Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 03.01.1905, Blaðsíða 4

Reykjavík - 03.01.1905, Blaðsíða 4
4 3\^HTh AÍHOMSEhPxky rr_j ■ HAFNARSTRÆTl • 1718 1920 21 • K0LASUND'-|-2- ® REYKJAVIK® Thomsens Magasín óskar öllum viðskiftavinum sínum gleðilegs nýárs, þakkar þeim fyrir in miklu viðskifti á gamla árinu, og vonar, að viðskiftin megi halda áfram í líkum eða stærri mæli á þessu nýa ári. Thomsens verzlun heflr nú staðið full 67 ár. Hún er langelzta verzlunin hér og er stöðugt að aukast, þrátt fyrir mikla samkeppni; þetta virðist benda á, að hún reynist mönnum góð verzlun, enda gerir hún sér far um að haga sér eftir óskum viðskiftamanna og fylgjast vel með tímanum. Thomsens Magasín býður mönnum vandaðan varning, margbreytt- ar birgðir og gott verð á öllu. Magasínið reynir að hafa allar þær vörur á boðstólum, sem á annað borð er leitað að í búðum. Vörurnar eru keypt- ar beint frá framleiðendunum í stórkaupum, fyrir peninga út í hönd, og seidar með mjög litlum ágóða. Magasínið kaupir aliar íslenzkar afurðir fyrir peninga út í hönd, og hefir t. d. síðastliðið ár keypt mestalla ull- ina af Suðurlandinu, en erlendar vörur seldi það fyrir fullar 600,000 krónur. * Thomsens Magasín er skift í margar sérdeildir, svo að menn hafi greiðari aðgang að hverri vörutegund fyrir sig. Útibu eru í Kaupmanna- höfn og á Akranesi, en agentar með báðum strandferðabátunum. Thomsens Magasín hefir auk þess: vindlaverksmiðju, gosdrykkja- verksmiðju, möbelverksmiðjur og saumastofur fyrir karlmanna-, kvenn- og barnafatnað. Thomsens Magasín notar sitt veltufé til að veita sem flestum góða atvinnu, og styðja að praktiskum framkvæmdum í landinu. Virðingarfyllst H. TH. A. THOMSEN. Kotið tækijæið meðan það býðst. Undirritaður hefir mörg hús til sölu á góðum stöðum hér í bænum 1— 2 —3 ára gömul, með ótrúlega góðum borgunarskilmálum. Sömuleiðis tek ég hús til bygginga og ef óskað er geri eg húsin að öllu leyti fyrir ákveðið verð. Meginregla: vandað og ódýrt. Reykjavík, 81/io ’04. Guðmundur Gíslason, trésmiður, Spítalastíg 5. [ah. —9. magnslogum var hleypt gegnum loft- ið milli rafmagnsþráða frá vélinni. Prófessor Goldsborough, forstöðu- ínaður rafmagnsdeildarinnar, sagði í i gæikvöldi um sýning þessa: „Þessar tilraunir eru hinar full- komnustu, sem á síðustu tíð hafa gerðar verið með rafmagnsverkfærum til að senda afl í mikla fjarlægð. „Sem stendur er afl ekki sent lengra en 150 mílur og til þess þarf þrýsting, er nemur 60,000 volt1). í þessum tilraunum er notað 500,000 volt og það er svo inikil þrýsting að með henni mætti senda afl í 1000 mílna fjarlægð eða meir. „Tilraunir þessar vekja mikla eft- irtekt meðal rafmagnsfræðinga, vegna þeirrar úrlausnar, sem þær gefa um sending afls með rafmagni í mikla fjarlægð. Þær eru mjög tilkomu- miklár og stórfengilegar að sjá, og sýna rafmagnsloga 5 til 10 feta langa2). „Þær verða sýndar á hverjukvöldi milli 8^/2 og 9 og ættu að vekja mikla eftirtekt hjá almenningi." B. B. J. 1) Volt heitir eining sú, sem mælt er með þrýstingarafl rafmagnsstraumsins. Kaf- magnsvélar, sem framleiða 500,000 volta þrýstingarafl og meir en það, hafa lengi verið algengar, cn þær eru allar að heita má afljausar, því rafmagnsstraumur sá, er þær framleiða, er svo lítill, að hans gætir varla. Vél þessi er ólík þeim og hefir um 54 hesta afl. Ritstj. „Vínl.“ 2) Loftið veitir rafmagni svo mikla fyrir- stöðu, að til þess að koma því eitt fet gegnum loftið þarf miklu meiri straum- þrýstingu en þarf til þess að senda það 100 mílur vegar eftir góðum rafmagns- leiðara, eins og t. d. eyrþræði. Kitstj. „Vínl.“ Landshornanna miUi. — :o: — Framfaramál líúnvetnínga. í tillögum sínum til landsstjórnar- innar telur sýslunefnd Húnvetninga þetta helztu framfaramál sýslunnar: Að lengja bryggjuna á Blönduósi, sem bygð heíir verið að nokkru leyti fyrir landssjóðs fé, og að leggja ak- veg frá Blönduósi vestur eftir sýsl- unni. Að vegur yrði lagður frá flutn- ingabrautinni fram Miðfjörðinn. Að svifferja verði sett á Blöndu hjá Tungunesi. Að gert verði við höfn- ina á Skagaströnd svo að þar yrði örugg lega fyrir þilskip, og segir sýslunefndin, að gera mætti það með litlum tilkostnaði. Að ræsa fram Flóð- ið, og segir sýslunefndin, að með því mætti fá þar stórt engjaflæmi, sem 5 jarðir ættu land að, og kostnaður við það ekki gífurlegur. Að strand- gæzlan verði látin ná til Húnaflóa. Ofsavcður af suðvestri fór yflr ytri hluta Seyðisfjarðar aðfaranótt 14. Nóv. Bát- ar brotnuðu og þök fuku af húsum. Á Hánefstöðum fuku 20 hestar af töðu. Aílí var töluverður á Austfjörðum um miðjan Nóvember. Dánir eru nýlega á Austfjörðum: Helgi Indriðason bóndi í Skógargerði, Þorvaldur Jónsson bóndi á Uppsölum og Katrín Einarsdóttir, ekkja á Surt3- stöðum. Omissandi til þvotta er ZADIGS þvottaduft með fjólu- ilm, í pökkum á 15 oo 25 aura fæst að eins í THOMISENS MAGASÍNI. FLEIRI HUS leigu eða sölu, með góðum kjörum. Semja ber við Cruðm. Eínarsson, steinsmíð. EUGI stk. 8 aura. Lipton’s te Backc beqnein (kökuefuið nýja), Ostar, flesk, svínslæri, pylsur o. m. fl í THOMSENS MAGASlNI. ' H i r ð a á 2 herbergjum í miðbænum óskast strax. Hátt kaup. Ritstj. ávísar. Steinolíutunnur t ó m a r, kaupir [ah.—8. JES ZIMSEN. Reykjavik, kostar að eins 1 kr. árgangurinn 60 tbl. minst. „Reykjavík" segir beztar úlendar fréttir, og flytur þær venjulega fljót- ara og tíðara en önnur blöð, „Reykjavík" mun frá nýári 1905 gera sér far um að flytja sem bezt- ar innlendar fréttir, svo að hver sem heldur hana, þurfi ekki fyrir al- mennra frétta sakir, að halda neitt annað blað. „Reykjavík" vill efla hag og vel- ferð höfuðstaðarins með öllu réttlátu móti. „Reykjavík" segir aldrei víssvitandi rangt frá viðburðum eða atvikum, og er eina blað á landinu, sem fús- lega leiðréttir missagnir. Hún vill vera „málgagn sannsöglinnar.“ Hún er ckki stjórnarblað, hvað sem málgögn lyginnar þar um segja. En sannmælis vill hún unna stjórn vorri sem öðrum, og bera af henni ósönn ámæli, og vill styðja allar gagnlegar framkvæmdir þings og stjórnar — ekki „rífa niður" nema það sem skaðvænt er; telur þjóð vorri nú meiri þörf á að „byggja upp.“ En finna mun hún að því sem húMálítur ranglátt, hver sem í hlut á. „Reykjavík" er komin í hverja sveit á landínu. Hana langar til að komast á hvert heimili. 1000 nýja kanpenður vill hún fá næsta ár, svo að hún hafi 4 0 0 0. Stvöjið oss til þess! Næsta blað árd, á Laugardag- inn kemur, Prentsmiðjan Gutonberg. Pappírinn frá, Jóni ÓlafsByni.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.