Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 18.05.1904, Blaðsíða 4

Reykjavík - 18.05.1904, Blaðsíða 4
88 Berlinni um hálsmein keisarans, var alt til þess gert að bæla niður allan grun um, að það væri krabbamein, sem að keisara gekk, og mikið gert úr því, hve hratt og vel batinn gengi, og síðast, að keisari væri alheill orðinn. Sitthvað leit þó grunsamlega út um albatann, t. d. það, að keisari og hirð hans fluttist aldrei til Berlinnar í vetur. Nú segist fregnriti „Scotsman’s" hafa fengið sanna sögu af sjúkleik keisarans, og það úr beztu átt, sem eigi verði vófengd. En sagan sönn hefir aldrei birt verið fyrri á prenti. í miðjum September fékk keisari hæsi, er ekki vildi batna, heldur versna, og lót hann þá iækni sinn skoða háls- inn á sér. Læknirinn heímti, að þeg- ar væri sent eftir sérfræðingi í háls- sjúkdómum, Dr. Moritz Schmidt í Frakkafurðu. Hann kom þegar, og kvað æksli vera að myndast á vinstra raddbandinu og yrði að skera það burt þegar í stað. En er keisari heyrði, að hann yrði að hlífa rödd sinni (tala lítið sem ekki) nokkurn tíma eftir uppskurðinn, þá kvað hann verða að fresta skurðinum, því að mikilvæg stjórnmálefni kölluðu að sér fyrst. Fékk hann læknana til að heita sér því, að þegja trúlega um háls- meinið, þar til er búið væri að gera skurðinn, til að óróa ekki sifjalið sitt né þegna. Þau mikilvæðu stjórnmál, er keis- arinn átti við, vóru það, að Rúsa- keisari var þá í orlofsferð hjá mági sínum, stórhertoganum af Darmstadt. En Yildjálmur vildi finna Nikulás keis- ara að máli, átti við hann skyldar- erindi, og vildi líka fyrir hvern mun forðast það umtal, er af því mundi verða, ef hann tæki eigi á móti Niku- iási keisara, og bæri sjúkleik sinn fyrir. Vilhjálmur keisari hélt nú svona út 6 vikur, sinnti öllum stjórnarstörf- um, var inn ghiðasti á heimili sínu, tók móti Nikulási í Wiesbaden með dýrlegri veizlu og heimsótti hann aft- ur tveim dögum síðar í Wolfsgarten. En alt af versuaði hálsmeinið, og sýndi keisari ið mesta þrek í því, að láta nær á engu bera og leika á als oddi. En er Rúsa-keisari var heim horf- inn, lagði hann sig undir læknishend ur. Dr. Schmidt hafði undirbúið alt; hafði hann í nokkra daga dvalið í höll keisarans í Postdam, svo að eng- inn vissi af, nema einn trúnaðarþjónn keisara, er bar iækninum mat og gekk einn um herhergi hans. Enginn af ættmönnum keisara vissi þá um sjúk- dóm hans, nema drottning hans ein. Skurðurinn á hálsinum var gerður í herbergi læknisins, og var enginn viðstaddur auk læknanna, nema trún- aðarþjónninn, sem getið var, og hafði hann áður verið við, er skorið var krabbameinið úr hálsi föður keisarans. Keisari skipaði læknunum að leyna sig engu um sjúkdóminn. Keisar- inn mátti ekki tala fyrst á eftir; en undir eins og skurðinum var lokið, skrifaði hann á blað: Er það krabba- mein ?“ og rétti að iækninum. Hverju læknirinn hefi svarað honum, veit enginn, en það var uppi látið, að þetta væri meinlaust hálsmein, er ræðu- menn og söngmenn fái oft. Að sárið greri svo seint, yar kent því, að keisarinn hlýddi eigi nógu vandlega læknunum um það að hlífa röddinni. En er fólk heyrði það 20. Nóv., að keisari ætlaði ekki að koma til Berlinnar, en dvelja suður í lönd- um, varð þjóðm smeik. Faðir hans og móðir höfðu bæði dáið af krabba- meini í hálsinum. Þó rénaði ótti manna, er keisari þá heimboð í brúð- kaupsveizlu og söng þar hátt hjóna- vígslu-sálminn. Skömmu áður en hann lagði af stað suður í lönd, kom hann og fram í margra viðurvist og hélt ræðu, og blöðin voru öll látin flytja fregnir um albata hans og skæran róm. En hirðmenn hans hristu höfuðin. Það var og undarlegt um jafn-starf- saman mann, sem ekki er vanur að vera langvistum fjarri stjórnaraðsetri sínu, þá er stórtíðindi gerast í heim- inum, að hann skyidi leggja í ferða- lag suður um lönd og siglingar fram og aftur um alt Miðjarðarhaf einmitt þá er ófriðurinn hófst milli Rúsa og Japana, — og vera enn í því ferða- lagi. Til þess hlutu að liggja sterk- ar ástæður. Þá er keisara-skipið kom við í Vigo á Spáni og keisari kom þar á land, var mikið til þess tekið í blöð- unum þar, hve veiklega keisarinn liti út, og að hann forðaðist sem mest að tala, og þá ekki nema í hálfum hljóð- um. Þá er hann kom til Gibraltar, var sagt að hann væri alveg úttaug- aður og svo hás, að varla mátti mál hans nema. í Berlinni er það allra manna ætl- un, að keisarinn hafi verið sendur út í þetta ferðalag 1 því einu skyni, að hlífa honum við áreynslu, til þess að honum geti aukist þróttur, svohann geti þolað annan stærri uppskurð á hálsinum. En krabbameins-óttinn liggur eins og þung móða yfir aliri þýzku þjóð- inni. Menn þora ekki að svara sjálfum sér upp á spurninguna: Hefir keisarinn krahha-mein? TRe^ftlavífc og ðrenö. Eiinskip með vörur kom á Sd. til verzl. „Edinborg." Kaldhryssingslegt nú síðustu daga, snjóað í fjöll. „Ejallkonan44 er nú fullyrt að sé seld frá næsta nýjári, auðvitað ein- hverjum utanbæjarmanni. Ritstj. „Fjallk.“ er lasinn þessa daga, rúmfastur. Lansn írá prestskap hefir fengið fyrir heilsubrest séra Arnór Árnason á Felli í Strandasýslu. Hapaslys vildi til fyrir helgina hérna fyrir innan bæinn. Tveir rnenn komu innan veginn og reið annar ofan á stúlku, sem var að koma úr Laugum. Stúlkan fóll um koll, fór hesturinn yfir hana og virðist hest- urinn hafa stígið á herðarnar á henni. Mennirnir flengriðu áfram og skiftu sér ekkert um stúikuna. Hún er síðan mikið lasin. [,,Fjallk.“J- Nj'dáinn hór í bænum 13. þ. m. eftir skamma legu cánd. phil. Eirík- ur Sigurðsson Sverrisen, fi-eklega hálf fertugur að aldri, f. 23. des. 1867. Hann var sonur Sig. sál. Sverrisen, sýslumanns í Strandasýslu. Hann var kvæntur Hildi Jónsdóttur, prests Bjarnasonar Thorarensen frá Stór- holti. Hún lifir mann sinn. Yfirlit yfir }>ilskipa-aflann í Reykjavík og á Seltjarnarnesi á vetr- arvertíðinni: A. Reykjawík: Eigendur skipa : Skipatala: Afli tals: G. Zoéga . 6 123,000 Th. Thorsteinsson . . . 5 103,000 Jes Zimsen . . . . . 3 53,000 Þ. Þorsteinsson o. fl. . . 2 57,000 P. Bjarnason o. fl. . , . 1 24,000 Gisli Jónsson o. fl. . 1 12,500 Runóifur Stefánsson . . 1 15,000 Stefán Pálsson . . . . 1 15,000 N. Bjarnasen o. fl. . 1 25,000 Jón Þórðarson . . . . 1 17.000 Árni Hannesson o. fl. . 1 13,500 Guðjón Knútson o. fl. . 1 10,000 M. Magnússon o. fi. . . 1 20,000 Jafet Olafsson o. fl. . . 1 30,000 Fi'pus Gufunesi . . . 1 25,000 Sig. Þórðarson o. fl. . . 1 31,500 Brynjólfur í Engey . 1 18,000 29 593,500 B. Sel&jarnarnesið: Pétur Sigurðsson o. fl. . 2 45,000 Sig. Jónsson . . . . . 2 46,000 G. Olafsson o. fl. . . . 2 57,000 Runólfur Olafsson . . . 1 15,500 Jón Jónsson . . . . . 1 15,000 Þóiður Jónsson . . . . 1 14,000 9 193,000 Aflinn hefir þá orðíð í Reykjavík að meðaltali 20,400 á skip, en á Nesinu 21,400. Hæst liafa þessi skip orðið í ár: Björn Ólafsson 33,000; Golden Hope 31,500; So- pliie Whatley 30,000; Gcorg, Sjana 29,000 hvort; Esther 28,000; Emilía 27,000; Joscf- ína og Margrét 26,000 hvor. Fiskurinn er í ár yfirleitt mjög vænn, mestalt stór þorskur. Má líkl. gera ráð fyrir 8—9 skippundum ór þúsundinu upp og ofan. Ef úthald og afli á vetrarvertíð undan- farin ár er borið saman við þetta ár, verð- ur það á þessa leið: Reykjawík: Ár Skip afli tals. meðalt. á skip. 1898 31 439,500 um 14,000 1899 30 304,000 — 10,000 1900 34 488,500 — 14,000 190) 48 623,000 13,000 1902 37 679,000 — 18,000 1903 40 638,300 — 16,000 1904 29 593,000 — 20,400 SeUjarnarnesið: 1898 5 62,000 — 12,400 1899 5 82,000 — 16,400 1900 7 111,000 — 15,850 1901 7 127,000 — 18,150 1902 6 120,000 — 20,000 1903 7 129,000 — 18,400 1904 9 193,000 — 21,450 Á þessu sést, að þiiskipa-útvegurinn F Reykjavík hefir verið mestur árið 1901. Síðan fækkar skipatalan. Eitt af þeim skipum, sem þá gengu héðan, gengur víst nú úr Hafnarfirði, og telst því ckki hér með. — Nokkuð liggur fækkunin í því, að menn hafa fargað smáskipum og keypt stærri (og færri). En aðallega mun orsök- in vera sú, að 1901 tóku ýmsir snikkarar og skóarar og aðrir, sem vóru alls óvanir sldpaútgerð, að gerast útgerðarmenn og ætluðu að græða stórt á stuttumtíma; en þeim lét ekki útgerðin mörgum og töpuðu á henni. Og svo kom afturkippurinn. Þeir hættu við úthaldið, létu skipín standa: uppi, sum hafa farist eða farið að forgörð- um og ekki verið endurnýjuð. En með þessu er ekki sagt, að útgerðin hafi ekki borgað sig í höndum vanra og hygginna útgorðarmanna. Ekki það, að ritstjórn „Reykjavíkur“ viti það, en henui er nær að ætla, að vorir stærstu og reyndustu út- gerðarmenn þurfi yfirleitt okki að bera sig illa undan neinu árinu þessi ár. Það er eftirtektavert, að þegar viðvan- ingarnir, sem ekki kunnu til útgerðar, liætra (1902), þá hækkar meðaltal aflans. Þá er og vert að taka eftir því, að eftir að árið 1898 líður, þá er meðaltala á skip hærri á Seltjarnarnes-skipunum en Rvik- ur-skipunum. Það þarf því varla að efa, að þilskipaút- vegur fari aftur að vaxa hér; og ef sá vöxtur gengur hóflega og þeir einir leggja í úthaldið, sem eru því vaxnir, þá má vænta að vöxturinn haldist og verði að góðu. Vatnsleiðslu-málið. Fyrir góðfúslega milligöngu Mr. Wards, sem sýnt hefir Reykjavík velvildarfylsta á- huga í þessu máli, komu ujip hér í vor tveir Bretar: Mr. Deprek, forstöðumaður stórs verkfræðisfélags í Exeter, mikilsvirt- ur maður og fyrrum bæjarfógeti þar. og Mr. Weir, verkfræðingur reyndur, er stað- ið hefir fyrir mörgum stórum vatnsleiðsl- um. Mr. D. mun eigi ófús til, ef svo sem- ur, að leggja fram féð til fyrirtækisins. — Þeir hafa nú skoðað umhverfið hór og landslag, og af gildum ástæðum, sem skýrt skal verða frá næst, telja þeir frágangs- sök að reyna hér brunngrefti. eða eiga neict undir brunnum. Álíta aðgengilagast fyrir bæinn að fá Elliðaártiar (vatn úr þeim) og leiða hingað vatnið. Samkv. á- ætlun þeirra um kostnað við það, virðist þetta ali.s ekki ofvaxib bænum. Berlega sást á bæjarstjórnar aukafuudi i gærkvöldi, að bæjarstjórnin er málinu mjög hlynt; en það er svo mikilvægt mál, að hún ákvað að leggja það undir alm. borgarafund, er- væntanl. verður lialdinn eftir helgina, og er vonandi, að bæjarmenn fjölmenni á fundinn og bindi sig ekki fyrirfram hleypi- dómum áður en þeir heyra áættanir og röksemdir í málinu, sem nú virðist horfa vænlega við. Það verða víðfleyg orð, því þau ívöru sönn, er Gubm Björnsson læknir sagði á fundinum í gær: „Yatnsleiðsla í bæinn er orðin það líps-spursmál, að vér verðum ANNABHVORT AB FI.YTJA BŒINN AÐ VATNI EBA VATN AB BQ'INUM.u Næsta blað á Laugardags- morgun. Prentari: Þorv. Þorvarðsson. Pappirinn Ír4 Jóni ÓlaÍBeyui.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.