Reykjavík - 01.10.1907, Blaðsíða 1
♦
VIII., 76
Útbreíddasta blað landsins.
Upplag yfir 3000.
hiðjudag 1. Október 1907.
Áskrifendur í b æ n u m
yfir SOGO.
, 76
y-*" ALT FÆST 1 THOWSENS MAGASiNI. “ÉSSS
< )flia <>o- eldavélai* selur Kristján Þorgrimsson.
Kgl. Hof- Vmhandler
Rjær & Sonerí
Vine og Cigarer
serveredes ved alle Festlig'hed-
erue under Hs. Maj- Hoixg,eiis
Opliold paa Island. [_77
„RETKJAVÍK"
Árg. [60—70 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; erlendis
kr. 8,00—3 sh.— 1 áoll. Borgist fyrir 1. .Túlí. EUa 3 kr.
Auglýsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50;
3. og 4. bls. 1,25 — Útl. augl. 33’/»°/o hærra. -
Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst.
Útgef.: Hlutafélagið „Reykjavík“.
Ritstjóri, afgreiðBlumaður og gjaldkeri
•Jón ÓltifsHon.
Afgreiðsla Laufásvegi 5, kjallaranuiri.
Ritstjórn: ----„ stofunni.
Telefónars
29 rit8tjóri og afgreiðsla,
71 prentsmiðjan.
bréflð var þinglesið, eða vill hann ekki
svara því?
Hann segir, að ég hafi veðsett ann-
ars manns eign, og er það satt á þann
hátt, að óg veðsetti eign hr. Ouse
samkvæmt umboði frá honum, og pen-
ingarnir gengu til hans. En bæjarfó-
getinn hefir gleymt orðunum „sam-
kvæmt umboði“.
Rvík, 2%—’07. Virðingarfylst.
Emil Strand.
Hr. ritstjóri. — Ég sé af heiðruðu
blaði yðar, nr. 73, að bæjarfógetinn á
ísafirði hefir verið aftur á ferð, og þetta
var einmitt það sem ég óskaði, að ná
þennan heiðraða herra tali í blaði yð-
ar, ef þér leyfið það.1)
Ég sé af blaðinu, að sýslumaður
hefir fengið yfirlýsing frá bankanum;
einnig kveðst hann hafa fengið léð
kaupbréfið miili mín „som disponent
for firmaet Emil Strand & Co.“ (=sem
forstjóri firmans E. Str. & Co.) og hr.
Jens L. Ouse. Af því má sjá, að bank-
anum hefir verið kunnugt um, að óg
átti ekki eignina. Haldið þér að hr.
Þorvaldur læknir Jónsson (bankastjór-
inn) láni út peninga á annars manns
eign en iántakanda án gildrar heimild-
ar frá eiganda og svo skírteinis frá
bæjarfógetanum um að ekki hvíli veð-
bönd á henni? — Hr. bæjarfógetinn
hefir gleymt að skýra frá, að kaup-
*) Auðvitað leyfum vér hr. sýslumanni
M. T. að svara þessu stuttlega, en þar með
verðum vér að loka umræðum um málið
hér í blaðinu. Það hefir elcki rúm fyrir
meira af því. Ritstj.
•—---------------------------e
IJRSMÍÐA-VINNUSTOFA.
Vönduð ÍI r og K. 111 k k u r.
Bankastræti 12.
Helgi Hannesson.
•---------------------------•
„Fram“. Pundur 2. og 4. Fimtudag
í hv. mán. kl. 8V2 síðd. í Templara-húsinu.
Dönsk mikilmenska.
Ekki vantar það, nóg er ritað um
íslandsförina af Dönum, sem hér vóru
uppi í sumar. Flestalt er það af vel-
vild ritað, og margt af því ber vott
um, að gestum vorum hefir aukist
þekking og skilningur á landi voru og
þjóð, þótt á stöku stað sjái enn dálit-
inn misbrest á þessu. Annars er ekki
að vænta eftir jafnstutta kynningu.
Meðal gestanna í sumar var hr.
Lauritzen konsúll, er konungur vor
hafði boðið sérstaklega með sór. Hr.
Lauritzen hefir ekki getað iosað sig við
þá hugmynd um oss íslendinga, sem
hann hefh- haft með sér að heiman í
veganesti, að vér værum hálfgiidings
börn, sem þyrfti að kenna alia hluti.
Danir sendu í vor nokkra menn hingað
til lands til að fiska hér á mótorbát-
um. Vér ætlum hr. Lauritzen væri
einn, sem átti þátt í þeirri sendiför.
Danirnir sneru heim aftur í sumar
Úrsmíöavinnustofa
Carl F. IJíii telH
Langavegi 5. Talsími 137.
síðar; höfðu ekki kunnað að búa sig
út, sögðu þeir, með hæfilegum skip-
um; þykjast þurfa þilskip með mótor-
um. í stuttu máli: Þeim lét ekki að
fiska, ferðin svaraði ekki kostnaði.
En eitt hefir hr. Lauritzen lært af
þessu, og svo af ferðaiagi sínu hingað,
og það er það, að íslendingar lcunni
ekki að fiska. Það þurfi að senda
hingað józka fiskimenn til að kenna
Islendingum að fiska!!!
Dönum hefir aldrei iátið að reka
veiðar hór við land. Öll þeirra fólög
í því skyni háfa farið á hausinn.
Hins vegar höfum vér oft bent á
það áður, og endurtökum það enn, að
menn mega leita vítt og breitt. um
allan hnöttinn og munu finna fáa, sem
standi íslendingum (einkum Reykvík-
ingum) á sporði við þorskveiðar, og
alls enga, sem taki þeim fram.1) Alt um
það er mikilmenskan gagnvart oss svo
mikil, að Danir teija sig bæra um að
kenna oss þorskveiðar!
Vér viljum nú kenna hr. Lauritzen
annað ráð, ef honurn er ant um, að
láta józka íiskimenn njóta góðs af
þorskaflanum við ísland. Ráðið er
ofur-einfalt. J?eir józku fiskimenn sigldu
hingað upp á mótorbátum sínum. Lát-
um þá gera það aftur, eða þá á segl-
skútum. Svo þegar hingað kemur í
Maí eða Júní ættu þeir að ráða sig á
þilskip hjá íslenzkum skipstjórum og
fiska hjá þeim. Svo geta þeir sigit
heim aftur í September. Þá er þeir
hafa svo lært og æft sig nokkur ár
hjá íslenzkum skipstjórum, gætu þeir,
ef til vill, orðið menn til að stunda
hér sjó á vetrarvertíðinni líka, sem er
venjulega arðsömust, en örðugust og
hættumest.
Þá rnundi ráðlegast fyrir þá að set-
jast hér alveg að. Danskir fiskin\enn,
sem vildu set.jast hér að, gætu vafa-
laust þegar í stað komist vel af, þótt
þeir hafi fjölskyldur, ef þeir eru reglu-
menn og ráða sig á skip hjá íslend-
ingum.
Það eru þeir sem þurfa að læra hór
af oss, en ekki vér af þeim.
Það ættu þeir ekki að láta sér þykja
neina lægingu. Vér lærum aðra hluti
af Dönum með þökk og ánægju, eink-
um mjólkurbúskapinn.
Dag-bók.
Með henni umsjónarmaður Brydes-
-verzlana hr. N. B. Nielsen með frú.
Frá Vestmannaeyjum nokkrir farþegar.
„Esbjærg‘% aukaskip frá Samein.
eimsk.fól., kom hingað 26. f. m.
Síldveiðiskip sænskt, „Viking“ að
nafni, strandaði 5. þ. m. undan Látr-
um á Látraströnd. Menn komust af,
en skip líkl. ófært.
Míslingarnir e:u nú upp á sitt ið
hæsta hér í Rvík; mörg hundruð
manna nú veikir. Enn þó von á fjölda
fólks í bæinn á mislinga-aldri (t. d.
nú með ,,Ceres“). Enginn höfum vér
frétt að enn hafi dáið úr veikinni né
afleiðingum hennar, og má það óefað
þakka ötuium varúðarbrýningum lækna
og því að fólk er nú farið að verða
ráðþægnara í þeim efnum.
Veðurathuganir
eftir Knud Zimsen.
Sept. 1907 Loftvog millim. Hiti (C.) Átt «o *o a> í> Veðrátta j
Fö. 20. 7 772 2 4.9 N V “ 2 Skýjað
1 775.3 6.9 NV 2 Smásk.
4 775.8 5.9 NNV 4 Sk.laust
10 777.4 1.4 N 1 Sk.laust
Ld. 21. 7 777.3 0.0 ASA 1 Smásk,
1 774.8 10.5 Logn 0 Alsk.
4 773.1 8.4 S 2 Regn
10 767.1 5.6 ASA 1 Rogn
Sd. 22. 7 760.3 8.5 Logn 0 R'egn
1 759.2 9.3 Logn 0 Regn
4 758.8 9.0 Logn 0 Regn
10 756.0 8.5 Logn 0 Regn
Má. 23. 7 750.6 6.6 Logn 0 Regn
1 748.2 5.9 A 3 Regn
4 748.1 6.5 A 2 Alsk.
10 748.0 5.1 A 2 Alsk.
Þd. 24. 7 750.4 4.4 A 2 Skýjað
1 752.0 8.0 V 2 Smásk.
4 752.0 9.2 NNV 3 Skýjað
10 763.9 2.1 Logn 0 Sk.laust
Mi. 25. 7 753.9 1.6 A 2 Sk.laust
1 753.8 80 V 1 Alsk.
4 753.5 8.0 VNV 2 Alsk.
10 752.2 5.6 Logn 0 Alsk.
Fi. 26. 7 749 9 5.0 SSA 1 Skýjað
1 749.2 8.2 vsv 3 Alsk.
4 749.4 8.0 V 3 Alsk.
10 750.8 6.5 sv 4 Alsk.
Búsíaða-skifti
eru allir kaupendur í bæn-
um beðnir að tilkynna þegar.
Annars mega þeir sér um
kenna, ef þeir fá ekki blaðið.
Afgr. »Rvíkur«.
Piano. — Harmonium. — Dönsku.
Nemendur í þeim námsgreinum tekur
fpú \. Oapisitoiiscii, Tjarnarg. 5.
Heima eftir kl. 3.
Reykjavík, 1. Okt.
Símaslit. Þriðjud. 24. þ. m. slit-
naði síminn á Smjörvatnsheiði af ísingu
svo mikilli, að þráðurinn varð sum-
staðar digrari en símstaurarnir. Alls
slitnaði meira og minna á svæði milli
160 staura. Við slitin var fullgert á
Sunnudag. — Skeyti frá útl. bárust
þó hingað á Laugardagskvöld seint;
höfðu verið send af Seyðisfirði til
Akureyrar með
„Ceres<4, er kom tii Akureyrar um
Laugardagskvöldið.
„Thyra“ kom hingað 21. f. m. í
stað „Vestu“, frá útlöndum um Aust-
firði. Með henni kaupafólk margt.
„Skálliolt“ kom frá útl. 25. f. m.
7) Annað mál er, að fiskimenn vorir eru
ekki allir sjómenn að sama skapi.
Leikfimi- og dans-kens!u
veitir undirrituð eldri sem yngri (til-
sögn á kvöldin, ef óskað er). — Þeir
sem vilja njóta kenslunnar tali við mig
sem fyrst í húsi Sig. Thoroddsen fyrir
sunnan Barnaskólann.
Heima frá 12—-1 síðd.
Ii(i>ibjöi'i> Guðbrandsdóttir,
sem sauma jakka og baxur
geta strax fengið vinnu upp á kaup
hjá
Gruðm. Sigurðssyni.
LO.G.T. Gyðja 134, fundur 3. Olct. kl. 8 síðö.