Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 12.01.1907, Blaðsíða 3

Reykjavík - 12.01.1907, Blaðsíða 3
REYKJAVÍK 7 Alþingi, fara nýjar kosningar frarn að lögum haustið 1908. Þar fær því þjóðin fult færi á að kjósa þingmenn sína alla með sér- stöku tilliti til þessa eina máls. Þingrof nú — áður en nokkur nefnd er kosin, því síður nokkur tillaga eða frumvarp fram komið — þingrof nú þar sem nýjar kosningar standa fyrir dyrum lögboðnar áður en nokkur til- laga eða frumvarp um sambandið getur orðið lögð fyrir þing — það er sá barnaskapur, sem ekki ætti að þurfa að taka löngu tali. Sumir landar vorir láta sér ant um að lepja í útlend blöð alt rifrildi hér innanlands um sérmál vor. Ef einhver segði frá því í víðlesnu heimsblaði, að til væri úti á heims- horni þjóð, ekki villiþjóð, heldur þing- frjáls þjóð, þar sem andstæðingar stjórnarinnar hefðu ein 13 atkvæði af 40 á þingi, og að máigögn þessa litla minnihluta væru að reyna að spana kjósendur til þess að heimta af stjórninni, að hún ryfi þing til að leita fyrir sér, hvort hún gæti ekki minkað fyigi sitt, — ef einhver segði frá slíku og gæti fengið menn til að trúa svo ótrúlegum hlut, þá mundi það vekja svo mikinn hlátur um heim allan, að bergmála mundi jafnvel út til íslands! Símskeyti til Blaðskeytasamlagsins („Austri“, „Frækorn", ,,Reykjavík“). Kaupmannaliöfn, 10. Jan. Persia. Shahinn (Persakonungur) er dáinn. Hannover. María drottning er dáin. Rúslaml. Yfirmaður her-réttarfars- ins, Paulow hershöfðingi, er myrtur. Morðinginn varð handsamaður. Hanmörk. Mikið kvis um manna- skifti í ráðaneytinu, talað, að Högsbro muni fara frá völdum, en N. Neer- gaard, foringi hófsmanna (moderate), taka við. Við það ykist að mun þing- fylgi stjórnarinnar. Rosa-tíð hefir verið talsverð og umhleypinga- samt veður það sem af er þessum vetri. Veðurfræðingarnir setja þetta í sam- band við sólblettina, sem hafa verið venju fremur miklir í ár. * Taglhnýtingur ísafoldar inn nýi hefir orðið fyrir áhrifum einhverra pólitiskra sólbletta líka, og hefir verið úfinn í skapi um Nýjárið. Vér getum ekki verið að fást mikið um það. Hann fer prýðisvel í taumi enn sem komið er og kippir ekki í neitt að ráði. Komi einhver skap- stygð í hann i vorn garð, þá leiðum vér það hjá oss og fyrirgefum af gamalli rækt. Óskum honum að eins, að hann mætti heidur fyrr en síðar komast aftur „út úr þokunni". Um fóðurauka. Það er seint um of brýnt og end- urnýjað fyrir bændum að nota alt það sem hugsast getur til heyspar- naðar og gleyma því ekki að gera sér það jafnt að venju á góðu árunum sem inum lakari. Ég skal þá leyfa mér að nefna þá hluti, sem ég sjálfur brúkaði og reyndust mjög gagnsamir. Skal ég fyrst nefna þang. Það skal skera að vorinu og reiða það upp á möl eða klappir og breiða þykt og láta það líða „skúr og skin“ þar til búið er að slá og þurka hey handa lömbum. Þá skal flytja fyrst heim þangið, sem þá er orðið vel þurt, og skal þá láta það í hrúgu á gólfið nálægt dyrum og svo skal láta heyið inn, og þurt verður það að vera, svo ekki komi hiti í heyið; við það spillist þangið. Þegar búið er að kenna lömbunum átið, tekur maður knippi í fang sér, slítur í sundur og dreifir á garðann þanginu. Er það góð skemtun að horfa á lömbin, hvað þau eru gráðug í þangið, en þó er meiri skemtun að sjá, hvað lömbin stækka og kviðast vel. Auðvitað þarf að gefa hey með. Fóðursparnaður er og að því, að blanda vatnið handa ungum skepnum með sýru. Þá er að minnast á söl og kjarna. Með það er farið eins og þangið, að því undanteknu, að sölin þurfa ekki nema 2—3 daga þurk; þá skal bera þau inn og þekja vel, svo ekki kom- ist loft að. Sölin skal gefa kúm í stað ábætis, og mun vart finnast dæmi til, að kýr fái doðasótt, sem söl eru gefin kringum burð. Líka má gefa kúm nýtekið blaðaþang og hella aður á það, í íláti, heitu vatni. Gott er og álitið að láta kýr liggja á hráu þangi, sem júgurbólgu hafa; það dreifir bóigunni. Ennfremur má gefa kúm allar af- urðir af veiðifangi, svo sem hrogn- kelsaslóg, þyrsklingshöfuð o. m. fl. Samt er betra að sjóða það lítið eða hella á það sjóðandi vatni. Þá má gefa kúm og hrossum þurkuð og barin höfuðbein og hryggi úr þorski. Líka má gefa nautkindum hrís og víði, en rífa það og kljúfa áður með knífi. Þess verður að gæta, að viðurinn sé nýr, en ekki gamall. Þá er að reyna að sefa hungur hrossanna. Ég ætlast til að hús sé til handa þeim, þegar engin björg er á jörðu, því að hiýindi eru á við hálfa gjöf. Þá skal stinga skán undan lömbum eða öðrum sauðkindum, sem gott hey er gefið; en þess ber að gæta, að sópa þá ekki af gólfinu því sem féð slæðir. Þá skal flísa skánina nið- ur á stallana og strá litlu af smáu og góðu heyi innan um, og mun hver komast að raun um, sem reynir þetta, að hross ekki einungis halda við holdum, heldur fitna. Þetta er min eigin reynsla. Eftir 6 vikna innistöðu á 26 hrossum vóru öil strokin og slétt á lend. Ef einhver vildi hagnýta sér þessar fáu leiðbeiningar, væri tilgangi mínum náð, ef einhver skepna við það fríaðist frá hungurmorði. Einar Magnússon. Dagbók. 7. Jan. Akureyri, 5. Jan. Samkomuhús Oood Templara var vígt 23. Des. öuðl. Guðmundsson bæjarfógeti hélt aðal-vígsluræðuna. Matth. Jochums- son las upp kvæði, sem hann sagðist hafa „hripað upp áður en hann fór að heiman“. Bókavörður norðuramtsins er orð- inn Jóhann Ragúelsson. „Perwie“ er að fara héðan í dag með strandmennina af „Kong Inge“. Leikfélag Akureyrar (formaður cand. theol. Yilh. Knudsen) ætlar að fara að leika „Ævintýr á gönguför". Trnlofuð eru Halldór kaupmaður Jónasson á Akureyri (frá Siglufirði) og Kristín Haíliðadóttir frá Siglufirði. 8. Jan. Engínn maður flaggaði hér í bæn- um á stjórnarskrárdaginn, 5. Janúar — ekki einu sinni á flaggstöngum stjórnarráðsins né Alþingishússins sást nokkurt flagg. Yér íslendingar erum víst eina þingfrjáls þjóð í heimi, sem svo breytir. Trúlofun. Ungfr. Anna Þorkels- dóttir (prests | á Reynivöllum) í Reykja- vík og stud. theoi. Ouðmundur Ein- arsson (frá Flekkudal) í Kaupmanna- höfn. Stokkseyrarverzlun er nú seld hlutafélagi bænda í Árness- og Rangár- vallasýslum; er mælt að söluverðið só 80,000 kr. og eigi bændur 2/s hlutafjárins, en hr. Ólafur Árnason Hann kvað ráðinn yfirumsjónarmaður verzlunarinnar með 3000 kr. launum, en svo verður og verzlunarstjóri þar á staðnum. Hi'. sýslum. Einari Benediktssyni virðist því hafa tekist að fá bændur í þennan félagsskap, þótt „aldrei“ hefði hann „umboð“ til að selja. Krítar-flaggið hefir einn kaup- rnaður í bænum dregið upp á stöng sína á Nýjársdag. Æskulýðurinn sagði það væri auglýsing um, að hjá hon- um fengju allir „krít“. — Nú, jæja, það var ekki svo ófyndin auglýsing. 9. Jan. 1 gær vóru liðin 39 ár síðan ritstjóri þessa blaðs byrjaði blaða- mensku (1. tbl. „Baldurs", 8. Jan. 1868). Strand. 6. þ. m. strandaði á Býjaskerseyri (Miðnesi) botnvörpung- ur enskur, fullur af fiski. Skipið var alveg nýsmíðað, hlaupið af stokk- unum fyrir 4 vikum og var þetta 1. ferð þess. Akurcyri, 8. Jan. — í gær var hér fundur í Unglingafélaginu og vóru þar ýmsar heitstrengingar unn- ar. Þ. á. m. strengdi Jóhs. Jósefsson þess heit, að ef glimur yrði á Þing- velli eða Hofmannaflöt í sumar við komu konungs, þá skyldi hann glíma þar. Kristínu, næst yngsta barn sitt (4 ára), mistuþau hjón Jón Þórarins- son í Flensborg og frú hans á Föstu- daginn. Næsta blað á Þriðjudaginii. * M Aq Qy? ■ HTh AThömsín • HAFNARSTR' I7'I8 I920 21-22- KOLAS I 2‘LÆKJAKT' I Z * REYKJAVIK * PakkhúsiÖ hefir nú verið innréttað að nýj u, mjög haganlega, og málað alt upp, svo að það mun ekki eiga sinn líka hér á landi. Þar er selt: Kornvara, kaffi, sykur o. sv. fr. í stærri kaupum. Byggingarefni: Járn, kalk, múr- steinn, cement, steypigóz, saum- ur, rúðugler, einfalt og tvöfalt, kítti, farfi, fernis, lakk, gólf-fernis, utanhússpappi, milliveggjapappí, maskínupappi, zink, blý í plötum og hnullungum o. s. fr. . Til útgerðar: Netjagarn, hamp- ur, manilla tjörguð og ótjörguð, kork, flotholt, blokkir. línur, sökkur, síldarnet, segldúkur (Falki), olíutöt, tjara o. sv. fr. Skólcður. Flateyjar bringufiður. Margaríne í stærri kaupum. Saltaður þoi’skur, ísa, upsi, grá- sleppa. Yagnáburður í pundum o. s. fr. o. s, fr. Alt vandadar vörur, en þó ódýrar. Röskar stúlkur óskast til Laugarnesspítala.14. Maí næst komandi. Iiátt kaup í boði. Semja ber við húsmóður spitalans, frk. Harriet Kjær. Stért uppboð byrjar Föstudaginn 18. þ. m. kl. 11 árd. í verzlunarhúsum .Tóns kaupm. Þórðarssonar. Þarverður eins og að undanförnu, til að rýma fyrir nýjum birgðum, seldar ýmsar vörur svo sem margs kon- ar álnavara, nærfatnaður, fatnað- ir, höfuðföt og margir aðrir nauð- synlegir hlutir og ef til vill saltað fiskmeti. Inngangur á uppboðið úr Ing- ólfsstræti. €ggert Claessen, yfirréttarinálaflutiiingsmaður. Lækjarg. 12 B. Talsími 10. Venjul. heima kl. 11—12 og 4—5. Brauðsalan úr lieruliöf'tsbakaríi er flutt um tima úr uorska húsinu viö Yesturgötu í liús Olaís Eiríkssonar, söðlasmiðs, við sömu götu. Galosche týnd á Laufásvegi, Skilist í afgreiðslu „Reykjavíkur“. Utsalan okkar heldur áfram enn þá 01 ílotið tœkijærið! C. L. Ldrusson Sjf Co. Laugaveg 1.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.