Norðurljósið - 22.09.1891, Blaðsíða 1

Norðurljósið - 22.09.1891, Blaðsíða 1
9 •Stærð 24 arkir. Verð: 2 krónur. Borgist fyrir lok júlí. Verð auglýsinga; 15 aura línan eða 90 a. hver þml. dálks. 18. blað. Akureyvi 22. september 1891. BURTFARARMINNI Stefíins sýslumanns Thorarensens. Sungið í samsæti Eytirðinga á Espihóli 15. ágúst 1891. Lagið: Fósturjörðin fyrsta sumardegi. Góði vin, sem kveður fjörðinn fríða, íeðra pinna og mæðra lukkureit, aldir tvær við lán og blessun blíða byggði kyn pitt vora mildu sveit; stofninn græddi Grrenivíkin kalda, góðar dísir héldu sjálfar vörð, meðan lauf og limar gjörðu falda lagagreinum tíginn Eyjafjörð. Nú ert einnig pú til brautar búinn; bezti vin! vér tæmum pína skál; prjátíu’ ára friðartíð er íiúin frá pvl hjá oss hófstu lagamál. Úti brak og brestir sífellt dundu, blóð og eldur íióði vítt um jörð, kongafans og keisaraveldi hrundu: kyrt var allt við gamla Eyjafjörð! Garibaldi ræðst á Róm og Púli, rammur Bismarck veður fram sem ljón, deyðir allt, svo dunar norður á Thúle*: Dani, Jósef, Erakka, Napoleón; Lincoin spaki, Garfield góði deyja, gjöreyðendur hefja fimbulstríð, Rússadrottni refsilogar fleygja: ríki pitt var friður alla tíð! í peim friði, fjarri heimsins solli, frækorn margt til bóta sprait oss hjá; héraðsbær hjá björtum mararpolli bautasteinu pinn, vinur, kallast má; Meira voru margir valdsmenn ræmdir, mildin var pér kærri’ en bókstafs rök, nauðugt opt pú breyzka bræður dæmdir: bróðir kær, vér reiknum ei pá sök! Hvað er gott við grimmd og stríð og reiðí? getur nokkuð eldur sigrað bál? sólu guðs, sem brosir blítt i heiði, betur vinnst en ykkur, logi og stál. — Yertú sæll, er samdir frið og kenndir, • sáttir bræður leiða pig á braut; Jieill og gleði — hvar við land sem lendir — láti Drottinn falla pér í skaut! Far pá vel! En — hví skal burtu halda? hallar ei til viðar pinni sól? mun par úti minni vetraralda? mun par úti hlýrra vinaskjól? — Dimmi, kólni, hverf pá heim til pinna; iivergi flýrðu pó hið stóra húm; hjá oss áttu hinnstu værð að finna, hjá oss er pér guðvelkomið rúm! 6. ár. Bráðum hverfur sól af Súlutindum, svo mun haust og vetur fylgjast að; svo rís aptur ljós af austurlindum, laugar nýju gulli fjörð og stað: pá mun, Stefán, stefnt fram pínu minni, (stundum leynast beztu kostir manns): »Mildin fer á undan samtíð sinni« sagt mun pá — »og lifi minriing hans!< Matth. Jochumssou. Aðalfiiiidur Gíránufélagsms. Arið 1891, miðvikudaginn 9. september kl. 12 á hádegi, var aðalfundur Gránufélagsins settur og haldinn á Vestdals- eyri ■ Seyðisfirði. Úr feiagsstjórninni var aðeins mættur 1 riðbjörn Steinsson og hafði hann umboð frá hinum öðrum í iélagsstjórninni að setja fundinn og sjá um að hann væri haldin samkvæmt lögum félagsins , og að halda uppi svörum fyrir stjórn félagsins. Friðbjörn Steinsson tók sér til að- stoðar Jakob Gunnlögsson fulltrúa úr Raufarhafnardeild til að skrifa upp hina mættu fulltrúa, og voru pessir rnættir: Úr Papaósdeild: Jón prófastur Jónsson Stafafefli Ur Djúpavogsdeild 1. Hóseas Bjarnason Höskuldsstöðum. 2. Ari Brynjólfsson Heyklifi. Úr Seyðisfjarðar og Eskifjarðardei ld: 1. Kristján verzlunarmaður Hallgrímsson Seyðisfirði, 2. Sigurður prófastur Gunnarsson Valpjófsstað, 3. Hjálmar hreppstjóri Hermannsson Brekku, 4. Guttorrnur búfræðingur Vigfússon Strönd, 5. Sigurður bóndi Einarsson Hafursá Úr Vopnafjarðardeild: Vigfús kaupmaður Sigíússon Vopnaíirði. Úr Raufarhafn ardeild: Jakob Gunnlögsson verzlunar- stjóri Raufarhöfn varafufulltrúi. Úr Húsavíkurdeild var enginn mættur. Úr 0ddey ra rd ei 1 d: Jporsteinn hreppsnefndaroddviti Dan- íelsson Skipalóni. Úr Siglufjarðardeild var enginn mættur. Kaupstjóri félagsins var ekki mættur. þá var kosinn fundarstjóri Friðbjörn Steinsson og skrifari Jakob Gunnlögsson, með 9 atkvæðum livor. — Kom pá til umræðu sem fylgir: 1. Fundarstjóri skýrði frá, að kaupstjóri hefði eigi getað mætt á pessum íundi. Síðasti aðalfundur hefði gefið honum ieyíi til að vera við brúargjörð á Suðurlandi í sumar, og las hann upp bréf frá kaupstjóra til fundarins, par sem hanu sýndi fram á, að sér hefði eigi verið unnt að mæta á pessum fundi. I téðu brétí skýrði kaupstjóri og frá, að stórkaup- maður F. Holme hefði getíð eptir af skuld félagsins næst- liðið ár 6000 krónur, og enn fremur nú í suinar 3 0, 00 0, sem afmælisgjöf, og var framlagt bréf frá stórkaupmanui F. Holrne sjálfuin, pessu til sönnunar. 2. Var samþykkt i einu hfjóði, að málfrelsi hefði á fundinum menn sem eigi væru fulltrúar, ef peir væru eig- endur hlutabréfa, pó með pví móti, að fulltrúar félagsins gengi jafnan á undan, og aðrir en peir heíðu eigi ieyíi tii *) Thule = ísland.

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/204

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.