Reykjavík - 13.05.1905, Page 2
96
KR. KRISTJÁNSSON,
Skólavörðustíg 4,
smíðar manna bezt húsgögn og gerir yið
Tapast befir á veginum frá Rauðará
og upp að Elliðaám Nýsilfurbúinn tóbabs-
baukur. Skilvís finnandi er vinsaml. beð-
inn um að koma honum á Laugaveg nr. 1
í Kvík.
IRe^kjavík oq ðrenö.
12. maí.
Mislingarnir. Þeir hafa ekki breiðst
hér út frekar en um er getið í sið-
asta blaði; aðeins hafa smittast tvö
systkini annars drengsins, sem þar
er nefndur, en þau voru í sóttkví.
Búist er við að samgöngubannið
standi ekki lengur en fram í miðja
næstu viku.
Effersey er yfirstandandi ár leigð
Kristjáni kaupmanni Þorgrimssyni
fyrir 275 kr.
Yegaviðgerð. Á bæjarstjórnar-
fundi 4. þ. m. var samþykkt að verja
á þessu áiá 1900 kr. til viðgerðar á
Aðalstræti og 3200 kr. til viðgerðar
á Hafnarstræti.
Rafiýsing. Tilboð hefir komið til
bæjarstjórnarinnar frá Bergsteini
Björnssyni á Akureyri um að raflýsa
Reykjavík. Málið er hjá nefnd til at-
hugunar.
Fulltrúi bæjarfógeta hér í bæn-
um er cand. jur. Halldór Julíusson
nú orðinn í stað Guðm. Guðmunds-
sonar, er iengi hefir verið það und-
anfarandi.
Konriið Hjálmarsson, kaupm. í
Mjóafirði, hefir verið hér að ráða menn
á fiskiskip sitt, „Súluna".
Tíðin er fremur köld nú síðustu
dagana og rigningar öðru hverju.
Jarðarför H. J. C. Bjerings fór
fram í fyrradag hér í Reykjavik.
Hann var fæddur 23. okt. 1845, var
lengi verzlunarmaður hér í Reykjavík
og síðan í Hafnarfirði. Siðustu
árin var hann verzlunarstjóri i Borg-
arnesi, fyrir verzlun J. Langes.
Ferðamenn. Fjöldi af aðkomu-
mönnum er nú hér í bænum, enda
skip nýkomin úr öllum áttum.
Með „Kong Trygve" komu frá
útlöndum 9. þ. m.: konsúlarnir Jón
Vídalín og Sigfús Bjarnason (ísaf.),
kaupmennirnir R. P. Ris (Borðeyri),
Árni Riis (ísaf.), Sveinn Sigfússon,
J. Lambertsen og unnusta hans, fyrv.
kaupm. Sig. E. Sæmundssen, Pétur
Brynjolfsson Jjósmyndari, Einar Bene-
diktsson sýslum. og frú hans, Þorst.
Þorsteinsson skipstjóri, Magnús Blöndal
snikkari, Jósep Magnússon snikkari,
Þorv. Jónsson prófastur (ísaf.), frú
Guðríður Guðmundsdóttir (kona séra
Ól. Ól.), Hans Petersen verzlunarm.,
Jón Björnsson verzJunarm. (Borgarn.),
Gestur Einarsson (frá Hæli), Þorkell
Klemens vélasmiður, Guðm Einars-
son steinsmiður, tlalvorsen bygging-
armeistari, Exner málari danskur,
‘Torberg norskur ritsímaverkfræðingur,
J. Hansen frá Generalstaben, Björn
Björnsson gullsmiður (ísaf.), Snorri
Einarsson o. fl.
Með „Hólum“ kom fjöldi fólks 8.
þ. m. Þar á meðal Páll Ólafsson skáld
og Ragnhildur kona hans, (þau eru
flutt hingað), Þorgrímur Þórðarson
læknir (til að taka við Keflavíkurhér-
aði), Júl Jörgensen, Stefán Steinholt
kaupm. á Seyðisfirði, Björn R. Stefáns-
son kaupfélagsstjóri á Breiðdalsvík og
kona hans, Stefán Gíslason iæknir
(komst ekki á land í Vík).
Með „Ceres8 komu Páll útflutnings-
stjóri Bjarnason ogSveinnagentBrynj-
úlfson (þeir fóru aftur kringum land
með „Vestu“.
Með „Skálholti" komu að vestan:
Lárus Bjarnason sýslumaður í Stykkis-
hólmi, Sæmundur Halldórsson kaupm.i
Sth., Guðm. Bergsteinssonverzlunarm.
úr Flatey, séra Helgi Árnason frá
Ólafsvík o. fl.
Með „Reykjavíkinni" komu frá
Borgarnesi: Sigurj. læknir Jónsson,
séra J. L. L Jóhannesson á Kvenna-
brekku, séra Arnór Þorláksson á'Hesti,
séra Guðm. HeJgason í Reykholti,
séra Jóh. Þorsteinsson í Stafholti,
séra Gisli Einarsson í Hvammi,
Hjörtur Snorrason skólast. á Hvann-
eyri, Hjörtur Líndal á Efranúpi í
Miðfirði o. fl.
Hermann Jónasson alj[)ni. er nú
alkominn hingað til þess að taka við
Laugarnesspítalanum.
Ljótt slys. 23. f. m. datt barn
ofan í for rétt við hlaðið á Túni í
Flóa og kafnaði samstundis. Pallur
var yfir forinni, en ekki haldbetri en
þetta. Barnið hét Páll Sæmundsson,
frá Selfossi.
Thore-félagið.
hélt sinn árlega aðalfund í f. m. —
Árið 1904 hefir félagið haft 7 leigu-
skip í förum auk sinna eiginna skipa,
og fór 36 ferðir til íslands.
Alls fékk fél. í farmgjald 340,817.
84 kr., Og í fargjaid 31,896.18 kr.,
Samtals o. 373,000 kr., og var það
um 75,000 kr. meira en árið áður.
Gróðinn á leiguskipunum var að vanda
Jítill, alls 6,230 kr. Félagið varð
fyrir 2 slysum á árinu, er „Scotland“
fórst og „Kong Inge“ varð farlama
(við strand) í 10 mánuði. Alt um
það græddi félagið á sínum skipum
41,075 kr., alls 47,304 kr. Svo
græddi það á því að kaupa „Kong
Inge“ strandaðan, er vátryggingarfé-
lagið þorði ekki að taka að sér við-
gerð hans, 34,555 kr. Alls urðu því
tekjur þess 81,898 kr., eða að frá-
dregnum stjónarkostnaði 13,776 kr.,
ársgróði alls 68,119 kr. 5% af hluta-
fénu var greitt hluthöfum í ágóða
(12,500 kr.), og alt sem eftir stóð á
stofnunar-reikningi (5,120 kr.), í vara-
sjóð lagðar 47,400 kr. o. s. frv.
Stálbrýr,
allar stœrðir og ódýrar mjög, útvegar S.
B. Jónsson kaupm. í Reykjavík.
Skófatnaðarverzlun W. Scháfer s & Co. í Kanpmannaliöfn
býr til alls konar skófatnað, sem er viðurkendur að gæðum og með
nýtízku sniði og selur hann með mjög- lágu verði.
Af þessum góða skófatnaði eru úrvalsbirgðir í Reykja-
vík hjá herra Stofáni Griinnarssyni i
AIJSTURSTI Í,ÆTI 3.
Danskur
SiatnÉr
frá
& Co.
í
Kaupmannahöfii.
Brauns verzlun Hamburg
Aðalstrœli !). Telefdn 41.
Með .Kong Trygvo4 inikiö af nýjum viirum:
Sængurdúkur, tvibreiður, frá 1.00.
Tvisttau í yfirsængurver frá 0,30.
Milliskj’rtur frá 1,10.
Allskonar ílonell frá 0.26.
Klæði frá 3.50.
Kjólatau frá 0.50.
Drengjaföt frá 4.50.
Fataefni (2'/4 al. lir.) frá 2.00.
Portiérar, afpassaðir, frá 5.00 parið.
Hvítir og mislitir borðdúkar, serviettur, handklæði
Vindlar og sígarettur.
Komið í Aðalstræti 9 til
Rúmteppi, mislit, frá 0.50.
Oxford i milliskvrtur frá 0,30.
Nærföt á börn og fullorðna.
Lífstykki frá 150.
Kvennslipsi 0.40—2.50.
Karlmannaalföt frá 12.00.
Buxur frá 2.00.
Millifatapeysur á fullorða og drengi.
Portieraefni 0.55 al.
livergi eins
gott.
Braiuis.
Gufuvél
með 6—8 hesta afii í ágætu standi,
með tilheyrandi uppstandandi katli, er
tjl sölu. Hr. bakarameistavi C. Fred-
rikssen í Félagsbakaríinu gefur nán-
ari upplýsingar og semur um verð.
Verzlunarmaður
vel æfður, duglegur bókhaldari og
afgreiðslumaður, getur strax fongið
atvinnu eða síðar við verzlun sunnan-
lands. Tilboð moð kauþhæð, afriti
af meðmælum og upplýsingum merkt:
„Verzlunarm.“ afliendist skrifstofu
þessa blaðs.
Ijúsnæli.
3 íbúðarherbergi óskast í miðbæn
um eða i grend við hann strax eða
síðar. TiJboð afhendist skrifstofu
þessa blaðs sem fyrst.
Hcrbergi til loi«» ii
í Þingholtsstræti 26, hjá Þorst. Er-
língssyni.
IIús til kaups cða leígu.
Til kaups eða leigu er vandað liús á Sel-
tjarnarnesi, og er laust til íbúðar næstkom-
andi 14. Maí. Húsinu fylgir góð iending
ágæt vergögn til fiskverkunar, sömuleiðis
góðir jarðepla-garðar, sem gefa af ser
25—30 tunnur af jarðeplum á meðal ári.
Semja má við [—26:
Jón Jónsson, Melsbúsum.
Týnt, hárnál (fiðrildi með rauðum stein-
um). Ritstj. ávísar eiganda.
Vindlar, átlendir,
Oigarettur
segja allir að sé lang liezt hjá
<&uðm. (Blsan.
Perjjnsjar fundnir á götum bæjarins.
Upplýsingar í Preutsmiðj. Gutenberg.
Tapasí Hiefir mórauð regnkápa, dálít-
ið brúkuð, nálaigt búð br. kaupm. Karls
Lárussonar. Skilvís finnandi er boðinn að
koma kápunni til bans.
2 loftherbergi
til leigu nú þegar í miðbænum, hentug
fyrir 1 eða 2 einhleypa kvenmenn.
Bazar Thorvaldsensfélagsins ávísar.
JarWrtiir.
Tilbúinn áburður
og útsæðishafur
fæst hjá [ — 24.
Jes Zimsen.