Óðinn - 01.11.1913, Side 3
ÓÐINN
59
og við margvísleg tækifæri og jafnan sannfærst
um það betur og betur, að Kristján er drengur
hinn besti.
Kristján er djarfmæltur og óvæginn í orði, ef
því er að skifta; spyr hann þá aldrei að, hvort
þar eiga hærri eða lægri í hlut, eða hvort svör
hans koma sjer vel eða illa. Dómur annara yfir-
leitt um orð hans og athafnir liggur honum í
ljettu rúmi. En hitt mun sannast um afskifti hans
af almennum málum, er tímar líða fram, að víða
hafi hann hagsýnni verið um velferð bæjarbúa en
aðrir, er um þau mál fjalla samtímis, og ekki kæmi
mjer á óvart, þótt vandskipað þætti rúm hans, er
hans nýtur ekki lengur við, sem vonandi verður
enn langt að bíða. Guðm. Guðmundsson.
H.
Molar
úr syrpu »Bjarnar í Gröf«.
Skot.
Jeg leit í æskuskrauti skarta
á »skemtun« eina silkirein;
að elska hana’ af öllu hjarta
er yngissveina skylda hrein.
Mjer virtist hún í einu’ og öllu
svo elskuleg sem best jeg kaus,
og enga fann jeg foldaþöllu,
er fremur virtist tildurslaus.
Með limu smáa, Ijósa brána,
svo liðamjúk, en ekkert »stíf«,
með augun bláu, ennið frána —
mig ástarsjúkan gerði víf.
En þótt nú vildi’ eg vífið unga
í viðjur færa hjúskapar,
ef giftumst, mætti’ jeg eins víst eiga
að yrði hún mjer til skapraunar.
Ejelagslob.
Vísirinn ekki varð að beri. —
Vísir grænn á lyngi hjekk,
rótina stungu eiturormar,
af því vísirinn skaða fjekk.
Vísirinn ekki varð að beri,
visnaði liann því byrgði sól,
geysaði stormur, faldi foldu
frost og snær, svo lyngið kól.
Vísirinn ekki varð að beri,
vökvinn þvarr og frjófgan öll.
Þess er ei von að þróist gróður,
þar sem enginn ræktar völl.
Visirinn ekki varð að beri,
visnaður hnje í móður skaut
eftir skamma eymdaræfi.
Endar dauðinn hverja þraut.
Vísirinn ekki varð að beri.
Vonin ein með honum dó.
Stríðum, keppum fram til frama,
fram í dauðann; þá er nóg.
Enginn má við ofurvaldi.
Enginn kraftur stenst við Hel.
Skiljum svo og sáttir verum.
Sælir, drengir, farið vel! (i894).
Afmœlisvísnr.
Komdu hjer mitt barnið blítt, blessað »fjörið litla«,
heyrðu, hvað mjer lætur lítt ljóðin við að fitla.
Ekki lúin lífs af ferð, laus við allan trega,
árin þrjú að baki beið, barnið yndislega.
Svo það gengur oft, að er unaðsstundin sanna
ekki lengi’ að líða hver lífs á skeiði manna.
Æskan glöð er yndistíð. Auka lifsins gildi
sönnum föður börnin blíð, best er meta skyldi.
Skal því gjalda góðri þökk gleðitima þegna
föður alda öndin klökk, æfi þinnar vegna.
Tímans ráður, ósk mín er alls í kraftar nafni,
veiti náð og visku þjer, víf, með árasafni.
Gleði sanna finni fljóð fjörið meðan tefur.
Babbi þannig búin ljóð barni sinu gefur. (27/io'02)
Við gröfina.
Nú er þetta leiði lagt.
Likamanum veitist friður.
Fyrir eyrum ómar niður;
margt um þennan mann var sagt.