Reykjavík - 14.10.1905, Síða 3
REYKJAVÍK
191
frelsis og föðurlands-vinirnir, sem nii
eru að biðja um lagasynjanir. Blöð
þeirra. sem áður voru harðorðust móti
lagasynjunum, eggja nú og æsa alþýðu
manna til að biðja um lagasynjanir,
og ónýta þannig aðgerðir Alþingis í
aðal-framfaramáli landsins, sem það
hafði með höndum í þetta sinn.
Ætla nú íslendingar, ætla nú kjós-
endur á íslandi að láta blekkja sig
með þessum æsinga prédikunum?
Ekki eru nema rúm tvö ár síðan, að
kosnir vóru alþingismenn hérálandi,
og engu kjördæmi er ætlandi, að það
hafi kosið aðra menn en þá, er kjós-
endur treystu bezt, og þeir töldu sína
beztu menn, hvort sem þeir vóru
innan kjördæmis eða utan. En nú
er það borið fyrir, að 2/3 hlutar þing-
manna, þegar konungkjörnu þing-
mennirnir eru frá taldir, hafi brugðist
trausti kjósenda sinna með þvi að
vera ráðherranum fylgjandi, alveg
eins og kjósendur hefði vænst þess
eins af fulltrúum sínum, að þeir væri
andstæðir ráðherranum. En eru það
ekki vel bíræfnar getsakir við 2/8
þingmanna, að þeir láti teyrna sig
eins og skynlausar skepnur? Þessir
menn, sem mikill meiri hluti kjós-
enda áleit beztu menn sína fyrir 2
árum síðan. Þegar þingmenn þeir
sem nú eru, vóru kosnir, mintust
kjósendur iítið eða alls ekki á rit-
símamál né undirskriftarmál, svo að
þar votu þeir ekki bundnir við ann-
að en sannfæringu sína urn það, hvað
haganlegast væri landsmönnum í þessu
efni. Nú er þeir höfðu fengið þær
upplýsingar, er unt var að fá i þess-
um efnum, gáfu þoir atkvæði, eins
og þeir gerðu, og eftir öllum þingfars-
reglum er ráðherrann skyldur til að
fara eftir áiiti meiri hluta þingsins.
Ef hann gerði það ekki, væri hann
ekki hæfur að sitja í þeim sessi, er
hann situr í.
En þjóðarviljinn hefir komið fram
á þingmálafundum og í áskorunum,
segja nndstæðingar stjórnarinnar. En
ég neita því, að lögmætur vilji þjóðar-
innar geti komið fram á nokkrum
öðrum fundum en kjörfundum. Á
sumum þingmálafundum eru fáir
kjósendur að eins, og stundum eins
margir, sem ekki hafa kosningarrétt.
En þótt talin væri atkvæði allra þing-
málafundanna í vor og sumar, þá
mundi það reynast, að öll atkvæðin
samantaiin mundi verða miklu færri
en helmingur allra kjósenda á land-
inu, og er þó engin trygging fyrir
því, að eigi hafi slæðst þar með svo
og svo mörg atkvæði manna, er eigi
hafa kosningarrétt. Ef nú ráðherr-
ann metti meira yfirlýstan vilja þess
ara funda en ályktunaratkvæði meiri
hluta þingmanna, þá væri það stjórnar-
skrárbrot, er mótstöðublöð stjórnar-
innar hefðu eigi verið sein að nota
sér fyrir svo sem ári síðan, og það
með réttu, því að engin trygging er
íyrir því, að þar komi fram inn rétti
vilji kjósendanna.
En sanna þá ekki ávörpin þjóðar-
viijann? Ekki heldur. Vér vitum
allir, hvernig margar af undirskrift-
unum eru til komnar. Margir skrifa
undir af þægð við þann, er biðar um
undirskriftina, þó að þeir hafi litia
sannfærirgu einn veg eða annan, eins
og eðliiegt er, þar sem mörgum eru
málin lítt kunnug. Aðrir álíta það
eitthvað djarfmannlegt að rísa upp á:
móti stjórninni, hvað svo sem það
er, sem hún er samþykk. En aðrir
láta teija sér trú um ails konar sögur,
hve heimskulegar og ósannar, sem
þær eru. Engin stjórn, sem nokk-
urrar virðingar er verð, getur faiiö
eftir slíkum ávörpum, ailra sízt á
móti meiri hluta Alþingis. Og engin
su þjóð, sem reynir að veikja álit
löggjafarþings síns, á skilið að hafa’
sjálfstjórn.
Jón A. Hjaltulín.
^audshoraanua milli.
Ritsíma-staurariur. Skipið með
þá var komið til Austurlands og kom
á land á 17 kiukkustundum á Hér-
aðssandi öllum staurunum, er þangað
áttu að fara. Hélt svo norður um
land, hrepti þar bezta veður og hélt
því rakleiðis vestur á Blönduós, til
að sæta góða veðrinu þar; var ný-
komið þangað, er „Ceres“ fór hjá;
ætlaði svo að taka á eftir þær hafnir,
þar sem lending er betri.
Snnn-Mýlingsir eru ekki ánægðir
með þingmann sinn OJaf TJiorlachts
lækni, er bauð sig þar fram og var
kosinn sem heimastjórnarflokks-mað-
ur, en strauk þegjandi úr flokknum
í sumar, er leið, yfir í flokk andstæð
inganna. Allmargir sýslubúar er
mælt að hafi nú skorað á hann að
leggja niður þingmenskuna, þar eð
hann hafi haft pólitísk fataskifti og
brugðið þannig heit við kjósendur
sina.
Látinn er 27. f. m. merkisprestur-
inn Davið Guðmundsson prófastur aö
Hoíi í Hörgárdal.
— j- Sigurlaug Gunnarsdóttir liús-
freyja Olafs dbrm. Sigurðssonar í Ási í
Hegranesi er nýdáin.
— j- Margréti einkadóttur sína 9 ára
gamla mistu þau hjón, séra Sigurður
Stefánsson í Vígur og kona hans.
— j- 2. Sept. Arnfmnur Björnsson
bóndi á EyriiKollafirði(Barðastr.sýslu).
ssslyss varð á fsafirði 21. f. m.,
að fíenóní Magnússon, 19 ára gl. verzl-
unarþjónn við Tangs verzlun beið bana
af skoti, er óviljandi hljóp af byssu
hjá öðrum pilti. Þeir vóru að hand-
leika hana, en hvorugur vissi, að liún
var hlaðin.
TRe\>njavih 09 ðreno.
Látinn er hér 00 þ. m. skólapiltur
Sigurður Hjörleifsson (sonur Einars
ritstj.), fæddur (29. Jan,?) 1891, „,ann.
vænlegasti og bczti piltur. Hann lá
nær árlangt í tæringu.
Vatnsgröft hcfir bæjarstjórnin nú
víst geíið upp á bátinn, eftir að bor-
aðar hafa verið tvær holur, hvor um
sig talsvert á 2. hundrað feta á dýpt,
og kostað til þess um 8000 kr. Þykir
nú fullreynt, að árangurslaust sé að
bora hér eftir vatni, og reynist þvi al-
veg rétt álit ensku verkfræðinganna,
sem vóru hér í fyrra til að undirbúa
vatnsveitumálið; en þá vildi þorri bæ-
jarmanna ekki trúa þeim.
Aftur hefir málmur fundist i báðum
holunum, gull, og einkum þó kopar.—
Fyrri holan var innanvert við Skóla-
vörðuhæðina, hin innar nokkru, en þó
ekki í Öskjuhlið (sem hvorki lieitir né
hefir heitið Eskihlið). Það liggur því
nær að kenna gullfundinn við Skóla-
vörðuhæðina, en við Öskjulilíðina.
Námsstyrk tii tirðritunar veitti
síðasta Alþingi handa 4 nemendum
(1000 kr. hverjum). Þennan styrk veitti
landritari (í fjarveru ráðherra) í fyrra
dag, og urðu þessir fyrir veiting:
Bened. Sigtrvggsson í Kasthvammi (S,-
Þing.), ungur maður, er dvalið hefir i
Ameríku og fengisl þar eittlivað við
firðritun; — Gísli J. Ólafsson skólapilt-
ur (sonur Jóns ritstj. Ól.), Reykjavík;
— Halldór Skaftason (ritstj. Jósefsson-
ar); — Magnús Thorbcrg ritari i stjórn-
arráðinu. Þeir eiga að fara utan þeg-
ar í haust og dvelja við nám þar til
er ritsiminn kemst hér á (í Okt. að ári).
Skuldbundnir eru þeir allir til að vinna
að minsta kosli 5 ár i þjónustu land-
stjórnarinnar.
,Cepes‘ kom 8. þ. m. norðan um
Iand. Með henni m. a.: landritari Klem-
enz Jónsson; Ólafur G. Eyjólfsson for-
stöðum. verzlunarskólans hér, o. fl.
,Laura‘ kom árla 9. þ. m. frá út-
löndum. Meðhcnui: Dr. Björn Bjarna-
son frá Viðfirði, hr. Arnór Árnason
málmhreinsari frá Chicago, 111.
Bsejarfógeti Halldór Daníelsson lief-
ir nú afturkallað lausnarbeiðni sina
frá embætti, en sækir um árs orlof frá
embætti til að leita sér heilsubótar er-
lendis.
Hr. Ole Nesso. Alþingi síðasta heini-
ilaði að lána lionum 10,000 kr. úr við-
lagasjóði gcgn fullri trygging, ef hann
búsetur sig á íslandi og rekur þaðan
ishafsveiðar sinar, flytur lifandi mosk-
usuxa og moskuskvigur lil íslands og
selur hvert dýr eigí dýrara en 1000 kr.
— Hr. Nesso er norskur skipstjóri og
einhver allra-duglegasti maður til is-
hafsveiða. — Hann kom hingað númeð
»Ceres« til að undirbúa lántökuna og
búfcrlatlutning sinn hingað.
Ásgrimus* Jónsson málari málari
sýnir myndir sinar i Góðtemplarahús-
■inu þessa daga kl. 11—3, síðast á Mánu-
daginn. Hr. Á. J. er ekki að eins vor
langefnilegasti listamaður, en oss ligg-
ur nærri að freistast til að segja, að
liann sé vor einiverulega efnilegi lista-
maður.
Séra Magnús Helgason, kennari
við Flensborgarskólann, fótbrotnaði á
stræti hér i bænum Lagardaginn, er
var; báðar pípurnar brotnuðu.
VerzlursarskóSinn á að byrja á
Mánudaginn. Eitthvað nær 40 en 30
munu þegar hafa sótt um inntöku. Hr.
Ólafur G. Eyjólfsson frá Flatey (siðast
á Aknreyri) er ráðinn skólastjóri í vet-
ur. Það er ekki rétt, sem Fjk. segir í
gær, að það sé Verzlunarmannafélagið
eitt, sem kemur skóla þessum á stofn.
Kaupmannafélagið á þar jafnan þátt í
að minsta kosti. Ekki stendur skólinn
heldur enn undir yfirstjón landsstjórn-
arinnar, heldur skólanefndar, er bæði
félögin liafa kosið i sameining.
— Vér vekjum athygli manna að
málakenslu þeirri, cr verzlunarmanna-
félagið heldur uppi í dagtímum— utan
við málakensluna á sjálfum verzlunar-
skólanum.
í þessari sérstöku málakenslu (enska,
þýzka, danska) getur hver sem vill
fengið að taka þátt: 24 klst. á viku
fyrir 5 kr. um mánuðinn.
Þjóðrseðisfélagið hafði »haft mál-
beinið uppi« í vikunni sem leið.
Hornafjarðar læknishéraði er
Þorv. Pálsson, heraðslæknir í Hróars-
tungu-héraði, kvaddur til að þjóna £
vetur, en Jón Kristjánsson Fljótsdals-
læknir þjónar á meðan Hróarstungu-
héraði.
Fí N A R parfymer í lausri vigt
og á glösum, Brillantiner, Eau,
de Quinine, Hunangsvatn, Pomade,
Hárolía, Tann-pasta, Hárdust, Nagla-
áhöld, Skeggburstar og Tannburstar,
ásamt fínum handsápum. — Stórt
úrval. — Ódýrasta verð í
Sápuverzluninni
Austurstræti (>, Reykjavík.
Blápokar 2 og 4 au.
Ofnpúlver 4 og 7 au.
Amor 6 au. Zebra 8 au. pr. dz.
Kremólín 10 a., Sandoulín 12 a.
Blanksverta 3 au. stk.
Feitisverta, Pottaska, Borax, Klórkalk,
Kvillaia-börkur, Blek, Bleikisandur,
Salmiakspíritus, Ediksýra, „Chemisk
Væske“, Terpentína, Risstivelse etc.
Alt þetta er ódýrast í
Sápuverzluninni
Austurstræti (>, Reykjavík.
Heiinsendaiiiia ntilli.
j'íoregur og Svípjóð
sútt.
Ekki loftskeyti.
23. f. m. rituðu fulltrúar Norð-
rnanna og Svía í Karlstad undir
sanuiiug um adslvilnað beggja
ríkjanna. Aðalefnið er í fám ox-ð-
um þetta :
1. Bæði ríkin skuldbinda sig til
um næstu 10 ár að leggja undir
úrskurð friðardómsins í Haag allarx
ági’eining þeirra milli, þann er ekki
vai’ðar sjálfstæði og höfuðvelferð
annarshvoi’s eða beggja. — En
hvort ágreiningurinn sc pess eðlis,
úr því á friðardómurinn í Ilaag
einnig að skera.
2. Fiiðly st lxelti, sem hvorugir
rnega liafa vígvirki né her á, frá
Iðufirði til Elverum. Vii’kin i þessu
belti skal niður leggja. Þó skal
Friðrikssteins-virki haldið, og má
þar vera setulið. Virkin við Kongs-
vinger skulu óhreyfð og óbreytt.
3. Núgildandi samningur milli
ríkjanna um lireindýrabeit skal
standa til 1917, en að eins gilda