Reykjavík - 23.12.1903, Side 2
2
„Leikfélag Reykjavíkur"
Leikið verður annað Jóladags-
kvöld:
LAYENDER,
sjónleikur í 3 þáltum
eftir W. Pinero.
Þjóðirnar, Frakkland, Ítalía (og Portugal)
laðast að Bretum, en Þjóðverjar og Aust-
urríkismenn að Rúsum. Það eru frjáls-
lyndu framfaraþjóðirnar, sem dragast sam-
an hver að annari á aðra hönd, en hins-
vegar einveldis og afturhalds þjóðimar.
Tibet er mikið ríki í Asíu austur, og er í
raun réttri einn hluti Sínaveldis. Sunnan
að því liggur Indland, og skilja þar
Himalayafjöll á milli; vestan að liggur
Afganistan og Austur-Turkestan, en að
norðan liggur Mongoliið, sem Sinverjar
eiga. Hepal er sjálfstætt ríki suður af
Tibet, sunnan við Himalaya. Það er í
vinskap við Breta, en hefir verið jafnframt
í hálfgerðu bandalagi við Tibet. Tibet
rekur verzlun við aðrar þjóðir, þar á með-
al Breta, en leyfir engum útlendingum
umferð um land sitt. Flytja Tibetíngar
sjálfir varning sinn frá sér og að sér á
uxum og úlföldum. Tibetingar eru Búdda-
trúar og heitir sá að tignarnafni Dalai
Lama, er fyrir ríki ræður og kyrkju.
Hann hefir ráðgjafa 4, þótt einvaldur sé,
en Sínlandsstjórn hefir tilsjónarmenn 2
við hlið honum; en miðlungi hlýðinn er
hann einatt Sínlandsstjórninni.
Tibetingar hafa verzlunarsamninga við
Breta frá 1890 og 1893, en hafa haldið
þá illa, og er ef tii vill að kenna undir-
róðri Rúsa. Hvorki Bretar né Rúsar né
aðrar útlendar þjóðir geta haft sendiherra
i Lhasa, höfuðborginni, þar sem Daiai
Lama situr, heldur verða sendimenn útl.
þjóða að koma að landamærum og senda
orð með innlendum mönnnum til Dalai
Lama, en hann sendir þá umboðsmenn til
viðtals við þá og samninga. Bretar höfðu
einntt kvartað um, að samningar við sig
væri allir vanhaldnir, og er því var eng-
in gaumur gefinn, sendi Indlandsstjórnin
brezka í vor ailfjölmenna sendinefnd til
að semja við Tibetstjórn og Sínverja
stjórn. Komu sendimenn Breta í Júlí, er
leið, t.il Kamba Jong, sem er um lOensk-
ar mílur suður af iandamærum Tibets, en
2—300 hermenn brezkir-vóru eftirnokkru
sunnar til að liðsinna sendimönnum, ef í
hart slægi. Sendimonn gerðu nú orð með
tíbetskum embættismönnum við landamær-
in, og báðu Dalai Lama að senda menn
til viðtais við sig. En Dalai Lama hefir
jafnan færst undan og ekkert orðið úr að
hann sendi neina umboðsmenn. Forseti
ráðaneytisin3 í Nepal ritaði Dalai Lama
skörulegt bréf og áminti hann og réð
honum vingjarnlega til að halda samninga
við Breta og senda menn til að semja við
þá; tjáði honum, hvern stórhagnað Nepal
hefðí haft af að gera vinsamlega samn-
inga við Breta; það hafi fengið aftur lönd,
er það hafði áður mist, efnahag landsins
hefði fleygt fram, verzlun aukist, en eng-
in höggun verið ger á siðum né- trúar-
hrögðum landsmanna. Nepal væri skylt
eftir samningum að veita Tibet lið, ef nokk-
ur færi með ófrið á hendur því ríki; en
ef Tibet virti að engu sin ráð og héldi
ekki gerða samninga við Breta, mætti það
engrar hjálpar vænta frá Nepal. Sínverja-
stjórn tók i sama streng, en Dalai Lama
vildi eigi hlýða yfirboðara sínum heldur.
Reiddist Sínverja-stjórn þá og kallaði
heim umboðsmenn sina frá Tibet.
Nú ætlai Bretastjórn að færa sig það
upp á skaftið, að láta hermenn sína taka
Chumbi-dalinn milli Sikkim og Bhutan.
Hann er 20 (e.) mílur á breidd og 40 á
lengd, og er talinn lykillinn að Tibet.
Þaðan eiga sendimenn þeirra með her-
fylgd að fara til Gyangtse, sem er 80
mílum (e.) fyrir innan landamæri Tibet,
og einar 150 mílur (enskar) frá Lhasa,
Rúsar telja það óhugsandi, að Bretum
takist að komast inn í Tíbet, því að þeir
hafa sjálfir til þess reynt, en orðið frá að
hverfa,
Yrði sá endir á, að Bretar taki Tibet á
sitt vald, mundi Rúsum þykja þeir óþarf-
ir nágrannar sér og helzt til nærri Siberiu-
braut sinni.
CrÓð Jólagjöf
fyrir börn og fullorðna eru skrifpúltin á
2,25 og 3,50. Jón OiíApsson.
Gróð Jólagjöf
eru ljósmynda-kassarnir (úr fínu skinni)
á 3 kr. Jón Olafsson.
Bezta Jólagjötín
fyrir börn er „Ferðin á Heimsenda“
með mörgum og stórum myndum, heft
l,25;bundin 1,50. Jón Ólafsson.
Ctírabtdttr.
Skainmdegis-yísur.
Þó skuggalegt sé skammdegið
og skíni dapurt sól,
þá hlakka allra hjörtu til
það hverfi’, en komi Jól.
Og þeir, sem eiga á aurum ráð
og alt sér geta veitt,
í kyrkjuna þá komast, inn,
ef klerki hafa greitt.
En öreiganum útskúfað
er Ólafs messu frá,
því fríkyrkjan þeim ætluð er,
sem auð og virðing ná.
I þjóðkyrkjunni sama sið
ef sóknin þýðast kann,
fer Lazarus í Landakot
á líknarspítalann.
En sankti Jósefs-systurnar
þær sýna öllum nað,
og vísa’ ei burtu voluðum,
þær vita betri ráð:
að fanga snauðan fáráðling
' og fá sér þann að vin
í kaþólskunnar kindahjörð,
sem kyrkjan vill ei hin.
Og sankti Jósefs-systrakvöld
þeir sitja allir fá,
sem bibliuna bera’ á sér
og bænir hlusta á;
úr fríkyrkjunni’ í fólkið alt
þær fegnar vilja ná,
en séra Ólaf allra helzt
þær óska sér að fá.
Plausor.
I. 0. T,
Stnkan gi/röst nr. 43,
heldur fund á Jóladag kl. 6 siðd.
I Vallarstræti 4
er ætíð mikið úrval af fallegum
Skúfliólkuni og lírjóstnálum með
fl. o. fl., alt einungis úr ekta silfri.
Bjðrn Símonarson.
/
I Ingólfsstræti
nr. 9, hjá amtmanni, getur stúlka
fengið vist tíl vorsins nú þegar.
IRe^kjavík oð grenð.
Frú Tihios'a Melsted varð áttræð 18.
þ. m, og var þá mikil viðhöfn í bænum’
horn þeytt á Austurvelli, fánar á hverri
stöng o. s. frv. Skrautritað ávarp flntt
og kvæði. Frú Melsted stofnaði kvenna-
skóla Rvikur 1874, fyrsta og helzta kvenna-
skóla landsins. Námsmeyjar skólans gáfu
henni þennan dag forkunuar fagran minj a-
grip, vegghillu útskorna af Stefáni Eirílcs-
syni.
Slys hafa verið að vilja til á hálkunni
hér fyrirfarandi. Fyrir ca. hálfum mán-
uði datt fi’ú Helga Ólafsson (kona ábm.
„Rvíkur“) á hálkn og fékk heilahristing
af. Er komin á íætar aftur, en ekki
jafngóð enn. — Um sama leyti datt Jó-
hannes Oddsson í Stöðlakoti og lær-
brotnaði. — Á Laugardaginn datt vinnu-
kona frá amtmanninum, og komst naum-
lega heim og andaðíst sama kvöld.
„Scotland11, ið nýja eimskip Thore-
félagsins á að fara fi*á Hafn 7. Febr.,
en koma hingað um 19. s. m. (rangt í
síðasta bl.).
Leiðrétting. Á 1. dálki 6. bls. í síð-
asta blaði stendur í 13.—14. línu að neð-
an: „Jón Sigmundsson var sjálfur11; en
ætti að vera: „Jón Jónsson frá Sval-
barði var“ (lögmaður þá o. s. frv.).
Regnkápur
alveg nýjar,
Regaklíjar, ðöngastajir,
og fleira af þessháttar hvergi betra
en hjá
ij. jfliJemn S Sðo.
Aðalstræti 16.
Til jólanna
hjá
Gnnnari €inarssyni,
KIRKJUSTRÆTI 4.
Konfeet, Crém-Ohocolade, Chocolade-
Cigarar og Figúrur, Brjóstsykur o. s.
frv.
Leikföng, Bazarvörur, Leirtau,
Fuglabúr með fuglum, og ýmiskonar
smá-varningur.
Álnavörur, Silkislipsi, Hattar, Borð-
dúkar, Serviettur o. s. frv.
Vindlar, Limonade og vanal. ný-
lenduvörur.
Alt góðar vörur fyrir lágt verð.
Óskast til leigu 1. Jan. Iítið her-
hergi. Ritstj. ávisar.
Aðalfundur €kknasjiis
Reykjavíkur
verður haldinn 2. Jailúar næstkom-
andi kl. 4 síðdegis í Crood-Templar-
húsinu. Stjörnin.
£ 'Cð s g
a p <Ð
m XO M—1 tí
'O bc æ s
d O M—1 g 4^>
*-i
% 'O -4-5 xo ih 4-3
U1 (—1
*o í—1 c C 4-3 M-4
O
cs O
smá Aít 3 CD
X©
6C O 8 02 e
cc c
g c
c ö
"O ■5 o
4-3 co 6 a
Til neytenda ins ekta
Kína-lífs-elixirs.
Með því að ég hefl komist að
raun um, að margir efast, um, að
Kína-lífs-elixírinn sé eins góður og
áður, skal hér með leitt athygli að
því, að elixirinn er algjörlega eins og
ann hefir verið, og selst sama verði
og fyr, sem sé 1 kr. 50 aur. hver
flaska, og fæst hjá kaupmönnum al-
staðar á íslandi. Ástæðan til þess,
að hægt er að selja hann svona ódýrt
er sú, að allmiklar birgðir voru flutt-
ar af honum til íslanbs, áður en
tollurinn var lögtekinn.
Neytendurnir áminnast rækilega
um, að gefa því gætur sjálfra sín
vegna, að þeir fái inn ekta Kína
lífs-elixír með merkjunum á miðanum,
Kínverja með glas í hendi og flrma-
nafninu, Waldemar Petersen, Frederiks-
havn, og —^ í grænu lakki ofan á
stútnum Fáist elixírinn ekki hjá
þeim kaupmanni, sem þér verzlið við,
eða verði krafist hærra verðs fyrir
hann en 1 krónu 50 au., eruð þór
beðnir að skrifa mór um það á skrif-
stofu mína á Nyvei 16,. Köbenhavn.
Waldemar Petersen,
þakkar-ávarp til allra þeirra, sem
hafa rétt mér hjálparliönd og sýndu mér
hluttekning í rauuum mínum fyrst í legu
manns míns sál og við fráfall hans, og vil
ég þar sérstaklega nefna sýslum. Guðiaug
Guðmundsson og frú hans; og svo aftur
í veikindum og dauða dóttur minnar réttu
méi’ margir hjálparhönd og nefni ég sér-
staklega þar til séra Fr. Friðriksson. Þess-
um og öllum, sem hafa sýnt mér hluttekn-
ing við missi eiginmanns og barna minna
votta ég mitt innilegasta hjartans þakklæti
og hið góðau guð að launa þeim af rík-
dómi sinnar náðar. Reykjavík, 10/x2 1903.
Ekkjan Guðrún Pálsdóttir.
ÍBÚÐARHÚS mitt í Lækjargötu 12 og
liús í Þingholtsstræti fást til leigu 14.
Maf 1904. Lárus Benediktsson.
STEINHÚS nr 29 við Laugaveg fæst
uú keypt fyrir lágt verð hja Lárusi Bnee-
diktssyni, Lækjargötu 12.
Prbntsmisja Reykjavíkub.
Prentari ÞORV. ÞORVARÐSSON.
Pappirinn frá J6ni Ólafssyni