Norðurland - 13.08.1910, Side 3
Nl.
131
HólasKóli.
Skýrsla um bændaskólann á Hólum
er nýútgefin. Af henni má sjá meðal
annars, að á árunum 1907—igiohöfðu
76 piltar stundað nám við skólann.
Annars segir þar frá ýmsu sem eðli-
lega lýtur sérstaklega að innri starf-
semi skólans. En líka frá ýmsu er
meira horfir út á við. Eitt af því er
bændafundur, er haldinn var á Hólum
í fyrravetur. Öllum bændum úr Akra-
hreppi var boðið að koma heim að
Hólum, dvelja þar tvo daga, hlýða á
fyrirlestra og taka þátt í umræðum
um búnaðarmál. Tólf bæudur þágu
þetta tilboð og dvöldu við skólann
dagana 17.—19. marz. Fyrirlestra héldu
kennararnir um þessi efni; Um áburð,
búfé og meðferð þess, garðyrkju, vinnu
og framleiðslu og búreikninga. Auk
þess hlýddu gestirnir á kenslu í skól-
anum nokkurar stundir. Umræðufundir
voru haldnir 2 stundir hvorn dag.
Bændurnír skoðuðu búpening á skóla-
staðnum. Jafnframt var sýning á kenslu-
áhöldum skólans og eitt kvöld voru
sýndar skuggamyndir.
Virðist þetta mjög lofsvert tiltæki
og líklegt til góðs.
Skólinn á nú gróðrarstöðina á Hól-
um. Er hún 7 dagsl^ttur á stærð og
landið girt með góðri gaddavírsgirð-
ingu. Voru þar gerðar ýmsar tilraun-
ir er tókust vel. Ætlast er til að í
gróðrarstöðinni séu ræktaðar þærplönt-
ur, sem vel geta þrifist hér á landi,
svo að nemendur fái tækifæri til að
sjá þroska þeirra og ræktun.
»Móðurmálssjóður Hólaskóla« heitir
ofurlítill sjóður við skólann, sem enn
er að vísu lítill vísir, en sem vel getur
vaxið, ef að honum er hlúð. Sjóðurinn
var stofnaður á 100 ára afmæli Jónasar
Hallgrímssonar, fyrir þrem árum, til
minningar um þýðingu Jónasar fyrir
þroska íslenzkrar tungu. Sjóðurinn var
við síðustu áramót 134 kr. og eru
þær f Söfnunarsjóði íslands.
Hólasveinar hafa málfundafélag, bind-
indisfélag og glímufélag.
Ein skemtisamkoma hefirverið haldin
á Hólum í þorralok ár hvert. Er hún
sótt úr nágrenninu og jafnvel úr næstu
sýslum. Er þá oft fjölment á Hólum,
200—300 manns.
Helztu daglegar skemtanir eru skíða-
ferðir eða skautahlaup, þegar færi leyfir.
X
Fáeinar tölur.
Af tölum þeim sem hér fara á eftir
má sjá hve mikið við íslendingar
fluttum inn, á mann, af helztu mun-
aðarvörum, þrjú síðustu árin sem lands-
hagsskýrslur ná yfir, eða á árunum
1906-1908.
Kaffi og kaffibætir 1906 pd. 13.6 1907 pd. 13.1 1908 pd 11.1
Allskonar sykur . . 48.9 51.8 45.3
Allskonar tóbak . . 2.4 2.5 2.3
Ö1 pt. . 3.9 pt. 5.1 Pt. 6.7
Brennivín .... . 3.2 3.6 2.6
Önnur vínföng . . 0.8 0.7 0.5
Menn ættu að íluiga þessar tölur
vandlega. þær segja í raunimti frá svo
miklu.
X
Mokafli á Hrútafirdi
Símfrétt úr Miðfirði nú í miðri vik-
unni segir mokafla á Hrútafirði inn í
fjarðarbotn.
Mikilsháttar gjöf
hefir Reykjavíkurbæ verið boðin og
verður hún eflaust þegin með þökkum,
segir bl. Reykjavíkin.
Blaðið skýrir svo frá:
Það eru núlifandi meðlimir Sjúkra-
hússfélagsins gamla, þeir dr. J. Jónas-
sen landlæknir, Magnús Síephensen
landshöfðingi og Björn M. Olsen pró-
fessor, sem bjóða bænum að gjöf allar
eignir félagsins, en eignirnar eru:
Húsið nr. 25 við Þingholtsstræti
(gamli spítalinn) ásamt líkskurðarhúsi
og lóð. Húseignin virt
til brunabóta á . . . kr. 17,308,00
Bankavaxtabréf og kon-
ungl. ríkisskuldabréf . -— 2,100,00
Inneign á Islandsbanka. — 1,916,06
Samtals kr. 21,324,06
Húsið hefir nú alveg nýskeð fengið
mikla og gagngerða viðgerð, og er því
í ágætu standi. Landstjórnin legir nú
með föstum samningi húsrúm í þvi
handa læknaskólanum fyrir 1000 kr.
leigu á ári. A eigninni hvíla engar
skuldir, nema 5100 kr. landsjóðslán,
sem á að endurborgast á 20 árum.
Skilyrði þau sem gefendur setja,
eru í stuttu máli þessi:
i' Af fénu skal stofna sjóð, er nefn-
ist »Sjúkrahússsjóður Reykjavíkurbæj-
ar».
2. Bæjarstjórnin tekur að sér að
greiða skuld þá, sem á húseigninni
hvílir, þær 5100 kr., sem áður eru
nefndar.
3. Bæjarstjórnin undirgengst að far-
ið verði nákvæmlega eftir skipulags-
skrá þeirri, er gefendurnir setja.
En aðalákvæði skipulagsskrárinnar
eru þessi:
Sjóðurinn geymist í vörzlum borgar-
stjóra og stendur undir eftirliti bæj-
arstjórnarinnar. Borgarstjóri sér um að
ávaxta hann eins og hentast þykir
»Tilgangur sjóðsins er að koma upp
sjújcrahúsi fyrir bæinn, er geti bætt
úr þör, hans á hentugu sjúkrahæli fyr-
ir þá, er af sveit þiggja, og jafnframt
gert öðrum bæjarbúum, sérstaklega fá-
tæklingum, kost á ódýrri sjúkravist.
Sjúkrahús þetta á sérstaklega að vera
fyrir íbúa bæjarins, þá sem hafa heim-
ili eða jafnskyldufasta dvöl í bænum.
Þó skulu þeir sjómenn, er skipráðnjr
eru á vegum bæjarbúa, njóta sömu
kosta og aðrir bæjarbúar. Aðrir utan-
héraðsmenn og útlendir menn skulu
og eiga kost á að njóta góðs af stofn-
un þessari, eftir því sem húsrúm leyfir
og föng eru á«.
Bæjarstjórnin ræður því sjálf, hve-
nær henni þykir tími til kominn, að
reisa sjúkrahúsið, og ver hún þá eign-
um sjóðsins, eins og þær verða þá,
til húsbyggingarinnar og til áhalda-
kaupa. Verði afgangur, þá skal verja
3U ársvaxta hans til sjúkrahalds, þar
á meðal til að greiða að fullu eða
nokkru legukostnað fátækra sjúklinga,
sem ekki þiggja af sveit, svo og til
viðhalds húsum og áhöldum. En '/4
af vöxtunum leggst við höfuðstólinn.
X
Ludviít Wimmer,
norrænufræðingurinn mikli í Kaup-
mannahöfn, hefir sagt af sér prófessors-
embætti sínu við háskólann í Höfn frá
1. september næstkomandi. Líklega
hreppir prófessor Finnur Jónsson stöðu
hans.
Kolaskip
pað, sem kemur með kol jðau, sem pöntuð hafa verið hjá mér
og Kaupfélagi Akureyrar, er væntanlegt hingað um miðjan mán-
uðinn og verða kolin afhent kaupendum á bryggjum bæjarins 3
dögum eftir komu skipsins.
Oddeyri 12/s T0
RAGNAR ÓLAFSSON.
Loftfaiir ráðgeiðai.
Mikið er gert að loftferðum á þessu
sumri víðsvegar um Norðurálfu og
víst Vesturheim líka og þykir ganga
misjafnlega. Þykir þessi list næsta hættu-
leg, enda bíða inargir flugmanna bana.
Einna stórfenglegastar eru ráðagerð-
ir þeirra Zeppelíns hins fræga þýzka
loftgreifa og Wellmans hins ameríska,
er oftók sig áður á fluginu til norður-
pólsins.
Zeppelín, sjötugur karlinn, ráðger-
ir að reyna að komast til norðurpóls-
ins frá Spitzbergen á þessu sumri og
mun vera þar norðurfrá í þeim erind-
um.
Wellman ráðgerir aftur að fljúga
yfir Atlanshaf á þessu sumri. Hafa tvö
af stórblöðum heimsins, annað í Lond-
on og hitt í New-York, heitið að kosta
för hans. Ætlar hann að hafa með
sér 4 eða 5 aðra fullhuga. Skip hans
á að vera útbúið með tækjum til þráð-
lausra skeytasendinga.
Nú er ekki að vita hvort þetta verður
annað og meira en ráðagerðirnar tóm-
ar, en verði nokkuð úr þessu í sumar,
má búast við að þeir leggi upp í
þessum mánuði.
X
EFTIRMÆLl.
Konan Jónína Hólmfríður Jónsdóttir
frá Olafsfirði, andaðist á sjúkrahúsi
Akureyrar II. þ. m. úr blóðeitrun og
var jarðsett á Kvíabekk 18. þ. m. að
viðstöddu miklu fjölmenni.
Hún var fædd á Miðhóli í Sléttu-
hhð 1852. Foreldrar hennar góðkunn
merkishjón, Jón snikkari Jónsson og
Guðfinna Jónsdóttir, sem seinna bjuggu
hér bæði á Hornbrekku og Brimnesi.
Rúmlega tvítug giftist hún Sigurði
Pálssyni, eiganda nefndra jarða, sem
Ólafsfjarðarkauptún er bygt á.
Eftirlitandi börn Jónínu sál. eru:
1. Guðrún, gift Þorleifi Rögnvalds-
syni bónda í Stóra-Gerði í' Oslands-
hlíð í Skagafirði.
2. Guðfinna yfirsetukona, gift Jóni
Friðrikssyni bónda' í Hornbrekku.
3. Sigurpáll, kvæntur bóndi á Brim-
nesi.
4. Snjólaug og 5. Þorvaldur, bæði
ógift hjá föður sínum.
Jónína sál. var mesta myndarkona,
bæði að sjón og reynd. Veitti jafnan
heimili sínu hina beztu forstöðu, enda
var hún vel greind, þrifin, reglusöm
og afkastamikil búkona. Hún var guð-
hrædd og yfirlætislaus, greiðvikin og
hjálpsöm við fátæka. Hennar því al-
ment saknað í þessu bygðarlagi og
finna hér allir til með hennar aldraða,
sárt syrgjanda eiginmanni, enda var
hjónaband þeirra jafnan hið ástúðlegasta.
X
Oceana
kom hingað í morgun. Meðal far-
þega er H. Schafield prófessor í nor-
rænu við Harward háskóla í Vestur-
heimi. Hefir ferðast hér um land til
þess að skoða helztu sögustaðina.
Sfúlka
óskast í vetrarvist:flTilboð mk.
222 sendist á skrifstofu pessa
blaðs fyrir ágústmánaðarlok-.
Tilbúinn FATNAÐ
og
FATAEFNI
er ávalt bezt að kaupa í
Vefnaðarvöruverzlun
Gudmanns Efterfl.
Nokkuð af SKÓFATNAÐI
verður fyrst um sinn seldur með
WST gjafverði. T8W
Símfréitir úr Reykjavík.
Guðmundur Finnbogason magister
kominn heim úr uianlandsför sinni;
byrjar fyrirlestra sina í heimspeki i
oktobermánuði.
Bjarni Jónsson viðskiftaráðunautur
kominn heim til Reykjavikur, snögga
ferð.
Jón Krabbe sknfstofustjóri á ís-
lenzku skrifstofunni i Khöfn dvelur
hér.
Biskup kom heim síðastliðinn laug-
ardag.
Kappsund á að halda á morgun
um sundbikar íslands.
Tveir menn druknuðu nýlega i Mið-
á i Dalasýslu, kaupamenn sýslumanns-
ins á Sauðafelli. Voru að ríða yfir
hyl. Annar mun hafa kipt i tauminn
og kipt hesti sínum i kaf en hinn
œtlað að. bjarga, en varð báðum ■ að
fjörtjóni. Ungir menn. Hétu Ólafur
Stefánsson og Eyjólfur Böðvarsson.
Veðursímskeyti til JMls
frá 17, til 30. júlí 1910.
| Ak. | Gr. | Sf. Bl. | ís. | Rv. Þh.
S. 9-5 i°-5 7-9 7.2 7-3 ,2-5 I 1.0
M. IO.0 9.8 7.2 9.0I 10.8 i3-° 10.7
Þ. 10’5 '5-5 7-3 8-3 10.1 ««•3 10.5
M. 9.8 •S0 6.7 8-5 9-9 12.9 9.4
F. 9.8 14.0 8.8 8-3 10.6 12.8 9.5
F. 9.8 io-5 7-9 8.6 9.0 n.7 10.0
L. 9.1 10.7 9.2 7.6 7.6 12.0 I I.I
Kl. (f.h.) 7 — 7 — 6 — 7 — 7 — 7 — 6