Reykjavík


Reykjavík - 27.09.1901, Blaðsíða 2

Reykjavík - 27.09.1901, Blaðsíða 2
2 Til minnis. Lantl8l>6kasnfnið cr opið livern virkan dag, kl, 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) á Mánnd., Mið- vikud. og Laugard.. 1 i 1 útlána. LandRskjalaRafnið opið á Þrd., Fimtud. og Ld, kL. 12—1. Náttúrugripasafnið er opið á Runnud. kl. 2—*. siðd. Kovugripusafnið er opið á Mvd. og Ld. kl. 11—1. L.-indsbankinn er opinn hvern virkan dag kl. 11—2. Bankastjórnin við frá 12—1. Söfnunaréjáðurinn opinn 1. Mád. imán., M. 6— Landshöfðingjaskrifstofan opin hvern vifkan dog ftrá 9- -l0‘/„ 11*/*—2 og 4—7. Amtmannsskrifstofdn er opin & hverjum virkmai d«gi kl. 10 —2 og 4 7. Bœiar/ógetaskrifRtofan er opin rumh. daga 9—2 og 4—7. Péstetofan opin Iivc»rn rrtmhelgan dag kl. 9—2 om 4—7. Aðgangur að Box-kössunura frá 9—9 dagl. Bcejar- pÓPtkassnrnir tirmdir dagl. kl. 71/, Ard. og 4 sfiðd. Afgreiðsla hins smncinaða gufuskipafélags opm rdmb. daga frá 8—12 árd. <>g 1—8 síðd. Bæjarstjórnarfunrhr 1. og 3. Fimtud, hv«-s mim. F*ftt»>kranefndarfundir 2. og 4. Fimtud. i mAnuði. Héraðslæknirinn er aðhitta heima 2—3 dagl. Augnlæknirinn er heima kl. 12—2, ökeypis augalsekn- ing á spitalanum 1. og 3. Þrd. hvers .mán., kl. 11—1. Tannlfrknirinn er lieima kl. 11—2. Ókeypis taun- ln ningheima Jijá Jækii. 1. og3. Mád. hvere mán. 11—1. Api' tekið opið dagloga frá 8 kxd. til 9 slðd. Okeypis lækniug á si>ttalanum Þrd. og FödL, kl. U—1. „Reykjavík“ kemur út á Föstu- dögum (síðdegis). Auglýsingum sé skilað í síðasta lagi á Fimtudags- kvöldum. hafi vevið öfundsverður maður að sumu leyti.“ „Já“, sagði Olney; „hann hefði verið ágætlega lagaður til að komast áfram í veröldu, þar sem ekkert sið- ferðislögmál var til, — ef hann hefði getað fundið einhverja siíka veröld til að lifa í.“ „En haldið þér þá, að siíkt siðferðis- lögmál sé til í þessum heimi?" spurði Mrs. Meredith með svo miklum ákafa, að Olney sá, að sér hafði síður en ekki tekist að slá þessu öllu upp í spaug. Hann gat ekki annað en brosað að því, hvað sér hafði misheppnast. „Um það vil ég helzt ekki ræða við yður, fyr en þér eruð þúnar að sofa vel“, sagði hann. En hún var alis ekki á því að láta talið falla svona niður. „Haldið þér sannarlega, að nokkur maður geti lifað lífi síny í einni sam- fleittri lýgi?“ spurði hún. „Haldið þér, að Tító hafi i rauninni getað haft nokkurn frið eða fró, þegar hann hugsaði um, hverju hann leyndi?" „Já, honum leið víst ákaflega vel, nema þegar Rómóia ónáðaði hann með sínu siðferðislega eðlisfari." „Og — verið þér ekki að hlæja", sagði Mrs. Meredith, „þetta er sannar- lega akkert hlátursefni. “ Framh. jírá úllöndunþ EFTIE JÓN OlAFSSON. Með eimskipinu „Cimbria" barst hingað á Fimtudagsmorgun eitt blað af „Hull Daily Mail“ frá 17. þ. m. Úr því blaði er þetta tekið. — Mc Kinley forseti Bandaríkj- anna iiiulaftist á Laugardaginn 14. þ. m. í Buffalo, og þaðan var líkið flutt á Mánud. (16.) til Washington (höfuðborgar Bandaríkjanna). Frá Wa- shington átti að flytja lík hans 17.þ. inán. til Canton í Ohio á heimili hans þar, og þar átti að jarða hann. Inn nýi forseti (Theodore Rosevelt) og margt stórmenni fylgdi líkinu. — Frá Hðfn er símritað 17.þ.m., að Játvarður Bretakonungur og drotn- ing hans ætli að dvelja eina viku enn á Fredensborg hjá Danakonungi. — Australia er að að hugsa um að breyta peningasláttu sinni, taka upp daii (dollars) í punda stað. Bandaríki Australíu ætla að stofna til mikillar sýningar í Lundúnum 1903. — Kviftdóniurinn í Buffalo hefli- dæmt Czoigosz (morðingja forsetans) sannan að sök um morð (líflátsdómur). — Búar. Árangur hótunar-ávarps Kitcheners lávarðar var sá, að fyrir 16. .þ. mán. (síðasta eindagann) gafst upp einn foringi úr Búaliði (ritari Mr. Theron’s). . — Miklar rigningar og vatna- vextir á Þjóðverjalandi. — „í öllum heimi er ekki svívirði- legra kvikindi til, en Ameríku-maður, sem hugsar ekki um annað en að græða fé“, segir Rosevelt forseti í einni af bókum sínum. — „Hví ættum vér að hræsna sorg eftir Mc Kinley?" segir Valencia-blað- ið „Mercantile Valenciano". „Upp á hann eigum vér kórónu þeirrar svi- virðingar, er vér biðum í síðustu styrj- öld — friðinn í París. Þegar þjóð vor lá með hálsinn á höggstokknum, stóð hann yfir oss með reiddu sverði og neyddi oss til að rita undir þann mest auðmýkjandi og svívirðilegasta samning, sem spánskar hendur hafa nokkru sinni í allri sögu þjóðar vorr- ar borið penna og blek að.“ Landsfíornonna d niilli. Nj'jar prentsmlftjur, ný blöft. D. Östlund heflr sett upp nýja prent- smiðju á Seyðisfirði og jafnframt keypt prentsmiðju „Bjarka". Hann heflr nú 2 hraðpressur og 1 handpressu. Hann prentar „Bjarka" framvegis. P. J. Thorsteinson & Co. á Bíldu- dal eru að setja upp nýja prentsmiðju þar ; koma áhöld öll með „Laura" 9. Okt. Þar á að koma út nýtt blað og heita „Arnfirðinguru. Ritstjóri þess verður forsteinn skáld Erlingsson, sem fer vestur með „Laura". Á Akureyri heflr Oddur Björnsson prentari og bóksali sett upp nýja prent- smiðju, er verða mun mjög vönduð; þar ætlar hann að gefa út framhald af „Bókasafni alþýðu". — Einar rit- stj. Hjörleifsson fór norður á Akur- eyri snemma 1 þ. m. alfarinn héðan. Verður hann þar ritstjóri að stóru, nýju blaði, er þar á að fara koma út 1. n.m. og heita „Norðurland11. Jón sagnfræðingur Jónsson kvað hafa afsalað sér ritstjórn „Eldingar" frá 1. n.m. Mælt, að þeir Jón Jakobs- son aðst.-bókavörður og Jón Magnús- son landritari hafl boðið elganda „Eld- ingar“ að annast ritstjórn hennar ó- keypis, ef þeir megi gera hana að pólitisku blaði (miðiunar-málgagni ?). Enn er mælt, ab einhverjir ísfirð- ingar, er eignast liafa gömlu prent- smiðju Stefáns Runólfssonar, ætli að koma þar upp blaði. Er í mæli, að Björn Bjarnarson (frá Viðfirði) eigi að annast ritstjórn þess. Botnverping handsamaði „Heim- dallurr á Skagaflrði 16. þ. m. Veiðar- færi og afli gert upptækt, sekt 1080 kr. Síldarafli ágætur á Akureyri, er síðast fréttist. tí(r fiiöfuðaíaðnum. „Yesta“ fór til útlanda á Þriðju- daginn. Með henni fóru læknarnir Guðm. Magnússon og Björn Ólafsson, húsfreyja Sigríður Pétursdóttir, Bened. Stefánsson skósmiður o. fl. „Skálliolt" fór á Fimtudag. Með fjöldi manns: Halldór Briem kennari á Möðruvöllum, fröken Hólmfríður Árnadóttir kennari á Akureyri, bor- björn J?órðarson læknir, cand. theol. Sigbj. Ástv. Gíslason og fröken Guð- rún Lárusdóttir, séra Porvarður Brynj- ólfsson, Kristj. H. Jónsson prentari o.fl. Á ferftinni Guðm. Helgason Reyk- hofti, séra Ól. Ólafsson Lundi, séia Óiafur Heigason Stóra-Hrauni, Gunn- ar Ólafsson verzlunarstjóri í Vík o. fl. Trúlof'uft eru cand. theol. Sigur- björn Ástvaldur Gíslason og fröken Guðrún Lárusdóttir hér í bænum. Sigurbj. A. Gíslason hélt sam- komu siðastl. Sunnud. í G.-T.-húsinu. Sagði af ferðum sínum og pródikaði fyrir lýðnum. Stórliýsi mikið reisa þeir nú bræð- ur og kaupmennirnir Friðrik og Sturla Jónssynir — þrílyft hús norðan við Austurstræti, rétt vestur af Lands- bankanum. Það kvað eiga að verða hreyfir (motoij í kjallaranum, er raf lýsir húsið. Auglýsing. Nú, sem að undanföruu, í fjærveru minni he6r umsjónarmaður vinnustofu minnar Jón Gíslason, á hendi alla innhcimtu á útistandandi skuldum við mig; og er alt, sem nefndur Jón Gíslason gerir eða gera lætur í téðu cfni, jafnt gildaodi og óg Bjálfur gcri það. Rvík, 23. Sept. 1901. Bened. Stefánssov. Pennahöld, sex teg., 8 a., 10 a., 15 a., 20 a., 45 a. 0 rlffiar, góðir', askja með 5 í fyrir 5 au. Blýantar, fyrirtaksgóðir, 5 au. Krítar-stengur til að skrifa með, 1 e. Blekbyttur meðbleki, 10,25og50a. JÓN ÓLAFSS0N. U.MVOTNIN eru afbragð í verzlun Þorv. Porvarðssonap hNGHOLTSSTRÆTI 4. Menn hafa oft sagt: „Eina blaðið, sem maður getur fundið að gagn er að auglýsa i, er BEYKJAVÍK." cJil söíu góður Magasinofn, vand- að púff, nýleg taurulla, iítil olíumaskína i Suðurgötu 8.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.