Óðinn - 01.10.1917, Blaðsíða 4

Óðinn - 01.10.1917, Blaðsíða 4
52 ÓÐÍNN trú einni megni að gera — fremur en trúarkenning nokkurs annars kirkjuflokks. Jeg vil nú reyna í sem stytstu máli að skýra þau aðalsannindi, sem þessi trúfræði er grundvölluð á. Guð. Vjer trúum ekki á þrenningarfræðina, eða þríeina persónu guðs. Vjer látum oss nægja sömu trúna og Jesús hafði — þá trú, sem ómar frá hæstu hugsunum vorum og dýpstu tilfinningum. Vjer trúum á guð sem föður vorn — guð, sem ávalt er fús að heyra andvörp vor, hjálpa oss og varðveita oss, það er guð vorrar drottinlegu bænar. Vjer trúum, að staðfesting hans nærveru sjáist nú jafnljóslega eins og hún sást fyrir tveimur eða sex þúsundum ára. Vjer trúum að hann tal- aði til hreinna og trúrra sálna í gamalli tíð, og vjer trúum, að hann ennþá tali til allra, sem heyra vilja hans röddu. Vjer trúum, að allir, sem með hreinskilni leita hans í hans föðurkærleika og speki, muni finna huggun í sorg sinni og styrkleik í breyskleika sínum. Vjer þykjumst ekki gerþekkja guð. Því til eru leyndarmál, sem vjer getum ekki leyst. Vjer látum oss nægja það, sem vjer sjáum í opinberun nátt- úrunnar, í orðum og gerðum viturra manna og í þögulli reynslu vorra eigin sálna. Vjer viljum bíða með þolinmæði, starfa með trúlyndi þangað til að honum þóknast að opinbera oss meira. Jesús. Sögunum um Jesús yfirnáttúrlega getnað og fæðing gefum vjer ekki mikla þýðing fremur en kraftaverkasögunum eða hans líkamlegu upp- risu. Vjer lesum ekki guðspjöllin án skynsamlegs gagnrýnis; heldur álítum vjer Jesúm eins og síns lands og tíma mikla siðbótamann — prestavalds- ins vandlætingasama mótstöðumann, vin hinna snauðu og þjáðu, syndara og sorghlaðinna mis- kunnsaman frelsara, einarðan óvin alls þröngsýni sog skinhelgis, sjálfselsku og harðstjórnar, boðbera frelsisins fagnaðarboðskapar um frið og kærleika; í einu orði kennara, sem kennir oss, hvað mann- kynið geti og eigi að verða fyrir hreinskilinn áhuga eftir að gera skyldu sína og ná fullu og rólegu trúnaðartrausti á guði. Vjer elskum Jesúm og göfgum hann fyrir sjálfs- fórnarlíf hans, fyrir hina blessuðu hreinu kenn- ingu, sem hann kendi, og fyrir það hugrekki og trúartraust, sem fylgdi honum fram í dauðann. Vjer sjáum í Jesúm þann sem guð sendi, fræðara mannkynsins, af því að vjer sjáum 1 honum manneðlið eins og það er, þegar það nær hámarki sínu, og fyrir því, að trú hans á guð, föður vorn, Aflstöðin við Rjúkanfossinn í Noregi. Hjer er sýnd aflframleiðslustöðin við Rjúkanfossinn í Noregi, sem er stærsta verknaðarfyrirtæki Noregs, og ofan til er mynd af forstöðumanni fyrirtækisins, Sam. Eyde, sem einnig vann mest að því, að koma fyrirtæk- inu á stofn, en helstu samverkamenn hans voru þeir Birkeland prófessor, sem einnig er mynd af hjer í blað- inu, og Scott-Hansen verkfræðingur. Aílframleiðslustöðin er nú bráðum 12 ára gömul. Þegar hún hjelt 10 ára af- mæli sitt, 2. des. 1915, veitti hún atvinnu 4000 mönnum, og fjelagið, sem er eigandi fyrirtækisins, rjeð þá yfir vatnskrafti, sem nam 300-þús. h.a. En stórfje kostar það, svo sem kunnugt er, að koma slíkum fyrirtækjum á stofn. og á manneskjurnar, sem syni guðs og bræður, eru þau æðstu hugtök, sem vjer þekkjum í trú- arbrögðum. Maðurinn. Vjer skoðum jnennina eins og verur með ábyrgð; með ábyrgð sjálfra sin vegna og gædda frjálsræði og sjálfsákvörðun. Vjer trúum eins og Jesús, að allir menn sjeu guðs börn. Sjer- hver vor eigi í sjer eitthvert korn af góðu, sem vor skylda sje að láta gróa. Eins og allir aðrir kristnir menn, karlar og konur, játum vjer með sorg og sársauka, að vjer einatt lirösum hvað skyldurækni vora snertir; vjer sjáum kringum oss margar vol-

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.