Reykjavík - 10.12.1900, Side 2

Reykjavík - 10.12.1900, Side 2
82 C(r íœnum. Þann 6. Okt. í haust var stofnað félag hér í bænum, er nefnist „Tafl- félag“. Fyrir stofnun þess geng- ust: hr. Pétur Zóphóníasson verzl- unarni., Sig. Jónsson fangavörður og Sturla Jónsson kaupmaður og eru þ<úr þrír mí í stjórn þess. Yar félagið stofnað með 29 meðlimum, eu nú eru í því 3(í.* Heflr félagið fengið rnjög myndarlegar gjafir frá íslandsvininum prófessor Williard Fiske. Gjaflrnar voru taflbækur (á þriðja hurrdrað kr. virði), 7 ágæt taflborð með mönnuin og 1 ferða- tafl (öll töflin uin 90 kr. virði). Einnig sendi liann verðlaun: önn- ur fyrir bezta tafluppgáfu og hin fyrir bezt teflda skák. Einnigfékk félagið r.ií með „Skálholt" tvenna nafnstimpla o. fl. frá taflfólagi í London (British Chess Club). Fé- lagsmenn koma saman á Laugar- dagskvöldum. Þessir eru álitnir helztir taflmenn hér nú : Björn M. Ólsen rektor, Einar Benediktsson málaflutningsmaður, Pétur Zóphó- níasson verzlunarm, Sigurður Jóns- son fangavörður og Sturla Jónsson kaupm. Þann 18. Nóv. var sjötugasti af- mælisdagur Sigurðar skipstjóra Sí- monarsonar, og mun hann nú vera hættur sjóferðum. Þennan dag var honum haldið samsæti á „Hotel Island" af meðlimum skipstjórafé- lagsins „Aldan". Form. fél., skip- stj. Hannes Hafliðason, talaði fyrir minni heiðursgestsins, var honum við þetta tækifæri gefinn fallegur stafur; einnig hafði verið ort kvæði af Benedikt Gröndal og er þetta niðurlagserindið: „Aldan" og öldur blá allar þér núna tjá lofgjörðar lag. Hvílstu nú, hetja vor! hvergi þín deyja spor, ekki þitt afl og þor, eftir þinn dag! Skemtu menn sér við ræðuhöld, söng og spil fram eftir kvöldinu og fóru svo ánægðir heim. Að morgni hins 19. Nóv. blöktu fánar á hverri stöng í bænurn í til- efni af 25 ára afmæli Thorvald- sensfélagsins. Að kvöldi þess dags hólt félagið samsæti í „Iðnó“, og þó meðlimir þess félags séu ekki vanir að láta mikið yflr því, sem gerist á samkomum þess, þá vita menn samt svo mikið, að sam- sætið var hið skemtflegasta, ræðu- höld etc. Yið þetta tækifæri hafði Bened. Gröndal ort kvæði til frú Þórunnar Jónassen, sem hefir ver- ið forstöðukona félagsins alla tíð, einnig gáfu meðlimir félagsins henni merki þess úr gulli. Þann 20. Nóv. hflt Skautaféla - ið aðalfund sinn. Yar stjórn endu; - kosin, nema í stað Sveins Björn - sonar (hann dvelur nú erlendis) var kosinn GuðjónSigurðsson úrsmiðu . Sunnudaginn 25. Nóv. hélt G.-T.- stúkan „Einingin" 15. afmælisdag sinn. Eins og vandi er til á af- mæli stúk. „Einin.' in“ var þetta mjög skemtilegt. Monn skemtu sér fyrst við ræðuhöld og söng (kó ' karla og kvenna); eiunig söng Jón Jónsson nokkur lög (solo). Ræður héldu: Guðm. Magnússon (íslandi, Borgþór Jósefsson tvær (Einingin og G.-T.-Reglan) og Jón G. Sigurðs- son (systurstúkurnar). Árni Eiríks- son lék og eintal, var það sem vænta mátti ágæt skemtun. Kvæði ortu við þetta tækifæri Guðmund- ur Magnússon og Jónas Jónsson. Að síðustu skemtu menn sér við ýmsa innanhúss-leiki. Þótti öllum afmælishátíðin hin bezta. Með „Ceres“ fór um daginn Gunn- ar Einarsson kaupm o. fl. Trúlofuð eru Lúðvig Hafliðason verzlunarmaður og fröken Jóhanna Bjarnadóttir (frá Reykhólum). Bæjarstjórnarfundir. 6. Sept. 1900. Umkvörtun frá bæjarstjórninni um ófullkomið manntal hér í bæn- um hafði landshöfðingi svarað svo, að dómkyrkjuprestinum bæri sjálf- um að taka manntalið eða þá að láta áreiðanlegan mann eða menn taka það fyrir sína hönd, og skyldi því jafnan lokið fyrir 31. Janúar ár hvert. Nokkurir bæjarmenn höfðu lagt það til, að bæjarstjórnin léti skreyta bæinn eða hafa einhverja viðhöfn hér 31. þ. m. vegna aldamótanna. Það var samþykt, og 3 manna nefnd (Tr. G., H. J., G. B.) falið að standa fyrii' því, ásamt ein- hverjum bæjarmönnum, er hún kýs sér til aðstoðar. Frá landshöfðingja kom tilkynn- ing um, að stjórnin hefði ekki séð sér fært að staðfesta la.ndsspítala- frumvarpið frá síðasta þingi, vegna of lítilla fjárframlaga, en hefði í ráði að leggja nýtt frumvarp*um sama efni fyrir næsta þing, og vildi vita hjá bæjarstjóininni, hve mikið hún muni fús að leggja. til landsspítala- gerðar unifram áður heitnarfl 0,000 kr. Það mál var falið fjárhags- nefnd gog héraðslækni -G. B.) til ihugunar og álitsgjö.ðai Til barnaleikvallar á bæjarstjórn- n kost á að fá fyrir 400 kr. lóðar- pildu, er St. Egilsson á; bíður næsta fundar. Boilleau bauð bæjarstjórninni til aups fjós sitt við Rauðp ;árlæk, en hún vildi ekki. Sótara í vesturhluta bæjarins frá nýári skipaði bæjarstjórnin Þórð G. ireiðfjörð. Fyrirliðar i slökkviliði skipaðir: 'étur Jónsson blikksmið ir, Andrés Bjarnason söðlasmiður, sgeir Sig- urdsson kaupm., Gísli Tómasson verzlunarm., Casper Hertervig gos- drykkjabruggari. Til að semja alþýðusl yrktarsjóðs- skrá kosnir M. B., Sighv., Þ. B. Samþykt brunabótavirðing á húsi H. Andersens skraddara 21,830 kr. + 2,400, (tvíloftað geymsluhús hans); ennfremur á húsi Steindórs Jónssonar trésmiðs við Klapparstig 3,215 og Guðm. Guðmundssonar trésmiðs í Bergstaðastr. 1,590. Dánir I Reykjavíkursókn. 14. Okt..: Frú Margrét Sigurðar- dóttir (33 ára), í Keflavík (var jarð- sett hér 19. s. rnán.). S. d.: Krist- björg Jónsdóttir, stúlka frá Raufar- höfn (26 áraj. Björn Jakopsson, ó- kvæntur, í Bergst.str. 21 (56 ára), fannst druknaður nálægt Kríusteini, 26.: Eyþór Felixson kaupmaður (69 ára), var jarðsettur 3. nóv. 29. : Sigríður Árnadóttir, gamal- menni við Framnesveg (88 ára), 30. : M. Jóhannesson kaupmaður 55 ára), var jarðaður 6. nóv. S. d.: Þorgils Jónsson (33ára), lausa- maður við Lindargötu 31.: Gunn- laugnr Eiríksson ungbarn á Vest- urg. 21 (á 1. ári). 4. nóv.: Jóhanna Magnusdóttir (58 ára), gamalmenni Vesturg. 51. 5.: Benidikt Friðrik- sen, ungbarn við Laufásveg (á 1. ári). S. d.: Jón Blöndal (52 ára), ókvæntur þurfamaður í Hallskoti, vitskertur. 27. okt.: Guðm. Jóns- son sjúkl. á Holdsveikrat-pítala ó- kvæntur (27 ára).

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.