Reykjavík - 01.06.1907, Blaðsíða 1
f
1R e y kj a vtfe.
15 löggilta blað tl 1 stjórnarval Ida-birtinga á Island •
VIII, 41 Útbreiddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Laugardag 1. Júní 1907. Áskrifendur í bænum \/||| A] yfir IOOO.
IOOOOOODOOOOOOOOOOOOO(
Verzlunin .
Edinborg
í Reykjavík
í nýlenduvörucleildina er
nýkomið ið heimsfræga
Franckens Cocoa
l>eiiit frá Hollandi.
Selt í V4 V2 ‘B> og- 1 ® clósxim.
Yerð frá 3£» til 75 mi. pr. Vc ®
Reynið eina dós.
O
ooooooooooooooooooooooooooooooooooo
o
ALT FÆST í THOMSENS MAGASlNI.
Ofna Og eldavélai* selur Kristján Þorgrímsson.
„REYKJAYÍK"
Árg. [60—70 tbl.] kostar innanland8 2 kr.; erlendis
kr. 3,00—3 sh.— 1 ioll. Borgist fyrir 1. Júlí.
Auglgsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50;
3. og 4. bls. 1,25 — Útl. augl. 33*/»•/• hœrra. —
Afsláttur að mnn, ef mikið er auglýat.
Útgef.: Hlutafélagið „Reykjavík“.
Ritstjóri, afgreiðslumaður og gjaldkeri
Jón Ólaf«Bon.
Afgreiðsla Laufásvegi 5, kjallaranum.
Ritstjórn: ----„ atofunni.
%
Telefónars
29 ritstjóri og afgreiðala,
71 prentsmiðjan.
eiga allir nú að hafa fengið, sem
rétt áttu á því. Sé svo ekki, segi
menn til.
Upplag „Reykjavíkur“
þetta ár er mjög að þrotum komið.
Þeir sem vilja fá blaðið frá Kýári,
verða að gefa sig fram sem fyrst
og borga yfirst. árgang (2 kr.) og
fá þá 1. og 2. bindi sögusafnsins
(innheft) með.
Frá 1. Apríl til ársloka kostar bl.
1 kr. 50 au.
Útsölumenn,
sem bafa nokkuð afgangs af nr. 3,
4 A, 10 og 16 af síðasta (7.) árg.
»Rvíkur«, verða að endursenda af-
greiðslunni þau blöð tafarlaust (á
vorn kostnað), ella borga árgangana
fullu verði.
Afgr. „Rvíkur“.
Pianoforte,
flatt, i góðu standi, til sölu á 125 kr.
M. Christensen orgelsmiður (Eyvindar og
Setbergs verksm. eða Laugav. 29 uppi.
Heima 7—8 síðd.)
Sami stillir Piano og gerir við þau.
„Á dönsku“.
Það var ekki lítill gauragangur, yfir-
lýsingar, skammir og öll ósköp, sem
dundu yfir mig fyrir það, er ég sneri
á dönsku og prentaði á því máli ýms-
ar leiðréttingar við og svör upp á
danskar biaðagreinar, er lýstu fákunn-
áttu eða illvilja í vorn garð.
Ég var svo „einfaldur" og svo „ó-
þjóðlegur" að álíta, að það stoðaði harla
lítið gagnvart Dönum og þjóðaráliti
þeirra, að gjamma hér úti á íslandi á
móti þeim á máli, sem þeir skildu ekki.
Ég hefi gefið út og útbýtt ókeypis
á minn kostnað fleiri ritgerðum um
landsmál, heldur en neinn annar ís-
lendingur. En efni mín leyfa mér ekki
alt, og ég notaði fáa dálka „Rvíkur“
til að flytja greinir á dönsku, sem ég
var sannfærður um, að gerðu oss gagn.
Reynslan hafði sýnt mér, að ég gat
ekki fengið að leiðrétta mishermi Dana
í nokhru Kaupmannahafnarblaði. Ég
hefi reynt það, að ég hefi fengið nei
hjá þeim öllum, sem ég taldi til leit-
andi. Greinar mínar þóttu of harðar
í garð Dana.
Af þeim tölubl. „Rvíkur", sem dansk-
ar greinir vóru í, sendi ég um 60 blöð-
um í Danmörk og annarstaðar á norður-
löndum eintök.
Árangurinn hefir komið í ljós. í
vetur t. d. var óvinveitt árás ger á
íslendinga í dönsku blaði. Undir eins
á eftir kom út nokkurra dálka langt
svar, er rækilega hrakti dönsku rang-
hermin og sögulegu vanþekkinguna.
TJm 3/4 alls svarsins var orðrétt að
heita mátti ritað upp úr dönsku rit-
gerðunum mínum i rRvík“.
Það er ekki lítið, sem ritað hefir
verið um ísland í dönskum blöðum í
vetur.
Nií sést ekki nokkurt danskt blað
minnast á árgjaldið til íslands öðruvís
en sem vöxtu af íslenzku fé, er runnið
hafi í ríkissjóð. Slíkt sást ekki fyrir
l1/^ ári síðan. Þá töluðu Danir um
þetta sem fátækrastyrk.
Þessi breyting er eingöngu að þakka
mínum illræmdu dönsku greinum, sem
ísl. stúdentar í Höfri og allir Yaltýingar
hér hefðu hejzt viijað láfa hengja mig
fyrir. Jón Olafsson.
hngmálafundirnir í Húnav.sýslu.
Skagaströnd, IQ. Maí.
í gær var hér haldinn þingmálafundur af
Alþingismönnum sýslunnar. — Fregnriti yðar
hefir átt aðgang að fundargerðunum, eins
og þær vóru bókaðar, og gefur hér stutt á-
grip af því er gerðist.
Um sambandsmálið komuframð
tillögur og var samþykt að leita atkvæða um
þær allar.
1. að ekki verði samið af íslendinga hálfu
á öðrum grundvelli en þeim, að ísland sé
frjálst sambandsland við Danmörku, eins og
það var við Noreg eftir Gamla sáttmála, með
fullveidi yfir sínum málum. — Þetta felist
skilyrðislaust í fyrirhuguðum Nýja sáttmála^
jafnvel þólt stjórnarvöldum hinnar sam-
bandsþjóðarinnar yrði falið með samningi að
fara með einhver mál fyrir íslands hönd
meðan svo þykir henta eftir ástæðum lands-
ins. í öllum öðrum málum sé íslendingar
einráðir um löggjöf og stjórn.
Samþ. með 13 : 9 atkv.
2. Fnd. skorar á þingið að kjósa þá menn
í fyrirhugaða sambandsnefnd, er haldi því
fram í fullri alvöru, að ísland verði frjálst
sambandsland við Danmörk. Þar afleiðandi
verði sérmál íslands ekki borin upp í ríkis-
ráði Dana. — Sþ. með 21 shlj. atkv.
3. Með því að ekkert hefir enn borið á
milli um samkomulag Dana og íslendinga
síðan er stjórnarbreytingin fékst, og Danir
hafa á engan hátt reynt að koma í veg fyrir
nokkurt frv. frá Alþingi, né heldur reynt að
koma nokkru máli fram gegn vilja Alþingis,
iýsir fundurinn yfir því, að engu sé rótað
um samband Isl. og Danm. að svo komnu;
telur vel megi hlíta sambandinu eins og það
er; vafasamt að um verði skift tilinsbetra;
þá mótmælir fundurinn því, að nokkur milli-
landanefnd verði að svo stöddu kosin til að
semja um mál Dana og íslendinga. — Till.
frá Árna á Höfðahólum. Feld með 12 : 7
atkv.
4>. Fndr. skor. á Alþ., að kjósa enga
menn í fyrirh. sambandsnefnd að þessu sinni.
— Till. frá séra Jóni Pálssyni á Höskulds-
stöðum. Feld með 13 ; 11 atkv. Tillögu-
maðurinn greiddi sjálfur atkv. gegn henni.
5. Fundurinn er fráhverfur því að ríkis-
sambandinu milli íslands og Danmerkur
verði nú slitið, og telur sambandi þjóðanna
miður borgið á þann hátt en nú er. — Sþ.
með öllum atkv. gegn 2.
Dýralceknismál.
Að fá dýralækni landsins gert að skyldu
að kenna árl. alt að 10—12 mönnum að
þekkja helztu alidýrasjúkdóma og lækning á
þeim. — Sþ. m. öll. gegn 1.
Stfórnarskrdrmál.
Fundurinn tjáir sig algerlega móthverfan
landstjóra eða jarli, og hyggur slíkt verði
kostnaðarauki einn, en sjálfstæði landsins
miður borgið. — Samþ. í einu hljóði.
Flaggmáltð.
Samþ. í einu hljóði að taka mál þetta út
af dagskrá sem ótímabært í alla staði.
Útflutn. hrossa (eftirlit með) og Horfell-
ismál (afnám fóðurbirgðaskoðana, en hærri
refsingar fyrir illa meðferð búpenings.)
Sþ. 10 ; 8.
Lœknahérud (haldist óbreytt).
Kennaraskóli verði í Hafnarf.
Kosningalögin.
Sþ. í einu hlj., að sinna frumvarpi stjórn-
arinnar um breyt. á 1. 3. Okt. 1903.
Kyrkjumál.
Fnd. skorar á Alþingi, að samþvkkja ekk-
ert það nú í sumar, er tafið geti fyrir að-
skilnaði ríkis og kyrkju. — Sþ. í e. hlj.
Ennfr. samþ. mótmæli gegn kyrkjuþingi
og að kyrkjan fái nokkurt meira vald en
hún hefir nú. Skor. á Alþ. að afnema bysk-
upsembættið (sþ. m. öll. atkv. gegn 1).
Samgóngumál.
Auknar samg. við Húnaflóa.
Símámát.
Sþ. (10 : 2 atkv.) að skora á Alþ. að
leggja fram hálfan kostnað (gegn Yindhælis-
hr. og sýslunni) til síma milli Blönduóss og
Kálfhamarsvíkur. Á.
Blónduósi, 22. Maí.
Hr. ritstj. — Af þingmálafundi hér í gær
skal ég herma yður þetta (hefi haft fundar-
gerðirnar fyrir mér og auk þess verið við-
staddur):
i. Lœknaskiþunarmál:
Samþ. frv. stj. að því er Húnav.sýslu
snertir.
Fndr. vildi ekki, að upp væru tekin eft.ir-
laun handa þeim sem nú hafa ekki .rétt til
til þeirra; vill jafna kjör lækna, láta alla
hafa jöfn laun — 1600 kr. —, en aftaka
eftirlaunarétt þeirra læknaembætta, er nú
hafa þau, jafnótt sem þau losna. — Læknar
hafi fastákveðna verðskrá að fara eftir.
2. Vegamái.
Kröfur gerðar um fjárframlag til Blöndu-
óss-bryggju og akbrautar vestur sýsluna,
tafarlausa brúun allra áa á þeirri leið — alt
á landssjóðs kostnað eingöngu.
J. Sambandsmálið.
Eftir langar umræður samþykt að hætta
umræðum.
Tillögur:
a) Fundurinn mótmælir því, að næsta
Alþingi kjósi menn í ráðgerða millilanda-
nefnd um sambandsmál vort við Dani.
b) Fundurinn vill að ísland verði viður-