Reykjavík - 21.06.1902, Qupperneq 2
Landsbókasafiiið er opið daglega kl. 12—2, og til 3
á Mánud., Miðv.d. og Laugard., til útlána.
Landsskjalasafnið opið á Þrd., Fmtud, Ld., kl. 12—1.
Náttúrugripasafnið er opið á Sunnud., kl. 2—3 síðd.
Forngripasafnið er opið á Miðv.d. og Ld. kl. 11—12.
Landsbankinn er op. dagl. kl. 11—2. B.stjórnvið 12—1.
Söfnunarsjóðurinn opinn 1. Mánudag ímánuði, kl. 6—6.
Landshöfðingjaskrifstofan opin 9—10.30, 11.30—2, 4—7.
Amtmannsskrifstofan opin dagl. kl. 10—2, 4—7.
Bæjarfógetaskrifstofan opin dagl. kl. 9—2, 4—7.
POststofan opin 9—2, 4—7. Aðgangur að boxkössum 9-9.
Bæjarkassar tæmdir rúmh. daga 7.30 árd., 4síðd.,en á
Sunnud. 7.30 árd. að eins.
Afgreiðsla gufuskipafélagsins opin 8—12, 1—8.
Bæjarstjórnarfundir 1. og 3. Fimtudag hvers mánaðar.
Fátækranefndarfudir 2. og 4. Fimtndag hvers mán.
Héraðslæknirinn er að hitta heima dagl. kl. 10—11
Tannlækn. heima ll—2. Frílækn. 1. og3. Mád. ímán.
Frílækníng á spítalanum engin frá 1. Júní til 1. Okt.
ana“. Blöð hana liöfðu oigi mikla, útbreiðslu
(„Nation“ um 12,000 og „Ev. Post“ um
30,000). En áhrifameiri vóru þau flostum
eða öllum öðrum blöðum, því að lesendur
þeirra var mentaðasta úrvalsfólk þjóðarinn-
ar.
Noregur. Björgvinar-blöð tillOþ. m.
segja þorskvbibae við Finnmörk hafa mis-
hepnast algerlega í ár, og hafi eigi svo
tekist í mörg ár. Alls höfðu þá fiskast 12^/a
milíón kílogramma (1 kgr. — 2 pd.), en í
fyrra (sem var ílt afla-ár) 148/4 mil. kgr.,
árið 1900 221/4 mil. kgr., 1897 27i/8 mil. kgr.
— Fiskurinn (blautur) var borgaður með
7«/. — Öi/a ey. kgr.
Fyrir bezta Lófót-SALTWSK fékst kr. 8,15
fyrir 20 kíló (0: 65 kr. 20 au. fyrir 320 H).
Þetta er fiskur, er kaupmenn kaupa blautan
og verka sjálfir. Bezti saltf., sem bændur
verkuðu, stóð í 7,70 kr. fyr. 20 kíló (60,60
kr. fyr. 320 %). Þetta er útflutningsverð
gegn 2—4 mán. gjaldfresti.
Hrogn stóðu óvenju-hátt, 75, 65 og 55
kr. tunnan fyrir 1., 2. og 3. tegund.
Lýsi brúnt 39 kr. tn.; sjálfrunnið meðalai
lýsi 115—-120 kr. tn.; gufubrætt muðalalýs-
110—126 kr.
Frakkland. Nýi ráðaneytisforsetinn
frakkneski heitir Justin Louis Emilo Com-
bes, fæddur 6. Sept. 1835. Hannvarupp-
haflega læknir; 1893—94 var hann vara-
forseti efri málstofu og 1895—96 kenslu-
málaráðherra í ráðaneyti Burgeois.
Martinique. Annað voða-eldgosið
varð þar 20. f. m. Enn varð hið þriðja
eldgos úr sama fjallinu (Mont Pelée) 6. þ.
m., allmikið, en þó minna en in fyrri. Lagð-
ist enn mikið land í auðn og fólk fórst.
í Fort de France varð niðamyrkur í 4
klukkustundir.
Chile. í lok f. m. varð þar eldgos, í
héraðinu Chaco. Tvær borgir lögðust í
eyði og 75 manns létu líf sitt.
Er New York í voöa? Peekshill
heitir hæð skamt frá Hudsonfljóti (í hæða-
drögum þar), 60 kilómetur fyrir ofan New
York. Þar þykjast jarðfræðingar nú hafa
fundið vott til eldgíga. Lofteðlisfræðingar
(Meteorologists) segja, að það alveg óvenju-
lega veðurlag, sem oft hefir verið um þess-
ar slóðir upp á síðkastið, stafi af umbrot-
um í iðrum jarðar. Skyldi þar vera von á
eldgosi ?
Australía. Ein er sú af afleiðingum
Búastriðsins, að nú heíir hafist óvenju-mikilj
útflutningur fólks til Suður-Afriku. Kveður
svo roikið að því, að mönnum þykir tij
vandræða horfa í Australíu.
Stjórnartíðindi. 7. þ. m. hefir kon-
ungur staðfest lög síðasta alþingis um
hlutafélagsbanka í Reykjavík, enda vóru
þau samþykt af síðasta alþingi i einu hljóbi,
| með 30 atkv. í báðum deildum; 4 greiddu
eigi atkvæði, en enginn greiddi atkvæði á
móti. -— Bankinn má gefa út 21/2 milión
króna í seðlum, en allir skulu þeir innleys-
anlegir. Landsbanliinn má hafa sína óinn-
leysanlegu seðla á gangi jafnframt, en eigi
má hann auka mergð þeirra úr því sem nú
er.—Hlutafél.bankinn verður aðverakom-
inn á innan 7. Júni næsta ár.
CDchal iimmrs!
Er enn engin heilbrigðisnefnd ti) í Reykja-
vík ?
Ef hún er til, hvað hcfst. hún þá að?
Eða hefir hún nokkurn tima gert nokkurn
skapaðan hlut um sína daga ?
Eða er ekkert til hauda henni aðgera?
Það vildi ég, ef hún er annars til, að
drottinn vildi blása honni þvi í brjóst ein-
hvern tíma, þegar hlýtt veður er og gott,
að ráfa svo-litið hérna um strætin til og
frá, snýta sér vel og anda með nefinu' Eg
trúi því ekki, að hún kynni ekki að „fá i
nefið“ hér og þar — einkum við húsagafla,
þar sem „forarvilpur“ eru að húsabaki og
saurrennurnar, allar „forstojipaðar1, liggja
fram frá húsunum, en banvæna ýlduna og
pestaróþefinn leggur Upp í vitin á þeim,
sem nærri koma. — Hér er sumstaðar nærri
banvænt að opna glugga á íveruhúsum fyrir
þvi að pestvænt ýlduloftið leggur þá inn
um öll herbergi og það upp á hæðstu loft,
aromatiska extract af grásleppu, fiskislori,
kjötýldu og öðru slíku góðgæti.
Reykjavíkur-þrifnaðurinn þolir ekki enn
þá sólskin og sumar-hita; hann þarf rign-
ingar og kuldanæðinga, ef líft á að verðá
í þessari höfuðborg og sorptrogi.
Íslenzkir Færeyja-gikkir eru þeir rétt
nefndir, sem skammast sín fyrir að heilsa
og kveðja á móðurmáli sínu. Þeir eru
teljandi hér í bænum, sem heilsa á íslenzku
eða kveðja. Það er þó ofur-einfalt að segja:
„Komið þér sælir“ eða „komdu sæll“, eða
bara „sælir“ eða „sæll“. En mörgum þykir
meiri fremd í að segja „gúmorin!“ Enþó
tekur yfir með kveðjurnar. Það heyrist
varla annað en a dieu ! Þótt mannskepnurnar
skilji ekki orð í frönsku, og viti ekkert, fremur
en ferfættar skepnur, hvaða mál þetta er,
þá jarma þeir samt á frönskusitt: a dieu!
þeir vita þó líklega, að þetta heitir á íslensku-
„í guðs friði!“ —„verið þér sælir“ eða því
um líkt. En, nei! „guðs friði! — Fý!
Það er svo dónalega íslenzkt!
Miklir Færeya-gikkir eru mannanna börn
— hér í Reykjavík,
Það er staðreynt, því miður, hér i Reykj-
vík, að það tjáir ekki að velja skynsama
menn i byggingarnefndina. Þeir missa allir
ráðið, þegar þeir eru komnir í hana, mæla
út hússtæði út, í miðjum strætum, og gera
alls konar tákn og stórmerki, en banna
mönnum að bygga húsin eins og bezt fer
og haganlegást er. Sérstaklega er öllum,
sem í byggingarnefnd koma, jaf'n illa við
húsgafla út að stræti; eins og blótneyti
við rauða dulu,
Væri ekki reynandi að kjósa fífl og óvita
einu sinni í nefndina, og vita, hvort þeir
færu ekki skynsamlega að ráði sínu?
Væri það ekki reynandi?
Verra en er gæti það varla orðið.
Og nú eru banka-lög síðasta þings stað-
fest, og heimurinn stendur enn — jafnvel
ísland líka! Ekki hefir einu sinni orðiðj
vart við svo mikið sem lítilræði landskjálfta
enn — nema þetta á Vestmanneyjum og
ísafirði. ,J (j
I. O. C. T.
Hástúkuþingið í Stockhólmi.
Nú með „Laura“ á Þriðjudaginn var fór
hr. cand. theol. Haraldur Níelsson til út- v
landa. Tilefnið til þeirrar farar 'hans er '
það, að 8. Júli næstkomandi hefst Hástúku-
þing Good-Temjilara í Stockhólmi (fulltrúa-
þing Good-Templarareghinnar frá öllum;
þeim löndum, sem hún er stofnsett i), og
mætir hann þar sem fulltrúi Stórstúku Is-
lands — i fyrsta sinni, er fulltrúi mætir
frá henni á Hástúkuþingi. Fer Haraldur
fyrst til Kauj.mannahafnar héðan, en þar
koma saman fulltrúar úr ýmsum áttum og.
hafa danskir Good-templarar haft, viðbúnað
mikinn til að fagna gestum sinum og
reyna eftir megni að vekja eftirtekt á sér
og sínu málefni við þetta tækifæri.
Frá lv aupmannahöfn flytur sérstakt gufu-
?kip fulltrúana til Málmeyjar og svo verður
landleiðin þaðan farin á járnbraut t.il Stock-
liólms. A þessari leið verður á öllum stærri
víðkomustöðum skemt með hljóðfæraslætti
og söng og ferðin yfir höfuð gerð sem
unaðslegust og þægilegust í öllu tilliti fyrir
fulltrúana.
Hástúkuþingið verður sett í sönglistahöll-
inni í Stockhólmi 8. Júli. Að kvöldi þess
sama dags verður hátíð lialdin þar til áð
bjóða alla gestina velkomna. Viðstaddir
verða þingsetninguna og hátið þessaýnfsir
af ráðgjöfum Svía og annað stórmenni. For-
sæti skipar á hátið þessari utanríkisráð-
herra Svíakonungs, Lagerheim greifi.
Næsta dag hefjast þingfundir Hástúkunn-
ar og verða þeir haldnir i nkisdagshöll Svía.
Sömu daga verða haldnir ársfundir hins
sænska stór bindindisfélags (“Nykterhets-
sállsap11) og hins mikla bindindisfélags
Norðurlanda (“Nordiska nykterhetsconres-
sen“) og ætlar Hástúka Good-Templara að
koma á fund þessa félags, sem fulltrúar
verða á frá Finnlandi, Danmörk, Noregi
og Svíþjóð.
í sambandi við Hástúkuþingið eru ákveðn-
ar ýmsar skemtiferðir í ýmsar áttir. Fyrst
er forðinni heitið til Saltsjöbaden —.sumab-
skcmtistaður um 15 kilometra frá Stock-
hólmi, frábærlega fagur. Verður farið
þangað sjóveg á fallegasta gufuskipi, én
heim aftur með járnbraut. Þar á að neyta
miðdegisvorðar, en Stórstúka Svía borgar
gildið og farareyrir. — Aðra skemtiför á
að fara til sumarbústaðar konungs, „Drott-
ningholm“, sem liggur fyrir vestan Stoek-
holm á eyjunni Lofö í vatninu Máleren.
Sömuleiðis á að fara til Uppsala, sem er
frægur bær fyrir háskóla sinn og dómkirkju
o. fl.; einnig verður farið til „Dalarne“, sem
frægireru fyrir náttúcufegurð, og víðar. Far-
gjald á öllum járnbrautum verður fært niður
um helming og menn þurfa eigi að taka far-
seðla fram og aftur, til þess að fá gjaldið
lækkað. Er það gert til þess, að menn goti
farið sem víðast um og þurfi eigi að fara
yfir sama svæði nema einu sinni.
12. Júlí verður undirstúkufundur haldinn
i sönglistahöllinni og síðbók Good-Temlara
þar lesin á ensku, þýsku og svensku.
Sunnudaginn 13. Júlí verður hafin geysi-
mikil skrúðganga. Koma þá til Stoekhólms
Good-Templarar víðsvegar að úr Sviþjóð
til að taka þátt í henni og verða það eflaust
margar þúsundir manna, sem verða með í
skrúðgöngunni. Fyrst hefst gangan um
nokkrar götur í Stockhólmi, en svo verður
haldið úttilstaðar, sem nefndur er „Skan-