Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 08.09.1906, Blaðsíða 3

Reykjavík - 08.09.1906, Blaðsíða 3
R E Y K J A V í K 155 hvalveiðiskipi Ellefssens, sem fór hing- að suður. Skeytið segir ísl. smjör hafi haíi síðast selst á 89—100 sh. pr. cwt. (89—100 kr. dönsk 100 pd.) fob. Ekkert ísl. smjör þá óselt par. Eftirspurn tals- verð. Utlit fyrir hærra verð. Marconí-skeyti á Mánudaginn um gjald- prot fasteignasölufélaga í Filadelfíu (7 miljónir dollara), mjög óglögt. Sumt i skeytunum pann dag alveg óskiljanlegt. — Lafði Campbell Bannermann (kona forsætisráðherra Breta) dó í Marien- bad á Þýzkalandi á Sunnudaginn. — Landskjálflar miklir i Tacua og Arica í Cliili 29. f. m. Mikill ótti í fólki par. Sonur pýzka krónprinzins skírður 2. p. m. Wilhelm Friedrich. — Rúsa- keisari heflr boðið ekkju og börnum Stolypins að búa hjá sér í höll sinni í vetur. — Trepoff pjáist af taugaveiklun hættulega veikur. — 2. p. m. heitasti dagur í Bretlandi, 93° Fahr. (-= 27° R. — 34° C.) í skugganum. — S. d. Latid- skjálfti í NoTegi norðantil. Marconi-skeyti 6. þ. m. Aftur í gær sami hiti sem 2. p. m. á Bretlandi. Ýmsir dóu af hita eða fyrirfóru sér. — Roose- velt heflr boðið stjórnarvöldum að taka upp endurbætur málfræðifélagsins á enskri stafsetning, Er pví vel fagn- að og talið til frambúðar [amerisk blöð mörg hafa tíðkað petta lengi]. — Sín- lands-keisari birtir, að hann ætli að gefa þegnum sínum pingstjórn og frelsi árið 1910. Þangað til eiga vitrir menn frá Sínlandi að feröast um Evrópu og Ameríku og kynnu sér þingstjórn. — Uppreistarmenn á Cuba eru mjög að sækja sig. Er óttast að þeir nái Cien- fuegos er minst varir. —■ Hitanum í Bretlandi lauk í dag með rigningu. — Trepoff leystur frá embætti. Reykjavík og grend, E/s Kong Trygve (E. Nielsen) fór héðan áleiðis til útlanda 5. þ. m. að kvöldi, fullfermdur vörum og með um 75 farþegja, þar á meðal: Kapt. Hammershoj og 28 menn með honum (Generalstaben) (11 yfir- menn og 18 undirmenn), 18 ritsíma- menn danskir, Fr. Wendel frá Dýra- firði og frú hans, J. Frederiksen kaupm. frá Mandal, Charles Nielsen ijósmynd- ari, Haraldur Árnason verzl.maður, Magnús Sigurðsson lögfræð. Stúdent- arnir : Gunnar Egilsen, Vilhj. Finsen, Stefán Scheving, Geir Zoega, Þorst. Þorsteinsson, Guðm. Einarsson(Flekku- dai), Jón Sigurðsson (Ólafssonar sýslu- manns). Ungfr.: Halldóra Bjarna- dóttir (kenslukona), Emilía Sighvats- dóttir (bankastj.), Guðlaug Hjörleifs- dóttir, 2 franskar dömur (frá franska sjúkrahúsinu hór), 2 nunnur frá Landa- koti. Jónas Andrésson verzl.maður (áleiðis til Koiding), 6 útl. ferðamenn. Ennfr. til Vestm.eyja um 15 manns. Talsímagjöld. Frá Rvík kostar 3 mínúcna viðtal alt upp að Grund (eða nser) 50 au., norður að Lækjamóti 75 au., að Urð 1 Svarfaðardal 1 kr., að Reykja- hlíð 1 kr. 25 au., til Seyðisfjarðar 1 kr. 25 au. E/s ,,Barden,*‘ hvalveiðaskip 'jEllef- sens kom hingað aí Mjóafirði 2. þ. m. og eigandinn með. Fór aftur 4. þ. m. um hádegi, og rneð skipinu fóru For- berg yfirsímastjóri og Gislí J. Ólafsson ritsímari til Mjóafjarðar; fara þaðan til Seyðisfjarðar og síðan fram með síma- línunni allri og á allar stöðvar, landveg hingað aftur. Væntanlegir 20.—22. þ. m. — Guðm. Hávarðsson fór móti þeim landveg héðan með hesta 5. þ. m. og roætir þeim að lfkindum á Akureyri éða í Reykjahlíð. Hjónaband. 1. þ. m. Egill Jacobsen kaupm. hér og ungfr. Sigríður Zoéga (Einarsdóttir veitingamanns). Símskeyti hafa engin komið að norð- an enn í dag (er blaðið fer í pressuna), en búist við samtali til Akureyrar, eða jafnvel Seyðisfjarðar 1 kvöld eða á Mánu- daginn. Möðruvalla-kall veitt séra Jóni Þor- steinssyni á Skeggjastöðum. Sjálfsmorð. Kristjdn Jónsson fyr bóndi á Hliðsnesi, síðast kaupm. í Hafn- arfirði, drekti sér 2. þ. m. Var góður bóndi áður, og vandaður sæmdarmaður alla tíð. 62 ára að aldri. Dáinn. Hallgi. Melsted bókavörður varð bráðkvaddur í morgun. Hans verður betur getið síðar. Veðurathuganir í Reykjavík, eftir Siöbíbi Björnsdóttur. 1906 Ágúst Loftvog j millim. j ('O) WH *o $ •s 0 *o o > 0 bo o5 & m að . II -p‘1 Fö 24.8 753,9 10,7 Ntí i 10 2 754,2 12,0 NE i 10 9 753,7 11,2 0 8 Ld 25. 8 758,3 10.4 Ntí í 4 3,0 2 751,7 12,5 NE í 5 9 756,4 N í 10 Sd 26.8 757.6 10,5 NE i 9 2 762,5 13,6 9 762,5 10,6 NE 1 8 Má 27. 8 762.4 10,9 NE í 9 2 759,7 16,1 NE í 10 9 757.6 10.4 NE í 10 Þr 28.8 760.9 11,3 SSE í 10 2 761.0 14.4 SE í 8 9 761,3 11,7 S í 6 Mi 29.8 759,6 10,7 SE í 10 4,6 2 758,1 11,6 SE í 10 9 757,2 10,2 E í 10 Fi 30.8 756,4 E í 10 2 756,7 12,1 NE í 10 9 757,1 10,1 0 3 Allir kaupa! ísl. rjómabús-smjör fínasta.................92 aura Smjör ágætt.................................98 — — gott..........-..................... 89 — Margaríne gott..............................34 — — fínt...................................45 - Hrein svínafeiti.......................... 40 — Hvergi jafn-ódýrt og hvergi jafn-gott eins og í Smjörhúsinu Grettisgötu 1, við Laugaveg. Rauða húsið. Spamadarmiöai* incð öllnm vörum. SVNS-M4c Xý* H ThA Thomsen- Kvæði í sundurlausu máli, Úr „Senilía“ eftir Iwan Turgenjeff Porleifur H. Bjarnason þýddi lauslega. VII. Veizla alföður. Alfaðir hélt eitt sinn veizlu mikla í asúrhöll sinni. Hann hafði allar dygðirnar í boði sínu. En eingöngu kvendygðirnar. .........engir karlmenn............ eintómar konur. Mjög margar dygðir ,— stórar og smáar — höfðu sót.t boðið. Smáu dygðirnar vóru viðmóts- þýðari og ástúðlegri en stóru dygð- irnar, en samt sem áður virtust þær allar vel ánægðar, og það fór vei á með þeim, eins og náfrændum og kunningjum samir. En þá varð alfaðir var við tvær vænar konur, er virtust vera alls- endis ókunnugar hvor annari. Alfaðir tók aðra konuna við hönd sér og leiddi hana til hinnar kon- unnar. „Velgerðasemin", sagði hann, og benti á fyrri konuna. „Þakklátsemin", og benti á hina. Báðar dygðirnar urðu forviða mjög. Frá sköpun veraldar — og það var æði langt síðan — hittust þær nú í fyrsta skiftið. Smávægis. Síldreiðl sinni við ísland láta Norðmenn vel af í ár. 10. Ág. segir í „Morgenposten,“ að þá sé til Nor- komnar 3700 t.n., og nokkur skip með fullfermi af síld sé þá á leið- inni til Noregs. Leður og skinn alls konar hefir stórum hækkað í verði siðari hlut vetrarins, er leið, og í vor og sumar. Sumar tegundir alt að 40%. Cokes. E/s ..IJranía** er væntanleg hingað á Þriðjudaginn með kol og ,eokcs‘. Dálítið af „cokes" er ópantað enn. Sá fær fyrst, sem fyrst kemur. „€ðinborg“. HAFNARSTR-1718 1920 2122 - KOIAS 1-2- LÆKJART-1-2 * REYKJAVIK * KoL Um miðjan þennan mánuð fær TH0MSENS MAGASÍN stórt gufuskip með 800 tons af á- gætum kolum, sem verða seld mjög ódýrt. Kolin eru hrein og þur, ekki vatnsþrungin. Ekið heim ókeypis. Magasínið hefir aldrei þurft að auglýsa það, að það léti úti fulla vigt; það dettur engum í hug að efa. Kola- vigtirnar eru næmar og réttar, ekki stirðar. Pundin eru dönsk, ekki ensk. Umbúðir þurrar og létt.ar. Með þ.ví að kaupa kol í Tlionisens Magasín fá menn hvorki auglýsinga- skrum né vatn, heldur tóm kol fyrir alla peningana. HÚS tíl sölu. Hálft húsið nr. 43. við Grettisgötu fæst keypt nú þegar, mjög ódýrt. húsið er 4 ára gamalt, sérlega hlýtt og mjög vandað að öllu, járnvarið Því fylgir stór og góð lóð (kálgarður) í þessum helmingi hússins eru 4 íbúðarherbergi, 2 eldhús, kjallari og ennfremur kvistherbergi að hálfu. Thomscns magasín, Nýtt hús vandað til sölu með góðum kjörum. Semjið fyrir 10. þ. m. við Jón JÓiissoii Lindargötu 10 B. Þeir sem eiga muni, sem ekki hafa. gengið út í umboðssölu í Ferðmanna- deildinni, eru beðnir að vitja þeirra sem fyrst. Tomsens jVtagasín. Til leigu fæst frá 1. Október, íhúð með 3 herbergjum og 1/2 kjallara í ágætum stað mót sól. Semjið við Jóh. Jóhannesson. Laugaveg 19. HAFNARSTRÆTI 17 18 19 20 21 KOLASUND t-2 ■ Dömu- og barnafatadeildin er á efra lofti í Hafnarstræti 20. Þar fá dömurnar og börnin alt sem þau þurfa til fata, innst sem yzt. Þar fæst kjóla- og kápuefni úr ull, silki og baðmull, allskonar fóður-— þar á með- al nýtízkufóðrið linett í öllum litum — og tilheyrandi, og skraut, svo sem „agramer," „agrafer,8 „chiffons,“ „ge- puire“ o. s. frv. Þar fást snyrtilegir kjólar, kápur, hattar og vetrarhúfur, beint frá París, London og Berlín. Þar fást nærföt, utanyfirföt oghöf- uðföt á börn á öllum aldri. Á saumastofunni eru saumaðir „flott“ og „elegant" dömukjólar, dömukápur, telpukjólar, telpukápur og drengjaföt, alt úr vönduðustu efn- um og eftir allra nýjustu tízku. Um næstu mánaðamót kem- ur nýr, útlendur dömuskraddari, sem í mörg ár hefir unnið á stærstu saumastofum í París og Berlín, og mun saumastofan hér þá fullkomlega jafnast á við þær fínustu og beztu ytra og enginn hér standa henni nánda- nærri á sporði. Sérstök deild er fyrir dömuhatta og barnahöfuðföt undir forstöðu frk. Önnu Ásmundsdóttur. V erzlunarskólinn byrjar ineð Október-byrjun. Tímar byrja 5. Okt. Inutökuskilyrði til neðri bekkjar er kunnátta sú, sem veitt er í barnaskóla Reykjavíkur, eða jafngildi. í efri og neðri belck verða teknir þeir, sem upp voru fluttir í þá bekki í vor, er leið, eða nú standast sams konar próf. Skólagjald verður 20 kr. fyrir skólaárið og greiðist fyrir fram. Á undirbúningskenslu verður kost- ur. Umsóknir um upptöku stílaðar til skólanefndarinnar afhendist bókara Karl Nikulássyni í Thomsens Magasín. Þeir sem vilja taka að sér tíma- kenslu við skólann, sendi umsóknir til sama. SkólanefiMliii. Munið eftir !!! Gjalddagi „Reykjavíkur" var 1. Júlí. Gleymið ekki að borga nú þessa 1 kr., sem árgangurinn kostar.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.