Reykjavík


Reykjavík - 07.09.1901, Page 2

Reykjavík - 07.09.1901, Page 2
2 TsS minnis. Land«l)6kaBnfnið or opið hvern virkan dagt kl. 13—2 og einni stundn lengur (til kl. 3) & Mknud., Mií- rikud. og Laugard.. til útlána. LandsskjaliiPafnið opid á Þrd., Fimtud. og Ld. kl. 13—1. Náttúrugripasafnið er opi<5 á sunnwd. kl. 3—f. riðd. Forngripasafnið er opið á Mvd. og Ld. kl. 11—1. Landshankinn er opinn hvern virkau dag kl. 11—2. Bankastjúrnin við ÍTá 12—1. Söfnunnritjúðurinn opinn 1. Mád. í máru, LL 6—geftðd. Landshöfðingjnskrifstofan opin hvern vititan dag ftft 9--10‘/„ 11‘/,—1 og 4—7. AmtmannMkriftU-f&n er opin ft hvojrjum i irk—i d«gi kl. 10 —2 og 4 —7. Bæiar/6geta»krifttoCnn er opin ruanh. daga 9—3 og 4—7. Páatetofan opin kvern rúmhelgan dag kí. 9—3 o« ft—7. Aðgangur að Box-kÖMunum frk 9—0 dagi. Bejar- pAfltkasaarnir ta*mdir dagt. kl. 7*/, Ard. og 4 «fdd. Afgreiðsla hins s.«.nif*in>íð.i gufuakipafélags opin rdmh. daga frá 8—ll Jurd. og 1—8 síðd. Bttjarstjörnarfunftir 1. og 3. Fimtud, hvcnre mkn. Ffttmkranefndarfundir 2. og 4. Fimtad. 1 mftnuði. Héra/telæknirinn er aðhitta heima 2—3 dagl. Augnlæknirinn rr hcima kl. 12—2, 6keypis augakskn- ing A spitalanum 1. og 3. Þrd. hvers rnftn., kl. 11—1. Tannlæknirinn er heima kl. 11—S. Ókeypis taan- læ> ning heirar hjá lækn. 1. og 3. Mftd. bvers raftn. 11—1. p.'>tekið opið daglega frft 8 ftrd. til 9 a0dL kryj>ÍB lækning á sj'ftalanum Þrd. og FfkL, kl. 11—L reyndar alt. þetta andlega líf streyma inn frá Frakklandi, f’ýzkala.ndi og Englandi og enga rót eiga að réttu lagi í ítaliu; en hann svaraði því, sem einnig var satt, að alt þetta andlega líf gæti vel átt sér stað án þess að veita sérfræðingi í taugasjúkdómum neinar sérlegar t.ekjuvonir; sá, sem væri sórfræðingur í taugasjúkdómum, ætti að réttu lagi að fara þangað, sem þessir sjúkdómar væru tíðastir. Svo varð það úr, að Olney tók það ráð, að halda hoim til átthaga sinna. Og nú hálf iðraðist hann eftir alt saman. Honum fanst alt svo ömur- legt, að hann skildi ekkert í því og hélt þetta kæmi af því, að það væri oitthvað að heilsu sinni. Auðvitað hafði hann aldrei búist við, að hitta margt fólk í bænum um þennan tíma sumars eða geta fengið undir eins að- sókn af sjúklingum; hann hafði að eins búist við, að verða búinn að koma sér vel fyrir um það leyti, að alt taugasjúka fólkið kæmi heim aft- ur til bæjarins að haustlaginu. Og þó fanst honum nú eins og steypt vera yflr sig köldu vatni, þegarhann horfði yflr öll fallegu húsin í Bak-Bay, þar sem auðuga fólkið taugasjúka hlaut að eiga heima, en nú voru þar öll hús lokuð og hierar fyrir glugg- um. Leiðast af öllu þótti honum, að hitta ekki Dr. Wingate heima, því að við hann hafði hann ráðfært sig bréf- lega um heimkomu sína; og þó sá hann ofboð vel, þegar hann hugsaði sig um, að það var ofur-eðlilegt, að Dr. Wingate væri ekki í bænum; þeg- ar alt taugasjúka fólkið úr borginni flytur sig burtu um sumartímann, þá er auðvitað, að taugalæknirinn verður að verða því samferða. Og sarot þótti honum þetta leiðinlegt að hitta ekki Dr. Wingate. Og svo fanst honum býsna dýrt að lifa hór. Hó- tellið, sem hann bjó á, hafði hann valið af því, að þar var svo ódýrt að búa; en þegar hann svo hugsaði tii þess, að hann varð þó að borga hér fyrir sig þrjá dollara um daginn og bar það svo í huganum saman við Flórenz, þar sem hann hafði getað lifað fyrir hálfu minna, þá óx honum þó útgjöldin í augum. Fetta var hann að hugsa um með sjálfum sér og ásetti sér svo að finna ódýrara gisti- hús næsta dag og flytja sig þangað. Olney var ekki kornungur maður lengur; hann var orðinn þrítugur. Pað var ætterni í hans ætt, að verða snemma sköllóttur, enda var hann búinn að fá ofurlítinn mána aftan í hnakkanum. Annars var hann maður all-unglegur, hafði hreinan og ungleg- an hörundslit og mjúkt og mikið skegg, dökkjarpt á lit; og sama lit hafði hárið, það er að segja það sem eftir var af því, og það var alls ekki lítið, því að hann hafði ali-þykt hár, nema bara á þessum litla bletti i hnakkanum, og það var svo hraust- legt, að ekkert útlit var fyrir, að nokkur hæra mundi i það koma fyrir fertugsaldur. Hann var beinvaxinn og rösklegur á fæti, og leit mjög snyrtimannlega út í þessum Lundúna- búningi, sem hann gekk i. Hann sat nú úti á svölunum og reykti, svo sem hálfa stund til að hvíla sig, þvi að hann hafði verið úti að spásséra um kvöldið og var ný- kominn heim. Þegar hann var bú- inn með vindilinn, gekk þann upp á herbergið sitt og fór að hátta. Hann var lengi að aíklæða sig. Og lengi sat hann á rúmstokknum með annan skóinn sinn í hendinni áður en hann mundi eftir því, að hann átti líka að fara úr hinum skónum. Fr.mh, Hondslíornonna ó milli. Prestliólar veittir sóra Halldóri Bjarnarsyni aftur, eins og getið var til áður hér i blaðinu, enda hafði hann haft meiri hluta atkvæða við kosning- una, því nokkrir, sem í fyratu voru taldir á móti honum, höfðu þegar til kom ekki kosningarrétt, svo að meiri hlutinn varð hans megin. Fjárkaup. Kaupm. Sig. Jóhansen á Seyðisflrði heflr tekist að ná samn- ingum um kaup á 2000 fjár í haust við hinn belgiska fjárkaupm., Poel, þann, er D. Thomsen konsúll fékk til að koma hingað til lands í fjárkaupa- erindum i vor. Væri óskandi, að þetta yrði vísir tii meiri viðskifta við þennan mann, og að eigi tækist leng- ur að brjóta á bak aftur tilraunir góðra manna til að útvega góðan markað fyrir fénað og hross frá ís- landi. Tíð eystra góð. Fiskafli i góðu meðallagi og síldarafli á flestum Aust- f jörðum, en» mestur á Reiðarfirði. 7f(r Höfuðafaðnum. tHólar“ komu á Laugardaginn var með fjöida fólks að vanda. Þar á meðal Sig. Sigurðsson kennara Mýrar- húsum, sýslumanu Magnús Jónsson Vestmannaeyjum, Pétur Biering vezl- unarm., Jón Bjarnason verzlunarm., húsfreyju Filippíu Jónsdóttur 0. fi. — Skipið fór aftur í fyrradag með flesta hina sömu og með því komu. Með því fór og trúboði D. Östlund ásamt frú sinni og börnum (alfarið til Seyðis- fjarðar), frk. Ingileif Þórðardóttir, Ein- ar og Eðvarð Friðrikssynir frá Bernu- nesi í Reiðarflrði 0. fl. o. fl. ,Vendsyssel“ kom á Laugardaginn var með vörur þær, er „Laura“ ekki gat tekið frá útlöndum. Iðnaðarmannastyrkur. Af íé því, sem veitt er á fjárlögunum fyrir yflr- standandi ár til Iðnaðarmannafélags- ins til að styrkja unga iðnaðarmenn til utanfarar til að framast í iðn sinni, heflr þessum verið veittur styrkur: Jóni Lárussyni skósmið, Rvik. Jóni Gíslasyui trésmið, Kmhöfn. Jósef Magnússyni trésmið, Rvík. Kristinn Sigurðssyni múrara, Kmhöfn. Lofti Sigurðssyni trésmið, Rvík. Páli Jónssyni járnsmið, Rvík. Bjarnhéðinn Jónssyni járnsmið, Rvík. Herbert Sigmundssyni prentara, Rvík. Utan af landi kom engin beiðni um styrk. Styrktarsjóður handa alþýðufólki. Styrk úr sjóð þessum verður úthlut- að í fyrsta skipti á komandi hausti (i Október). „Styrkurinn veitist heilsu- litlum eða ellihrumum fátæklingum, er eiga heima í Rvík og eigi þyggja sveitarstyrk, án tillits til þess, hvar þeir eiga framfærslurétt, ef þeir vinna eða haía unnið fyrir sér í vist eða lausamensku. — Bréflega beiðni um styrk úr sjóðnuin skal senda bæjar- stjórninni fyrir lok Septembermán.; annars verður henni ekki sint. Beiðn- inni skulu fylgja upplýsingar um það, að beiðandi hafi rótt til að njóta styrksins, og vottorð málsmetandi manns um, að þær upplýsingar séu sannar. “ Bœjargfjórnarfundur. 6. Sept. 1. Lagt fram frumv. fjárhagsnefnd- ar til áætlunar um tekjurgjöld bæjar- sjóðs á árinu 1902. Samþ. að áætl- unin gangi milli fulltrúanna þangað til 2. umr. á næsta fundi á sér stað. 2. Till. íjárhagsnefndar og endur- skoðenda um úrskurð á bæjarsjóðs- reikningnum 1900. Bæjarstj. lagði

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.