Norðurland - 17.04.1915, Page 3
45
NL
stæðismenn, sé ósjálfráð viðurkenn-
ing þess, að þeirra gamla innlim-
unarkenning hafi verið röng. Og
ekki virðist það laust við öilaga-
gletni, að sá maður er mestan þátt-
inn átti i landvarnar uþþþotinu uþþ-
haflega, virðist nú hafa unnið allra
manna mest að því að alt fengi að
sitja um óákveðinn tíma við hina
gömlu „innlimun" —af ótta við hana
þessa nýju! Og að því búnu fer
hann burt, að sögn, til að selja
Þorlákshöfn, íslenzka mold undau
íslenzkum fótum, í önnur lönd.
En hvað sem um þetta er, þá
mun mega fullyrða að vér íslend-
ingar höfum aldrei haft jafn full ráð,
því síður fyllri, yfir málum vorum,
alt frá því er landið kom undir
konung, og þetta síðasta tímabil.
Og eins og reynzlan hefir þegar
sýnt, og það á margan hátt, að
innlimunarkenningin frá 1903 var
mestmegnis ýkjur og ímyndunar-
veiki, eins ætla eg að síðari timar
muni líta svo á þetta síðasta inn
limunarhræðslu-flog —að það sé ekki
á marga fiska.
Sigurjðn Friðjónsson.
X
I sama þófinu?
Alþíngismennirnir þrír er fóru á
konungsfund, komu til Rvíkur á
„Gullfoss" í gær. Enn er lítið gert
Uþþskátt um erindislok þeirra, eu
eftir því sem „Nl." hefir fengið vitn-
eskju um, eftir símtali við Rvík, er
þetta hið helzta:
Þeir staðfesta skýrslu Hannesar
Hafstein um að stjórnarskrátmálið
og fánamálið fáist staðfest með nán-
ar ákveðnum skilmálum, sem þeir
fyrir sitt leyti eru allir sammála um,
„að Islendingum sé hættulaust að
ganga að, en sem þeir eru þó ekki
fyllilega ánægðir með".
Sundurlyndi sagt í Sjálfstæðis-
flokknum í Rvík um það hvort
ganga eigi að skilmálunum eða
ekki og því alt óvíst enn um mála-
lok. Pó vænta flestir og vona, að
þeir menn verði í meiri hluta í
flokknum sem vilja stöðva fíflaleik-
inn og forða málunum frá nýjum
endemum. Er sagt að svo sé um
hnútana búið, að ef flokkurinn
verður á einu máli, verði nýr ráð-
herra tafarlaust útnefndur.
X
llm láð og /ög.
Simfréttir i dag.
„Gullfoss“ kom i gœrmorgun til
Reykjavikur. Skipin „íslendingur",
„Hera“ og „Norðurljósið“ fóru ú
móti honum út i flóa, öll skreytt
flöggum og fánum, og ennfremur
fjöldi vélarbáta. Öll skipin og bátarn-
ir voru hlaðin fólki sem rúm var til
og þegar „Oullfoss“ skreið inn á
höfnina, var hún bókstaflega svört af
bátum hlöðnum fólki. Ráðherra fór
svo um borð i „Gullfoss“ og hélt
þar stutta rœðu, bað skipið vera vel-
komið til fslands, óskaði að því mœtti
vel farnasi og bað menn hrópa húrra
fyrir stjórn Eimskipafélagsins. Yfir
efra enda hafnarbryggjunnar vargert
skrauthtið og þar málað á: »Vel-
kominn GullfossH Ut í skipinu
er fult, síðan það kom, af fólki sem
er að skoða það, en veizluhöld eng-
in i tilefni af komu þess. — Svo
mikill fögnuður var meðal Reykvik-
inga yfir komu skipsins. svo margir
á ferli og slíkur hátíðablœr á bœn-
um, að jafnað er til þess er Friðrik
konungur VIII. kom til Reykjavikur
1907 —.
— Porvaldur jónsson prestur á
ísafirði hefir sagt af sér prestsskap.
— Taugaveiki og lungnabólga geys-
ar á Flateyri við Önundarfjörð.
— Trúlofuð eru ungfrú Ólöf Haf-
liðadóttir, hreppstjóra Guðmundsson-
ar á Siglufirði og Axel Thorsteins-
son, Stgr. Th. skálds.
— Látinn er Ólafur Sveinsson
gullsmiður i Reykjavik, faðir Georgs
hagstofufnlltrúa og þeirra systkina.
— Kolaskip til Frederiksens kola-
verzlunar i Reykjavik strandaði á
Skerjafirði í gær.
— / Reykjavik er fullyrt manna á
meðal að Sveinn Björnsson verði
ráðherra og taki við embœtti nœstu
daga.
X
ytkureyri.
Sumarmálafagnad hafa gagnfræða-
nemendur í kveld í leikfimishúsi gagn-
fræðaskólans Þar verður til skemtun-
ar samsöngur, glímur, leikfimi (nem-
endur), einsöngur (Sig. Einarsson),
fyrirlestur (Valtýr Stefánsson), upp-
lestur (St. St. skólam) og svo dans
að lokum Inngangur ódýr Ágóðinn
rennur í sjúkrasjóð skólans Vonandi
að menn fjölmenni.
Vélabátaverkstœði Auk þeirra sem
getið var í síðasta bl .ði, hefir Ásgeir
Pétursson kaupmaður komið einu á
fót ( vetur og er Kristján Markússon
skipasmiður yfirmaður þess. Ásgeir
lætur byggja þar 5 báta sem hann
ætlar sjállur að halda úti til fiskiveiða.
Fiskiskipin. Vegna þess að ýmsar
sögur f^afa gengið um hafís við Horn-
strandir nú undaníarið hafa margir
verið hræddir um fiskiskipin héðan
frá Eyjafirði, sem fyrir nokkru eru
farin áleiðis vestur um land En nú
eru fregnir komnar af þeim öllum, um
að þau hafi komist heilu og höldnu
vestur yfir Húnaflóa Um helgina lágu
5 þeirra á Norðurfirði og Reykjafirði,
en nú eru þau öll komin vestur fyrir
Horn til veiða. Afli er sagður heldur
rýr fyrir vestan.
Nýtt »Sjálfstœðis* blað er Sigurður
Einarsson dýralæknir farinn að gefa
út og kallar »íslending«. Mun það
eiga að verða framhald af »Mjölni«
sáluga, sem kom út um skeið í fyrra-
vetur, en takmarkaðri hæfileika virðist
S. E. hafa til að stjórna blaði, en
ritstióri »Mjölnis« hatði. »ísl.« á að
koma út einu sinni í viku, er einni
dálksbreidd mjórri á síðu en »Norðurl.«
og nokkru styttri, en verð hið sama,
kostar kr. 2 25 frá aprílbyrjun til árs-
loka. Sigurður hefir fengið Ingimar
Eydal kennara til þess að vera rjt-
stjóra með sér.
Kvennaskóla vilja allmargar konur
á Akureyri, koma upp hér f bænum,
hið allra lyrsta, og hafa ýmsar af
atkvæðakonum bæjarins bundist fyrir
að koma hugmyndinni í framkvæmd.
Þær hafa þegar skrifað bæjarstjórn
Akuieyrar og sýslunefnd Eyfirðinga
um málið og þau stjórnarvöld svo
skipað néfndir tii að athuga það.
Enginn vafi leikur á, að kvennaskóli
fyrir Norðurland, á að vera hér á
Akureyri, og styðja svo margar stoðir
það mál, að ekki verður um deilt.
Mun fljótlega verða vikið nánar að
því í serstakri grein, hér í blaðinu.
Handavinnunámsskeið ætla þær El-
ísabet Friðriksdóttir kennari við barna-
skólann og Halldóra Bjarnadóttir skóla-
stýra, að halda hér í bænum í vor,
sbr. auglýsingu frá þeim um það í
sfðasta blaði. Má vænta þess að ýmsir
barna og unglingakennarar hér nær-
lendis noti sér það tækifæri.
Guðm. Björnsson landlæknir kvað
vera væntanlegur hingað á »Flóru«
eftir helgina Hann er í eftirlitsferð
og heldur áfram til Austfjarða á
»Flóru«.
Rauðmagaveiði hefir verið gríðar-
mikil síðustu vikur á miðum Svarfdæl-
inga. Hefir hver báturinn af öðrum
komið hingað til Akureyrar með full-
fermi af rauðmaga sem bæjarbúar
hafa keypt
Aðkomumenn síðustu daga: Jón-
mundur Halldórsson prestur á Barði,
Tryggvi Jónasson frá ísafirði.
Verðlagsnefndin ákvað á mánudag-
inn hámark útsöluverðs kola á Akur-
eyri 30 kr. pr. tonn og kvað hafa
gert það eftir beiðni frá verkamanna-
félaginu. En þá kváðust kolaverzlan-
irnar engin kol hafa til sölu og varð
ekki annað sjáanlegt en allur fjöldi
bæjarbúa mundi sálast úr kulda og
var þá ýrnislegt miður vinsamlegt taut-
að um forkólfa verkamannafélagsins og
framhlaup þeirra. Liðu svo 3 dagar.
Þá gaf verðlagsnefndin út nýjan boð-
skap og ákvað kolaverðið 56 kr. En
er það varð kunnugt, kunngerði Ragn-
ar Ólafsson að hann ætlaði að selja
kol fyrir 45 kr. pr. tonn eða 11 —
ellefu — kr. undir hámarksverði verð-
lagsnefndarinnar. — Svo fór um sjó-
ferð þá I
X
Samvinnufyrirlestrar.
Sigurður Jónsson dbrm., í Yzta-felli,
ritstjóri »Tímarits kaupfélaganna*, er
á fyrirlestraferð um Eyjafjarðarsýslu
um þessar mundir. Umræðuefni hans
er samvinnufélagsskapur og ýmiskon-
ar samvinnumálefni Mun hann manna
fróðastur hér á landi, um þau mál,
enda láta bjændur hið bezta yfir ræð-
um hans. Hann hóf fyrirlestra sína
í Svarfaðerdal, heldur svo inn eftir
sýslunni, þaðan noiður um Þingeyjar-
sýslur og ef til vill alla leið austur á
Fljótsdalshérað.
Skýrsla
yfir starfsemi hjúkrunarfélagsins
Hlíf árið 1914.
Útgjöld:
Hjúkrun frá félaginu fyrir S3°-85
Matargjafir ................319-5 3
Jólaglaðning sjúklinga á Akur-
eyrarspítala...................47-73
Samtals . 898.11
Peningagjafir til fjelagsins.
Frú Guðrún Laxdal . 10.00
Frú Guðrún Jónsdóttir Hrísey 10.00
Frá ónefndum...................25.00
Samtals . 45-00
Sjóður félagsins um áramót 670.80
Innilega þökkum við öllum þeim,
sem á síðastliðnu ári hafa styrkt fje-
lagið með peningagjöfum, eða á annan
hátt.
Fyrir hönd hjúkrunarfélagsins ,Hlíf‘.
Akureyri 12. apríl 1915.
Anna Magnúsdóttir
(forrnaður).
Laufey Pálsdóttir
(ritari).
Vilhelmina Sigurðaraóttir
(gjaldkeri).
Hjartans þakklæti vottar hjúkrunarfélagið
«Hlíf" fulltrúar.íði stjórn og endurskoð-
endum Kaupfélags Eyfirðinga fyrir hina
stórhöfðinglegu og mannúðlegu gjöf kr,
300.00, er þeir sendu hjúkrunarfélaginu.
Akureyri 15. april 1915.
Fyrir hönd hjúkrunarfélagsins „Hlíf".
Anna Magnúsdóttir
formaður.
Af Austfjörðum.
Porst. j. G. Skaptason ritstjóri
»Austra« á Seyðisfirði hefir legið rúm-
fastur lengi vetrar, þungt haldinn af
liðagigt, en er nú mikið að hressast.
Ingólfur Gíslason héraðslæknir á
Vopnafirði dvelur erlendis í vetur til
þess að kynna sér nýjustu framfarir í
læknislistinni. •
Frú Sigríður Hjálmarsson kona Kon-
ráðs Hjálmarssonar kaupmanns á Mjóa-
firði andaðist 13. f. m. Mikilhæf kona
um margt.
Mjóafjarðarprestakall er veitt síra
Jónmundi Halldórssyni á Barði og flyt-
ur hann þangað bráðlega.
X
Friðrik D. Bjarnason
bóndi á Neðri-Vindheimum á Þelamörk
andaðist á heimili sfnu 2. febr. s. 1.
Banamein hans var lungnabólga. Hann
var fæddur 16. marz 1862 á Þor-
móðsstöðum í Eyjafirði. Þar ólst hann
upp hjá foreldrum sfnum, Bjarna
Bjarnasyni og Sigurbjörgu Sigurðar-
dóttir. Móður sfna misti hann þegar
hann var 10 ára að aldri — en faðir
hans lifir enn f hárri elli, og orðinn
blindur; nú til heimilis að Ytri-Gerð-
um í Eyjafirði. Til fullorðins ára dvaldi
hann lengst af hjá föður sfnum og
stjúpmóður, þar til hann gekk að eiga
eftirlifandi konu sína, Sigurrósu Páls-
dóttir. Þau giítust í Brúnagerði í
Fij tskadal 11. okt. 1895, og dvöldu
þar 2 næstu árin Þaðan fluttu þau
að Ytra Gili í Hrafnagilshreppi og
byrjuðu þar búskap. Eftir 4 ára dvöl
þar, fluttu þau að Neðri-Vindheimum
í Glæsibæjarhreppi, þar sem þau síð-
an hafa búið. — Þeim varð 11 barna
auðið, þar af lifa 9, og af þeim eru
7 í ómegð, aðeins 2 drengir komnir
yfir fermingu.
Friðrik sál. var í hvívetna atorku-
og fyrirhyggjumaður, og kom það
brátt fram í búskap hans Bæði blómg-
aðist bú hans efnalega — og einnig
gerði hann mikið að þvf, að bæta á-
búðarjörð sína, bæði að rækt og húsa-
kynnum. T. d um það, að þau 14 ár,
sem hann hefir búið á Neðri-Vind-
heimum, hefir hann gert mjög mikið
að jarðabótum, bygt flest peningshús,
nokkuð af bæjarhúsum, komið upp 3
vönduðum heyhlöðum, ásamt því, að
leiða vatn í pfpum, bæði í bæinn og
fjós, til atnota. Hér liggur ekki lítið
eftir einn mann á jafnstuttum tíma,
og eftir hans áhuga og dugnaði að
dæma, veit eg að ekki hefði legið
minna eftir hann næstu 14 ár, ef
heilsa og líf hefðu lcyft. Þetta er því
virðingarverðara, þegar þess er gætt,
hve þungt, hús hann hafði að fæða,
og hvað sómasamlega þeim hjónum
hefir farist það. Einnig lömuðu veik-
indi heimili hans hvað eftir annað, og
nú síðast lágu tveir synir hans f
lungnabólgu jafnframt því sem hann
lá banaleguna sjálfur, einnig í lungna-
bólgu. Sfðasta verk hans var að leita
þeim læknishjálpar, og upp úr þeirri
ferð lagðist hann sjálfur.
Niðurlag.
X