Óðinn - 01.05.1919, Side 2

Óðinn - 01.05.1919, Side 2
10 ÓÐINN Halldór var giftur fyrir nokkrum árum, danskri konu. Þau áttu tvö börn, það eldra tveggja ára og það yngra ársgamalt. Hans er saknað ekki ein- ungis af hans nánustu, heldur af öllum, sem lærðu að þekkja mannkosti hans, hreinskilni og trúfesti. a. Sl Jakobína Marthinsen, dóttir Jakobs Gunnlögssonar stórkaupmanns í Kaupmannahöfn, andaðist 2. nóv. 1918. Hún var gift manni í Kristjaníu og kom lil Kaup- mannahafnar til þess að vera við jarðarför Hall- dórs bróður síns, en veikt- ist sjálf af spönsku sýk- inni og dó sama daginn sem bróðir hennar var jarðaður. Jakobína var fædd á Raufarhöfn 17. nóv. 1890 og fluttist með foreldrum sínum til Kaupmannahafn- ar árið 1893 og ólst þar upp. Þegar hún var 16 vetra gömul, fór hún til Sviss og gekk þar á skóla og lærði þar nokkrar námsgreinir, þar á meðal frönsku, sem hún þá lærði að tala allvel. Eftir að hún kom frá Sviss, hjelt hún áfram frönskunámi og tók loks próf í frönsku við háskólann í Kaupmannahöfn og varð þá löggilt »translatrice« og eiðsvarinn túlkur í frönsku. Eftir það annaðist hún franskar verslunarbrjefa- skriftir fyrir eitt hið stærsta verslunarhús i Dan- mörku (F. L. Schmidt & Co.), þangað til hún fyrir 3 árum síðan giftist gimsteinakaupmanni í Kristjaníu. Jakobina hafði töluverða og marg- breytta hæfileika og starfsþrek, ekki að eins til skólanáms, heldur einnig til hverskyns hússtarfa, hannyrða og hússtjórnar, og gat gert heimilið á- nægjulegt og skemtilegt og var mjög myndarleg í öllu, sem hún tók sjer fyrir hendur. Hún var framúrskarandi viðkvæm og góð við bágstadda og vildi öllum bjálpa sem best hún gat. Hún var glaðlynd og skemtileg, og allir, sem kyntust henni, báru velvildarhug til hennar, því hún ljet sjer vera umhugað um að gleðja aðra og var trygg og vinföst. Hún var ein af þeim persónum, sem ekki að eins hennar nán- ustu, heldur mannfjelag- inu yfir höfuð, er skaði að missa á besta skeiði lífsins. Hennar er því sárt saknað, ekki einungis af manni hennar, sem lifði með henni i ástúðlegu hjónabandi meðan hennar naut við, foreldrum henn- ar, sem mistu hjartfólgna dóttur, og systkinum henn- ar, sem áttu innilega góðri systur á bak að sjá, — sonur hennar er enn svo ungur, að hann veit ekki, hvað hann hefur mist, — heldur og þjónuslufólki hennar, sem húu reyndist sem besti vinur og húsmóðir, og yfir höfuð öllum, sem lærðu að þekkja hennar ríku og góðu mannkosti. a. Jakokina Marthinsen. Skáldajátning. Eftir Jak. Thor. Nú hef jeg Ijóðað í hálfa öld. Jeg hefi þjóð minni viljað lýsa, frelsið, Ijósið og lífið prísa og láta kærleikann bera skjöld. En sókn mína oft á húm og hrímið hefur það tafið — bannsett rimið. Tíðum er greip jeg hjör í hönd hamslaus að ráða’ á skuggavöldin, kveikja Ijós fyrir löngu kvöldin og leysa af sveitum kvíðans bönd, rimið út úr þvi öllu sneri og áfram skjökti’ eg á brúnni meri. Jeg veit »sú brúna« var bölsýn tóm. Bauð jeg að enginn skyldi treysta neinskonar yl nje ástarneista,

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.