Reykjavík - 15.07.1905, Page 3
REYKJAVÍK
137
Ssemundur Bjarnhéðinsson lækn-
ir í Lækjargötu 12. Heima kl. 2—3 dag-
lega. [—35.
„Laura“ kom á fimtudagsmorgun
frá útlöndum og með henni margir
farþegar, þar á meðal L. E. Svein-
björnsson háyflrdómari með frú sinni
og fóstursyni, frú Bryndís Zoega, frú
Gyða Bjarnason (frá ísaf.), Árni Þor-
valdsson kand. mag., stúdentarnir
Bogi Brynjóifsson, G. L. Hannesson
og Gunnl. Olaessen, Halldór Vilhjálms-
son búfræðiskandídat, nokkrir Þjóð-
verjar og Englendingar.
Thor E. Tuliilíus stórkaupmaður
frá Khöfn, gom hingað í gær með
„Perwie".
Iiaft. Schack, sem verið heflr í
ár yflrforingi á „Heklu“, hefir fengið
lausn frá því starfl og fór heim til
sín með „Ceres“ 9. þ. m. Að skiln-
aði héldu þingmenn honum veizlu til
þakklætis fyrir, hve vel hann hefir
rekið hór erindi sitt.
Eftirmaður hans á „Heklu“ heitir
Tuxen.
Dáin er hér í bænum 13. þ. m.
ekkjufrú Ragnheiður Pálsdóttir, ekkja
séra Þorkels Eyólfssonar síðast prests
á Staðarstað, f. 12. júní 1820, móðir
dr. Jóns Þorkelssonar landsskjalavarð-
ar og þeirra systkina.
Dæmdur var ritstj. ísaf. í yfir-
rétti 10. þ. m. og fókk sektir í 2
málum fyrir meiðyrði um Lárus
Bjarnason sýslumann, 40 kr. í öðru,
en 50 í hinu, auk málskostnaðar íyrir
undirrétti.
ísl. erlendis.
Háskóhipróf. Embættispróf í lög-
fræði heflr Ari Jónsson tekið með
2. eink.
Fyrri hluta lagaprófs hafa tekið:
Bogi Brynjólfsson, Guðm. L. Hannes-
son og Vigfús Einarsson, allir með
1. eink.
Heimspekispróf hefir Oddur Her-
mannsson tekið með ágætis eink.
Dáiuu er nýlega í Khöfn Kristján
Jónasarson verzlunarerindreki, f. 1848,
greindur maður og góður drengur.
2 drengir
óskast til að bera blað — annar
kunnugur í vesturbænum. Lyst-
liafar snúi sér þegar til
Afgrciðslustofu «Rvíkur“.
Pappír, 131ek,
Bréfgeynrar, Bréfpressur, Bréfnælur,
Alls konar ritföng
lang-ódýrust lijá mér
.lóii Ólatsson.
Samsöng
hóldu hér fyrir nokkru frk. Valborg
Hellemann og Sigfús Einarsson. Held-
ur var dauft yfir þessum fyrsta sam-
söng þeirra, Sigfús illa upplagður og
kvefaður að sögn, en fyrri heiming-
ur söugskrárinnar þannig saman sett-
ur, að það dró heidur úr mönnum,
enda var ekkert fjör í söng Sigfúsar.
En þau sóttu sig heldur, þegar á leið,
einkum frk. Hellemann, er hún fór
að sýngja lögin með ísienzku textun-
um. Hún söng einkar þýtt og fallega:
„Hvar eru fugiar þeir á sumri sungú“,
og var það lag eftir eftir Svb. Svein-
björnsson. Söngrödd hennar er iag-
leg og þó ekkert framúrskarandi, en
framburður hennar á íslenzkunni var
fyrirtak. Lögin, sem hún söng eftir
Sigfús, voru rétt lagleg, en ekki er
ég farinn að flnna til neistans í tón-
list hans og ekki eru lög hans mjög
lundnæm. Frk. Anna Pálsdóttir leysti
hlutverk sitt, einna bezt af hendi; hún
lék mætavel undir á fortepíanóið. —
Samsöngur þessi var að nokkru endur-
tekinn nú í vikunni og tókst þá held-
ur betur að sögn.
Okur-verð í Valhöll.
Oss hefir borist svo látandi grein (á ensku),
er vér setjum hér í íslenzkri þýðing:
Hotel ísland, 13. Júlí 1905.
Til ritstjóra „Reykjavikur11.
Ég óska að fá að kvarta um það
okur-háa verðlag á hóttelinu á Þing-
völlúm. Ég var þar náttiangt ásamt
vini mínum Mr. Brown og fylgdar-
manni okkar. Vér fengum kvöldmat
og árbít nm morguninn, og með þvi
að við gátum ekki fengið skil á hest-
um okkar í tíma, neyddumst vér til
að bíða og borða þar miðdegisverð.
Reikningur vor var 32 kr. 50 au.
Auðvitað var maturinn mjög góð-
ur: vér fengum silung og regg og
pönnukökur. En er þess er gætt, að
á bændabýlum fengum vér nálega al-
veg ið sama fyrir sem næst 2/3 lægri
upphæð, þá verð ég að ætla, að það
sem okkur var sett upp fyrir svo
stutta dvöl, hafi verið óhæfilega hátt.
Af því að við félagar erum ekki
milíónarar, þá fengum vér oss á heim-
leiðinni gisting á Kárastöðum. Þar
fengum vér nálega alt ið sama sem
vér höfðum fengið í „Valhöll" og
fyrir það var oss sett upp 12. kr. 50 au.
Oeorge F. MacKarness.
Ég óska að tjá mig samdóma mót-
mælum Mr. MaeKarness’.
E, W. Broivn M. A.
U. F. C. Normal Training College,
Glasgow, N. B.
Alþing-is-tiðindi.
iii.
Þessi mál hafa verið tekin til með-
ferðar, auk þeirrasem áður eru talin:
I. I neðri deild.
15. Tillaga til þingsályktunar um
að skipa nefnd til að íhuga hrað-
skeytamálið. Prá Magnúsi Andrjes-
syni og Ól. Briem. Kosin nefnd
með hlutfallskosningu: Guðl. Guð-
mundsson (form.), G. Björnsson (skr.),
Bj. Kristjánsson, Björn Bjarnarson,
Árni Jónsson, Jón Jónsson, Sk. Thor-
oddsen.
Frv. tii laga um ritsíma, talsíma
o. fl. var vísað til þessarar nefndar.
16. Frv. til laga um sölu þjóð-
jarða. Kosin nefnd með hlutf. kosn-
ingu: Hermann, Stefán í Fagraskógi,
Ól. Briem, E. Pálsson, Jóh. Ólafsson.
17. —18. Frv. til laga um for-
kaupsrétt leiguliða og frumvarp til
laga um breytingar á og viðauka við
lög um stofnun ræktunarsjóðs var
vísað til þjóðjarðasölunefndarinnar.
19. Frv. til laga um bændaskóla.
Nefnd kosin með hlutf. kosningu:
Árni Jónsson (form.), Þórh. Bjarnar-
son (skr.), Einar Þórðarson, H. Þor-
steinsson, Herm. Jónasson.
20. —21. Frv. til laga um sam-
þyktir um kynbætur nautgripa og
frv. til laga um verðlaun fyrir út-
flutt smjör var vísað til bænda-
skólanefndarinnar.
(5) Frv. til laga um hækkun á að-
flutningsgjaldi samþ. við 3. umr.
með 17 atkv. og sent efri deild.
22. Frv. til laga um stækkun
verzlunarlóðarinnar í Bolungarvík.
Flutningsm.: Sk. Thoroddsen.
23. Frv. til laga um atvinnu við
siglingar. Flutningsmenn: G. Björns-
son, Tr. Gunnarsson, M. Kristjánss.,
Jóh. Ólafsson, St. Stefánsson (Fagra-
skógi). Nefnd kosin: Jón Magnús-
son (form.), M. Kristjánsson (skr.),
M. Andrjesson, G. Björnsson, St. Ste-
fánsson (Fagraskógi).
24. Frv. til laga um bæjargjöld í
í Reykjavík. Flutningsmenn: G.
Björnsson Tr. Gunnarsson. Nefnd:
Þórh. Bjarnarson (form.) Guðl. Guð-
mundsson (skr.), Ól. Ólafsson.
25. Frv. til laga um skifting bæ-
jarfógetaembættisins í Reykjavík.
Flutningsm: Tr. Gunnarsson, G.Björns-
son. Nefnd: Jön Magnússon (form.)
Lárus H. Bjarnason (skr.), Ól. Briem.
26. Frv. til laga um heimild fyrir
bæjarstjórn Akureyrar til þess að
skylda eigendur til að láta af hendi
eignarrétt og önnur róttindi yfir Glerá
og landi meðfram henni, að Því er
nauðsynlegt er fyrir veiting árinnar
inn að kaupstaðnum. Flutiiingsmenn:
Guðl. Guðmundsson og M. Krístjáns-
son. Nefnd: St. Stefánsson, Möðru-
völlum (form.), Guðl. Guðmundsson
(skr.), St. Stefánsson, Fagraskógi.
27. Tillaga til þingsályktunar um
skatta- og tollmál. Frá Guðl. Guð-
mundssyni, Árna Jónssyni, Ól. Briem,
Jóni Magnússyni.
II. í efri deild:
17. Frv. til laga urn alidýrasjúk-
dóma.
18. Frv. til laga um gaddavírs-
girðingar. Nefnd: Guðjón, Guttormur,
Þorgrímur.
19. Frv. til laga um breyting á
opnu bréfl 26. Jan. 1865 um bygg-
ingarnefnd á ísafirði.
20. Frv. til laga um ióðasölu-
heimild fyrir ísafjaiðarkaupstað.
31. Frv. ril laga um stækkun
verzlunarlóðarinnar á Búðareyri við'
Reyðarfjörð. Flutningsm.: Gutt. Vig-
fússon.
22. Frv. til laga um stofnun fiski-
veiðasjóðs. Flm.: Yaltýr Guðmunds-
son. Nefnd: Aug. Flygenring, Val-
týr, J. Ól.
23. Frv. til laga um beitutekju.
Flutningsmaður: Sig. Stefánsson.
(3) í frv. til laga um málaflut-
ningsmenn við yfirréttinn er nefnd
kosin: J. Ól., J. Jak., Jóh. Jóh.
Þessar styrkbeiðnir hafa komið frarn
í viðbót við þær sem áður eru taldar:
Frá Lárusi J. Rist um 350 til að
læra leikfimiskenslu í Khöfn.
Frá Sighv. Árnasyni fyrv. alþm. um
200 kr. þóknun á ári fyrir að-
stoðarstarf við forngripasafnið.
Frá Búnaðarfól. íslands um 13,000
kr. fram yflr það sem því er
ætlað í framl. fjárl. frumv.
Frá Guðmundi J. Hlíðdal um 800
kr. styrk í 2 ár til að nema
rafmagnsfræði í Þýzkalandi.
Frá bæjarpóstinum á Akureyri um
200 kr. launaviðbót á ári.
Frá Magnúsi Einarssyni á Akureyri
um 600 kr. til söngkenslu.
Frá Sumarliða pósti um ellistyrk.
Frá ísak Jónssyni á Þönglabakka um
2000 kr. styrk til íshúsbygging-
ar fyrir fiskiútveg Eyfirðinga og
um 2000 kr. lán til íshúsbyggingar
á Þönglabakka.
Frá mag. Ben. Gröndal um sama
styrk og áður, 800 kr. á ári.
Frá nokkrum bændum í Rángárvalla-
sýslu um 500 kr. til þess a5
standast kostnað við hefting
vatnsflóðs og sandframburðar úr
Þverá.
Frá Georg Georgssyni lækni um 1200
kr. til utanfarar.
Frá verzlunarmannafél. Rvíkur og
og kaupmannafél. Rvíkur um
4500 kr. styrk hvort ár næsta
fjárh.tímabils til verzlunarskóla
fyrir ísland í Rvík og 1000 kr.
síðara árið til íerðastyrks til út-
landa handa efnilegum verzlunar-
mönnum.
Frá frú E. Kristjánsson, ekkju séra
Ben. Kristjánssonar um 500 kr.
styrk.
Frá. mag. Ágústi Bjarnasyni um 600
kr. hvort árið til ritstarfa.
Frá Benedikt Jónassyni um 500 kr.
í 4 ár til verkfræðisnáms í
Þrándheimi.
Frá séra Einari Jónssyni á Kirkjubæ
um 200 kr. eftirgjöf á ári á af-
gjaldi af landssjóðsskuld Kirkju-
bæjarprestakalls.
Frá hlutafél. „Lagarfljótsormurinn“
um 250 kr. hvort árið til vélar-
bátsferða um Lagarfljót.
Frá kvenuaskólanefnd Eyfirðinga um