Óðinn - 01.01.1912, Page 4
76
ÓÐINN
til áður. Hann er hagleiksmaður og sjerstaklega
þykja bátar vandaðir að lagi eftir hann.
Hugrekki og dug Snæbjarnar hefur Iengi verið
við brugðið, og oftast fer svo, að hann verður íljótt
foringi fyrir hverju máli, er hann veitir fulltingi,
eða hinn fremsti í flokki andstæðinganna, þar sem
hann legst á þá sveifina, enda fylgir liann fast
fram, bæði leynt og ljóst, hverju málefni, sem hann
tekur að sjer.
Snæhjörn er maður gesti-isinn og höfðingi
heim að sækja. En hitt er þó enn meira vert,
hve hjálpfús hann er við snauða menn; hefur
hann oft miðlað mörgum af afla sínum, og er
það ættgengt, þvi að bágstaddir menn átlu þar
löngum athvarf, er móður hans var.
Guðrún kona Snæbjarnar hefur jafnan verið
manni sínum samhent að hjálpsemi. Þau eiga
góð og efnileg börn; þau hafa alls átt 8 börn og
eru 4 á lífi: Ólína Kristín, kona síra Jóns Þor-
valdssonar á Stað; Hafliði Þórður á Stað, kvæntur
Matthildi Jónsdóttur frá Skeljavik, Einarssonar;
Jónas Jón, trjesmiður í Reykjavík; Ingibjörg Guð-
rún, heima hjá foreldrum sínum. Einn son mistu
þau uppkominn, Kristján Pjetur í Haga (d. 13.
febr. 1908, 29 ára) kvæntan Hákoníu Johnsen
Hákonardóttur á Hreggsstöðum Snæbjörnssonar.
Kristján sál. var einn af þessum ágætismönnum,
sem úr öllu vilja bæta.
Þeir menn, sem standa jafnframarlega í fylk-
ingunni í fjelagslífinu eins og Snæbjörn, fá bæði
þakkir og álas, og er hann víst engin undantekning
í því efni. En samróma álit mun það vera og
verða, að þar, sem hann er, sje sannnefndur höfð-
ingi i bændastjett vorri. ^
SL
Ketill Ketilsson dbrm.
13. maí 1902 andaðist í Kotvogi í Höfnum í
Gullbringusýslu Ketill Ketilsson dbrm., og hafði
hann þá búið í Kotvogi mesta rausnarbúi í 42 ár.
Hann var fæddur 23. júlí 1823 á Svalbarða á
Álftanesi í sömu sýslu. Faðir hans var Ketill
Jónsson, nafnkendur dugnaðar- og atorku-maður,
bróðir Steingríms bónda á Hliði og þeirra mörgu
og merkilegu systkina. Var móðurætt þeirra úr
Skagafirði. En móðir Ketils í Kotvogi var Vigdís
Jónsdóttir Daníelssonar hins ríka frá Stóru-Vogum.
Var hún liið mesta góðkvendi og búforkur. Þau
Ketill og Vigdís
áttu 3 syni, er allir
náðu’ fullorðins-
aldri, en báðir voru
bræður Ketils Ket-
ilssonar andaðir á
undan honum. Vig-
dís andaðist árið
1828, og bjó Ketill
siðan sem ekkju-
maður til þess um
vorið 1831. Þá
fluttist hann með
börn sín og bú að
Kirkjuvogi í Höfn-
um til liúsfreyju
Önnu Jónsdóttur
dbrm. Sighvatsson-
ar í Höskuldarkoti
í Njarðvíkum, sem
þá bjó ekkja í Kirkjuvogi, fyrst eftir Hákon lög-
rjettumann Vilhjálmsson og svo eftir Halldór Gunn-
arsson hreppstjóra þar. Varð Ketill Jónsson þriðji
maður liennar. Þar ólst Ketill Ketilsson upp með
föður sínum og stjúpu sinni, sem gekk þeim bræðr-
um í móður stað, ásamt sonum hennar, Vilhjálmi
og Gunnari, og urðu þeir allir orðlagðir dugnaðar-
menn og merkisbændur.
25 ára gamall gerðist Ketill lausamaður og
bygði þá mjög stóran sexæring, sem hann gerði
út og var formaður fyrir; liafði hann áður verið
formaður fyrir föður sinn. Þá var sjósókn mikil
í Höfnum og fór þangað hið duglegasta fólk úr
sveitunum, sjerstaklega til þessara þriggja formanna,
Vilhjálms, Gunnlaugs og Ketils, sem allir keptu
hver við annan, og mun sú sjósókn og þau afla-
brögð verða lengi í minnum höfð. Árið 1858
kvæntist Ketill Ketilsson ungfrú Vilborgu Eiríks-
dóttur frá Lillalandi í Ölfusi, mesta valkvendi og
búsýslukonu. Áltu þau 7 börn. Dó 1 í æsku. 2.
er Ketill óðalsbóndi og hreppsnefndaroddviti í Kot-
vogi, kvæntur Hildi Jónsdóttur prests Thoraren-
sens frá Stórholti í Dalasýslu. 3. er Ólafur lnepp-
stjóri, bóndi á Kalmanstjörn, kvæntur Steinunni
Ólafsdóttur prests, síðast á Stað í Grindavík. 4.
er Viihjálmur Kristinn sýslunefndamaður, bóndi í
Kirkjuvogi, kvæntur Valgerði Jóakimsdóttur frá
Prestsbakka. 5. er Helga ekkja eftir síra Brynj-
úlf Gunnarsson á Stað. 6. er Vigdís, kona Ólafs
Ásbjörnssonar verslunarmanns í Reykjavik. 7.