Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 19.09.1906, Blaðsíða 1

Reykjavík - 19.09.1906, Blaðsíða 1
1R e £ fe í a v ífc. VII. 41 ’Útbrciddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Miðkudaginn 19. September 1906. Ásksifendur í bænum yfir 900. VII, 41. m FÆST í TffOMSENS M&GASÍRI. Ofna eldayélar aoiur Krietján Þorgrímsssn. Ofiiar o<>- eldavélar er bezt hjá Jnl. Schan. Ntdiar nokkur {>ví ? (1REYKJ1YÍK“ Arg. [60 -70 tbl.] kostar innanlands 1 kr.; erlendis kr. 1,50—2 sli.—50 cts. Borgist fyrir í. Júlí. Auglgsingar innlondar: á 1. bls. kr. 1,25; á. 2. bls. 1,16; á 3. og 4. bls. 1,00 [á fastákveðnum stað á 3. og 4. bls. 1,15]. — Útl. augl. 33a/a0/° hœrra.— Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Útgef.: Hlutafélagið „Roykjavík“. Ritstjóri, afgroiðslumaður og gjaldkeri: •Jón Óla.fsson. Afgreiðsla Laufásvegi 5, kjallaranum. Rit8tjórn: ----„ stofunni. Telefónar: 29 ritstjóri og afgreiðsla. 71 prentsmiðjan. * H/\PNARSTR/YT 11718 19 20 21 KÖLASUND’l’F • Nýlenduvörudeildin er í. Hafnarstræti 20 (Nýhöfn). Það er langfjölbreyttasta nýlendu- vöruverzlun á öllu Islandi. Þar fást allar matvörur í smásölu, Þar fást allar mögulegar krydd- vörur. Þar fæst kaffi og sylcur. Þar fást allar tegundir af niður- soðnum matvælum. Þar fást allir ávextir niðursoðnir. Þar fást ótal tegundir af kexi og kökuin. Þar fæst brjóstsykur, konfekt, choco- lade o. s. frv. Þar fæst all tóbak og vindlar. Þar fást sápur, skósvertur, ofn- svertur o. s. frv. I sambandi við þessa deild er sér- stök kaffibrensla, og það kaffii, sem þar er brent, er stórurn mun dýrara í innkaupi og betra, en annað kaffi, sem flytst til Islands. Hagskýrslur landsstjórnarinnar. (Leiðrétting). Það er hvortveggja, að vér áttum óvenjulega annríkt og mörgu í að snúast vikuna, sem leið, enda hefir oss í fljótiæði sést yfir það, er vór rituðum greinina með þessaiá fyrir- sögn í síðasta bl,, að skip, sem frá öðrum höfnum á Islandi komu til jRvíkicr árið 1904 eru ekki talin með í þeirri tölu eimskipa og seglskipa, er vér nefndum: 67 eimskip (samt. 23,276 tons) og 16 seglskip (samt. 1046 tons). Skekkjan á skipatölunni verður því ekki eins afskapleg eins og vór töldum, en sjálfsagt fjarri öllu lagi samt. Og það sem sagt er um meðaltal tonnatölunnar stendur að ölluóhaggað. Vérsáumþetta undireins, er vér lásum aftur greinina í blaðinu, og oss er ókunnugt um að nokkur annar hafi eftir því tekið, en leiðrótt- um það hór með sjálfkrafa. Bókmentir. Jón Trausti: HaUa. Söguþáttur úr Sveita- lífinu. 224 bls. cr. 8vo. — Ryík 1906. [Arinbj. Sveinbj.son og Þorst. Gíslason]. „Jón Trausti" er gervinafn, og er þetta frumsmíð höf.s í sö#«askáld- skap, en ekki er hann ókendur við prentsvertuna áður. Hór hefir hann, að því er oss virð- ist, hitt á bezta viðfangsefni fyrir gáfu sína. Eftir þessari sögu að dæma lætur honum sagnaskáldskapur vel — mætavel, getum vór vel sagt. Persónur sögunnar eru helztar: ungur prestur nývígður og nýkvænt- ur, er fær „brauð“ langt uppi í sveit, og skilur konuna, Reykjavíkurkaup- manns dóttur, eftir í foreldrahúsum fyrsta veturiun. Þá er Halla, vinnu- kona á prestsetrinu, þar sem hann dvelur um veturinn á vist með ekkju fyrirrennara síns. Þriðja persóna er prestsekkjan gamla; íjórða er Ólafur sauðamaður. Presturinn er sýnishorn a.f algengri vöru — hænsni, sem hefir kosið sór prestskap fyrir atvinnu; ekki ógreind- ur maður, ekki eiginlega það sem kallað er slæmur maður eða vondur, en gjálífur, léttúðugur, trúlítill, þrek- laus og hugsandi mest um bærilega afkomu, þ. e. að hafa í sig og á stritvinnulaust með því að prédika sér utangarna það sem hann trúir ekki á. Ekki óskandi í sjálfu sér að gera öðrum ilt, en teljandi sjálfsagt að virða alla velferð annara manna vettugi heldur en að baka sjálfum sér óþægindi. Þetta er algengt ein- tak af mönnum, eins og þeir hittast daglega tylftum saman í lífinu, bæði í prestastótt og öllum öðrum stóttum. Halla er enginn hversdagskven- maður. Plún er gædd bæði fegurð viti og þreld, og hefir fengið ailgott uppeldi, þótt alin hafi verið upp „á sveit". Hún er augnayndi og eftir- þrá allra ungra sveina, hefir gaman af því, án þess að verða ástfangin sjálf, og leikur nokkuð miskunnarlaust með hjörtu karlmannanna. Hún stenzt alla, er hrein og ósnortin, en QOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO-í „EDINBORG". f\\wt er kolaskip komið. Þegar vér auglýsum, að hver skiftavinur fái fu 11 320 dönsk pund i skippundinu, þá erþaðekki af því að neinum hafi dottið í hug að véfengja vigt vora, heldur af því, að sumir hafa spurt oss,hvort vér vægjum líka pokana með. Þaðgerum vér ekki, og Ö þurfum því ekki að geta þess, hvort þeir sé þungir eða léttir. Dálitið af Cokes er enn ópantað. Verzl. Edinborg'. 0000000000000000000000000000- ooooooooooc verður svo þeim að bráð, sem sízt skyldi. Báðum þessum persónum lýsir höf. mæta-vel, og eins prestskonunni og ÓlafL sauðamanni. Höf. hefir sóð þessar persónur glöggu skáldsauga og náð föstum tökum á þeim, og leiðir þær fram lifandi fyrir sjónir iesandans. Og söguna segir hann vel. Smágaila mætti benda á hér og hvar, en smávægilega. Þaunig er t. d. dálítið broslegt að sjá á 219. bls., að höf. hyggur ekki hafa verið nein lög til, er heimiluðu að gefa brúð- hjón saman í heimahiísum án lýsinga um miðbik 19. aldar; en þau lög eru miklu eldri. Málinu er nokkuð ábótavant hér og þar, og sumstaðar, ekki sem bezt til orða tekið, t.. d. „nefið beint og formfagurt“. Svo komast menn ekki að orði, þótt „formfagur" sé ólastan- legt orð; „vel skapað“ eða „fagur- skapað“ mundu menn segja. Það er altíð synd yngri manna sem eidri, er eigi kunna málið, að láta yfirstig atviksorða enda á -ar, í st. f. -ara; en það er rangt. Atviksorð, sem enda á -lega, hafa -legar, en nálega öll önnur orð -ara; þannig: nánara (ekki: nánár), bráðara (ekki: bráðar) 0. s. frv. „Með mestu lœgni“ á að vera: „l«gni“ (af „laginn“, ekki „læg inn“); þvi á að rita „handlagni" (af „handlaginn"), en aftur „einlœgni“ (af „einlœgur"). —- „ Vissum takmörk- um“ er ekki isl. — Að ,,hlær/ja þýðir: að koma e-m. til að „hlæja“. — „Fersk- ur“ er ekki íslenzka, hvorki um mat nó minni. — Tvær dönskuslettur verða stöðugt fyrir manni nærri á hverri siðu í allri bókinni, einatt oftar en einu sinni á sömu síðu: önnur er sú, að setja sífelt neitunina á undan sögn- inni, t. d. „ekki hafði“, „ekki vildi*, „ekki hirti um“, í st. f. „hafði ekki“, „vildi ekki“, „hirti ekki um“ 0. s. frv.; hin er sú, að tengja tvær tilvísunar- setningar saman með viðtengingar- orði, t. d. „sem hún átti og sem henni þótti vænt um“. Þetta er Ijót dönskusletta; „sem“ er hér alveg of- aukið á síðari staðnum. — „Atgerfi“ er röng stafsetning, hvort heldur eftir uppruna eðahljóði; á að vera „atgervi“. Það er Jjótt að lesa slíkar setning- ar sem þessa: [bændasynir], „sem að visu ekki hefðu hlotið þakklæti for- eldra sinna fyrir ab taka þannig niður fyrir sig, en sem þó hefðu ef til vill elcki horft í það“. [12. hls. efst]. A íslenzUu yrði setningin svo: „sem hefðu að vísu ekki hlotið þakkl. for. s. fyrir að t. þ. n. f. sig, en hefðu þó ekki, ef til vill, horft í það“. „Að skríða til skara“ (13. bJs.) er líkh prentvilla (f. „skarar").— „Brýgj- indalega“ (á bls. 14) er víst stafsetn- ingarvilla. „ Þær freyddu af gremju með sjálf- um sér“ er hrapallega að orði kom- ist. Fyrst er nú að „freyða“ að eins haft um dauða hluti (aldan freyðir á súðum, bjórinn freyðir í glasinu), on um menn og skepnur er sagt, að „froðufella“. Og í annan stað er eitthvað óeðlilegt að tala um að froðufella „með sjálfum sér“. í 2. 1. 16. bls. er prentvilla „væri“ fyrir „var“. — Þó að vér höfum ritað upp allar málvillur í bókinni, er hér ekki rúm

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.