Reykjavík - 23.01.1904, Side 3
11
Kaupið svart silki!
|f®~ Áreiðaniega lnaldgott 'ÍSi
BiðjiS istn sýnishorn af silkivörum yorum frá 90 aur. og upp að 13
kr. pr. meter.
Hreiuustu fyrirtök eru nýustu siikivörur vorar ■ brúðarkjóla,
veizlukjóla og skemtig£nguk]óla, bæði mislitar og hvítar
Vér seljum til íslands .miIlilioaSaust prívatmcnnum og sendum á-
gætar silkivörur burðargjaldsfrítt og tollfrítt heim á heimili manna.
Schweizer & Co, Luzern (Schweiz)
________________SilkivarTiings-TJtfiytieDdur._______
Latínu-skólinn. í grein vorri í
síðasta bl. um það mál var sú litils-
háttar ónákvæmni, að þar var sagt,
að piltunum. er síðara sinn vóru
reknir úr 2. bekk, hefði verið gert
að skilyrði að biðja fyrirgefningar,
þeim er aftur var inntaka veitt. —
Þetta er rangt.
í greininni er ekki getið um burt-
rekstur annara pilta, en þeirra sem
úr 2. bekk vóru reknir, og er því
óþarfi að taka það fram, að það sem
talað er þar um ina „burt reknu“
pilta, á auðvitað við enga aðra, en
'þá, sem vóru „reknir úr skóla úr 2.
beklc. “
Heimsendanna tnUli.
-0 —
„Heykjavík" hafði flutt svo nýjar
fregnir frá útlöndum áður en „Saga“
kom, að hún hefir nú ekki svo miklu
við að bæta, enda von á „Lauru“ á
hverri stund með nýrri fregnir.
Ítalía. Inn nýi fjármálaráðherra
þar heitir Luzzatti. Hann skýrði
þinginu frá í f. m., að á fjárhagsár
inu 1903—4 mundi verða að minsta
kosti 6,000,000 líra tekju-afgangur,
og að hann vænti á næsta fjárhags-
ári 7,000,000 afgangs. Af ríkis-
skuldum hefði á árinu verið greidd-
ar 8,000.000 líra; að stjórnin hefði
á árinu aldrei þurft að leita liðsinn-
is seðlabankanna til útborgana, og
að hún þyrfti þess heldur ekki til
að greiða vöxtu og afborganir, sem
í gjalddaga kæmi nú 1. Jan. þ. á„
og er það í fyrsta sinni sem svo
hefir staðið síðan ítalska konugsrík-
ið varð til.
Ha-nn lagði fram frumvarp um að
breyta skuldahréfum ríkis-
ins í 31jí°lo skuldabréf, og kvað
það spara mundu yfir 6 milj. líra á
ári. Til þessa kvaðst hann ekki bú-
ast við að þurfa að leita erlendra
hanka eða auðmanna; þessi skulda-
hróf væri flestöll í innlendra manna
höndum. Síðar meir, er nægilegur
undirbúningur hefði átt sór stað,
kvaðst hann búast við að breyta
51/2°lo ríkisskuldabrófunum líka í
31/2°/o skuldabréf; en til þess yrði
auðvitað að leita liðs í útlöndum,
þar sem þau bróf væru í höndum
Breta, Frakka og Þjóðverja. Enhann
kvaðst vænta þess, að hann fengi
nægt liðsinni til þess hjá þessum
þjóðum. Þá er það væri á komið,
sparaðist ríkinu alls um 40,000,000
líra á ári, og mætti þá gera ýmsar
skattaumbætur þjóðinni til léttis.
Áður en þingi sleit fyrir hátíðir-
nar, lýsti það trausti sínu á stjórn
inni með 284:117 atkv.
Bandaríki N.-A. Samveldisflokk-
-urinn ætlar að halda þjóðfund sinn
til að tilnefna sér forsetaefni í Chi-
cago í Júni í vor. Kosningarnar
fara fram í haust. — Cleveland hefir
neitað að taka tiinefningu sérveldis-
fiokksins sem forsetaefni.
Yerzlunarsamninginn við Cubahefir
efri málstofa bandaþingsins loks sam-
þykt með 57 : 1S atkv.
30. Des. kviknaði í leiktjaldi á leik-
húsi nýju í Chicago. Húsið hafði
að eins verið notað eina viku. Eld-
varnartjaid úr járni er til í öllum
stórum leikhúsum, til að láta falla
niður, er slík slys vilja tíl. En eitt-
hvað bilaði svo, að tjaldið féll ekki
til hálfs. Menn ruddust til dyra, en
tróðust margirundir, en sumir köfnuðu
í reyk. Létu þar alls full 600 manna
líf sitt, en fjöldi fólks skaðaðist. —
Eldurinn varð slöktur eftir nokkrar
mínútur og húsið skemdist mjög lítt.
Fyr í sama mánuði kviknaði í
tanniækninga-húsi Norðvesturháskól-
ans í Chicago (Ch. N. W. University
Dental School); menn sköðuðust þar
engir, en tjónið á húsi • og inunum
nam $40,000 (150,000 kr.). Nokkrir
stúdentar mistu þar öll verkfæri sín.
þiý liengibrú hefir gerð verið
yfir East River (milii N.Y. og Brook-
lyn). Hún var fullger 19. f. m. og
hafði kostað $10,000.000.
Panama-þjóðveldið. Bretastjóm
hefir nú viðurkent það. Það hefir
þannig fengið viðurkenning Banda-
ríkja, Frakklanks og Bretlands.
Frakkland. Nefnd sú er skipuð
var til að íhuga beiðni Dreyfus’ um
að mál hans væri tekið fyrir enn á
ný, hefir nú kveðið upp álit sitt í
einu hljóði í árslok, þess efnis, að
mæla eindregið með því, að málinu
sé enn skotið til ónýtingardómstóis-
ins. Segir hún það fullsannað, að
tvö skjöl að minsta kosti, er fyrir
herróttinn í Rennes vóru lögð (1899),
bafi fölsuð verið. Á skjaii, sem rit-
að hafi verið eftir að málið gegn Dr.
var byrjað, hafi ártali verið breytt
þanuig, að það var ársett áður; svo
hafi í sftningunni: „Bófinn D..
verið Ireyit staf, gert D úr P (ekki
C!), og hafi því skjalið átt við alt
annan mann.
Daninörk. Þar hefir lögleitt ver-
ið í vetur að hækka dagpeninga.
þingmanna úr 6 kr. á dag upp í
10 kr„ og var lögunum gefið gildi
aftur fyrir sig, frá 1. Október f. á.
Konungur vor fór í f. m. suður til
Gmunden í Austurríki í silfurbrúð-
kaup hertogans af Kumbaralandi og
Þyri dóttur sinnar. Ætlaði konung-
ur að vera heim kominn fyrir árslok,
en sýktist þar syðra um Jólin af bak-
verk og varð ekki ferðafær.
Ofriðar-horfurnar. Japanar sendu
Rúsum fullnaðar-áskorun (ultimatum)
og skoruðu á þá, að viðurkenna for-
ráðarétt Japans á Kóreu og hætta
öllum afskiftum af því ríki og sleppa
jafnframt. öllum umráðum yfir breiðu
belti af Mandsjúríi fram með ianda-
mærum Kóreu og ha.fa sig þaðan á
burt með alt herlið og mannvirki.
Upp á þessa kröfu heimtuðu þeir skýrt
svar fyrir 10. þ. m., kváðust eng-
um vífilengjum né riýjum tillögum
taka, en heimta skýiaust já eða nei.
— „Daily Mail“ er símritað 5. þ. m.
frá Pétursborgar fregnrita sínum, að
svar Rúsastjórnar upp á þessar kröf-
ur só komið á stað áleiðis til Alexi-
effs varakonungs Rúsa í Austur-Asíu;
en getur til, að hann muni draga
fram í síðustu lög að senda Japön-
um það. Segir hann auðráðið af
merku.mPótursborgar-blöðum, að svar-
ið sé vífilengjur og nýar tillögur, en
neitandi kröfum Japana.
Um sama leyti tilkynti Rúsastjórn
Sínverjastjórn, að Rúsar ætluðu sér
að haida Mandsjúrí um aldur og ævi
og skila því aldrei aftur.
Sínverjar vígbúast nú sem óðast,
og fer hver skipsfarmurinn á fætur
öðrum þangað frá Japan með fall-
byssur, skotfævi og önnur vopn. Þá
er Sínverjar fengu skeyti Rúsa um
Mandsjúrí, þá drógu þeir að sér suð-
ur alla vagna af járnbraut sinni norð-
ur til Mandsjúrís, og fóru þess á leit
við Bretastjórn, að hún tæki að sér
járnbrautina, ef ófriður yrði þar
eystra. Tvö herskip Sínverjain stærstu
alvígbúin létu þá og í haf, og var
ekki uppskátt gert, hvert ferð þeirra
væri heitið; en það þykjast menn vita,
að þau muni hafa átt að halda aust-
ur til móts við flotr Japana og sam-
einast honum.
Japanar höfðu nýkeypt af Argent-
ínu tvö fyrsta flokks herskip, þau
vóru þá í Miðjarðarhafi og búist við
að þau nái austur í byrjun Febrúars.
Allir Japanar, sem á ferð vóru í
Norðurálfu eða við nám á skólum
þar, vóru fyrir áramótin kvaddir heim
og lögðu tafarlaust á stað.
Landshornatma tnilli.
Látinn 19. f. m. að Apavatni í
Árnessýslu Erlingur Pálsson, faðir
Þorsteins skálds. (,,Þjóðv.“)
Látin er nýl. lír lífhimnubólku
efnileg stúlka um \xj2 árs, dóttir Jó'ns
Gunnarssonar vsrzlunarstjóra í Hafn-
arfirði.
Fleiri maniiiilát. 23. f. m. Car-
Oronvold verzlunarstjóri á Siglufirði,
45 ára. — 2. f. m. að Valþjófsstað í
Norður-Múlas. Sigurður bóndi Bryn-
jóJfsson, 25 ára. — 3. f. m. fyrv.
hreppstjóri Jóhaun Fi imanu Sigvaldal
son, á Mánaskál, Húnavs. — 11. þ.
m. Astríður Guðmundsdóttir, hús-
freyja Guðmundar bóksala Guðmunds-
sonar á Eyrarbakka.
Séra Ólafur Stephensen áLága-
felli (prestur Mosfellssveitar og Kjal-
arness) hefir sótt nm og fengið lausn
frá prestskap frá næstk. fardögum
sakir hnignandi heilsu (giktveiki).
Hann flytur í vor að Skildinganesi
á Seltjarnarnesi.
Kyrkjan í Goðdölum fauk 2S. f.í
m. og brotnaði í spón.
Húsbrunar. í byrjun þ. m. brann
til kaldra kola verzlunar og íbúðar
hús Gísla kaupm. Hjálmarssonar á
Nesi í Norðfirði (S.-Ms.), mikið liús
og fiítt. Sagt vátrygt. Það er í
annað sinn að þessi sami maður
veiður fyrir húsbruna á fám árum.
— 11. f. m. brann á Seyðisfirði hús
Eyjólfs Jónssonar skraddara og bæjar-
fulltrúa. Hús og inannstokksmunir
vátrygt.
Séra G ísli Kjaríansson Mýrdals-
þinga-prestur hefir fengið lausn frá
embætti sakir vanheilsu (brjálsemi).
Trúlofanir. Ungfreyja Sigríður
Jónsdóttir Thorlacius og Kolbeinn
Árnason kaupm. (Akureyri). — Ungfr.
María Rasmussen (Siglufirði) og Ludv.
Mnller verzlm. (Hjalteyri).
[„Gjallarh."].
„Grjallarhorn44 hefir stækkað nú
við byrjun 2. árg. og er nú í ámóta
broti og „Reykjavík," siðan fjórdálk-
/
uð, sama og í „Rvik,“ en 2 línum
lengri. Það flytur í 1. bl. 2. árg.
góða mynd af hr. Hannesi Hafstein.
TRc^Kjavíí? oö ðt'enfc.
--0---
Einislv. „Scandla44 fór héðan
til útlanda 6. þ. m. Með henni fór
Guðmundur leikprentari eða prent-
leikari Magnússon til að koma í lóg
utanfararstyrk þeim sem Alþingi
veitti honum. Skipið átti ekki að
koma við í Færeyjum.
Elmsk. „Saga“ kom frá Bretlandi
14. þ. m. með lcol og fl. vörur til
„Edinborgar-“verzlunar. Flutti póst
frá Skotlandi, ensk blöð til 5. þ. m.,
og frá Ameríku til 24. f. m.
Látin 21. f. m. ungfreyja Gunn-
þórunn Jónsdóttir (uppeldisdóttir frú
Valgerðar sál., ekkju sér Halldórs á
Hofi), þrítug að aldri. Dó úr tær-
ingu.
Eríkyrkjusöfiinöur Rvíkur hefir
nú loks íengið staðfesta kosningu síra
á presti (séra Ólafi Ólafssyni ritstj.).