Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 26.02.1904, Blaðsíða 3

Reykjavík - 26.02.1904, Blaðsíða 3
31 ast þess, að hann hefir, auk bókvitsins, þá Terklegu þekkingu til brunns að bera, sem bann hefir fengið við að standa lyrir þvi að reisa verkamiðjur til tigulsteinsgerðar og móhnoðunar. Hr. L. óskar þess, að önnur ísl blöð TÍldu taka upp ritgerð þá sem hér fer á eftir eða ágrip úr henni. Og vér ætlurn að hún sé sannarlega þess verð, að hún sé ekki látin athugunarlaust um eyrunþjóta. — Ritstj. ,,Rvíkur.“] Herra ritstjóri! — í fyrra vetur sendi ég yður grein, er skýrði frá tilraun, sem ég hafði gert, með að brenna tigulsteina úr íslenzkum leir. Ég sýndi fram á, hve mikla þýðingu það mundi hafa fyrir landið, ef nægt efni væri þar fyrir hendi, svo að koma mætt.i á fót tigulsteinsbrenslu á ýmsum stöðvm í iandinu, þar sem tigulsteinn úr íslenzkum leir gæti bæði orðið ódýrt og haldgott bygg- ingar-efni, og tigulsteinsgerðin jafn- framt orðið a-rðsamt fyrirtæki fyrir landið og íbúa þess. Önnur iðnaðargrein, sem hér í Danmörku stendur nú jafnhliða tigul steinsbrenslunni, er mógerðin, sem mjög hefir farið í vöxt hér in síðari ár. Því að ið háa verð á steinkol- um hefir knúið menn til að reyna að framleiða mó, sem hagnýta má miklu betur en áður; og í því efni eru menn hér iangt á veg komnir. Eeynslan hefir sýnt, að með því að elta eða hnoða móinn, má framleiða xnó, sem er miklum mun hitameiri, heldur en mór, sem ekki er hnoðað- ur. Það er nú viðurkent af öllum, að móhnoðunin hér í landi sé mjög arðsöm iðn, þvi að menn hafa nú sannreynt, að þegar mórinn er rétt hnoðaður, þá verður hann svo hita- mikill, að hann verður ekki að eins þægilegasta eldsneyti í stofu-ofna. heldur má og brenna honum í kola stað í gufu-kötlum og eins í ofnunum við tigulsteinsgerð og kalkbrenslu. Móhnoðun hefir síðari árin tekið svo miklum framföi’um, einkum hér á Jótlandi, að nærfelt helmingunnn af öllum tigulsteini, sem hér er . brendur, er nú brendur við hnoð-mó. Hér í landi liggja venjulega Ieirlög og rnólög hvort nærri öðru og gæti ég trúað að það ætti sér stað sum- staðar á íslandi líka, og i mörgum tilfellum má reka tigulsteinsverk- smiðju og móhnoðunar-verksmiðju samhliða með einu og sama afli, og verður þá lit.ill aðflutningskostnaður á eldsneyti til tigulsteinsbrenslunnar. Yæri menn hinsvegar bundnír við að nota kol, gæti sumstaðar á íslandi orðið alveg ógerningur að setja upp tigulsteinsbrenslu, hve góður leir sem þar væri til verkefnis, að eins sakir þess, hve örðugur og dýr aðflut- ningur kolanna gæti verið þangað. [Framh.] ÍBÚÐ (3—4 herbergi) óskar lítil og barnlaus fjöiskylda eftir, frá 14. Maí, í góðu og friðsömu húsi. Ritsjóri ávísar. Leikfélag Reykjavíkur, ijeimilií, sjónleikur í 4 þáttum, eftir Herm. Sudermann, verður leikið i síðasta sinn á Sunnudaginn kemur (28. þ. mán.) góð og údýr, í verzlun Einars Árnasonar. 50,00 krönur borga ég þeim, sem bendir mér á réttan sögumann að þeirri lygi um mig hér í bænum, að ég hafi á síðastl. vetri átt að hafa tileinkað mér pen- inga á óleyfllegan hátt í Englandi og því líkl. verða tekinn fastur sem ærukrenktur maður í haust er ég fer aftur til Englands og Danmerkur. Þvaðui'-saga þessi mun vera spunn- in af því, að hr. Oddur Gíslason átti eftir umboði að innkalla hjá mér skuld. Iljörtur Fjeldsted. Mér undirrituðum hefir verið falið að innkalla eftirstöðvar af andvirði Orgels, sem H. Fjeldsted keypti síðastl. vetur, af Archibald Ramsden i Hull, og votta ég hér með, að mál það er alls ekki þannig vaxið, að það geti á nokkurn hátt skert mannorð hr. H. Fjeldsteds. Oddur Gíslason. Ið alþekta góða „OBEL-SKRAA“, af mörgum tegundum í smápökkum, fæst einungis hjá C. íjeriervig, Þeir sem hafa skrifað sig fyrir félagshlutum í „Aburðarfélagi Reykja- víkur,“ eru beðnir að greiða til kaupm. Jóns Þórðarsonar fyrir 15. Mar- næstk. fyrri afborgun með 10 kr. fyrir hvert hlutabréf. Tryggvi Gunnarsson. Góður liilliard með öllu tilheyr- andi; nýr norskur bátur (skekta) og smáriðið síldarnet er til sölu. Mjög lágt verð C. HERTERVIG. Steinh.ær, nýr vandaður á falleg- um stað, fyrir litla fjölskyldu, fæst leigður með ágætum kjörum nú eða 14. Maí. Ritstj. ávísar. [—tf. Heimsendanua miUi. --0 — Stríðsfregnin fiugufregn, Nyjustu tíðindi. Með botnvörpung, sem kom í gær, barst oss „News of the World“ frá 7. og „Morning Leader“ frá 9. þ.m. Fyrra blaðið er vikublað af lélegasta tæi; en ið síðarnefnda sæmilegt dag- blað. Flugufregn hefir það verið, sem botnvörpuskipstjóri flutti hingað munn- lega um daginn, að stríðið milli Jap- ana og Rúsa hafði byrjað 7. þ. m. En flugufregnin hefir eflaust komið út í fregnmiðum enskum að kvöldi 7. þ. m. Yfir höfuð er fult afflugu- fregnum í Norðurálfu þessa daga, og oft borið aftur að morgni það er fregnaðist að kvöldi. Átylla talsverð heflr og verið fyr- ir fregninni, því að þann 7. þ. m. lýstu Japanar slitið ölhtm samninga- tilraunum og ollutn sendiherra-við- skiftum við Rúsland og buðu sendi- herra sinum í Pétursborg að halda hið hraðasta á burt úr Rúslandi, í síðasta lagi 10. þ. m. Sendiherrann, hr. Kurino, er mælt að muni þá halda til Berlínar og dvelja þar fyrst um sinn. — Rúsar kvöddu og sinn sendiherra í Tokio (höfuðborg Jap- ana) á burt þaðan, og æt.laði sendi- herrann (von Rosen barúu) ásamt skylduiiði sínu og aðstoðarmönnum (alls 23 manns að prestum með- töldum) að leggja af stað frá Yoko- hama 12. þ. m. með frönsku eim- skipi Yana, og fara heim Súez-leið- ina. Japan sendi öðrum útlendum þjóðum þegar tilkynning um þetta og birti orðrétta þessa síðustu oið- sending sína til Rúsastjómar, er hr. Kurino flutti utanríkisráðherra Rúsa um leið og hann tiikynti burtför sína. Mælist hógværð Japana og stilling hvervetna vel fyrir. Það er mælt, að Rúsar hafl verið að búa út herskip í Port Asthur, til að flytja' 6000 landherliðs til Chemul- pho, sem er hafnarborg vestan á Kóreu við mynni Han-fljótsins og er þaðan allskamt til Seoul, hötuðborg- ar Kóreu. — 8. þ. m. fékk hermála- ráðgjafl Bandaríkjanna í N.-A. þá símfregn frá sjóforingja þeim, er fylgir sendiherra Bandar. í Tokio, að mikill floti japanskur væri lagður í haf áleiðis til Chemulpho. Bandaríkja-stjórn kveðst hafa feng- ið vitneskju um það, að þá er til ófriðar komi milli Japana og Rúsa, megi búast við því að Síberíu-braut- in verð sprengd upp á ýmsum stöð- um með dýnamíti. Um brautina sitji eigi að eins dulklæddir japanskir njósnarmenn (eins og „Rvík“ hefir um getið), heldur sitji og Sínverjar í Mandsjúrí um haná, og ekki óhugs- andi, að rúsneskir anarkistar (stjóin- leysingjar) búi yfir inu sama. Japanar hafa nú sent skip til að flytja heim alla Japana frá Vladivo- stok, og vóru allir komnir á skips- fjöl þar. — Japanar í Mandsjúríi eru nú allir að flytja sig til hafna og ætla allir að halda. burt úr landi. Japansstjórn heflr nú lcvatt 400- 000 manns af landher til vopna. Japönsku herskipin frá Evrópu (er þeir keyptu í Genúa af Ai gentínu) er ætlað að hafi náð til Japans 9. eða 10. þ. m. Það er undir eins nú orðið örðugt, að fá áreiðanlegar fregnir þar að aust- an. Japansstjórn hefir harðbannað að senda nokkur tölusímskeyti eða önnur torkend símskeyti þaðan úr landi, og stjórnin hefir gætur á sima- stöðvum öllum, að engar fregnir sé sendar, sem hún vill eigi láta ber- ast. Rúsar hafa sama eftirlit með Síberíu-símanum. En símasambandið milli Japans og nmheimsins (að Sínlandi frá skildu) er að eins með símum stóra. norræna sím- ritafélagsins (danska). Þaðfélaghefir tvenna síma milli Nagasagi ogYladi- vostok. Aðrir tvennir símar liggja milli Japans og Sínlands (Shanghai), en einfaldur sími milli Japans og Kóreu (Ma'sampho a Suðurströndinni). — Þá er stríð hefst, má búast við, að Rnsar geri alt hvað þeir geta til að skera sæsimann til Kóreu, því að hann er Japönum mest áríðandi (þeir eiga sjálfir símanet á landi yflr Kóreu), enda má búast við að Japanar leggi alt kapp á að gæta þessa síma, ef auðið er,—Aftur er ólíklegt talið, að Rúsar skemmi simann til Viadivostok, því að þeir hafa rétt til í ófriði að hafa eftirlit með öllum símskeytum þar. -—Frá Shanghai liggur einfaldur simi til Peking (um Gula hafið) og þaðan yfir Sibevíu til Rúslands. En sá hængur verður við fréttir, er þá leið berast., að fyrst hefir Japans- stjórn látið „endurskoða" öll skeyti, sem þaðan verða send, og svo lætur Rúsastjórn „endurskoða" þau á ný, áður en þau fá að fara með Siberíu- línunni. En þó er sú bót í máli, að þau skeytí, sem til Shanghai. koma, má senda með „Eastern Extension Co.s“ símalínum suður með Asiu og forðast þannig rúsnesku leiðina. Eftirskrift Stríðið þó loks hyrjað! Síðdegis 8. b, m, í morgun tókst oss að grafa upp 1 tbl. af Hnll-útgáfunui af „London Daily Mail“, 9. þ. m., er botnvörp- ungurinn í gær hafði haft I fórum sínum. Það er áreiðanlegt blað með símfregnum frá i). þ. m. Japau hóf ófriðinn síðdegis 8. þ. m. Réðst þá tundurskipa-floti

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.