Reykjavík

Eksemplar

Reykjavík - 03.07.1909, Side 1

Reykjavík - 03.07.1909, Side 1
1R k\ a\> t k. X, 34 Útbreiddasta blað landsins. Upplag yfip 3000. Laugardag 3. Júlí 1909 Áskrifendur í b æ n u m yfir IOOO. X, 34 ALT FÆST í THOMSEWS WAGASÍNI. Oína og eldaA Ólai* selur Kristján Þorgrimsson. Augnlækning ók 1. og 3. þrd. 2—3 á spítal. Baðhúsið virka daga 8—8. Biskupsskrifstofa 9—2. Borgarstjóraskrifstofa 10—3. Bókasafn Alp.lestrarfél. Pósthússtr. 14, 5—8. Bréfburður um bæinn 9 og 4. Búnaðarfélagið 12—2. Bæjarfógetaskrifstofa 9—2 og 4—7. Bæjargjaldkeraskrifstofa 11—3 og 6—7. Bæjarsíminn v.d. 8—10, sunnud. 8—7. Forngripasafnið opið 11—1 frá 16.jún.—lð.sept. Islandsbanki 10—21/* og 61/®—7. Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. Id. 7-8 e.m. Landakotsspítalinn lO'/s—12 og 4—6. Landsbankinn I01/*—2‘/s. Landsbókasafnið 12—3 og 7—8. Landskjalasafnið á þrd., fmd. og ld. 12—1. Landsjóðsgj.k. 10-2, 6-6, þrjá 1. d. í m. 10-2, 6-7. Landssíminn v.d. 8—9, sunnud. 8—11 og 4—6. Læknaskólinn ók. lækning þrd. og fsd. 11—12. Náttúrugripasafnið sunnud. l'/a—2‘/2. Pósthúsið 8—2 og 4—7. Stjórnarráðið 10—4. Söfnunarsjóður 1. md. í mán. kl. 6. Tannlækning ók. í P.str. 14, 1. og 3. md. 11—12. „REYKJAYÍZ" Árf?. [minnat 60 tbl.] kogtar innanlandg 3 kr.; erlendia kr. 8,50—4 sh.—1 doll. Sé borgað fyrir 1. Júlí, 1 kr. afal. Auglýsingar innlendar : k 1. bla. kr. 1,50; . og 4. bls. 1,36 — Útl. augl. 38*/a°/o hwrra. — Afsláttur að mun, ef mikið er auglýat. Hlutafélagið „Reykjavík“. Ritgtjóri Jónaa Guðlaut»sson, Kirkjustrœli 10. Talsími 198. Ritstj. „Reylcjavíb;ur“ er að hitta í Kirkjustræti 10 frá 4—5 e. m. Talsími 199. yijgreiðsla ,Reykjaviknr‘ er á Smiöjustíg 7. Afgreiðslum. blaðsins er áreiðanlega að hitta þar 1<1. ÍO—11 f. rri. og 2—4 e. TTi. Dndir fölsku flaggi. Pjóðin víssvitandi blekt. Stjórnmálaástand vort, eins og það er nú, gefur mönnum ástæðu til al- varlegrar íhugunar. Jafnmikið kvik- syndi og það er nú, hefir það aldrei verið, og guð má vita hvern endir það getur tekið. íslenzk pólitík er orðin rotin, og dag eflir dag er víssvitandi verið að vinna að því að gera hana rotnari og rotnari. íslenzk alþýða er blekt svo að hún veit hvorki upp né niður. Henni eru gerðir þeir gjörningar að hún veit í rauninni ekki hvort hún berst með sjálfri sér eða móti. Þess- ar blekkingar og þetta fálrn er orðið óþolandi, og það ætti að vera sam- vizkusök allra réttsýnna íslendinga, að fletta sem rækilegast ofan af því. Það er óhætt að fullyrða, að þegar þjóðin gekk til kosninganna í haust, þá gerði hún það yfirleitt, hverri stefnunni sem hún fylgdi, með þeirri öruggu von að hún væri að vinna að því að efla sjálfstæði sitt og frelsi. Húntrúðiþví að höfninni mundi verða náð og endi væri bundinn á hið lang- vinna stjórnarþref undanfarandi ára, sem hafði eytt kröflum hennar og tíma. Frumvarpsféndur voru fremst- ir í flokki með að telja henni trú um þetta. f*eir sögðu við hana: Það er svo fjarri því að við ætlum að drepa frumvarpið og kasta frá oss þeim árangri sem þar er náð. Nei, við ætlum að eins að breyta því til batnaðar, og það er áreiðan- legt að þær breytingar fást. Það var sem sé eingöngu að kenna slælegri framgöngu ísleuzku nefndar- mannanna að við ekki fengum meira. Tilraunina má að minsta kosti gera og á að gera til að fá breytingar. Við töpum engu á því. Svona fellu þeim alstaðar orð bæði í blöðum og á fundum víðs- vegar úti um land. Þessu trúði þjóðin, og þess vegna urðu frumvarpsféndur í meirihluta. Frumvarpsféndur voru sem sé kosnir í þeirri trú, að þeir ættu vissar breyt- ingar til batnaðar á frumvarpinu. Það hvíldi þess vegna á þeim sið- ferðisleg skylda að reyna að ná slík- um breytingum, þegar þeir voru orðn- ir í meiri hluta, reyna að ná þeim breytingum sem þeir tölda þjóðinni trú um að likindi vœru til að fengjust. Það hvíldi á þeim sú skylda, að spenna bogann ekki svo hátt, að öllum árangri af sjálfstæðisbaráttu vorri væri glatað, og öllu því mikla sjálfstæði sem þjóðinni bauðst í frumvarpinu væri ekki kastað á glæ. En í stað þess að gegna þessari skyldu, þá hafna frumvarpsféndur á þingi þvert á móti, öllum þeim breytingum, sem þeir fóru fram á í fyrra surnar, og sterkar líkur voru til að fengjust, og samþykkja í stað- inn fyrirkomulag, sem þeirn og öll- Um heiminum var Ijóst að aldrei myndi fást og að eins verða lil þess, að eyðileggja alt samkomulag milli Dana og íslendinga. Það var hin herfilegasta blekking sem þjóðin hefir nokkurn líma orðið fyrir, og svo ósæmileg tilraun til að sigla undir fölsku flaggi, að litlar líkur eru til að hún takist. Því hér getur ekki legið annar fiskur undir steini en að sýnast frammi fyrir j)jóðinni, meðan verið er að taka af sjálfstæðisvonir hennar. Því það er enginn skynsamur ís- lendingur svo blindur, að hann sjái ekki að vor litla þjóð er engu bætt- A lþingisgarðurinn verður opinn á sunnudögum frá 1—3 í góðu veðri. ari, þótt hún fái konungssamband í staðinn fyrir gott málefnasamband. Þvert á móti er hið fyrra fyrirkomu- lagið bæði kostnaðarmeira, hættu- meira og í alla staði óheppilegra, auk þess sem þess hefir aldrei verið óskað af þjóðinni. Það getur því ekki verið valið af annari ástæðu en þeirri, að allir vita að það er ófáanlegt, og stjórnar- flokkurinn getur með því að halda því fram notið þeirrar þægilegu að- stöðu að láta alt sitja við hið gamla, en þykjast hins vegar halda fram ítrustu kröfum íslendinga. En slík pólitík er rotin — við- bjóðsleg. Þjóðin á heimtingu á að hver flokkur komi til dyranna eins og hann er klæddur í skoðunum sinum. Nú lætur stjórnin Einar Hjörleifs- son vefa daginn út og daginn inn vef, sem á að byrgja fyrir augu þjóðar- innar, svo hún ekki sjái að verið er að blekkja hana, verið er að leika með stærsta mál hennar. En vefur- inn sá er grysjóttur og slitinn hjá Einari Hjörleifssyni. Hlutverk hans er að telja þjóð- inni trú um, í fyrsta lagi að B. J. og flokkur hans haldi fast við Þing- vallafundar-ályktunina sælu, og að það sé í öðru lagi að kenna minni en ekki meiri hlutanum, að málum íslendinga verði ekki framgengt hjá Dönum. í stuttu máli sagt, að snúa öllu við! Kríuvængir E. H. eiga víst erfitt með að lyfta þeirri byrði, svo vel líki. Ekki trúum vér öðru. Nú er að líla á það. Þingvallafundargerðin fór fram á fullveldi íslands, en ekki persónu- samband. Um það voru allir full- trúarnir sammála, og ekki sízt E. H, sem vildi ekki að vér kölluðum oss ríki þá. Þetta er ritstj. þessa blaðs full- kunnugt um sem Þingvallafundar- fulltrúa. En fundurinn fór fram á að þessa fullveldis væri krafizt strax og ef það ekki fengist væri strax skilið við Dani. En nú er það lýðurn ljóst, að B. .1. og flokkur hans feldi á síðasta þingi frv. minnihlutans sem veitti íslandi fullkomið fullveldi og samþykti annað, sem hann sagði sjálfur að næði aldrei fram að ganga og því heldur meira að segja E. H. fram enn. Með því móti, setti B. J. og flokkur hans í rauninni status quo á stefnuskrá sína. Og um skilnað- inn sem eftir á að fylgja, samkv. Þingvallafundi er það að segja að B. J. hefir sjálfur lýst því yfir, að hann álíti hann harnaskap.oghefir lof- að Dönum að berjast með hnúum og hnefum móti honum. Hvað er þá eftir af stefnuskrá Þingvallafundar- ins ? E. H. segir fyrir sitt leyti — líklega ekki fyrir liönd B. J. — að hann haldi fram skilnaði, það er að segja, jafnskjótt og hvert manns- barn á landinu heldur fram skiln- Iðnaðarmenn T Munið eftir að ganga í »Sjúkrasjóð Iðnaðannanna,« Sveinn Jónsson gjk. Heima kl. 6 e. m. — Bókhlöðustíg 10. aði, en fyr ekki!! Og þetta á að vera sönnun fyrir þvi að stjórnar- flokkurinn sé ekki snúinn ! Veikar varnir fremur! Hin ósjálfráða skriftin hans E. H. um að það sé að kenna minni en ekki meiri hlutanum að mál vor ná ekkifram að ganga, er hvorkihættuleg né svaraverð. Engum manni, sem ekki gerir það vísvitandi mót betri vitund, kemur til hugar að ámæla minnihlutanum fyrir það að hann tók ekki höndum saman við meiri- hlutann um að leika blindingsleik frammi fyrir þjóðinni, og samþykkja frv. sem víst var að aldrei næði fram að ganga og var auk þess óheppi- legt í alla staði, og hafna öðru frv. sem bæði veitti oss fult sjálfstæði og vist var um að næði samþykki Dana. Nei, það er ekki svaravert, og það verða aldrei margir, sem bíta á þann öngul ísafoldar. En tilraunin er auðsæ — sú að villa þjóðinni sjónir, sigla sem lengst undir fölsku flaggi. Og það er það, sem er allra viðbjóðslegast við poli- tík stjórnarliðsins. En við hverju á að búast af flokki sem hefir B. J. fyrir foringja og E. H. fyrir máls- vara ? Er elcki von að politíkin sé rotin þar sem slíkir menn eru leiðandi menn? Þar sem ábyrgðartilfinninguna vantar, þar sem meira er hugsað um munn og maga en málefnið, þar sem »æfintýrið« er svo hversdags- legt er ekki við góðu að búast. En það er sárt fyrir íslenzku þjóð- ina, sem trúði meirihlutanum til að fara með sjálfstæðismál sitt, að vakua nú við jafn vondan draum, og fá reynsluna svona dýrkeyfta. Það hlýtur að hryggja alla sanna íslendinga, hverjum flokki, og hverj- um skoðunum, sem þeir fylgja. Fjárhagsástandið. n. Næst hittum vér Th. Thorsteinsson kaupmann að máli, og lögðum sömu spurningu fyrir hann og konsúl Thom- sen : Hvernig lýzt yður á fjárhags- ástandið? Hr. Th. Thorsteinsson svar- aði oss eitthvað á þessa leið : Þetta er í raun og veru ákaflega víðtæk spurning, sem grípur inn í svo margt í þjóðlífi voru. Og þegar ég hugsa um hana, og sé hins vegar fram á þau peningavand- ræði sem nú eru hér, þá verður mér fyrst að athuga þjóðina sjálfa. Því hver er þó sinnar hamingju smiður. Það er ekkert vafamál, að þessi þjóð er sérstaklega vel gefin frá náttúrunnar hendi, og gæti verið vel fær í fjárhags- legum efnum sem öðrum. En hana vantar þar uppeldi og þroska. Hún heflr enga þá fjárhags- lega eldraun á sig lagt, sem hafi getað

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.