Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 29.09.1906, Blaðsíða 3

Reykjavík - 29.09.1906, Blaðsíða 3
REYKJAVÍK 175 BAKARI Heiðruðum almenningi gefst hér með til vitundar, að undir- ritaður byrjar fyrstu dagana í Október að reka bakara-iðn og conditori í Austurstræti V7 (husi hr. kaupmanns Matthíasar Matthiassonar). Ég mun gera mér alt far um að framleiða inar vönduðustu vörur, alls konar brauð og kökur, og vonast eftir, að al- menningur muni sjá sér verulegan hag í því að skifta við mig. Specialitet: ís- og kranzakökur. Reykjavík, 29. Sept. 1905. Virðingarfylst. Frantz Haakonsson. Ráðherrann hélt snjalla ræðu að vanda, sem vér vonum að geta flutt siðar, og það ágæta kvæði, sem hór fer á eftir, var sungið éftir ræðuna: í dag skín íslands gæfu’ og gleði dagur og góðu ári’ og friði disir spá. 1 suðri blikar sólargeisli fagur og söngvar hljóma’ um nýja von og þrá: Nú tengir lifæð oss við allan heiminn, sem öflug mun í fullum krafti slá, og flytja hingað vil og vald og seiminn og vekja nýja menning öllum hjá. Eg trúi þvi, að muni’ í búi batna bjá bænduin vorum eftir þennan dag, að muni gamla skuldasúpan sjatna og sérhvað auka þeirra veg og hag. Svo eflist verzlun, fiskiveiða-flot- inn, og fjörkipp nýjan þjóðlíf íslands fær, — hver vanans hlekkur höggvinnskal og brotinn, cn himinn opnast nýr og hár og skær. Jeg veit, að þýðing símans enn þá eigi er öllum ljós, sem byggja gamla Frón. En jeg sje rísa roðann af þeim degi, er reynslan fellir tortryggninnar ljón. Og þess mun varla verða langt að bíða að verkin sýni merkin djúp og sterk, — og einmitt þeir, er naprast sím- ann níða, á næstu árum telji’ hann þarfaverk. En vættir landsins munu’ af göfl- um ganga, þeim gremst í land vort nýja strauma’ að fá, — með steingervingsins svarta svip þær hanga og svefnþung augu fornum haug- um á. En góðar dísir stilla gullna strengi og stoltar kveða fögur sigurljóð. Vjer hrópum með þcim: »ísland lifi lengi, og lán og blessun krýni vora þjóðl« ( Guðm. Guðmundsson.) Allra-fyrst á undan ræðunni gat ráðherrann þess, að hann hefði í morgun símað konungi, að landsím- inn væri opinn, og hefði hann fengið svar hans aftur, dags. kl. 3 í dag í Bernstorff. Lét konungur m. a. enn í Ijósi að hann byggist við að koma hingað að ári. Engum varð að vegi af nefndinni að fagna konungi með húrra, og gerði þó ráðherrann þögn á. Eftir ræðu hans og langa þögn drattaðist „Lengi lifi ísland“ upp úr einhverjum uppi á pallinum, áður þó en kvæðið væri sungið, sem sjálft endar á. „ísland lifi lengi“. Var þá hrópað 9-falt húrra. Enginn bað ráðherrann lengi lifa. — Forstöðu- nefndir eru vanar að sjá fyrir slíku, og þora því ekki aðrir að kveða upp úr með slíkt, því að þeir vita ekki nema nefndin hafi ætlað slíkt á öðru augnabliki. Fotstöðunefndin hór hefir enga hugsun haft fyrir neinu. Akureyringar höfðu mannsafnað mikjnn áean kl. 4, og halda sam- kvæmi mikið í kvöld. Peir leyfa ritsímurunum þar að vera með. Fyrsta skeyti frá Rvík til útlanda, næst embættis-skeytunum, var frá konsúl Thomsen til Þýzkalandskeisara. , félagar Tímakennarafélagsins, bennum ekki fyrir minna en 90 au. um tímann einum nemanda, 1 kr. ef tveir eru saman, en 25 au. bætist við með hverjum nýjum. Kenslan borgist fyrirfram, vikulega eða mán- aðarlega. Agúst Bjarnason. Ásgeir Torfason. Arni Þorvaldsson. Bjarni jfónsson frá Vogi. Böðvar Kristjánss. G. Finnbogason. Jön Ófeigsson. Jön Þorvaldsson. Matth. Þórðarson. Ól. Daníelsson. Þorst. Erlingsson. Stúlka þrifin, getur fengið vist hjá Saust bakara, Laugav. 20. Til leigu frá 1. Október stofa með forstofuinngangi fyrir einhleypan reglu- mann. Ritstj. ávísar. Eitt herhergi með forstofuaðgangi óskast til leigu nú þegar. Einar Þorkels- son, Bergstaðastræti 29, vísar á leigjanda. Rcglusamur maður óskar eftir atvinnu við verzlun, helzt sem fyrst. Ritstj. ávísar. Klæðskeradeildin < Liverpool hefir nú fengið nýjar vörur, sem vert er að líta á, t. d. ósköpin öll af tiH>iinu.m. fatnaöi, lirval af nýtízku fataefiiu.ui. SKÓlY'_A.TIVALfE> margar teg., afar ódýran. Höfuðfatnað alls konar til vetrarins. MT REGNKÁPUR. -fMS Leikfimi Dans. Leikfimiskensla byrjar hjá undirritaðri fyrst í Október. Kenslan er veitt jafnt eldri sem yngri dömum. Þær sem vilja njóta kenslunnar, geri svo vel að segja mér til sem fyrst. Ég er heima frá kl. 1—2 síðd. í húsi Sig. Thoroddsen, Frikyrkjuveg. Danskensla byrjar eins og vant er 1. Nóvember bæði lyrir börn og fullorðna. Danskenslan fer fram í stóra salnum í Báru- húsinu. Ingibjðrg Guðbrandsdóttir. herbergi fyrir eínlileypa við Sjó- mannaskólastíg. Jón Eyvindsson. Vikadreng’ur getur (engið starf í sendiferðir o. fl. — Ritstj’ »Rvikur«. Karl eða kona óskast til að passaífi liú. Ritstj. „Rvkr“. Stórt uppboð verðttr haldið í húsi W. Ó. Breiðfjörðs FititopíOIít. jflrnt ]. Ijaarvig Björgvin (Noregi) Umboðs-sala ▼. ilU Lifur, Hrogn, Síld, Saltfiskur, Rjúpur, Kjöt, Ull o. s. frv. Öllm fyrírspurnum svaraö m liæl ókerpís. Flugeldar margai* teg-., nýkomnir í verzl. Stnrln Jinssonar. Tapast hefir ensk nótnabók (Hyms of the holiness movement). Skilist i afgr. „Rvíkur“ gegn háum fundarlaunum. Seldur verður alls konar búðar-varningur, álna- vara, leirtau, verk- fsteri o. íl. Sömuleiðis innanstokksmunir, borð, stólar, niiii o. m. íl. / Bakkabúð fæst margt ódýrt, þó batn- aði það þegar »Vesta« kom. [tf. Iij ólasaum tek ég undirrituð að mér nú pegar. Verk vandað. Saumalaun lægst í bænum. Ragnh. Clausen Jónsson, Vesturgötu 22. [—ah. tf. Vasa-úr með festi hefir tapast innar- lega í Skuggahverfi. Skilist í Hverfisgötu 35 mót fundarlaunum.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.