Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 06.08.1905, Blaðsíða 1

Reykjavík - 06.08.1905, Blaðsíða 1
Útgefondi: hlctífÍi.aois „JtBTKjAyfi* Ábjrgðarrnaður: Jók Ólafssok. A%reiðandi Sioríbur Ólafsson (búð Jóm Ólal'ssonar, Laufásveg 6). ‘IRcpkjapík. Kostar um irið 60—70 tbl.) 1 kr. (ariendii kr. 1,60 — 8 ih. — 60 eU). Talefónan Kr. 2« (Lanfíny. 6) og 80 (þmghúsið) — 71 (Prentamiðjan). Ú t br eiddaata bl.ð landilna. Baita trótt.blaðlð, — Opplag 3100. VI. argangur. Sunnudaginn 6. Agúst 1905 38. B. tölubiaó. amiðrsí —:o;-- Jíýmæli. Frumvarp til laga um varnarþing í skuldamálum (varnarþing skuldunauts sé þar sem skuldin er stofnuð) báru þeir fram í Ed.: Jón Ólafsson, Jóh. Jóhannesson og Guðjón Guðlaugsson. Fiv. sama efnis bar J. ÓJ. fjrst fram á Alþingi 1889. — Nú er það samþ. til fullnaðar í Ed. og fær vonandi góðan byr í Nd. Annað frv. um tollvörugeymslu og tollgreiðslufrest báru þeir Jón Ólafsson og Aug. Flygenring fram í Ed., og fær það væntanlega góðan framgang þar. Það er þörf og góð hagsbót fyrir kaupmenn, en landssjóði útlát.a- laus. Það léttir efnalitlum kaup- mönnum, og það gerir öllum hérbú- settum kaupmönnum greiðara fyrir, þá er landið kemst í hraðskeytasam- band við umheiminn, að sæta kaup- um á tollvörum, þá er verð er lágt á þeim — það styður því einkanlega innlenda. verzlunarstótt. Ritsímanefnd. Nd. hefir nú lokið álitsskjali sínu; það er langt mál: öll helztu skjöl, er á verður að byggja, prentað bæði á frummálum og í þýðing. Nefndin hefir klofnað (meiri hl. Guðl. Guðmundsson, Guðm. Björnsson, jón Jónsson, Árni Jónsson, Björn Bjarnarson; — minni hl. SkúliThoi- oddsen og Björn Kristjánsson). Báðir hlutar nefndarinnar eru nú að láta prenta álitsskjölin. Vonandi verður álit beggja útbreitt og víðlesið um landið. Mörgum mun sýnast, að sæmra og samvizkusamlegra hefði verið af æs ingamönnunum í ritsímamálinu að geyma að kveða upp álit um það mál, þar til er þetta skjal lá fyrir almennings augum, heldur en að flónska sig hér sér til minkunar 4 dögum áður en álitsskjalið fór í prent- smiðjuna. Skálkaskjdl. Flestir þeir heiðvirðu og siðsömu menn áf bændastétt, er hingað létu ginnast 1. þ. m., sán glögt, áður en lauk, að þeir vóru hingað tældir til að nota þá sem skálkaskjól fyrir götuskril bæjarins, sem framdi sín ærsl og óskunda í blóra viö þá. Lítill sæmdarauki mun heiðarleg- um bændum hafa að því þótt fyrir sig. Verða væntanlega ótrúgjarnari og óleiðitamari í annað sinn. Eftlrleíkurlnn. Samsæti hólt Skrílræðisfélagið sjálfu sér og aðkomu- mönnum að kvöldi 1. þ.m. íBárubúð. Segja sauðargæru blöð þeirra, að þar hafi alt verið áfengislaust. Ekki var þó áfengislaust í kollinum á þeim sumum, er þaðan komu um nóttina — ekki þeim að minsta kosti, sem teknir vóru fyrir lögieglurétt á eftir fyrir næturverkin, því að dómarinn lagði & þá áfengistoll. Kkki þeirra kjósendur. Enginn þeirra. er þátt tóku í atförinni að Al- þingi 1. þ. m., var við síðustu kosn- ingar kjósandi nokkurs þess þing- manns, er á var skorað að segja af sör þingmensku. Hvað sannar svo atförin? Ekki annað en'það, að þessir menti, sem vóru Valtýingar viðsiðustu kosn- ingar, sóu það enn (nema einhverjir Hf þeim hafi snúist við förina, sem ekki er ólíklegt). Ef förin ætti að sanna nokkuð, væri það, að nú væri ekki annað eft- ir í þessum kjördæmum af Valtýing- þeim þa fækkað stórum. Ógreiöa gerir „Fjósak." llokki sín- um með því að birta f síðasta bl. nafnaskrá allra þeirra, sem þess flokks blöð telja hafa verið með í ærslun- um 1. þ. m. — Við það hefir kom- ist upp, að þeir hafa verið munum færri, en látið var í veðti vaka, því að nafnaskrá „Fjk.“ er f'óhuð. Hún telur þar ferðamenn, sem hér vóru staddir í bænum í alt öðrum erind- um. og engan þátt áttu í samþykt- unum né ærslunum — bjargfasta heimastjóinarmenn; sömuleiðis fáráð- lings-bjálfa, sem aldrei hafa kosning- arrétt haft. Háð mikið er gert að „suðurför- inni“ austur um sveitir. Svo segja ferðamenn að austan, að fararmenn beri ekki höfuð hatt eftir heimkom- una, sakir spotts og spés, sem að þeim sé dregið heima í bygðarlögum þeirra. f úsundir segja þau „ísa“ og„ Fjk.“ að hafi tekið þátt í hrópunum á Lækjartorgi og Austurvelli 1. þ. m. — Fjölmennið var nú aldrei meira þar, en títt er þegar þeyttir eru lúð rar þar. Megin fólksins vóru áhorf- endur, er engan þátt tóku í hrópun- um. Sjaldnast var sá skríllinn, sem tók undir htópin, meira en 10—12 sálir; stöku sinnum líkl. í hæsta lagi 50. Bændurnir þögðu yfiileitt uær allir alla tíð. hóðhátíð Reykvíkinga var haldin 2. þ. m. Veður var ið bezta framan af degi, en hvesti nokkuð et' á leið. Margt manna sótti hátíð- ina úr næstu sýslum og var hún sýnu fjölmennari en nokkru sinni áður. Helztu skemtanirnar hafa áður ver- ið auglýstar hér í blaðinu. En verð- launaveitingarnar féllu svo. í fótboltaleiknum sigraði hvorugur flokkminn og var því verðlaununum (25 kr.) skift á milli þeirra. í kappreiðumnn fékk 1. verðlaun fyrir stökk (50 kr.) grár hestur, eign L. Andersen klæðskera i Rvík, 2. verð- laun (30 kr.) grár hestur, eign Guðj. Helgasonar trésmiðs í Rvík og 3. verð- laun (20 kr.) rauður hestur, eign Þorbj. Ólafssonar úrsmiðs í Rvík. 1. verð- laun (50 kr.) fyrir skeið fékk brúnn hestur, eign Ásg. Þorvaldssonar verzl- unarm. á Blönduósi, 2. verðl. (30 kr.) grár hestur, eign Vilh. Bernhöfts tann- læknis í Rvik og 3. verðlaun (20 kr.) sonar verzlunarm. á Blönduósi. í hjólreiðunum fékk 1. verðl.(15kr. og silfurbikar) Gisli J. Ólafsson skólapilt- ur í Latínuskólanum (sonur J. Ól. rit- stjóra), en 2. verðl. (10 kr.) Hafliði Hjartarson trésmiðurí Rvík. Gisli reið á reiðhjóli frá Þorkeli Clementz. f Glímum fókk 1. verðl. (30 kr.) Jónatan Þorsteinsson kaupm. í Rvik, 2. verðl. (20 kr.) Guðm. Erlendsson frá Hlíðarendakoti í Fljótshlið og 3. verðl. (15 kr.) Þórh. Bjarnarson í Rvík. Formaður hátíðahaldsins var Klem- enz landntari Jónsson og setti hann hátíðina kl. 12. Guðm. Björasson læknir mælti fyrir minni konungs, Guðl. Guðmundsson bæjarfógeti og alþm. fyrir minni íslands, Jón Jóns- son alþm. fyrir minni Reykjavíkur og Halldór Jónsson fyrir minni ís- lendinga erlendis. Sungið var milli ræðuhaldanna „Ó, guð vors lands“, „Ó, fögur er vor fósturjörð", „Minni Reykjavíkur" (eftir Guðm. Magnúss.) og „Eldgamla ísafold". Hoinablástur og söngur var við og við allan daginn, dans síðari hluta dags og flugeldar um kvöldið. Franska loftrita-tilboðið. Það var þaö, sem ærði inn skamm- sýnni og trúgjarnari hlut þjóðarinnar, er „ísa“ og „Fjk.“ og öll stjórnfjenda- blöðin breiddu út um land þá full- yrðing, að frakkneskt loftritafélag byð- ist til að koma á öruggu hraðskeyta- sambandi milli íslands og útlanda, og sambandi milli að minsta kosti 18 stöðva innanlands, fyrit afarlágt verð, er þau kölluðu (þótt það væri nú reyndar geipi-dýrt). Þetta tilboð fuliyrtu þau að væri í höndum eins alþingismanns hér, er bæri það fram á Alþingi í sumar. Hversu sem eftir hefir verið spurt, hefir þetta tilboð hvergi komið fram, Enginn alþingismaður kannast nú við að hafa það. Það fæst enginn róm- ur á þvi framar. Hveruig víkur þessu viö? Var fullyrðing þessara blaða upp- spuna-lysd ein, íil að æsa upp þjóðina? Svari þau nú! Geri þau það ekki, og það á fullnæg- jandi hátt, þá er athæfi þeirra bert. miUi. 29. f. m. 'u‘~ Stríðið. Því spá herfróðir menn í Tokto, að stór orrusta muni verða við Kjontsjang (á suðurbakka Tjumen- elfar, skamt frá því. er hún fellur í sjó út). Sá bær hefir ákaflega mikla þýðing í ófriðnum. Þeir sem hann hafa á sínu valdi, ráða umferð allri um Tjúmen-elfi. Auk þess má skoða þetta sem yztu útvirki frá Vladivo- stok. Rúsar leggja því alt kapp á að verja Kjontsjang. Bærinn er í Kórea, rétt við landamærin. —Loftskeyti, hingað komið 4. þ. m., skýrir svo frá, að allur meginher Rúsa á Sakhalin hafi gefist upp 31. f. m. Það vóru landstjórinn, 70 for- ingjar og 3200 hermenn. Afhentu þeir Japönum allar birgðir, öll stjórn- arskjöl bæði herstjórnarinnar og land- stjórnarinnar. Ensk blöð frá 29. f. m., herma þá fregn frá Tokio, að Vladivostok sé nú svo sterklega varðkvíuð, að þar komist ekkert skip út né inn. Meira að segja girða herskip Japana alla ströndina frá Kóreu og norður í Rúsa- lönd norðar en andspænis norðurenda Sakhalín. Þá er vígfært verður fyrir hitum og regni í Mandsjúrí, segja Japanar, aðLinievitsj verði aðgera annaðhvort: hörfa með öllu sínu liði vestur til Harbin, eða því verði gereytt. Noregur — Svíþjóð. 25. f. m. kom fram álitsskjal nefndarinnar, er aukaþing Svía setti, til að athuga

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.