Reykjavík

Eksemplar

Reykjavík - 26.08.1904, Side 3

Reykjavík - 26.08.1904, Side 3
151 N° 10 N° 10 ...-...... N° 10 REYNIÐ m W WBHT og þér munuð eigi vilja aðra tegund. Selt hjá ðllum helztu kaupmönnum á Islandi og um allan heim. N° 10 N° 10 N° 10 Mær í lögreglu-þjónustu. Sannar sögur eftir Miss Loveday Brooke. IY Tygilhnífarinn, [Frh. frá nr. 29, B.]. „Já, Sir George reit mór og bað mig að hafa vandlega gætur á bréfa- viðskiftum hennar, svo að auðið væri að stöðva þegar í byrjun sér- hverja tilraun til að halda áfram bréfaviðskiftum við Danvers. En það er ekki að sjá, að hún hafi gert neina tilraun til þess. Hún hefir verið mjög ódul í því efni. Hún hefir sýnt annaðhvort mér eða konunni minni öll þau bréf, sem hún hefir fengið, -og þau hafa verið frá gömlum vin- um föður hennar hér, sem hafa ósk- að að kynnast henni nú, erhún ertii Englands komin. Aftur verð ég að segja, að hún er mesti letingi um ailar bréfaskriftir. Konan mín segir, hún hafi enn ekki svarað nokkru einu af bréfunum, sem hún hefir feng- ið. Enginn hefir sóð hana taka sér penna í hönd síðan hiin kom í þetta hús, og hafi hún skrifað á iaun, þá skil ég ekki, hvernig hún hefði átt að koma bréfunum af sér — hún fer aldrei ein út fyrir dyr, og ekkert af vinnufólkinu hefði hún getað beðið fyrir bréf, nema herbergisþernuna kon- unnarminnar; en á henni getur eng- inn grunur leikið, því bæði höfum við varað hana við, og svo er hún ekki þessieiðis stúlka, að hún mundi hjálpa ungri stúlku með bréfaskriftir.“ „Það held ég nú iika. Miss Monroe hefir að líkindum verið við matborðið í bæði skiftin, er þér fenguð tygil- hnifana með póstinum — migminnir þór segðuð þeir hefðu komið með fyrsta pósti að morgninum?11 „ Já, Miss Monroe kemur mjög stundvislega til borðunar, og var við- stödd í hvortveggja skiftið. Þegar ég fékk þessa kynlegu sendingu, varð mér eðlilega eitthvað að orði, og lét ég svo myndina ganga mann frá manni við borðið til sýnis. Miss Monroe var mjög mikil forvitni á, hver sá duldi óvinur gæti verið, er sending þessi gæti verið frá.“ „Eðlilega. En nú vérð ég að biðja yður sórstakrar bónar, séra Hawke, «g vona þér uppfyilið hana nákvæm- lega.“ „Þér megið reiða yður á það.“ „Þakka yður fyrir. Ef svo skyldi þá fara, að þér fengjuð snemma á morgun eitt af þessum stóru umslög- um, sem þér kannist nú við, og í því skyldi vera mynd af þremur, en ekki tveimur, brugðnum tygilhníf- um — „Guð almáttugur varðveiti mig! Hvað kemur yður til að hugsa, að þetta muni verða?“ sagði séra Hawk lafhræddur. „Hvað getur komið til að ég skuli eiga að verða fyrir þess- um ofsóknum? Á ég þá að ganga að því visu, að ég só til dauða dæmdur ?“ Hann fór að ganga um gólf og var mjög æstur í skapsmunum. „Ekki held ég að ég liti svo á málið, ef ég væri í yðar sporum," svaraði Miss Loveday Brooke rólega. „En gerið svo vel að lofa mér að ljúka máli mínu. Ég bið yður um, ef þér fáið stórt umslag á morgun, að opna það eins og áður í við- urvist allra, sem við borðið eru, og láta myndina, sem í umslaginu kynni að vera, ganga millri allra við borð- ið: konu yðar, frænda yðar, og Miss Monroe. Yiljið þór lofa mér því?“ „Já, ég hefði líklega gert það, hvort sem var, svo að því get ég lofað. En — en — ég vona þér játið, að það stándi óþægilega á fyrir mér, og mér þætti undur vænt um, ef þér vilduð gefa mér dálítið nánari skýringar." Miss Brooke leit á úrið sitt og mælti: „Ég hugsa konan yðar sé nú rétt í þessu að koma á Water- loo-stöðina, og ég er viss um, að þér viljið feginn vera laus við mig. — Gerið svo vel að koma heim til mín í GovYer-stræti á hádegi ámorgun,— Gerið þér svo vel; hérna er nafn- miðinn minn. Þá vona ég að ég geti gefið yður nánari skýringu. — Yerið þér sælir!“ Gamli maðurinn fylgdi henni kurt- eislega til dyra, og um leið og hann tók i hönd hennar og kvaddi hana, spurði hann hana, hvort henni fynd- ist ekki „standa mjög óþægilega á fyrir sér.“ Þá er hann beimsótti hana næsta dag í Gower-stræti, spurði hánn hana enn að sömn spurninguuni, en var þá sýnu órólegri. Reykt sílð fæst í kjötbúð Jóns Þórðarsonar. 8ÝNISHORN af ágætum ameríkönskum r i f f 1 u m, fugla, lireindýra- og refa-byssum, ein- og tví-hleyptum, einnig Salon- hyssuin og Yindbyssum, heflr verzlunin ..EDINBORG’ fengið nú nýlega. Enn fremur 6 skota Magasínhyssuiii, patrónubeltum og vatnsheldum byssuhylkjum, og mjög mikið úrval af hlöðnum patrón- um, sem hvergi á landinu seljast jafn ódýrt. H v e r sá, sem vill fá sér áreiðanlega góða byssu, ætti að koma inn í pakkhúsið í „EDINBORG" og kaupa hana þar. „Enginn fer það svangur", sagði strákurinn, — og eins er með skotmennina, þeir þurfa að hafa með sér nesti, ef vel á að vera, og það fá þeir hvergi betra og þægilegra en í Jfýlenðuvöruðellðinni í „EDINBOKCr‘% sem nú hefir fengið yflr 80 kassa af inum Ijúffengu,. lieilnæmu og saðningsgóðu ameríkönsku niðursoðnu vörurn, senx annálaðar eru um allan heim. ^eiutí itnnars! —o---- Að víkja úr vegi. Sá er einn hlutur, er menn kunna alment ekki hér á landi, og það er, hvernig víkja skal úr vegi, er menn mætast. Það er almenn regla hvervetna, er menn mætast, hvort sem eru gang- andi, akandi, eða ríðandi, hvort held- ur á hesti eða reiðhjóli, þá skal hvor um sig vikja til hægri liandar. Þetta er ofur einföld regla, og gott að muna hana. Sé hennar gætt, þurfa menn aldrei að rekast á. — Yísa um stríðið. Ég mætti á stræti í fyrra dag einum af merk- ustu mönnum í bænum. Hann mint- ist á herfregnir „Reykjavíkur", sem hann þakkaði mér fyrir, og sagði þær hefðu blásið sér í brjóst þessari stöku: Skotin dynja hörð og hvell frá hraustum Japans-mönnum; Rúsin fær á raæsinn skell, rennur og gnístir tönnum. — Hr. Reynolds, inn norski blaðamaður, flutti hér tölu á Sunnu- dagskvöldið í Iðnaðarmannahúsinu, um Noreg, einka,nlega um þjóðtungu Norðmanna og baráttu þeirra fyrir að koma henni í hávegu í ræðu og riti í stað dönskunnar, sem annars er enn altíðast ritmál og skólamál í Noregi. Þessa baráttu kalla þeir málstreitu eða málkapp („maalstræv") og heyja hana margir ágsétir menn. Faðir hennar roá heita að Ivar Aasen væri. Þeim málkappsmönnum hefir orðið mikið ágengt, svo að fjöldi bóka og blaða kemur nú árlega út á norsku, málið er og viða kent í skólum og ýmsir prestar prédika á því. Hr. Reynolds mæltist mjög vel, og sjálfsagt tóku allir áheyrendur und- ir í hjarta sínu, er hann óskaði að meiri viðkynning og andleg viðskifti mætti verða meðal Norðmanna og íslendinga og Færeyinga. Á eftir sýndi hann myndir frá Nor- egi, um 60, og var það og góð skemtun. Myndinni af Bjornson var fagnað með endalausu lófaklappi. Ailir áheyrendur skemtu sér ið bezta. Vefhaðarvörubúð Zh. Shorsteinsson Ingólfslivoli. Iiafnarstræti heflr með Laura og Yedsyssel fengið stórt úrvai, eins og vant er, af alls konar álnavöru, t. d. fóðurefni Laka- léreft, Dowlas og Twill, Borðdúka, Karlm.nærfatnað, Telpukápur með skinnkanti, Sinnkraga (Boaer), Sund- fatnaði, Skinnhanzka svarta og mis- lita, mjög ódýra og góða. Mislitar peysur fyrir börn og fullorðna. Alls konar garn og tvinna. (x 1 e r a u g u spangalaus með gullumgjörð hafa týnst. Finnandi er beðinn að koma þeim til Tryggva Gunnarssonar. líl cnhi nus stærn og smærn a ** góðum stöðum hér í bænum. Lysthafendur semji við fyrv. lögregluþjón [ah.—48. Þorstein gunnarsson, Reykjavík, Þingholtsstræti 8. Samkvæmt ákvæðum síðasta aðalf. „Þilskipaáhyrgðarfélagslns vift Faxaflóa“ á fram að fara í haust aðalskoðun og virðing á öllum skip- um við Faxaflóa, sem eigendur vilja að fólagið vátryggi næstkomandi. ár. Er því hér með skorað á skýpaeig- endur og skipstjöra, að láta virðinga- menn félagsins vita, þegar þeir leggja skip sín á land í haust til hreinsun- ar, svo virðingamennirnir geti skoðað kjöl og hotn skipanna. Næstkomandi ár vátryggir félagið ekkert það þilship, sem virðingamenn þess hafa eigi skoðað hátt og lágt. Tryggvi Huniiarssoii, form. fél.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.