Reykjavík - 21.01.1905, Síða 2
17
KR. KRISTJÁPíSSON,
Skólavörðustíg 4,
smíðar manna bezt húsgögn og gerir við.
Til núverandi stjórnar „íþöku“.
—:o:—
í 81. blaði ísafoldar, árg. 1904, sem út
kom 23. f. m., hafa 5 skólabræður minir,
sem eru in nýkosna stjórn í lestrarfé-
lagi akólapilta, er „íþaka“ heitir, ritað
grein, þar sem þeir þykjast ætla að fara
að leiðrétta ávarp það, er Birni prófessor
Olsen var á síðastliðnu sumri sent af þá
verandi stjórn félagsins. Grein þessi hefir
enn fremur birzt i Fjallkonunni 27. f. m.
og einnig i Þjóðviljanum, og hafa piltar
þessir (stjórn félagsins) nú fengið áminn-
iugu hjá rektor skólans út af þessu. Þó
þessi grein sé engin leiðrétting á neinu,
heldur móðgunarorð ein við prófessor
Olscn og áaustur á mig og annan pilt,
sem þá var og í stjórn félagsins, vil ég
þó gera nokkura skýringu á ura þetta efni,
af því að ég skrifaði undir ofannefnt á-
varp ásamt greindum pilti.
Að þriðji maðurinn, sem með okkur var
í stjórn félagsins, skrifaði ekki undir með
okkur, kom ekki af því, að við færum á
bak við hann eða hann væri okkur ósam-
þykkur um ávörpin, en hann var ekki
þá hér í bænum, er undir var skrifað. —
Fleh'i en þrír vóru þá ekki í stjórn, því
að hinir höfðu sagt sig úr henni af ástæð-
um, sem þeim eru kunnar. í stað þeirra
vóru svo kosnir 3 menn nýir i stjórn-
ina í haust, og var stjórnin þar
með fullskipuð með 6 mönnum fram að
síðustu áramótum. Þessir nýju stjórnar-
menn fengust ekki til að gera ávörpin að
öpinberu óánægjuefni, þó að þess væri
leitað, enda sögðu sig allir sem einn maðt
ur úr stjórninni með mér, þegar ég lét
yikja mér úr henni fyrir þetta efni. Þeir
sem vildu hafa óánægjuna fram, urðu því
að búa til nýja stjórn til þeirra verka, og
er þó einn maður í þeirri nýgju stjórn,
sem ekki hefir látið hafa sig til þessa.
í fyrra vóru liðin 25 ár frá því „íþaka“
var stofnuð (1879). Fn frumkvöðlar þess
og fyrstu stofnendur voru þeir Björn 01-
sen, sem þá var nýorðin kennari við latínu-
skólann, og prófessor Willard Fiske, sem
það ár (1879) dvaldist um hríð hér á landi.
Báðir þess menn urðu síðan án afláts inir
einstökustu stuðnings- og velgerðamenn
félagsins. Með hverjum pósti frá útlönd-
um á hverju ári æ síðan sendi Fiske fé-
aginu fjölda bóka og skemtiblaða, öllum,
sem í félaginu haía verið og kunnað hafa
rétt að nota það, til ógleymanlegs inndæl-
is. Sjálfur lézt hann í Sejrtembermánuði
núna síðast, en velgerðir þessa góða manns
við lélagið hafa enn, alt til þessa dags,
haldið áfram eftir hann iátinn, því að
hann hefir verið búinn að borga út ár-
ganga fjölda af skemtiblöðum handa félag-
inu alt til þessara áramóta. Höfðingsskap-
ur Fiskes og góðsemi við félag vort var
svo stórkostleg, að fram hjá sliku var ekkí
hægt að ganga á 25 ára afmæli þess með
þegjandi vanþakklæti; þar sýnast og allir
Vera á eitt mál sáttir, að houum hafi átt
að senda ávarp, og færa honum þakkir,
Og yfir þvi kvartar enginn, að okkur, sem
þá vórum i stjórn „íþökn“, hafi brostið
heimild til þess.
£n allar þessar velgerðir Fiskes við fé-
lagið á það eininitt að þakka prófessor
B irni 0 1 s e n í öndverðu. H a n n fékk
Fiske til þnss að stofna með sér félagið;
fékk hann til þess að fá þann áliuga á
þvi,sem allir velgerningar Fiske’s við það
vóru af sprottnir. Félagið væri þvi lík-
lega ekki til og Fiske hefði því líklega
aldrei skift sér af þvi, hefði pró-
Fyrir dansleikana! Vandaðir glansleður-skór, ballhanzk- ar, slipsi og slaufur fást þúsundum saman í TH0MSENS MAGASÍNI. S j ó m e n n. í TH03ISENS MAGtASÍNI fást sterk og vönduð stígvél. Sjómenn ættu að skoða þau áður en þeir kaupa stígvél annarstaðar. Eldfæri. Sérstæðar eldavólar og góðir ofnar, sem spara mjög eldivið fást í THOMSENS MAGGASÍNI.
Havannavindlar innfluttir, beztu tegundir fást í THOMSENS MAGtASÍNI.
Höfuðföt. Mikið og fjölbreytt úrval af hött- um, húfum og kaskeitum fæst í TH0MSENS MAGASfNI; Regnkápur mjög haldgóðar, en þó ódýrar, fást í TH0MSENS MAGASÍNI.
Brent og malað kafíi þykir ætíð bezt í THOMSENS EVfAHASÍNI.
Skófatnaður postulíns-, £cir- og 6ler-v8rur
margvíslegur, fæst í
THOMSENS MAGASÍNI,
svo sem: dansskór, leikflmisskór,
reimaskór og reimastígvéi, verkmanna-
stígvél og sjómannastigvél.
fást í mjög margbreyttu úrvali í
THOMSENS MAGASÍNI.
Hanzkar, fjölda-mar'gar tegundir, fást í THOMSENS MAGASÍNI,
fessor Olsens ekki að notið. Auk þessa
hefir hann öll þessi ár gefið félaginu
drjúga peninga, svo það má kallast mikið
fé samtals, og bækur hefir hann gefið því,
og á margan hátt annan verið því til
gagns og góða. Slíkt getur varla orðið
virt nema á einn veg. Eg þori því öruggur
að leggja það undir dóm allra réttvísra
manna, hvorir hafi breytt félaginu sam-
boðnara, við með því að meta þetta þakka-
vert og þakka það, eða þeir skólabræður
mínir, sem annaðtveggja vilja að það hefði
metist einskisvert, og verið óþakkað, eða ef
þess var ekki kostur, þá blátt éfram
vanþakkað eins og þeir nú hafa gert,
Ef senda skyldi Fiske ávarp, som allir
eru sammála um að hafi átt að vera, og
hefir sýnt sig að ekki mátti öllu síðar
verða en gert var til að ná honum lifandi,
þá var ómögulegt að ganga fram hjá pró-
fessor Olsen, nema með því að gera sig
seka í engu minni ósvinnu enn ofan-
nefndir skólabræður mínir hafa ratað í, —
þvi að allir eru sannmælisverðir.
St.jórn Ólsens á skólanum álít ég ekkert
koma þessu-máli við, og þess var vandlega
gætt i ávarpinu til hans, að fara ekki hárs-
breidd út fyrir efnið. Hitt er þeirra sök,
skóJabræðra minna, að þeir halda, að al-
menningi muni vera mjóg áríðandi, að sjá
prent.að álit þeirra um skólastjórn hans.
Eu þar til hugsa ég að mér gagnist dóm-
ur almennings, að ávarpið til Olsens hafi
verið meir i sóma félagsins enn grein þeirra
er, sem ég tel þá ekki öfundarverða af.
Það er fjarri öllum sanni, sem segir í
grein skólabræðra minna, að við höfum
farið í felur mcð ávörpin. Um þau bæði
höfum við verið i samráði við kennara við
skólann, og það til merkis, að núverandi
rektor stýlaði ávarpið til prófessor Fiske,
og ávarpið til prófessor Ólsens var prent-
að í Þjóðólfi.
Þeir segjast, skóiabræður mínir, rita grein
sina „fyrir hönd félagsmanna11. Ég skal
láta það ósagt, hve margir þeir félagsmenn
eru, sem á þeim fundi vóru, er fól þeim
það á hendur, en ætla skal, að það hafi
þó verið meira enn helmingur. Enn eng-
inn af kennurum skólans var þar viðstadd-
ur, og eru þeir þó allir í félaginu. Auk
þess er grein þeirra prentuð að rektor
skólans fornspurðum, en það er gömul regla,
að skólapiltar hafa ekki heimild til að gkrifa
í blöðin án loyfis yfirboðara sinna.
Hins get ég. að þessar línur mínar eru
birtar hér með leyfi rektors.
Að lyktum get ég ekki stilt mig um að
geta þess, að þetta mun vera i fyrsta skifti
í sögu latínuskólans, sem menn hafa orðið,
meðan þeir vóru í skóla, að verja sig fyr-
ir árásum skólabræðra sinna i blöðunum.
Eg skýt því til allra góðra skólabræðra
minna, að gera þetta efni ekki frekara að
blaðamáli enn orðið er. Sjálfur mun ég
ekki auka skrif um það eftirleiðis. En ég
tek upp á mig ábyrgðina á því að hafa
látið prófessor Olsen ná að njóta sannmæl-
is um þennan hlut. Þeir sem ekki hafa
viljað að svo yrði, hafa þann ábyrðarhluta,
sem ég vildl mér siztan kjósa, því það er
gamalt lögmál, að þeir sem varna öðrum
sanninda, skulu engra sanninda njótandi
verða. Og — sero molunt deo-
rum molæ, — sed molunt.
Revkjavík á þrettánda dag Jóla 1905.
Guðbr. Jónsson.
ftlDebal itmtarjs!
Merkidagur var 5. þ. m.; það
var fyrsti dagur á árinu (og verður,
ef til vill, inn eini á árinu), sem
enginn fáni sást dreginn á neina
stöng í bænum.
Það heflr sýnilega enginn sveitar-
ómagi verið Tnoldaður þann dag.
En — það er 5. Janúar, mintist
ég þá: dagurinn, sem stjórnarskrá
landsins var gefln á, 1874. Þess
minnist enginn. Fyrir hennar af-
mælisdegi dregur enginn upp fánann
— ekki einu sinni stjórnarráðið né
forsetar alþingis.
ísland er víst eina landið í heim-
inum, þeirra er ojga við lögbundið
frelsi að búa, sem ekki hefir svo
mikið við stjórnarskrá sína, að draga
fána á stöng á afmælisdegi hennar.
Það má segja, að þetta liafi ekki
gert verið til þessa. Envérhöfðum,
satt að segja, búist við, að vor nýja
innlenda st.jórn mundi ríða þar á
vaðið. Þá hefði Alþingishúsið komið
á eftir og allir aðrir, sem fánastöng
eiga.
Það er satt, að hjá oss hagar að
því leyti öðruvís til með þetta, en
hjá öðrum þjóðum, að hjá þeim hafa
stjórnarskárnar komið í gildi sama
dag 'sem þær vóru út gefnar. En
hjá oss kom stjórnarskráin, sem út
var gefin 5. Jan., ekki í gildi fyrri
en 1. Ágúst næst á eftir og féll þar
að kalla saman við 1000 ára þjóð-
hátiðardag vorn 2. Ágúst.
Þann dag höldum vér nú helgan
hvert ár með hátíðahaldi, sem vel
fer á, þar sem hann er um mitt
sumar. En engu að síður ætti þó
að hafa svo mikið við 5. Janúar, að
draga þá alment fána á stengur um
land alt.
Hátt kaup.
Alt í pcninguin!
Fyrir karlmenn og kvennfólk!
Undirritaður getur útvegað nokkr-
um duglegum sjómönnum góða at-
vinnu frá miðjum Maímánuði til síð-
ast í Október.
Einnig geta nokkrar duglegar stúlk-
ur, sem eru vanar fiskvinnu, fengið
góða atvinnu.
Yiðurgerningur ágætur.
Áreiðanleg viðskifti.
Mig el' að hitta Mánudags, Miðviku*
dags og Fimtudags kvöld frá kl. 8-9.
í Aasturstræti 18, húsi frú Felixson.
Notið tœkifœrið!
Reykjavík 14. Jan. 1905.
Hclgt Árnason,
(afSreiðslumaðurinn „Iðunnar".)
Pretitgniiðjah Ötitenberg.
Pappírinn frá J6ni Ólafssyni.