Reykjavík - 29.04.1900, Blaðsíða 1

Reykjavík - 29.04.1900, Blaðsíða 1
-A_TTQ-IJ'2"SI:N' G-_A_- OO l’KETTABLAB. 5. tbl. 1. árg. Árgangurinn (alt að 20—25 tbl.) kostar hér í bænum 25 au., en 50 au., ef sent er með póstum. 29. apríl 1900. Landsbókaaafnið er opið hvern virkan dag. kl. 12 —2 og einni stundu lengur (til kl. 3) á. mánud., miðvikud. og laugard., til útlána. Náttúrugripasafnið er opið á sunnud. kl. 2—3. Forngripasafnið er opið á mvd. og ld. kl. 11—12 árd. Landsbankinu er opinn hvern virkan dag kl. 11—2. Bankastjórnin við frá 12—1. Landshöfðingjaskrifstofan opin hvern virkan dag frá 9—107* 117*—2 °8 4—7- Amtmannsskrifstofan er opin á hverjum virkum degi kl. 10—2 og 4—7. Bæiarfógetaskrifstofan er opin 9—2 og 4—7, hvern virkan dag. Póststofan opin hvern rúmhelgan dag kl. |—2 og 4—7. Aðgangur að Box-kössunum frá 9—9 dagl. Afgreiðsla hins sameinaða gufuskipafélags opin 9 —12 og frá 1—8 síðd. Bæjarstjórnarfundir 1. og 3. fimtud. hvers máu. Fátækranefndarfundir 2. og 4. fimtud. í mánuði. Héraðslæknirinn er að hitta heima 2—3 dagl. Augnlæknirinn er heima kl. 12—2. Ókeypisaugn- lækning á spitalanum 1. og 3. þriðjudag livers mánaðar, kl. 11—1. Tannlæknirinn er heima kl. 11—2. Ókeypis tann- lækning (heim**, hjá lækninum) 1. og 3. mánud. í hverjum mánuði, kl. 11—1. Ókeypis lækning áspítalanum þd. ogföd., kl. 11—V dltvinnu~rógur. I „Fjallkonunni", sem kom út í gær (dagsett í fyrradáfe), stendur grein eftir „Bibliofilo.s1', um aftur- för í bókagerð og prentun. Grein þessi er auðkennileg að því, að það er alveg bersýnilegt hverjum heilskygnum manni, sem til þekkir, að hún er samin í alt öðrum tögangi en þeim, sem hún lætur i veðri vaka. Hún er ekki samin til að vanda um lélogan frágang á bókum að prentun og pappír, því að þá hefði hún auð- vitað snúið sér að því, að finna að fráganginum frá þeirri prentholu, sem aldrei hefir mér vitanlega prentað neina bók, sem ekki er handaskömm að-ytra frágangi. Hún hefði þá e k k i farið að víta frágang- inn á prenti frá Aldar-prentsmiðju, sem vitanlega leysir prentverk af hendi í allra-beztu lagi eftir því sem hór gerist. Greinin er heldur ekki skrifuð til að segja satt, heldur í gagn- stæðum tilgangi. Höf. greinarinnar segir um mig: ,,Hann [Jón Ólafs- son] hefir gott vit á prentun, og hafði valið sór faliegt letur til prentsmiðjunnar, meðan hann átti hana, og haft góðan pappír. “ Af því þetta or hrós í minn garð, er mér ef til vill trúandi til, að ég beri ekki af mór það af því, sem ég á. En það verð ég að segja, að letrið er ið sama í Aldar-prent- smiðju nú, sem ég keypti til hennar í öndverðu, en auk þess hafa eig- endurnir bætt við nýjum tegundum, öllum fallegum. Prentun var ekki nærri eins vel af hendi leyst hjá mér, eins og hún er nú venju- lega í Aldar-prentsmiðju, og kom það af því meðal annars, að ég átti ekki völ á neinum prentara, sem væri vel fær né vanur góðri prentun. Að prentunin er svo góð nú í Aldar-prentsmiðju, er auðvitað að þakka herra Gstlund, sem er einkar vandvirkur og verk- hagur. Misjafn litur (of svart og of grátt) hefir komið fyrir á örk í einni bók, sem ég hefi látið prenta í Aldar-prentsmiðju, og kom það af því, að hr. Östiund var ekki við staddur, meðan hún var prentuð. En slíkt kemur fyjir fult svo oft hjá öðrum prentsmiðjum hér, þótt ekki bætist ofan á að á sömu bók og á sömu örk sé notað nýtt, hreint letur og útslítið og klest eins og t. d. á „Skírni". Höf. talar um prentsvertu af lökustu tegund, og skyldi menn ætla. að það væii Aldar-prent- smiðja, sem notaði hana. Meðan ég átti Aldar-prentsmiðju, hafði ég eingöngu góða enska svertu, sem kostar ytra 1 kr. 80 au. pd., og ætla ég, að engin prentsmiðja hér önnur hafi hversdagslega not- að svo góða svertu. Síðan óg seldi prentsmiðjuna, hafa eigendur hennar not.að sömu svertu, keypta af mér; þar til nú að síðustu, að hr. Gstlund hefir farið að nota enn þá miklu betri og dýrari svertu, svo góða, að ég má fuliyrða, að t. d. „Félagsprentsmiðjan" hefir aldrei haft svo góða svertu á bækur, og ég held helzt engin prent- smiðja hór á iandi. Greinin er auðsjáanlega skrifuð af einhverjum, sem hefir — sjálfsagt fyrir eitthvert tilefni — viijað eða ætlað að gera greiða Félagsprent- smiðjunni, sem kvað hafa heldur lítið að gera. Það er eins og hún sé stýluð af öfund yflr þvi, að Aldar- prentsmiðja heflr nóg að starfa og hefir fengið lofsorð fyrir verk sitt. Þar á meðai hefir i sjálfri „Fjall- konunni" skáldið Bened. Gröndal, sem engin mun neita um smekk fyrir því sem fagurt er, hiósað prentun Aldar-prentsmiðju. „Bjarki" og „ísafold" hafa gert ið sama. Ég á ekkert lengur í Aldar-prent- smiðju, og er ekkert við hana rið- inn. Höf. í „Fjallk.“ segir, að ég hafi vit á prentun. Pangað til hann nafngreinir sig, svo auðið sé að víta, hvort hann hefir það líka, vona ég góðir menn trúi því sem ég hér hefi sagt, ótilknúður af öllum öðrum hvötum en þeirri einni, að óg vildi bera hönd fyrir höfuð þeim, sem ég sé að verið er að reyna að gera rangt til, eingöngu af ili- um og óhreinum hvötum. Rvilc, 28. Apríl 1900. JÓN ÓliAFSSON. mr TIL LEIGU. mi Fyrir einhleypa 2 herbergi Yesturgötu 37. ÁGÆTUR PANELPAPPI (Vægpap), Rúllan, sem klæðir 100 □ álnir kostar kr. 6.50. Hann er sá bezti panelpappi, sem hingað hefir flutst að dómi þeirra, sem reynt hafa. Fæst hjá Sigfúsi Eymundssyni. FATAEFNI: Marínblátt Cheviot og dökkgrá tau, unnin úr íslenzkri ull í norskri uliarvefnaðar-verk- smiðju. Fást keypt í-búð Sigfúsar Eym un dsso u ar. Óvanalega gott verð. ###*##**#*##*#####*##### # Alt frá því á dögura Adama hefir # # klæðaaiiiðið verið að breytast, en # J föt eftir allra-nýjustu tízku geta J # menn ætíð fengið saumuð hjá # # Guðm, SiguB-ðssyni skraddara # Bankastræti 14. # Hvergi eins vandaður frágangur # og ódýreinsoghjá honum. Ábyrgst # að fötin fari vel. $#########*##*##*######$

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.