Óðinn - 01.09.1905, Síða 3

Óðinn - 01.09.1905, Síða 3
ÓÐINN. 43 Sveinninn hyggur, að þar muni gott að vera, en þegar faðir hans segir honum fiá, að menn búi þar við áþján klefka og keisara og bóndinn sje þar ekki frjáls maður, finnst sveininum þó mun betra að búa í SA'issnesku dölunum, En áþjánin var nær sjálfum þeim en þá uggði. Nú höfðu þeir gleymt að taka ofan fyrir hatti keisarans. Varðliðar keisarans komu og handtóku þá fyrir þessa óvirðingu, en það kom Gessler fó- geta vel. Honum hafði orðið það á einu sinni að blikna fyrir Tell, bóndanum svissneska. Þeir höfðu einu sinni, erTell var á gemsuveiðum, mætst í ein- stigi uppi á háfjöllum, og Tell hefði þá getað hrynt fógetanum fyrir björg; en Tell var meinlaus mað- ur og gerði honum ekkert. Gessler hugsaði hon- um þó þegjandi þörfina upp frá því, hugði að láta hann kikna fyrir sjer einhvern tíma, og nú bauðst einmitt tækifærið. Tell hefur sýnt keisaranum óvirðingu. Tell er dauðasekur. En hann getur unnið sjer það til Iífs, úr því hann er svo mikill íþróttamaður, að skjóta epli af höfði sonar síns í 100 feta fjarlægð. Svo hljóðaði dómur Gesslers. Tell kemst í ákafa geðsliræringu; hann vill heldur deyja, en hætta á skotið. En dreingurinn hefur tröllatrú á bogalist föður síns, setur eplið á höfuð sjer og horfir á hann opnum, broshýrum barnsaugunum. Tell á ekkert undanfæri. Hann skýtur, eplið hrýtur og dreinginn sakar hvergi. Það vai frægðarskot! En Tell hafði stúngið á sig annari ör en þeirri, sem hann skaut. Þessu hafði fógetinn tek- ið eptir og grunaði, að eitthvað mundi undir búa. Hann eggjar Tell á að segja sjer það, og Tell er þá nógu opinskár til að lýsa yfir því, að ef dreing- inn hefði sakað, þá hefði hann ætlað að koma lítið eitt við hjarta fógetans með hinni örinni, og mundi hann þá hafa hæft betur. Gessler segir þá, að hann hafi að vísu heitið Tell lífi og griðum, en hann megi þó nú til að liafa hann með sjer og láta gæta hans einhversstaðar, þar sem hann sjái ekki til að fara með boga sinn, svo hann megi lifa óhultur fyrir örvum hans. Lætur hann svo fjötra Tell og fer með hann á skip, til Kussnacht, til þess að varpa honum í neðanjarðar-dýflissu. Þá lýstur aftur á ofsaveðri. Dauðinn er vís Gessler og gæðingum hans, nema Tell sje settur undir stýri og vilji bjarga þeim. Það verður úr. Tell stýrir þángað til hann kemst fyrir tanga einn í vatninu og veðrinu slotar. Þá fer hann svo nærri landi, að hann getur lient sjer af skipinu á land. Það var hreinasta Flosastökk, og heitir þar síðan Tellsklöpp. En Gessler viHist ótækt að veita fionum eptirför og hjelt því áfram ferðinni til Kússnacht. Það er verið að halda brúðkaup í Kússnacht og brúðarförin tefur fyrir Gessler og föruneyti hans, þegar þeir koma á land. í gilinu fyrir ofan bæinn kastar konugarmur sjer fyrir hest Gesslers og bið- ur manni sínum griða, en Gessler daufheyrist við þeim bænum sem öðrum. Þá er dómurinn yfir honum sjálfum upp kveðinn. Tefl hirtist á brún- inni uppi yfir gilinu, miðar á Gessler og hæfir svo, að liann steypist af hestinum og er þegar örend- ur. Honum entist þó tími til að kannast við örina lians Tells. Harðasti fjöturinn er brostinn, fógetinn er drep- inn, og fregn kemur um, að keisarinn sje dauður. Bróðir hans hefur orðið honum að bana og fer um eins og flóttamaður. Bændur reka her Austur- ríkismanna al' höndum sjer og Fjögraskógafylkin eru nú aptur fráls orðin. Leikurinn endar á fagn- aðarópum bænda fyrir þjóðheljunni Vilhjálmi Tell. Og enn lifir minning hans sögunum vafin í Fjögra- skógafylkjunum við hina dýrðlegu músík Bossinis. Þjóðirnar þurfa að hafa eifthvað til að tigna, og svo dýrka Svisslendingar Tell, þó liann liafi ef' lil vill aldrei verið til. Hann á að hafa verið uppi um 1300 og dáið um miðja 14. öld, farist á því að bjarga barni úr lífsliáska; en Svisslendingar tigna hann sem þann, er hafi borgið frelsi þjóðar- innar. Um það eru þó sagnir einar, og sögnin um eplið er ævagömul og annarstaðar að. Hún er til bæði á Indlandi og í Persíu og eins á Norður- löndum, i sögninni um Pálnatóka. En síðan Schiller reit sagnaleikinn, trúir hvert barn í Sviss þvi, að hún eigi við Tell einan. Og enn lifir minning hans svo ríkt í liuga æskumannsins þar um slóðir, að þegar úngir menn, eins og siður er til um endi- lánga Sviss, æfa sig í skotbökkum á sunnudögum, er það vana viðkvæðið: »Skjóttu sem Tell og skammastu þín ekki fyrir«. Agnst JBj a.rnason.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.