Norðurljósið - 30.11.1893, Qupperneq 4
132
Skipströnd »Alfreð« eign Örum & Wulff rak
upp á Húsavík 1. þ. m. með k.jöti, lýsi, gærur, ull, etc.
og Málfríður frá Duus verzlun i Keflavík strandaði
nýlega á Eskifirði fermt síld. Mannbjörg á báðum
skipunum.
Fyrirlestur um hag kvenna á íslandi hjelt
fröken Ólafía Jóhannsdóttir i kvennfjelaginu danska í
Höfn 28. sept. síðastl.
Björn kaupmaður Kristjánsson fór, eins og
kunnugt er, með ailmargt fje frá pöntunarfjelögum
þeim, er hann veitir forstöðu, til Skotlands í haust á
gufuskipinu »Alpha« frá Hamborg, en varð fyrir því
tjöni, að 239 fjár dó á leiðinni, og er til Skotlands
kom, tók ekki betra við. Samkvæmt enskum lögum,
er nú gilda, um innflutning á lifandi fjenaði hjeðan,
má ekki ferma neitt skip h.jer með fjenað, er skipið
kemur frá fastalandinu, fyr en 3 vikur eru liðnar frá
því, er það leggur af stað frá útlöndum, en »Alpha«
var fermd hjer áður, en sá tími væri útrunninn, því
B. K. vissi ekki um fyrirmæli þessi, Yar því öllu því
fje, er lifandi var, slátrað að boði lögreglustjórnarinn-
ar áður það væri flutt i iand, og selt við lítið verð.
B.jörn Kristjánsson dvelur því enn ytra til að iögsæk.ja
umboðsmann sinn í Leith fyrir t.jón það, er hann heflr
beðið af vangæzlu umboðsmannsins.
Krieger sálugi, sem hafði gefið Landsbókasafn-
inu flestar og beztar gjaflrnar, kvað hafa bætt því of-
an á, að ánafna því bókasafn sitt, eptir sinn dag, að
svo miklu ieyti, sem konunglega bókasafnið í Höfn
þyrfti ekkí að vinsa úr því handa sjer, en vonandi er
að æði mikið verði eptir samt sem áður. (Sunnanf.).
W. Christensens verzlun.
Nýkomið með »Laura«:
Allar nauðsynjavörnr.
Kartöflumjöl.
Mejeriostur.
Limburgerostur.
Spegepölse, ágæt.
Vindlar.
Reyktóbak, ýmsar tegundir.
Margbreyttur glysvarningur, m.jög hentugur til jóla
gjafa, og margt fleira. Allt selt með lægsta verði
móti peningum út i hönd.
TJllarkambar fást í
verzlun Sturlu Jónssonar.
Með »Laura« hefl .jeg fengið: stórt úrval af vindl-
um, reyktóbaki, cigarettum og cigaretpappír.
Sömuleiðis stórt úrval af handsápu með ýmsu
verði. Oturskinnshúfur, húfur handa kvennfólki og
börnum, barnaspil á 10 aura, ýmislegt leikfang handa
börnum, töjblákku í dósum og margt fleira.
G. Sch. Thorsteinsson
Aðalstræti 7.
Kartöfiur eru nýkomnar í
verzlun Stnrlu Jónssonar.
Nýkomið í
yerzlun (j. Zoega & Co.
Mikið úrval af fallegum smásjölum, mjög ódýrum
Mikið úrval af
Tvisttauum og
Segldúk
Hár-elixir, sem eykur hárvöxtinn og varðveitir
lit hársins óbreyttan alla æfl, er nú nýkominn aptur í
verzlun Sturlu Jónssonar.
Hyggið að!
Undirskrifaður heflr til sölu, nú þegar og fram-
vegis, ýmsar mjöltegundir frá verzlunarhúsinu »Actie-
selskabet De forenedeDampmöller i Kjöbenhavn«. Mjölið
verður selt fyrir hið lægsta verð, er þá við gengst,
þegar póstgufuskipið i hvert skipti leggur á stað frá
Khöfn hingað til lands, með að eins viðbættu flutn-
ingsgjaldi og hinum óhjákvæmilegu útgjöldum.
Nú kostar gr. rúgmjöl, 200 pd., ... 14 kr. 50 a.
Extra Bageri Valse Flormel, pd...........11 -
— Superfint —------— .... 10—11 -
— ---Rugsigtemel —.................9 -
utan poka. Allt seit í heilum sekkjum mót borgun út
í hönd.
Reykjavík 27. nóvbr. 1893.
Helgi Helgason.
(Pósthússtræti 2).
Nýprentaðlr
Barnasálmar eptir Valdímar Briem fást hjá öll-
um bóksölum og kosta í bandi 50 aura.
Sigurður Kristjánsson
Nýprentað:
Dauðastuntliii, kvæði eptir Bjarna Jónsson
stúd. mag. í Kaupmannahöfn, fæst hjá öllum bóksöl-
um. Kostar 25 aura.
Sigurður Kristtjánsson.
Leiðrjetting. I síðasta blaði stendur: »Þorláks bisk-
ups Þórarinssonar*, í stað: Þórhallasonar.
Ritstjóri:
Hjálmar Sigurðarson realstúdent.
Prentsmiðja ísafoldar 1898.
Heit og góð ullarvesti, prjónuð, handa karlmönnum.