Norðurljósið - 31.12.1887, Blaðsíða 2
— 78
*
vart, af pví liann hafði áðnr látið sér lynda að geyma þenn-
an króa sinn þangað til í þinglok, og sagt að orðið <strax»
í grundvallarlögunum (þar sem ákveðið er að bráðabirgðarlög
skuli strax leggja fyrir næsta þing, er það komi saman)
þýdiii að eiits „einhvern tima“. En nú var þetta tiltæki
skýrt svo af hæ*ri blöðunum, að Estrúp hefði viljað láta það
eptir þinginu að lofa þeim nú að fá fjárlögin strax. Meiri
hluti vinstri manna hafði talað svo mikið um, að þeir vildu
vera sanngjarnir við ráðaneytið. og koma miðlun á, og nú
kvaðst ráðaneytið því ætla að láta þetta eptir þeim. En nú
urðu vinstri menn annaðhvort að fella þessi bráðabirgðarlög
og þá varð að slíta þinginu á eínhvern hátt, til þess að gefa
út ný bráðabirgðarlög, eða þeir urðu að samþykkjast þessum
versta fjanda sinum, og með því falla ráðaneytinn til fóta.
feir kusu hið fyrra. Jæir felldu þau, og sama dag var
fundum þingsins frestað þangað til í desember, og ný bráða-
birgðarfjárlög geíin út daginn eptir. Nú þegar þingið kem-
ur saman aptur í desember, verða þau lögð fyrir og ef þau
verða líka felld, má til að leysa upp þingið, til þess að fá
einhverja fjárlaga heimild til þess að krefja inn skatta og
borga út úr ríkissjóði almenn gjöld. Hvað verður, er ekki
gott að segia. Allir búast helzt við nýjum kosningum og
eru nú í óða önn farnir að halda fundi um land allt. Eru
nú flokkaruir þrír, hægri menn, Bergs flokkur og meiri hluti
vinstri manna á þingi. Vinstri menn eru þannig klofnaðir í
tvo andstæða flokka, og eru lítil líkindi til að þeir geti
jnokkurntíma sameinazt aptur.
Kússakeisari befir dvalið hér slllengi með skylduliði sínu,
bg miklu lengur en til var ætlað í fyrstu. Kom það til af
því að rétt áður en h*un ætlaði af stað, fengu krakkar hans
mislingasótt. Sömu veiki fengu ensku prinsainir og prin-
sessurnar og yfir hölui mikil hluti af öllu því konunglega
fólki, sem um þessar mundir dvaldi á Fredensborg hjá kon-
ungi vorum. Jafnvel gamli Hans konungsbróðir fékk ekki
að vera í friði fyrir þeim, og hefir hann þó haft þá áður.
Keisarinn varð því sem sagt að fresta Krðinni þangað til
börnin yrðu frísk, og senda lystiskip sín heim, áður ísa legði.
Hann er nú nýfarinn og fór héðan til Jpýzkalands og þaðan
til Rússlands.
Noregur. Enn situr Sverdrúp og hans ráðaneyti við völd-
in, en misjafnt erú menn nú ánsegðir með hann. Gera
vinstri blöð Norðmanna mjög harðar árásir á ráðaneytið, og
kvað svo rammt að því, að fyrir skömniu setti6t allt ráðaneyt
ið á rökstöla — þeir ráðgja^ar, aem aitja í Stokkhólmi, voru
kallaðir heim til skrafs og ráðagjörða — til þess að ráðgast
um. hvort það ætti að fara fiá, annaðhvort allt eða nokkrir
al' ráðgjöfunum. Varð nú mikil sundruug I ráðaneytinu og
vildu sumir iara frá, og varð meiri hluti ásþví, og sendu
nokkrir af ráðgjöfunum bónarbréf um lausn til konungs. |>ó
gáfu þeir kost á sér að vera kyrrir, ef Jakob Sverdrúp, bróð-
urson Jóbanns Sverdrúps færi frá, en það er einmitt hann,
sem öll óánægjan er risin útaf. En gamliSverdrúp vildi ekki
sleppa bróðureyni sínum. Var nú komið í óvænt efni og
send hraðfrétt til óskars konungs og bann beðinn að koina
til Noregs. Hann kom, og gat hann fengið alla ráðgjáfana
til að vera kyrra. Við þetta situr nú, en óánægjan vex dag
frá degi.
þýzkaiand. Nú ber það heizt til nýlundu, að bæði keis-
arinn og krónprinsinn eru veikir. Keisarinu er nú kominn
á tíræðis aldur. og því kominn á fallanda fót. Er því eigi
kynlegt, þótt hann sé eigi ávallt vel hraustur. Krónprins-
inn er nú kominn uudir sextugt, og eru nú litlar líkur til
að hann nokkurn tíma verði keisari. Hann betir í allt sum-
ar verið mjög lasinn. J>að sem að bonum gengur, er kýli í
kokinu. í sumar var það numið burt af enskum lækni
heimsfrægum. Dr. Mackenzie, og var krónprinziun nokkurn
veginn frísknr eptir pað. j>egar fór að hausta, flutti krón-
prinsinn suður á Ítalíu eptir ráði fyr nefnds læknis, og hefir
bann nú verið þar um bríð. En nú fyrir skömmu fór hon-
um svo að versna aptur, sð hann sendi eptir Dr. Mackenzie.
Hann kom og leizt nú ekki á blikuua. Var nú komið ann-
að kýli i öðrum stað I kokinu, og er það að sögn miklu ill-
kynjaðra en hið fyrra. Voru nú kallaðir allir hinir mestu
„laryngológar“ eða kokfræðingar heimsius til Ítalíu, til þess
að ráðgast um livað gera skyldi. f>eir sitja nú á rökstúlum
þar þessa dagana, og eptir þvi, sem hraðfréttirnar segja, eru
þeir allir i standandi vandræðum, og geta ekki orðið á eitt
sáttir. Lítur helzt út fyrir að kýlið muni ætla að verða
krónprinsinum að banaineini, eptir þvf sem orð íer af.
England. Stjómiu beitir hinni mestu kúgun við íra, eu
þeir trássat við, halda fundi þrátt fyrir allt bann og ervarp-
að i dýflizu unnvörpum. Gladstone gamli heldur hverja ræð-
una á fæturannari á móti þessari aðferð stjórnariunar, ogír-
um í vil, og það sama gera margir hinna merkustu) stjórn-
skörunga Englands af hinum frjálslynda flokknum.
Frakkland. þingið er fyrir skömmu komið saman. J>að
fyrsta, sem það gerði, var að skipa nefnd til þess, að rann-
saka ákærur, sem færðar hafa verið fram á móti Vilson,
tengdasyni gamla Grevýs forseta. Hann ersakaðurumaðhafaút-
vegað mönnum „orður“ og selt liðsinni sitt við háu verði.
Enu fremur að hann liaíi brúkað stimpil Grevys, tengdaíöður
sins, t'l þess að stimpla með bréf sín, og þanuig Kngið frí-
an flutning á þeim með póstum. Vilson er nú fluttur burt
úr lor8etahölliuni, þar sem banu bjó áður. En þó margir
sé nú sannfærðir um að Vilson sé sekur, eru menn mjög
hræddir við að fara langt út i málið vegna Grevys gamla.
Eru menn hræddir við ad hann kunni þá að segja af sér, ea
bann vilja menn fyrir engan mun míssa úr forsetatigninni,
og kveður svo rammt að, að allir flokkar eru þ&r á ein
méli. Menn þykjast engan forseta geta fengið annan eina.
„Nordurljósið”.
Norðurljésið telur ér sitt frá nýári til nýárs. Næata ár
koma út minnst 20 arkir og kosfca 2 krónur, er borgist fyr-
ir lok iúlím. næstkomanda.
Söluskiimálar. {>eir, sem selja 10 eint. eða fleiri, og
standa skilum á andvirðinu á réttum tíma, íá % hluta þess
í sölulaun, en þeir, sem selja 4—9 fá */«•
j>eir kaupendur, sem borga blaðið í tíma, fá í kaupbæti
sérprentaða mynd stóra og vandaðaaf einum hinum merkasta
núlifaudi íslenzkum bónda.
Uppsögn á blaðinu er bundin við áramót, og ógild
nema bún komi skrifleg til ritstjórans fyrir nýár.
Auglýsingar eru teknar í blaðið fyrir 15 aura, hver heil
líua eða partur úr línu, af vanalegu letri, eða 90 aura hver
pumlungur dálks. Engin auglýsing kostar þó minna en 25
aura. Hið lama gildir um þakkarávörp æfiminnmgar og
eríiljóð.
j>eir, sem útvega 5 eða fleiri nýja kaupendur að Norð-
urljósinu og ibyrgjast skilvísa borgun áandvirði þess, fá, ef
þeir æskja þess, auk ákveðinna sölulauna, ókeypis eitt eða tvö
eiut. (eptir því hvað margt þeir selja) af 1. og 2. árg. Norð-
urljóssins.
*
Eins og ofanrituð augl. ber með sér, höfum vérákveðið að gefa
NerðurljÓ8ið út næsta ár í þeirri von að menn veiti því enn
sem fyrri góðar viðtökur.
Allir skynberandi menn munu á þeirri skoðun að nauð-
synlegt sé að eitt blað að minnsta kosti, komi út á Norður-
landi. Vér vonum því að menn almennt reyni að styrkja
blsð vort með því að kaupa það og útbreiða, en sérstaklega
viljurn vér leyfa oss að mælast til að allir góðir Norðlend-
ingar reyni «ð styðja og efla þetta eina blað, sem þeir eiga
nú sem stendur.
J>rátt fyrir það þótt illa gangi að innheimta borgun
fyrir blaðið, og litlar líkur sé enn til þess að það beri sig í
peningalegu tilliti, þá höfum vér ákveðið að láta skilvísa
kaupendur fá geíins með næsta árgangi sérprentaða mynd
af nú lifandi íslenrkum manni, sem óhætt má telja einn
hinn helzta íslending um flesta hiuti. Myndin verður prent-
uð í Kaupmh. og vel vönduð. Höfum vér hugsað oss að
senda bana í vor eða snemma sumars til útsölumanna Norð-
urljóssius til útbýtingar meðal kaupendanna. j>etta hlýtur
að verða oss ærið kostnaðarsamt, en aptur á hinn bóginn get-
um vér ekki betur séð en þetta sé talsverð hlunnindi^ fyrir
kaupendurna, og því góð meðmæli með blaði voru. Er það
ætlun vor, að kaupendum muni geðjast betur að þessu, en
að fá mynd í blaðmu sjálfu, og enda þótt fleiri væru. J>ær
hljóta að taka af talsvert rúm, og það, sem verst er, verða
aldrei vel góðar, því bæði vantar hér hæíilegan pappír, áhöld
og enda kunnáttu til að prenta myndir.
Að svo mæltu kveðjuin vér alla kaupendur Norðurljóss-
ins, og aðra góða menn, er lesa það eða heyra, og þökkum
þeim fyrir gamla árið og óskum að þeim verði gott og far-
sælt hið nýja. Páll Jónsson.
Ábyrgðarmaður cg ritstjöri Páll Jónsson.
Prentsraiðja'. Bjöms Jónssoaar