita lögfræðingn- um svo gramt í geði með rósemi sinni, hét Halldór, og var ættaður lengst ofan úr Reynidal. Hann var liðlega tvítugur að aldri og einn síns liðs; enginn fylgdi hon- um til skips og í kaupstaðnum var hann bráð ókunnugur. Hann hallaði sér hálíletilega fram á borð- stokkinn, horfði yfir mannþröng- ina á bryggjunni, án þess þó að taka eftir nokkru sérstöku. And- litið var stórskorið og veðurbitið, svipurinn þur og hálf gremjuleg- ur, líkt og honum leiddist öli þeasi læti. Þegar skipið loka lét frá, stóð hann kyr á sama stað og horfði til lands. Fólkið og húsin smá- minkuðu og óskýrðust, en sveitin og dalirnir upp af henni blöstu því betur við sem lengra kom fram á fjörðinn, og Reynidalshnúkur teygði sólroðinn kollinn upp yfir öll hin fjöllin, eins og gullkrýnd- ur konungur, er situr i hásæti sínu, og rennir auguin yfir hirðina á bekkjunum i kring. Svo beygði ekipið fyrir nesið, fjörðurinn lukt- ist og bygðin hvarf. Halldór rétti úr sér, teygði sterk- lega, vöðvaþétta limina og beit á jaxlinn. Svo gekk hann undir þiljur, settist á rúmstokk sinn, studdi hönd undir kinn og horfði í gaupn- ir sér; þannig sat hann lengi; enginn yrti á hann og hann gaf sig ekki aðneinum; hann var öll- um ókunnugur. Þegar til Vesturheims kom, lét hann berast með straumnum, var skoðaður hátt og lágt, eins og stór- gripur, og lenti loks með nokkr- um samferðamönnum sínum í járn- brautarvagni. Hann þaut með þá heilan dag og heila nótt beint í vestur, út á slóttuna víðu, ómældu og ókunnu. Þar settist hann að, bygði sór dálítinn kofa og tók svo til óspiltra málanna. — Halldóri búnaðist ágætlega á slóttunni. Jarðvegurinn var svo frjór og myldinn, að honum fanst hreinasti barnaleikur að yrkja hann. Það var eitthvað annað en að fást við móana og mýrarnar heima. Skákin hans var í fyrstu æði afskekt; nærri hálf dagleið til næsta bæjar, og Halldór átti því engan kost á að sækja skemtanir eða mannfundi, enda stóð hugur hans ekki til slíks. Frá því eldsnemma á morgnana og fram í myrkur hamaðist hann eins og berserkur, gróf skurði, plægði og girti akur- reinar; nóg var að starfa. Honum fanst hver dagur of stuttur, hver nótt of löng. Fyrsta árið hafði hann ekkert vinnufólk, og oft liðu svo vikur og stundum mánuðir, að hann sá engan mann og fókk enga vitneskju um það, sem gjörðist fyrir utan landareign hans. Stöku sinnum kom nágranni hans við hjá honum á leið úr kaupstað og hafði þá stund- um meðferðis bréf til Halldórs- Það var jafnan böglað og óhreint og auðsjáanfega langt að; utaná- skriftin skökk og viðvaningsleg. (Frainh.)

x

Njörður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Njörður
https://timarit.is/publication/200

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.