Óðinn - 01.04.1910, Page 1
OÐINN
1. BLAÐ APRÍL 101O. i VI. ÁH
Jón Magnússon
bæjarfógeti.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, Jón Magnússon, er
fæddur að Skorrastað í Norðfirði 16. janúar 1859.
Faðir hans, síra Magnús, var þar þá prestur. Hanu
iluttist siðan að
Laufási í Suður-
Þingeyjasýslu, eftir
fráfall síra Bjarnar
Halldórssonarl883,
og þar andaðist síra
Magnús fullra 70
ára að aldri 19.
dag marsmánaðar
1901, og var hann
þjóðkunnur prestur
og mest fyrir út-
breiðslu bindindis
og rit um það mál.
Síra Magnús var
Jónsson bónda á
. Víðitnýri. Kona .
síra Magnúsar og
móðir Jóns bæjar-
fógeta, frú Vilborg,
lifir enn, og er Sig-
urðardóttir, bónda
á Hóli í Kelduhverfi.
Jón varð stúdent
frá Latínuskólan-
um 1882 með 1.
einkunn og sigldi
til báskólans og
las lög. Þá brast
liann efni til að
halda áfram námi,
. er garðsvistinni .
lauk; hvarf liann
þá heim og var 4 ár skrifari hjá Júlíusi amtmanni
Havsteen á Akureyri. Telur Jón sjer það hafa
verið hin bestu námsár. Var Júlíus liinn mesti
reglumaður í allri embættisfærslu og maður raun-
fróður í lögnm. Eftir það sigldi Jón aftur til
liáskólans og tók embættispróf í lögum 1891 með
1. einkunn.
Sama árið verður Jón sýslumaður í Vest-
mannaeyjum og gegnir því embætti í 5 ár. Það
er hæg sýsla og um leið eitt sveitarfjelag, og góður
og gegn sýslumað-
ur verður þar að
sjálfsögðu forgöngu-
maður í fjelagsmál-
um og framkvæmd-
um, vilji hann það
á sig leggja. Og
svo varð um Jón
sýslumann, þennan
fremur stutta tima
sem hann var í
Eyjunum. Hann er
starfsmaður mikill,
áliugasamur og um
leið hinn samvinnu-
þýðasti. Vestmann-
eyingar unnu hon-
um hugástum og
vann hann þeim
. margt til bóta. .
Hann var helsti
forgöngumaður að
því að stofnað var
. Framfarafjelagið,.
sem er jarðabóta-
fjelagið í Eyjunum
og hefur uunið tölu-
vert frá því, er stofn-
að var. Hann gekst
og fyrir stofnun
Nautgriparæktar-
fjelagsins þar. Eins
var hann aðalmað-
urinn í því að koma upp Sparisjóði Eyjar-
skeggja.
Þrisvar hafa Vestmanneyingar kosið Jón á