Reykjavík - 18.03.1904, Síða 2
44
„Hjúin gera garðinn fraegan",
Haustið 1902 í Októbermánuði réð ég
til mín mann nokkurn, Þórarinn Guð-
mundsson að nafni, til þess meðal anriars
að aka þvotti milli Lauganna og Reykja-
vikur. Atti hann að halda dagbók og
skrifa í hana nákvæmlega alt er hann
keyrði, taka á móti borgun fyrir keyrsluna
og kvitta við í bókinni; auk þess átti
hann að skriía í aðra bók alt það, sem
hann var látinn kaupa til heimilisins, þvi
að borgun fyrir það átti hann að taka af
peningum þeim, er kom inn fyrir þvott-
keyrsluna. Bækurnar og pað, sem þá var
eftir af peningunum, er inn höfðu komið
fyrir keyrsluna, átti liann að afhenda mér
nm hverja helgi. Þetta gekk allvel í fyrra
vetur, þótt dáiítið værí ábótavant við bók-
færsluna Vandaði ég um það við hann
og lofaði hann að bóka alt rétt.
Fardagaárið 1903—1904 réðst hann til
mín sem vinnumaður og hafði ég hann til
sama starfa, þegar kom fram á sumarið og
ég byrjaði að fara með vagna austur x
hveri-i viku. Þá átti ég svo annríkt, að
ég komst eigi til að innfæra úr dagbókum
keyrslumaunsins, enda trúði ég honum til
að skriía alt rétt. Leið svo fram tíminn
að ég tók eigi á móti bókunum fyr en
eftir nýár í vetur. Var þá langur kafli,
sem hann hafði ekkert í þær skrifað ai'
því sem keyrt hafði verið, sömuleiðis var
ekkert skrifað af þvi, sem keypt var til
heimilisins frá þvi i Júlí f. á. og var þó alt
af keypt daglega meira og minna fyrir
keyr8lupeningana. Þar af leiðandi var
eigt hægt að sjá, hvað inn hafði komið.
8á ég nú að ég hafði trúað Þórarni
alt of vel og lét þvi annan taka við að
keyra þvottinn. Frétti ég þá, að Þórar-
inn hafði verið farinn að tryggja sér þvotta-
keyrsluna eftirleiðis með þvi, meðal ann-
ars, að láta lista ganga um bæinn handa
mönnum að skrifa sig á, sem vildu nota
keyrslu lians; enn fremur frétti ég að í
félagi við hann væri góður og gamall ná-
ungi minn, sem ég hafði gengið í ábyrgð
fyrir i Landsbankanum fyrir láni, sem
hann að visu er nú búinn að borga; en í
fyrra fyrir vertiðina bað hann mig að
hjálpa sér og lána sér nokkrar krónur,
sem ég gerði. En á það lán hefir hann
ekki minst einu orði síðan Átti ég bágt
með að trúa því. að þessir menn byndust
í félag til að keppa við mig um Lauga
keyrsluna og það því siður, þar sem Þór-
arinn, er ég varð að vekja í vetur á
morgnana á 9. stundu, þegar honum hafði
orðið á sofna aftur, eftir að hann fékk
morgunkaffið, sagði, að fleiri mundi verða
lúrlegir en hann eftir keyisluna, og að
keyrslan væri sú versta vinna, sem hann
hefði unnið. Auðvitað er þetta jafn satt
og fleira úr þeirri átt. Hinn maðurinn
var áður búinn að reyna sig á Lauga-
keyrslu og hætti við hana af því, að hon-
um þótti hún ekki borga sig.
Það reyndist satt, að þeir félagar vóru
búnir að láta lista ganga um Reykjavíkur-
bæ til að safna handa sér áskriftum til
Laugakeyrslunnar. Og svo vildi svo vel
til, að þessi félagi Þórarins heitir Jón, og
hefi ég sannfrétt að nokkuð margir ætluðu
að þessi Jón, sem skrifaði sig neðan und-
ir listann, væri ég, því að þeir vissu ekki,
hvers son é g er, Skrifuðu þeir sig svo á
listann í þeirri meiningu að hann væri frá
m é r. En það liggur í augum uppi, að
slík áskrift getur ekki verið bindandi fyrir
neinn, sem hefir vilst svona á mönnum,
og það var ekki skýrt fyrir þeim, er hlut
áttu að máli.
Þegar nú Þórarinn sá, að hann átti
ekki að keyra lcngur, bað hann mig að
gefa sér eftir vetrarvertíðina og það gerði
A leigu.
frá 14 Maí n. k. fást i vær yndisleg
ar íbúðir í húsinu nr. 4 við Vatns-
stíg hér í bænum. — Nánari upþlýs.
inaar gefur
Saníd Daníelsson,
á 4 — 6 aura.
12 stykki fyrir 35 og 60 aura.
cekcx og ka||ibrauð
er bezt hjá
JES ZIMSEN.
Mork Carlsberg
fæst nú hjá
Guðm. Olsen.
Til leigu
nú þegar, eða frá 14. Maí
2 hcrbergi í Vesturgötu 37.
H ú s
á góðuiu stað í bænum er til
sölu. Ritstj. ávísar.
margs konar, nýkomin til
Guðm. Olsen.
Enskar liúur
nýkomnar í verzlun
Einars Arnasonar.
jjrúkið rauðvín til matar.
Verzlun Ben. S. Þórarinssonar selur
góð, en ódýr rauðvín. — Rauð-
vín eru betri í sætsúpu og rauð-
grauta en saft. Ef keypt, er að
mun rauðvín, þá verða þau ódýrari
en saft.
í Vinaminni
fást nú fallegir KRANZAR af nýrri
Thuju og ýmsum fallegum, grænum
blöðum. Einnig BLÓM- og JURTA-
FRÆ og ýmsir blómlaukar. [—13.
Með ,Ceres‘, ,Laura‘
og ,Mjölni‘ liefir kom-
ið afarmikið af alls
konar vörum í allar
deildir í Thomsens
Magasíni.
fragtin dn nemur
2,400 krinum.
Nokkra háscta vantar á Kutter,
eftir Páska, góð kjör í boði. Þeir
sem sinna vilja þessu, tali við Sig-
urð skipstjora Bjarnason, Nýlendu-
götu nr. 21.
THQMSENS
MAGASlN.
Bazardcildin: hárkambar, hár-
greiður, vasagreiður, fílabeinskambar,
spil, alls konar leikföng, svampar,
atkvæðakúlur, blómsturvasar, stórt
úrval af ilmvötnum, harmoníkur,
fiðlur, munnhörpur, mikið af
silfur og plcttvörum.
Kartöflur
fást í verzlun Jóns Þórðarsonar.
TH0IV1SENS MAGASfN.
Kjallaradcildin: Sódavatn og
Sítrónsódavatn frá Itósenborg, Por-
ter, Export, Pilsner og Lageröl.
Mork Carisberg fyrir bindindis-
menn. Portvín, Sherry, Rínarvín,
Cbampagne, Banco, Whisky, Cognac
og margar aðrar tegundir af vínum,
sem keypt eru beint frá heimsins
allra hcztu vínsöluhúsnm.
Búarnir,
sem kvenfólkið hefir mest spurt eft-
ir, eru nú komnir í verzlun
JÓNS tÓKBARSBNAR,
sömul, karlm. skinnhúfur o, m. fl.
ég. En hvað gerir hann svo? Hann er
nú byrjaðnr að keyra þvott. fyrir „komp-
aníið“ og sé ég nú fyrst, hvað vel hann
hefir vexið búinn að búa í haginn fyrir
sig áðui*.
Um aðferð hans gagnvart mér, skal ég
ekki dæma; en þegar ég sá hann ofan í
grunninn, datt mér í hug í málshátturinn:
„Hjúin gera garðinn frægan“.
Línur þessar hefi ég skiúfað góðum
mönnum til athugunar.
Laugalandi, 14. Marz 1904.
Jón Guðmundsson,
(póstur).
Y o 11 o r ð.
Síðast liðin þrjú ár hefir kona mín
þjáðst af magakvefi og taugaveiklun,
og batnaði henni ekkert við margí-
trekaða læknishjálp; en við það að
nota KÍNA-LÍFS-ELIXÍR Valdemar
Pctersens hefir henni stórum batn-
að, og óg er sannfærður um, að
henni mun albatna, ef hún heldur
áfram að brúka elixírið.
Sandvík, 1. Marz 1903.
Eiríkur Runáilfsson.
Kína lífs-elíxírið fæst hjá flest-
um kaupmönnum á Islandi, án toll-
álags á 1,50 (pr. fl.) glasið.
Til þess að vera vissir um, að fá ið
ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur
beðnir að líta vel eítir því, að
standi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir inu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Fredrikshavn. Skrifstofa og
birgðahús Nyvej 16, Köbenhavn.
mr* Þeir sem eun
hafa ckki borgað síð-
asta árgang „Reykja-
víkur“, eru beðnir að
gera það sern fyrst.
Allar auglýsingar,
sem birtast eiga í
„Reykjavík"
Verða að afhendast
í síðasta lagi áliád.
hvers jVíiðkuðags.
PRENTSMIBJA ReYKJAVÍKUR.
Prentari: Þorv. Þorvarðsson.
Pappírinn frfc Jóni Ólafasyni.