Reykjavík - 05.08.1904, Síða 4
140
Ég trúi þvi, að lindir gulls og gæða,
sem geymir þú, nú opnast muni skjótt.
Eg trúi því, að sárin, sem þér blæða
og sveið þig í, þau grói máske fljótt.
Eg trúi’ og veit, að framsókn, dáð og frelsi
til frama og sigurs niðja þína ber.
Ág trúi’ og veit, að sérhvert haft og helsi
mun höggvið verða karlmannlega’ af þér.
Sjá friðarbogann blika’ i miðjum hlíðum
og bjartur annar hátt of fjöllum skín!
Vér gleymum því, i ströngu þótt vér striðum,
ef strauma frelsis leiðum vér til þín.
Vort föðurland, um eilifð auðna’ og gengi
þig örmum vefji, foldin hjartakærst!
Vér hrópum glaðir: „Ísland lifi lengi
og ljómi stjarna þess sem allra skærst!“
Stundu eftir nón hófst hátíðin aft-
ur, eftir að menn höfðu snætt dög-
urð, og varð þó að bíða hálfa stund
yfir til tekinn tíma áður Ouöm.
læknir Björnsson tók til máls fyrir
Reykjavík. Mælti hann snjalt og á-
heyrilega, sem hann á vanda til,
því að hann er vel máli farinn. —
Brýndi hann einkum, eins og áður
hefir gert verið við sama tækifæri
og oftar, hver skammsýni væri fólg-
in í Reykjavíkur hatrinu, sem svo
oft bólar á.
Á eftir var þetta sungið:
REYKJAVÍK.
Lag: Þú bláfjallageimur með heiðjöklahring.
í dag lcoma börnin þín, drottning vors lands,
sem dáðríka von í brjóstum ala,
úr bláliljum, rósum þau knýta þér kranz
| : og kveða ljóð um þig á grænum bala : |
Og dísir frá Ingólfstíð birtast og blítt
þér brosa nú við svo undur-glaðar.
Þær dansandi syngja: „Sjá alt er orðið nýtt,
og a!t af hækkar sæmd vors höfuðstaðar!
Vér munum þau, holtin þín, hrjóstug og ber
og hrevsin, sem áður fyrr hér stóðu;
á Ijósgrænu túnin nú bjarma sinn ber
in bjart.a sól og húsin nýju, góðu“.
Svo tökum vér undir og óskum þess heitt,
að aidrei þér verði neitt að grandi,
eu framför þín geti til farsældar leitt
og frelsi’ og manndáð eflt i voru landi.
Ef sundrungin færekki’ að festa á þér hramm
og fósturbörn þín í sundur skilja,
þá veit ég þú bi-ýtur þér brautina fram
með brandi, hertum trú og ást og vilja.
Þín kóróna gnæfi við gullfjölluð ský
og geislana yfir laudið breiði,
og inenningarstraumarnir æðum þér í
með afli sterku þrótt í börn þín leiði!
Bæði þessi kvæði eru eftir Ouð-
mund skáid Ouömnndsson.
Loks mælti Guðm. Finnbogason
and. mig. fyrir minni íslendinga
eiíeudis.
Glímt var um kvöldið og fengu
þessir verðlaun: 1. (20 kr.) Jónatan
söðlari Þorsteinsson; 2. (15 kr,) Guðm.
Erlewdsson frá Hlíðarenda í Fijótshlíð:
S. (10 k'.) Valdem. Sigurðsson, Rvík.
Tvær rólur vóru á hátíðarsvæðinu,
fyrir börn, og var það helzt til lítið.
Engar vóru þar iðróttir þreyttar aðr-
ar, en hér hefir verið talið. En dans-
pallur var þar og var þar dansað.
Það sýndi sig enn, að vér íslend-
ingar kunnum ekki vel að skemta
okkur. Unga fólkið er dauft á að
hreyfa sig, karlar jafnt sem konur.
Hvergi sást hoppað, stokkið eða
hlaupið.
Hressingar vóru nægar að fá, bæði
áfengar og óáfengar, og var þeirra
drjúgum neytt,; en varia nokkurn
mann sáum vér kendan á hátíðar-
svæðinu, svo teljandi væri, og fór alt
vel fram og spaklega.
Þjóðræknis-andi.
Það er gleðilegur vottur um vax-
andi menning hvers stærra og smærra
þjóðfélags, þegar þar fara að rísa upp
einstaklingar, sem álíta að göfgi og
geta leggi sér skyldur á herðar. —
Þessi skoðun gerir, eins og eðlilegt
er, þar sem þjóðin er bæði fámenn
og fátæk, miklu sjaldnar vart við sig
í voru landi en í öðrum fésælii og
fjöimennari löndum. En því meiri
ástæða er til að geta þeirra manna
hór hjá oss, sem í framkvæmdum
sínum játast undir ið forna, franska
spakmæli: „noblesse oblige."
Hr. D. Thomsen hefir í tvö skifti
í sumar sýnt af sér höfðinglega risnu,
er komið hefir fram við land vort
og þjóð. Það var fyrst, er hann á
Mýrdalssandi lét reisa hæli h;md;i
sjóhröktum mönnum, og nú, er hann
keypti líkneski Einars myndasmiðs
Jónssonar frá Galtarfelli: „Útílegu-
maður flytur lík konu sinnar í helg-
an reit.“ Menn kunna ef til villaðsegja,
að hér sé hvorki um stórmikil fjár-
framlög að ræða og líklega hefði
mátt verja fé þessu betur til almenn-
ingsþarfa. En mestu skiftir það þó,
af hverjum hvötum og hugsunarhætti
slík fjárframlög og gjafir eru sprott-
nar. Því verður ekki neitað, að það
ber miklu meira á þeirri skoðun hjá
konsúl Thomsen en flestum öðrum
stéttarbræðrum hans hér, að kaup-
menn eigi ekki að eins að reka iðn
sína með afli og atorku, en þeir eigi
líka að iáta aimenningsmál og heill
almennings til sín taka og starfa að
því að gera land vort byggilegra og
vistlegra, bæði í eiginlegum og óeig-
inlegum skilningi.
Þ;tð er æskilegt, að með vaxandi
mentun verði skoðun þessi rík með-
al verzlunarsléttarinnar, landi og lýð
til heílla. P.
Munið effcir, að
£íkkranzar
úr lifandi blómum, fást í Tjarmrg. 8.
Guðrún Clausen.
Bréfspjald
Til þess 7. vinar míns, sem vill verða rektor.
Þótt yrðir þú röggsamur rektor,
— og rangt væri’ að efast um það, —
mér líkaði betur sem lektor
þú lifðir á afviknum stað.
Blausor.
Landshoruanna milU.
Hr. Kristinn Magnússon skip-
stjóri kom hér inn 31. Júlí á skipi
sínu; hafði verið fyrir norðan land,
norður af Húnaflóa og alt norður
undir Skagatá. Hann hafði fengið
25,500 af dávænum fiski. — Hann
segir hafís við Horn, og í kring,
nokkuð inn á Húnaflóa og suður fyr-
ir ísafjarðardjúp, en hvergi landfast-
an. Því komst hann og vestur fyrir.
Væntanlega hverfur ís þessi brátt
aftur.
Öndvegistíð fréttist með „Hól-
um að norðan og austan; grasvöxtur
mikill.
Fiskafli mikill og góður austan
Langaness, suður um Vopnafjörð og
var að færast suður með landi,
Sendimaður landsstjórnarinnar
norður á Vatnsnes, með ráðsfafanir
út af míslingunum, kom aftur í gær
og segir þar enga misiinga vera eða
verið hafa nú.
Misletrun í síðasta bl. (136.bls., 2.
dlk. 5.1. a. n.): „Gv. Skelfing" f. Gm.
Skeving.
■3 [IRe^kjavík oq Qrenö.
Séra Monrad, inn norski prestur
frá Khöfn, sem vér höfum getið um
aður, ætlar að flytja 4 tölur um
n,0nistj. Bjernson í næstu viku hér
í bænum, og verður vafalaust hugð-
næmt að hlýða á það.
„Hólar“ komu í fyrri nótt. Með
þeim ýmsir farþegjar; þar á meðal
cand. jur. Björgvin Vigfússon frá
Hallormsstað.
Itektors-embættið sækja þessir
7 um: Dr. phil. Jón Þorkelsson,
docent séra Jón Helgason, kennari
Stefán Stefánsson á Möðruvölium,
adjunkt Geir T. Zoéga, eand. mag.
Guðm. Finnbogason, yfirk. Steingr.
Thorsteinsson og séra Jóhannes L.
Jóhannsson á Kvennabrekku.
Hvar kaupir fólk helzt alls konar
NIÐURSOÐINN MATogsælgæti,bæði
til heimilisbrúks og í FERÐALÖG?
Auðvitað í Nýhafnar-deildinni í
THOIBSENS MAGASlNI,
þar eru ávalt stærstar birgðir oglang-
flestu úr að velja, þar á meðal ým-
islegt, sem ekki fæst annarstaðar.
Nýjar birgðir koma með hverri
póstskipsferð.
Veðurathuganir
í Rcykjavík, eftir Sioríbi Bjöunsdöttub.
1904 Júlí — Agúst. Loftvog millim. Hiti (C.) Átt *o •s *o a> tí bo cð a CÆ Úrkoma millim. j
Fi 28. 8 763.3 12,8 0 10 2,6
2 762,8 13.6 NW 1 9
9 761,5 12.9 0 10
Fö 29. 8 759,2 12,3 0 10
2 758,1 13.6 W 1 10
9 758,8 12,5 0 8
Ld 30. 8 752.4 12,7 0 10 2,4
2 752,4 13.6 0 10
9 752,8 12,7 0 7
Sd 31. 8 756,2 13,1 0 6 4,0
2 756.4 15,6 0 7
9 755,5 13,8 NW 1 5
Má 1. 8 756,9 14,2 0 4 3,4
2 757,7 15,4 sw 1 8
9 757,5 13,4 0 10
Þr 2. 8 758,5 12,7 0 10 4,4
2 759,7 14,6 0 í?
9 759,7 11,8 w 1 10
Mi 3.8 759,9 11,1 0 10 0,2
2, 759,5 13,6 0 8
9 758,5 12,7 NW 1 10
„Tryggvi konungur“
fer til útlanda Miðvikud. 10. Ágúst.
Ágætt liúsnæði
á bezta stað í miðjum bænum er
er t.il leigu frá 1. Október næstk. í
Ilafnarstræti 19 (Kolasundi Nr. 1),
beint á móti Nýhafnarhúsinu.
íbúðin er uppi; þar er stór for-
stofa, 4 rúmgóð herbergi, eldhús og
skúr. Niðri er ein stofa sérlega hent-
ug fyrir skxifstofu,ogaukþessgeymslu-
klefi, en á öðru lofti eru 2 herbergi,
og eru því alls 7 rúmgóð íveruher-
bergi auk eldhúss og geymslupláss.
Húsið er hlýtt og skemtilegt, glugga-
röðin snýr á móti suðri en frá borð-
stofugluggunum er fögur útsjón yfir
höfnina.
Menn eru beðnir að snúa sér að
skrifstofudeildinni í
TH0MSENS MAGASÍNI,
Nýprentað: Kátur piltur eftir
Bjornstj. Bjornson. Jón Ólafsson
þýddi, 2. útg. Stifheft 1 kr. 35 au.
— Fæst hjá bóksölum í Rvik. — Verð-
ur send út um land í þ. m.
Ltiidarpcuna ágæta selur Jóu
Ólafsson, Kyrkjutorgi.
Gleraugu týnd 1. þ. m. á stræt-
um úti. Skili til ritstj.
í Bröttugötu 5
fæst keyptur Haruavagu mjögódýr.
M. A. Mathiesen.
TAFA8T liefir jarpur hestur með msiðali
á herðakarnpiuum. Finnandi er heðinn að
skila houum til Kr. Kristjánssonar tré-
Smiðs Skólavörðustig 4.
Prentari; Þorv. Þorvarösron.
Pappirinn fr& Jóni ólafasynL