Óðinn - 01.09.1905, Side 7

Óðinn - 01.09.1905, Side 7
ÓÐINN. 47 Nýjar bækur. Pyrnar. Nokkur kvæði eftir Þorstein Erlingsson. Önnur prentun aukin. 244 bls. 8°. Það eru nú 8 ár síðan Þyrnar komu fyrst út og er sú útgáfa laungu uppseld. Fáum bókum hefur verið hjer betur tekið, og fá íslensk skáld hafa náð almenningshylli jafnfljótt og Þorsteinn Erlingsson. Kveðandi hans var gamalkunnug og þjóðkær, en að efni var kveðskapur hans að ýmsu leyti nýstárlegur. Þar valt fram byltingaalda utan úr heimslífinu. Á jeg þar einkum við hinar skörpu árásir hans á trú og kirkju. Þetta tvennt mark- aði afstöðu manna til kveðskapar hans, og var þó helst svo, að um kveðskaparsnildina voru allir á einu máli, en skoðanirnar áttu bæði meðhaldsmenn og mótstöðumenn. ^ Nú eru þessi kvæði komin hjer út á ný. En bókin er miklu stærri en áður. Góður þriðjúngur hennar er nýr, eða jafnvel nær helmingur. Menn munu nú fyrst spyrja, hvort þessi ýngri kvæði sjeu lík hinum eldri, eða, hvort höfundurinn hafi mikið breytst. Yrkisefni hans eru lík og áður, og lífsskoðun hans hin sama nú og þá. En vart verður því haldið fram með rjettu, að ýngri kaflinn sje í heild sinni jafngóður hinum eldri kvæðum. Þó hefur hann einnig ágætis kvæði að færa og snildarvel ort. Svo kalla jeg t. d. »Kveðju«, á bls. 146. Kvæð- ið á við það tækifæri er höf. kveður Danmörk og heldur heim til íslands. Fyrsta vísan er svona: »Bannað er mjer nú brosið þitt, brúðurin er að kalla; gráttu það ekki, gullið mitt, gesturinn kveður alla. Nú er mjer mætust meyjan blárra fjalla«. Svo leikandi og hvíslandi er kvæðið allt til enda. »Saungvarinn« er og ágætt kvæði, sömu- leiðis »Ljónið gamla«. »Lóuljóð« er lángt kvæði og dýrt kveðið, allt hringhendur, margar vel smellnar. »Ljósálfar«, »Aldamótaljóð«, »Steindep- ilsljóð« o. fl. eru ort með hinni einstöku lip- urð, sem menn kannast við frá mörgum eldri kvæð- um skáldsins. »Afmæliskvæði til Guðrúnar« er eitt af góðu kvæðunum og sömuleiðis »Afmælisvís- ur« á bls. 203, en hefðu verið betri ef 3 síðustu erindin hefðu verið felld aftan af. Nokkur tæki- færiskvæði og vísur eru í bókinni, sem fremur verða að teljast ljettmeti; en fátt er þar af því tægi. Loks skal jeg minnast á leingsta og efnismesta kvæðið af þessum nýrri ljóðum. Það heitir »Eden«. Höfundurinn heimsækir Edenbúa og lýsir því sem þar ber fyrir augað. Kvæðið er lángt, eitt af leingstu kvæðum hans, en svo bætast þar við athugasemdir í ljóðum neðanmáls. Þetta er eina kvæðið af hin- um nýrri, sem orðið getur hneixlunarhella við- kvæmum sálum. Jeg tel mig ekki til þeirra. En þó líkar mjer kvæðið hvergi nærri vel. í það vantar alvöruna og biturleikann úr eldri ádeilu- kvæðunum, en í stað þess er komið eitthvert hálf- kæringsskop, sem hittir ekki nærri alstaðar naglann á höfuðið. Fyrsta neðanmálsvísan finnst mjer ó- smekkleg. En kvæðið er vel ort og fyndið með köflum. Einna bestur er kaflinn þar sem höf. talar við íslensku skáldin. Hann talar þar við Jónas og Sigurð Breiðfjörð; og fyndin er vísan efst á bls. 230: »Þar hóf sig þó einn upp úr húngri og nauð« o. s. frv. Munu flestir skilja, hvert því skeyti er stefnt. En þó laglega sje þar skotið, mun fuglinn, sem fyrir verður, eftir sem áður sitja hnarreistur á tindinum. Frágángur á bókinni er hinn besti, vönduð mynd af skáldinu framanvið og bindið smekklegt, með þyrnirós á forsíðunni. Ágúst Bjarnason: Yfirlit yflr sögu mannsandans. I. Andatrúin og framþróun trúarbragðanna. Rvík 1905. 74 bls. 8°. Höfundurinn hefur 4 síðastliðin ár haít styrk frá sjóði Hannesar Arnasonar og stundað heim- spekisnám í Þýskalandi og Kaupmannahöfn. En áður hann fjekk styrkinn hafði hann tekið heim- spekispróf við háskólann í Khöfn. Siðastliðinn vetur flutti hann fyrirlestra um heimspeki hjer í bænum. Þessi bæklingur er inngángur til trúarbragða- sögu, sem höf. ætlar síðar að gefa út og lýsa á höfuðtrúarbrögðum heimsins, en það rit hugsar hann sjer að verða skuli inngángur til heimspek- issögu og lýsingar á heimspekis-fræðikerfum síð- ari alda. í þessum ritling sýnir höfundurinn hvernig guðs-hugmyndin fullkomnast og átrúnaðurinn tek- ur breytingum samfara menntun mannkynsins. Framsetningin er ljós og efnið því hverjum manni aðgeingilegt.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.