Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 02.09.1905, Qupperneq 2

Reykjavík - 02.09.1905, Qupperneq 2
162 REYKJAVÍK LANDSÍMINN. Skýring:. Frá Stað (í Hrútaf.) til Isafj. er er um tvent að velja, og eru þær leiðir inerkt- ar:----------—. Sáma er frá Sauðárkrók til Akureyrar, frá Einarsstöðum til Hofs og 'rá Egilsstöðum til leudiugarstaðar, aö þar eru eins táknaðar aðrar lciðir, cr um er að velja. Ritsimamálið. Þar er því loks til lykta ráðið, inu mikla máli, sem um niörg ár hefir verið mesta áhugamál lands- manna annað en sljórnarbótin — málið, sem öll þjóðin samhuga hefir talið þýðingarmesta framfaramál þjóðarinnar fvrir atvinnuvegi lands- ins, — alt þar til í vetur, er Ieið, að nokkrir samvi/kulausir menn taka sér fyrir hcndur að reyna að villa þjóðinni sjónir með svo taum- lausum blekkingum og gegndarlaus- um ósannindum, að slíks hafa, sem betur fer, aldrei fyrri nokkur svip- lík dæmi þekst í sögu landsins. Vér skulum sem skemst um það ræða að þessu sinni, þótt fróðlegt væri óneitanlega að rekja þá sögu alla og þann synda-feril, en láta oss nægja að geta þess, að það sem ærði fyrst fjölda fólks í land- inu var »tilboð« (svo nefnt), er Isaf. birti í vor og síðan Fjk., Pjóðv. og Norðurl. — tilboð frá Frajddandi, að sagt var, frá loftritunarfélagi þar, um að koma á fyrir »afarlágt(?) verð« og halda uppi loftskeytasam- bandi milli útlanda og 18 stöðva á íslandi. Þetta tilboð átti þingmað- ur einn að hafa í höndum, og skyldi hann leggja það fram í þing- hýrjun. Jafnframt þessu var svo logið öllum ósköpum um ritsímasamn- inginn, er ráðherrann hafði gert; honum átti að hafa verið »haldið leyndum« fyrir almenningi, enda þótt bæði Reykjavík og Pjóðólfur hefðu þegar í haust snemma birt öll aðalatriði hans, löngu áður en hann var fullgerður. Auk þess var samningurinn prent- aður í Maí í vor í tjárlaga-frum- varpinu. Enn fremurhafði ráðherran teymt séra Einar í Hjáleigunni upp á skrif- stofu til sín í haust og sýnt hon- um samninginn og beðið hann að skila til ritstj. Isaf. að honum væri velkomið að sjá samninginn og öll skjöl ritsímamálsins. Reykjavík hafði og getið þess með fullri heim- ild ráðherrans, að sltjöl þessi öll væru til sýnis á stjórnarskrifstof- unni, Svo skal ekki fjölyrt frekara um síðari blekkingar og tilboðin frá Marconifélaginu og lrá Siemens & Halske. Þess nægir að geta, að eins og nefndarálitið í ritsímamálinu ber með sér, þá reyndust þau bæði ó- áreiðanleg og dýrari en kostir Stóra Norræna ritsímafélagsins. En það má taka fram, að þótt umboðsm. Siemens & Halske lýsti yfir því í prentuðu bréfi til allra þingmanna, að hann vildi setja tryggingu mikla fyrir tilboði sínu, þá varð sú raunin á, er ritsíma- nefndin áttí tal við hann, að þá hafði liann alls enga trygging að bjóða. Eins reyndist með Marconi-félag- ið. Engin trygging þar heldur. Franska tilboðið kom aldrei fram, þótt eftir því væri spurt, og má því telja fullsannað nú, að það hefir aldrei neitt til verið. Að niinsta kosti ekkert tilboð, sem ílutningsmenn liafa ekki blygð- ast sín fvrir að bera fram. Sönnunin fyrir, að franskt tilboð hafi ekkert til verið, kom fram undir 2. umræðu fjárlaganna í Efri deild, Dr. Valtýr Guðmundsson var þá að tala og svara þingmanni Stranda- marina (Guðj. Guðl.); dró hann (V. G.) upp vír vasa sínum döltk- blátt blað með hvitri dráttmynd á og vélritað sendibréf með, og sagði, að hér væri nú margeftirspurða franska tilboðið, ef þingm. Strm. vildi sjá það. Fóru þá ýnvsir þing- menn til, að skoða þessi rnerkis- skjöl. Það reyndist þá, að þar var ekkert tilboð. Bláa blaðið var dráttmynd af íslandi með hvítum strylcum gerð, og sýndar þar á nokkrar loftrita- stöðvar (16—18 alls). Þær vóru ein í hverjum af 4 kaupstöðum landsins, ein í Giímsey (!), og nokkrar á annesjum hér og þar (flestum óbygðum) og örlair staðir aðrir, þannig, að þó að lol'tritun, sú er liér var sýnd á pappír, liefði verið vís og árciðanleg, þá hefði megin landsins verið sambands- laust éngu að síður, svo að kosta hefði orðið upp á landsíma eftir sem áður. En blaðið hitt var alls ekki tilboð til Alþingis, heldur nokkurra ára gamalt piavatbréf frá frönsku loft- ritafélagi til þeirra herra Arntzen & Warburg í Kaupmannahöfn, og var þar i áœtlun (auðsjáanlega lausleg) um, hvað þetta samhand mundi kosta. Og hvað átti þá djásnið að kosta ? 1,020,000 (eina miljón og tuttugu þúsund) franlta útborgaða fyrir fram, og auk þess 40,000 franka árlega í rckstrakostnað, og 20,000^ franka til árlegs viðhalds. Að doktorinn skyldi reyna að stinga út þessu gamla bréfi til danskra manna og leyfa sér að kalla það tilboð lil Alþingis eða íslands-stjórnar, það ætti að vera

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.