Reykjavík - 19.08.1905, Qupperneq 2
158
REYKJAVÍK
KR. KRISTJÁNSSON,
Skólavörðustíg 4,
amíðar manna bezt húsgögn og gerir við
Hagnýtið ykkur mín höfuðlsekningaböð,
þau eru það eina sem
gefur fagurt og mikið
hár, græðir út bera
bletti á höfðinu og eiðir
flösu.
Allir sem óska. geta
fengið keypt meðöl
Klinikin er í Pósthús-
str. 16. (Waages-hús).
Karólína Porkelsson.
Jóðsjúkri konu neitað um hjálp,
Hryllilegt mauniiðarleysi
Norður á Finnastöðum í Eyjaflrði
býr maður að nafni Jósef Jónasson,
merkur bóndi, efnaður og vel metinn.
Kona hans var sjúk um tíma síðast-
liðinn vetur og var til lækninga á
Akureyri hjá Sigurði lækni Hjörleifs-
syni Titstjóra „Norðurlands", batnaði
henni undir nmsjón hans eftir von-
um, en svo stóð á högum hennar
að hún var þunguð. Þegar maður
hennar kom að sækja hana spurði
hann Sigurð lækni hvort ekki mætti
leita hjálpar hans ef á lægi, þegar
hún skyldi ala barnið, kvaðst vera
hræddur um að þess þyrfti því fæð
ingar hefðu gengið henni erflðiega að
undanförnu. Lofaði Sigurður honum
aðstoð sinni og skildu þeir svo með
virktum.
Svo líður og bíður þangað til kon-
an legst á sæng. Þjáist hún mjög
og harðnar sóttin óðum en ekki get-
ur hún fætt barnið. Fer þá bóndi á
næsta bæ, Jóhann Jóhannsson á Möðru-
völlum, röskur maður og duglegur,
af stað með marga hesta niður á
Akureyri til að sækja iæknir og ætlar
að fá héraðslæknirinn Guðm. Hannes-
son. Þá vill svo óheppilega t.il að
hann er að vitja sjúklings langt út
með flrðinum, og auðsóð að margar
klukkustundir mundu líða áður en
hann gæti komið heim aftur. Snari
sendimaður sór þá til Sigurðar Hjör-
leifssonar og biður hann hjálpar.
Vissi hann þó ekki um loforð það,
sem iæknirinn hafði áður gefið Jósef
bónda í því efni, því Jósef gleymdi
að geta þess við sendimann þegar
hann í fjýtirnum var að leggja af stað.
En svo gerir Sigurður Hjörleifsson
það sem lengi mun í minnum haft.
Hann þverneitar að fara með sendi-
manni, neitar að reyna til þess að
hjálpa konunni sem herst við dauð-
ann, þar sem enginn er viðstaddur
er hafi nein tæki til að Jina þján-
ingar hennar.
Sendimaðurinn fór svo búinn heim.
AlJar bjargir voru bannaðar. Enginn
læknir var nærri sem nokkurt viðlit
væri að reyna að fá.
Konan tók sér þetta ákaflega nærii.
Henni fanst hún vera svo einmana
og yfirgefin, henni fanst það vera svo
voðaleg harðneskja og mannúðarleysi
að vilja ekki reyna að hjálpa sér í
hörmungum sínum. Þeir sem við-
staddir voru héldu að hvert a.ugna-
blikið mundi verða hennar síðasta.
En svo fór samt að hún vann sigur
— hálfan sigur. Hún ól barnið og
hélt sjálf lífi með veikum burðum —
en barnið var dáið þegar það fæddist.
Það var sjötta barnið þeirra hjón-
anna sem þau urðu að sjá á bak.
Sorg þeirra geta, menn gert sér í
hugarlund.
„Hvnð ætli það geri til þótt jóð-
sjúkri fátækliugskonu só neit.að um
JæknishjáJp" sagði „Fj.k.“ hér á dög-
nruim. Ilún var þá að reyna að
svívírða HalJdór lækni Steinsson í
Ólafsvík.
Auðvitað hefir Haildór iæknir aldrei
gert sig sekan í slíku athæfl, aldrei
dottið það í hug eða neitt óþokka
bragð líkt því. — En bróðir Einars
Hjörleifssonar, Sigurður læknir ritstj.
„Norðurlands" gerir það, framkvæm-
ir verkið sem bróðir hans Jýsir hvað
sé fagurt!!
Það hefir ekki verið getið um þenna
atburð í afturbaldsblöðunum enn þá.
Hann gerðist heldur ekki vestur á
Snæfellsnesi né á því svæði þar sem
þeim er hugleiknast að vernda hag
og réttindi íslenzku alþýðunnar og
Finnastaðahjónin eru heldur ekki já-
bræður stjórnfjenda.
En sorglegt er það í alvöru að
atburður eins og hér er skýrt frá,
skuli hafa komið fyrir á Jandi voru
— nú svona nýlega.
Heimsendanna miUi.
—:o:—
Mareoni-skeyti
meðtekið 15. þ. m., endagsett 14. s. m.
skýrir svo frá:
Friðarskilyvðin, sem Japanar
setja upp, eru meðal annars þau, að
Rúsar endurgjaldi þeim herkostnað
þeirra, en upphæð þess kostnaðar
verði síðar ákveðin; Rúsar Játi af
hendi Sakhalín og verði með alt sitt
á burt úr Mandsjúu', en láti af hendi
alt það er þeir hafa á Jeigu af Ljá-
tung skaga (þar með Port Arthur),
og sömuJ. alla járnbrautina suður
frá Harbin. Japanar fái verndarvald
yflr Kóreu, og takmörkuð verði tala
og stærð þeirra herskipa, er Rúsar
mega hafa í Austurhöfum.
Erindsrekarnir hafa frestað um
sinn að ræða afsalið á Sakhalin og
herkostnaðinn. En ræða á meðan
önnur frumskiJyrði. Óvíst er hvort
frestun á að ræða þessi atriði þýðir
það, að upp úr slitni samningunum
af annara hvorra hendi; en fastlega
eru menn þeirrar trúar í Japan, að þó
að Rúsar neiti í fyrstu að ganga að
þessum tveim skilyrðum, þá sé það
í_ raun réttri látalæti en ekki alvara.
Á Laugardagsfundi erindsrekannasagði
Witte, að Japan vildi gera Kóreu að
japönsku lýðríki, en Rúsar hefðu
ekkert á móti þvi, ef Bandarikin, sem
við það mundu biða mest tjón, og
Norðurálfu stórveldin samþyktu það.
Alment eru menn nú að verða
vonbetri um að takast muni að koma
á friði, enda mælt að aðrar þjóðir
beiti þar sterkum áhrifum á báða
málsaðila til að stuðla til friðar.
„Terranova44 kom inn til Trums í
Norvegi með alla meðlimi Zeigler-farar-
innar heilu og höldnu um borð.
Atkvæðagreiðsla norsku
])jóðarinnar (er fram fór Sunnu-
daginn 18. þ. m.) uni ]iað, livort
slitið skyldi sambandinu við Svía,
fékk ]>au úrslit, að 321.197 atkv.
urðu nicð sambandsslitum, en 161
á móti.
Ensk blöð til 15. þ. m. segja friðsamn-
ingunum í Portsmonth (New Hampshire)
það ágengt, að aðilar sé ósáttir orðnir um,
að Japanar hafi tilsjónarrétt með Kóreu;
að hæði Japanar og Rúsar rými Man-
dsjúrí og landinu sé skilað Sínverjum;
Sínverjar fái járnbrautina suður frá Har-
bín. — 15. þ. m. átti að ræðaum Ljut.ung-
skaga. — Búist við að samningar strandi,
er tekið verður að ræða um Sakkalíu og
hetkostnað, en það verður innan 2—8 daga.
15. þ. m. var atkvæðatalan í Noregi
komin upp i 365,997 atkv. með og 182
atkv. móti aðskiinaðinum. Ókomnar þá
skýrslur frá 12 atkvæðastöðvum.
L.eikhúsið.
LeikféJagið iók í fyrrakvöld „Et
Dukkehjem" („Heimilisbrúðan" Thefði
heldur átt að nefnast „Brúðuheim-
iiið“]) eftir Ibsen.
Hór er ekki rúm að sinni að minn-
ast þess, nema segja, sem satt er, að
leikur frú Stefaníu Jósefsson („Nora“)
er sú iangfegursta og fuflkomnusta
leiklist, sem hér á iandi heflr sóst.
Þeir sem séð hafa frú Hennings leika
Nora á kgl. leikhúsinu í Höfn, segja,
að frú Stefanía leiki þó munum betur.
Hr. Árni Eiríksson lék vel (Krog-
stad), og allir ieikendur léku ýmist
vel sæmilega eða þá lýtalaust.
En um það verður ekki deilt úr
þessu, að jafnvel vorir beztu leikend-
ur eru með tærnar mílu vegar fyrir
aftan það sem frú Stefanía hefir
hælana.
Hún er leikkonan af guðs náð.
Skólinn í
Landakoti
byrjar Föstudaginn 1. Sept-
ember. Þcir sem vilja láta
börn ganga í skóla þennan,
ern vinsamlega beðnir að
gefa sig fram sem fyrst. (.31
undirrituð tek kostgangara,
kvenfólk og karlmenn frá 1. Okt 1905.
Grjótagötu 10. [—42.
Magnea Ásgeirsson.
2 brúkaðir hjólhestar eru til sölu á
Skólavörftustíg 27.
með lausri yfirbyggingu, sem rúmar
sex menn inni og t.vo á „kúsk“-
sætinu er
til sölu
með mjög góðum kjörum. Vagninn
er nýlega málaður og „lakkeraður“
og mjög vel útbúinn að öilu leyti.
Ritstj. vísar á seljanda.
S. Rjersgaard A Co,
Köbcnliavn.
Varningssýning bjá Breiðfjörðs-búð
frá kl. 4Vg—8. EmaiJferaðar vörur,
allskonar járnvara, landbúnaðaráhöld,
saumur, strengvara., segldúkur, botn-
mái, ensk og dönsk flskifæii, önglar,
dorgöngiar, ait sem tii skipaútgerðar
heyrir, festaraugu („kous“ ui) oghlekk-
tengsl (stracklar), sigUigjarðir o. s. frv.
Sýningin endar 28. Ágúsf.
SápiiYerzlunin
Austnrstræti 6, Reykjavík
hefir á boðstólum: Prima grænsápu, ® . . . 14 au.
Prima brún sápa „ 16 n
Prima brún kristallssápa 18 n
Prima hvít sápa, pd. . . , 12 n
Prima Marseille-sápa, pd. . 25 n
Prima Salmiak terpentín-sápa 29 n
Prima Marmóreruð sápa, pd. 29 n
Prima Perfections sápa, pd. 35 n
Prima Páirnasápa, pd. . . 38 u
Prima úrgángssápa, pd. . . 20 n
Prima sápuspænir, pd. . 35 n
Sóda, fínn, og kristail, pd. . 4V. n
Bleikisóda, pd 8 n
Lútdust ekta, pd 20 n
— — — í lausii vigt, pd. 18 n
Úigangs bandsápa, pd. . . 40 n
Að eins beztu vörur á boðstólum!
Sápuverzlunin
Anstnrstr. (í, Reykjavík.
Tapast hefir úr Reykjavík, jarpsokk-
óttur hestur, mark: snciðrifað framan biti
aftan hægra, blaðstíft aftan vinstra. Einn-
andi skili til l’áls lögregluþjóns cða Jó-
lianns Friðrikssonar á Læk í HoJtum.
Ung kýr miðsvetrarbær faist kej’pt
miðjum September í Austuifjtræti 18.
1 Prentamiðjan OutenberR.
Pappírinn frá Jóni ÓlaÍBsyni,