Norðurland


Norðurland - 17.04.1915, Síða 1

Norðurland - 17.04.1915, Síða 1
NORÐURLAND. Akureyri 17. april 1915.. XV. ár. A\s KÖBENHAVNS MAROARINEFABRIK framleiðir hið vandaðasta smérlíki sem unt er að fá, notar aðeins hreint og óskemt efni, og litar alls ekki margarínið, en selur það hvítt eins og ásauða- smér, svo allir geti fullvissað sig um að engu misjöfnu sé blandað f það. — Margarínið fæst f i og 2 punda skökum, 5 og 10 punda öskjum og stærri dunkum og er þrátt fyrir gæði sín hið ódýrasta smérlíki sem flutt er til lands- ins, enda fer neyzla þess vaxandi ár frá ári. Areiðanlegir kaupendur fá lang- an gjaldfrest Pantanir sendist annaðhvort beint til ’verksmiðjunnar, Brolægg- erstræde 9 Köbenhavn, eða Jóns Stefánssonar Akureyri. 14 blað. Vefnaðarvöruverzlun Gudmanns Ef te rfl. Stærst úrval. Lægst verð. Saumastofa Gudm. Efterfl. saumar allan klæðnað handa körlum og konum eftir nýjustu tízku. BÓKMENTADALKUR Snæljós, kvæðakver Jakobs 'fhórarensens er gott kver og einkennilegt. Höfundur- inn er ungur maður, sjá'lmentaður, >kominn í mannheima. »norðan frá Elivágum. Hann er með öðrum orðum fæddur í Strandasýslu, og er nýtt að þaðan komi skáld, úr þeirri sýslu, og er eg ekki að gera lítið úr mann- fólkinu þar með þessu Hitt er það, sem fyrir mér vakir, að bókmenta- menn þjóðarinnar hafa alist upp f öðrum áttum — ef eg man rétt. Kvæði Jakobs bera það með sér, að náttúran hefir ekki gert sér gælur við hann. Norðanátt er í kvæðunum __ kalt hreinviðri og hríð stundum En frumlegur er þessi maður op efnilegri en flestir byrjendur og 1 g legri til afreksverka í skáldstcap Hann er bæði fundvís á efni. Og einkum er hann frumlegur í meðferð efnisins. Hann er og djarfur í orðum og lætur sér ekki fyrir brjósti brenna að fietta °fan af því sem rotið er. Menn skyldu lesa »Ágóstnótt í Reykjavik. Eg gat þess, að norðanátt væri f kvæðunum, — að þaU væru ekki hlý- leg- Þó eru þau tilfinnningarík. T. d. ,Hann sta!‘, ,Tóan svanga , ,Hjá gálg- anum', o. fl. eru einkennileg tilfinn- >nga kvæði, »þó varimar fljóti ekki í g*lum«. t*á eru vfsurnar um Samson sál. Eyjúlfsson vel kveðnar þetta strand- menni, eða þrotaflak, sem þjóðkunn- ugt er. Kvæðið um Björn Jónsson ritstjóra er blátt áfram srtildarlegt _ hvort sem fallist er á Infið alveg eða ekki. Þó að Jakob hefði ekki annað kveðið væri hann skájd með afbrigðum. Tvö kvæði eru um Guðrúnu Ósvífs dóttur, og eru þau svo vel kveðin, að aðrir hafa ekki eins vel um það vanda mikla efni á vora tungu Ijóðað. Vor- vfsur 3 eru mjög góðar. Og enn eru ótalin ýn»s kvæði, sem eru bókment- um vorum til búsílags. Af öllum þeim sæg yngri manna, sem yrkja á íslenzka tungu, þykja tnér Sigurður Sigurðsson og Jakob þessi beztir. Þeir eru kjarnmestir, íslenzkastir, sannastir þ. e. a. s. kveða minst um ólfkindi og fjarstæður. Mér sýnist mikið af þeim skáldskap — leikritin höfð f huga — sem nú birtist síðustu árin vera Lokalýgi uppi í skýjaboj-gum staðleysunnar. Ef til vill er mér varnað þess að skilja það »em háfleygt er En það er ekki há- fleygt, heldur eitthvað annað að láta kvenfólkið standa á höfði f handvað og gera konur að kæpum. Þeir mega hæla þessu og öðrp eins, sem finna púðrið í þvf. En eg lofa eigi annað en það, sem eg skil. Quðm. Friðjónsson. X Bændanámsskeið hafa nú nýlega verið haldin á Blöndu- ósi Og á Hólum í Hjaltadal. Stóð r.ámsskeiðið á Blönduósi frá 8—15. marz og var haldið f Kvennaskólanum, en námsskeiðið á Hólum 22—28. marz. Námsskeið þessi voru studd af Ræktunarfélagi Norðurlands og Bún- aðarfélagi Llands. Til fyrirlestrahalds mætti fyrir hönd Ræktunarfélagsins JaKob H. Lindal framkvæmdarstjóri, en frá Búnaðarfélaginu Sigurður Sig- urðsson ráðanautur og Jón Þorbergs- son fjárræktarmaður. Veður var hið bezta meðari Blöndu- ósnámsskeiðið varaði, marahláka alla vikuna svo öríst mátti heita Irá fjöru til fjallatinda um alla sysluna. Aðsókn á námsskeiðið Varð líka hin bezta einkum síðari hluta vikunnar Voru þar samankomnir ýmsir hinna beztu bænda úr 8 hreppum sýslunnar, aðal- lega þó úr austursýslunni Að meðal- tali mun hafa verið um 120 manns aðkomandi, síðasta daginn þó um 200 ; voru fult svo margir þeirra bændur sem búlausir menn, auk þess hlustuðu námsmeyjar og kennar skólans jafn- an á fyrirlestrana. Fyrirlestrar voru haldnir 4—5 á dag en málfundir2 —3 tíma daglega. Auk hinna 3ja áður- nefndu manna, er héldu sína 6 fyrir- lestra hvor flmtu þessir fyrirlestra: Sigurður Pálmason sýslubúfr. Æsustöðum .................4 fyrirl. Jón Jónsson læknir Blönduósi 2 — Jónas Bjarnason hreppstjóri Litladal ..................1 — Jón Hannesson bóndi Undir- felli .................... 1 — Jón Pálmason búf. Ytri-Löngu- mýri ... 1 — Allir fyrirlestrarnir voru um búnað- armálefni, sérstaklega um búfjárrækt, meðferð áburðar, jarðrækt, garðyrkju og félagsskap. Á kvöldfundunum voru einnig bún- aðarmálefni aðallega til meðferðar. Efni þeirra voru á þessa leið: 1. Alþýðumentan. Hnigu þær um- ræður mjög í þá átt að æskilegri væri aukin almenn unglingafræðsla en strangar kröfur um bóklega kunnáttu barna undir fermingu. Um bændaskól- ana var sérstök áherzla lögð á, að hinni verklegu kenslu yrði komið í sem bezt horf og að í henni yrði innleidd prófskylda engu sfður en í hinu bóklega námi. 2. Eyðslusemi. 3 Notkun rafmagns. Sérstaklega rætt um notkun þess á sveitaheim- ilum og nauðsyn þess að athugað væri um framtíðarskilyrði Húnavatns- sýslu í því efni. 4. Stofnun grasbýla Urðu um það mál miklar umræður. Var fundurinn þeirrar skoðunar að fjölgun býla væri nauðsynleg; taldi þó grasbýlahug- myndina t. d. í því formi, er fram kom á sfðasta þingi óviðeigandi og lítt framkvæmanlega til sveita. Nýbýli væri þvf aðeins heppileg, að þeim fylgdu allar vanalegar jarðanytjar og einkenni. 5. Samband bændafélaga. Var þar sérstaklega rætt um afskifti búnaðar- félaga af almennum búnaðarmálum og á hvern hátt þau gætu stutt hvort annað í því efni. Talið nauðsynlegt, að þau beindu meðal annars starf- semi sinni í þá átt að fræða menn og vekja til umhugsunar um þau mál, og að búnaðarfélög Húnavatnssýslu mynduðu innbyrðis sambandsfélag á því sniði, er héldi að minsta kosti einn búnaðarmálafund á hverju ári. Nokkr- ar ráðstafanir voru gerðar til þess, að koma þessu máli í framkvæmd. 6. Heyásetningur og forðagœsla. Urðu þar allmiklar umræður með og mót forðagæslulögunum, en menn sammála um, að mestu varðaði al- menn viðurkenning og varkárni bænda með hyggilegan heyásetning Jt Samvinna. Á laugardagskvöld voru að skilnaði frjáls ræðuhöld og stigu þá allmargir í stólinn. Milli ræðanna söng söng- flokkur undir stjórn frú Guðríðar Sigurðard. Líndal á Holtastöðum. Sýslunefnd Húnavatnssýslu hafði veitt fjárstyrk nokkurn til þessa náms- skeiðs. Fyrir hennar hönd hafði hrepp- stjóri Jónas Bjarnason f Litladal und- irbúning og aðalumsjón námsskeiðs- ins á hendi * * * Bændanámsskeiðið á Hólum hófst sem fyr segir 22. marz. Var þá því nær ófært veður fyrir hrfð og frosti og hélst svo fram um miðja viku. Námsskeiðið var því fremur fáskipað aðkomumönnum fyrri hluta vikunnar, en síðari hlutann sótti þangað allmargt úr nágrenninu og víðar úr Skagafirði. Voru þá aðkomumenn um 50 og sfð- asta daginn um 70 að tölu. Höfðu þeir er þess þurftu fæði og gisting hjá skólastjóra. Kemur sér betur um slíkar samkomur að vel er húsað á Hólum. Fyrirlestrar voru fluttir 5 að tölu flesta daga og svo umræðufundir 2—3 tíma á hverju kvöldi. Þessir menn fluttu fyrirlestra: Sigurður Sigurðsson ráða nautur....................6 fyrirl. Jón Þorbergsson fjárræktarm. 6 — Hólmjárn Jósefsson kennari . 5 — Sigurður Sigurðsson kennari . 3 — Jakob H. Líndal framkv.stj. . 3 — Sigurður Sigurðsson skólastj. . 2 — Jónas Kristjánsson læknir . . 2 — Fyrirlestrarnir fjölluðu um svipað elni og á Blönduós, að undanteknum fyrirlestrum Jónasar Kristjánssonar læknis, er voru um »ertðir og kyn- bætur á mönnum« og »hreint loft og húsakynni* Voru menn mjög forvituir eftir að vita hverjum tökum læknirinn tæki svo fatítt og einkennilegt um- ræðuefni. Ýmsir bjuggust við að nú dyndu einhver ósköp yfir höfuð þeirra; ef til vill yrði öllum hjúskaparlögum og sæmilegu lfferni kollvarpað. En læknirinn flutti mál sitt hægt og ró- lega og markaði sér ekki rýmra svið en svo, að til engra stórtfðinda þótti draga áður en hann hafði lokið máli sínu. Sýndi hann fram á nokkur þekt erfðatög og hvernig einstakir sjúk- dómar eða Ifkamlegir og andlegir gallar ganga í erfðir og haldast f ættunum, ef ekkert er að gjört og öllu lofað að ráðast sem verða vill, en einnig að þessa eiginleika má úr- kynja með ákveðnu vali og aðhaldi, er slíkum einstaklingum væri sett með það að auka kyn sitt. Komst hann að þeirri niðurstöðu, að nokkuð mætti komast áleiðis í mannakynbótum með því að læknisvottorðs væri krafist til hjúskapar og að prestar hefðu að eins leyfi til þess að gifta samkvæmt vottorði frá lækni um, að viðkomandi væri ekki haldinn bersýnilega stór- hættulegum arfgengum göllum. En mestu hvað hann þó varða að útbreiða þekkingu á þessu efni meðal almenn- ings, að sýnt væri fram á hverjir sjúkdómar andlegir og lfkamlegir eink- um gætu haft ill eftirköst fyrir af- komendurna, og að glædd væri á- byrgðartilfinning og siðferðisþroski manna f þessu efni. Að þessu þyrftu p estar og læknar að vinna f samein- íngu. Allmiklar umræður urðu út af fyrirlestrinum. Á umræðu fundunum voru þessi mál tekin til um ræðu: 1. Stundvísi. 2. Hjúskapur. 3. Framfarir. 4. Lestur bóka. 5. Mentamál. 6. Heyásetningur. 7. Heimilisiðnaður. Yrði of langt má! að fara út í meðferð þessara mála og skal þvf þess vegna slept. I sambandi við námsskeiðið má geta hins nýbygða fjóss á Hólum. Var það nú f fyrsfa skifti til sýnis á svo íjölmennri samkomu, enda var þar gestkvæmt hjá kúnum marga dag- ana. Bygging þessi er gerð í sumar, úr steinsteypu. Er þar í einni heild fjós, hlaða, áburðarhús, moldarhús og hænsahús. Fjósið er alt steinsteypt f hólf og góll ásamt jötum og jötu- stokkum, en sá hluti útveggja, er mestum kulda mætir er þiljaður innan og stoppað á milli til þess að verja raka. Fjósið er lfka mjRg rakalaust Og hlýtt. Vatnsleiðsla er hin hagan- legasta er nú þekkist. Er vatnið leitt eftir pípu meðfram jötustokknum, en í sambandi við hana hefir hver kýr sitt drykkjarker, er jafnan stendur hálftult og aldrei eyðist úr, hvernig sem af er drukkið, mun þó tæplega 2 pt. mál að stærð. Það er lokað, en kýrin lýkur þvf upp um leið og hún vill drekka; getur hún þá drukkið hvenær sem vera skal og heflr þó alt af hreint og nýtt vatn fyrir fram- an sig. Nánari lýsing á þessum út- búnaði verður ekki gerð skiljanleg í stuttu máli. í fjósinu eru 19 básar auk sérstaks rúms fyrir allmörg svín. Mun mörgum þykja þar vel f borið, en nú er það þó fullskipað á fyrsta búskaparári skólastjórans. Hlaðan er við hlið fjóssins, tekur hún um 1200 hesta, en auk þess er í henni stein- steypt súrheysþró fyrir um 200 hesta, Var hún notuð f sumar og tókst vel. Alls kostaði bygging þessi um 12000 kr. Mun það nú dýrasta, enda lfka myndarlegasta fjós landsins og getur orðið að ýmsu leyti til fyrirmyndar jafnvel þó um smáfjós sé að ræða.

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.