Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 03.07.1909, Qupperneq 3

Reykjavík - 03.07.1909, Qupperneq 3
REYKJAVIK 18» Tíiarit kaupfélaganna fæst hjá bókb. Siguröi Jóngsyni. Raddir otan af landi. VI. Skagafirði. Sunnudaginn 23. Maí héldu þing- menn okkar Skagfirðinga eftir vanda leiðarþing; var það haldiðí Góðtemplara- húsinu á Sauðárkróki. Kom þangað mikið fjölmenni. — Fyrsti þingmaður Skagfirðinga, Ólafur Briem, byrjaði þar ræðu sína með því að gera tilheyrend- um kunnugt um, að þetta síðasta þing myndi fá allmisjafna dóma hjá þjóð- inni, enda væri það lika það lengsta þing sem hér á landi hefði verið háð, og fór um það allmörgum orðum. Leit út fyrir að hann með því vildi sýna áheyrendum að hann tæki mjög mik- inn þátt í óánægju þeirra með gerðir þingsins og ætlaði með því að reyna að vinna sér hylli fundarins áður en hann færi frekara út í málin, en það mistókst gersamlega. Því næst fór hann að segja frá meðferð og afdrif- um sarnbandslagafrv. og frumvarpi því, sem meirihlutinn samþykti, og meðal annars sagði hann, að þingið hefði haft fulla vissu fyrir, að það næði ekki staðfestingu hjá konungi, en að þessu takmarki, sem frumvarp þetta stefndi, væri ekki óhugsaniegt að íslenzka þjóðin myndi komast, ef hún ætti góða framtið, eftir „eitt eða fleiri þi'muid ár“, og það stjórnarfyrirkomulag, sem við nú hefð- um, væri vel viðunandi. Að þetta síð- asta alþingi hefði orðið það lengsta þing sem hér á landi hefði verið háð, kendi hann fráfarandi stjórn. Tekjur landssjóðs sagði hann að ekki hrykkju nándar nærri fyrir útgjöldum eftir fjárlögunum, og kendi hann fráfarandi stjórn einnig um það, því hún hefði samið fjárlagafrumvarpið. Auðvitað væri þessi nýja stjórn ekki enn búin að taka fasta fjármálastefnu, en þó hefði þingflokkur hennar felt margar útgjalda-upphæðir á fjárlagafrumvarp- inu, sem hefðu átt að vera til fram- kvæmdar á ýmsum þarflegum fyrir- tækjum, svo sem brúargerða og vega- bóta o. fl. Bitlinga-mönnum hefði fjölgað og nokkrir hækkaðir frá því sem á fjárlögunum hefði staðið. Þing- manninum var bent á það, að írum- varp til laga um að landssjóður gerðist hluthafi í Thore-félaginu hefði komið frá núverandi ráðherra, en ekki frá- farandi, og svaraði þingmaðurinn því á þá leið, að núverandi ráðherra hefði ekki flutt það, og það hefði verið flutt í því trausti, að það yrði ekki starf- rækt. Var þá alment farið að brosa að framkomu þingmannsins. Þing- maðurinn var þá spurður, hví hann hefði ekki greitt atkvæði með frum- varpi minnihlutans í sambandsmálinu, þar sem fram hefðu komið í því allar þær breytingar er hann á þingmála- fundi á Sauðárkróki i vetur, rétt áður en hann hefði farið til þings, hefði sagt kjósendum að hann gengi að, eí fengjust. Hann var einnig spurður að, hver mein- ingin hefði verið með að samþykkja sambandslagafrumv. meirihlutans, þar sem þingflokkn. hefði veriðljóst, að það gat ekki náð staðfestingu, fyr en eftir nokkur 1000 ár, og hvaða meining hefði verið í því af meirihlutanum, aðvera að berjast við að fá lög um að landssjóður gerðist. hluthafi í Thore-félaginu, ef ekki hefði átt að starfrækja það? Þessum spurningum svaraði hann engu. — Vantraustsyfirlýsinguna á fyrverandi ráðherra lézt hann hafa verið mjög óánægður með, en ekki gat hann þess, að hann hefði farið fram á orðabreyt- ingar á henni, þótt hann væri flutn- ingsmaður hennar. Margt fleira sagði maðurinn og margs fleira voru þeir spurðir, en ekkert. svar fékst. Annar þingm. Skagfirðinga talaði þar næst og var hann fyrsta þingm. sam- dóma um flest, en þurfti samt að taka það upp aftur til skýringar, og ef til vill til þess að draga tímann, svo að sem fæstar spurningar kæmu frá á- heyrendum. Fyrsti þingmaður sagðist hafa verið á móti aðflutningsbanni á áfengi, en annar þingmaður sagðist hafa barist fyrir því. Báðir hafa víst hugsað,að þeir múndu geðjast kjósenda- fjöldanum með því, en því fór fjærri. Öllum Skagfirðingum er sama hvort aðflutningsbann kemst á eða ekki. Ennfremur hélt 2. þm. langa tölu um vantraustsyfirlýsinguna, og þar sem að fyrsti þingmaður var óánægður með orðalagið, var annar þingmaður mjög ánægður með það, og fór um það mörgum orðum. Sambandslagafrum- varp meirihlutans sagði hann að færi fram á málefnasamband, en ekki kon- ungssamband, þrátt fyrir það þó fyrsti þingmaður áliti annað, og frumvarpið sjálft, eftir því sem það kæmi fram í blöðunum, væri stílað svo, og til sönn- unar las hann utan bókar fyrstu grein frumvarpsins, en engar aðrar greinar þess. Rögnvaldur bóndi Björnsson í Réttar- holti hélt þar skilmerkilega tölu og gagnorða yfir þingmönnunum um gerð- ir þingsins og framkomu þeirra sjálfra, borið saman við það, sem þeir höfðu heitið heima i hóraði. — Þeir hefðu heitið að styðja millilandanefndarfrv., ef þær orðabreytingar væru á því gerðar, sem nú eru fram komnar hjá minnihlutanum. Þeir hefðu lofað að styðja framfaramál lándsins, en fækka og minka óþarfa og illa liðna bitlinga. Þeir hefðu lofað að láta ekki hlutdrægni ráða við starfs- eða embættaveitingar, eftir því, hverjum pólitískum flokki umsækjendurnir fylgdu. En svo hefði fyrsti þingmaður Skagfirðinga verið flutningsmaður að vantraustsyfirlýsingu á fyrverandi ráðherra, svo hann hefði orðið að fara frá völdum, þrátt fyrir það, þótt hann þessi 5 ár, sem hann hafði gegnt ráðherrastörfum þessa lands, hafi verið í broddi fylkingar til þess að efla allar framfarir innan lands og tilraunir til að auka sjálfstæði þjóðar- innar og útvega henni út á við traust og álit annara þjóða. En aftur hefðu þeir stutt þann mann til valdanna sem mestum sundrungaranda hefir á síðustu árum komið í þjóðina, og eftir þeirri litlu reynslu, sem fengin væri af honum, mundi ekki ólíklegur til þess að geta gert alt hinum gagnstætt. Engar varnir komu frá þingmönnum viðvíkjandi gerðum þingsins. Einnig gat ræðumaður þess, að hann væri fyrsta þingmanni samdóma um það, að þetta þing fengi misjafna dóma, og myndi það ekki að ástæðulausu, þótt ófagrir yrðu.— Almenna gleði hefði það vakið meðal fundarmanna, hefðu þingmenn vorir lýst því yfir, að þeir myndu segja af sér þingmensku, og þá hefðu flestir farið ánægðir af leiðar- þinginu. — Ekki gátu þingmennirnir um það, að barist hefði verið fyrir því af nýja ráðherranum að hætta að prenta þingræðumar, enda vitnaði ann- ar þingmaðurinn í þingtíðindin þegar honum lá á, þótt þau ef til vill séu enn ekki prentuð. Sjö menn töluðu á fundinum; að eins var einn með þingm., og talaði svo sem 2 minútur, en hafði fátt að segja. Annar þingmaður var að sjá mjög á- nægður með sjálfan sig og afreksverk sín á síðasta þingi. — Fyrsti þingm. var það hygnari að láta minna á því bera, enda sá hann, að það hefði að eins vakið hlátur meðal áheyrenda. Einn af áheyrendum. ~ — — Rey kj a v í k u rf r étt i r. Stúdentar. Úr alm. mentaskólanum útskrifuðust 30. f. m.: Skólanemendur: Kink. Stig. Jónas Jónasson .... I. ág. 106 Sveinbj. Theódór Jakobsson . I. 103 Halldór Kristjánsson ... I. 102 Kristján Ólafur Björnsson . I. 97 Bjarni Snæbjörnsson ... I. 93 Þórður R. A. Þorgrímsson . I. 88 Halldór J. Þorsteinsson . . I. 87 Halidór Kristinsson . . .II. 82 Símon J. Þórðarson ... II. 78 Eiríkur Einarsson .... II. 78 Vigfús I. Sigurðsson . . . II. 73 Utanskólanemendur: Guðmundur Ásmundsson .II. 79 Jón Jóhannesson .... II. 77 Marten A. Th. Bartels . . II. 72 Jónas Stephensen . . . III. 62 Þetta er síðasti árgangurinn í skól- anum, sem próf tekur í grísku. Einbættispróf í lögfræði hefir Jón Kristjánsson tekið í Kaupmannahðfn með I. eink. Próf í forspjallivísiiiduin tók Sigurður Sigurðsson (frá Vigur) lagaskólanemi hér nýlega og fékk dável -f-. Hann hafði ekki getað tekið prófið um sama ieyti og aðrir sökum mislinga. Læknapróf, fyrri hluta, hafa þeir tekið Henrik Erlendsson með II. betri einkunn og Magnús Júlíusson með I. einkunn. Til lieilsuliælisins hafa þeir kaupmennirnir Geir Zoéga og Kristján Þorgrímsson nýlega gefið 100 kr. hver. Próf í stjórnfræði tóku nýlega í Khöfn Georg Ólafsson (gullsmiðs í Rvík) og Ólafur Björnsson (ráðherra), báðir með 2. eink. Úrsmíðastoían éPingholtsst.3, Rvíb. Hvergi vandaðri úr. Hvergi eins ódgr. Fullkomin ábyrgð. Stefán Runólfsson. Bókaverzlun Guðm. Gamalielssonar: Handa söngmönnum ! ísl. kór- og einsöngslög eftir Árna Thorsteinsson, Bjarna Þorsteins- son, Helga Helgason, Jónas Helgason. Jón Laxdal og Sigfús Einarsson. •€ggert Claessen, yfirréttarmálaflutningsniaðnr. Póstliússtr. 17. Talsími 10. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. Legghlífar úr leðri, af 16 tegundum, hver annari fallegri og vandaðri, verð frá kr. 2,25 nýkomið til Lárusar G. LúðYígssonar Pingholtssti‘æti 2. ^ T H A H 0 M S E M KAFNARSTR-1718 Í-202122-KOUS 12-LÆKJART 1-2 • REYKJAVIK • Stór barkur, í Hafnarfirði, uppskipunarprammi, mjög atór og sterkur og mótorbátur með ágætri vél eru til sölu. Lysthafendur snúi sér til H. Th. A.Thomsen. frá skrifstofu bæjarfógetans í Reykjavík. Pétur Halldórsson cand. phil. tilkynn- ir, að hann reki bóka-, pappírs- og ritfanga-verzlun undir flrmanafninu „Bókaverzlun Sigfúsar Eimundssonar“. Hann ritar sjálfur firmað, ogprókúru- umboð hefir Ólafur Runólfsson bók- haldari. Undirskrift ritast þannig: Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar Pétur Halldórsson. Ólafur Runóifsson ritar: pr. pr. Bókaverslun Sigfúsar Ey- mundssonar Ól. Runólfsson. Drengur á 15. ári, óskar eftir at- vinnu hér í bænnm, helst við verzlun. Góð meðmæli til sýnis. Ritstj. vísar á. Gott húsnæði og sólsælt, 4—5 herbergi, óskast á leigu frá 1. okt. Tilboðum, er greini herbergjastærð og leiguhæð, veitir viðtöku Dr. Björn Bjarnason Laufásveg 6. Tapast hefir silfurbúin svipa í Reykjavík, merkt Sigurður Bjarnason, skilvis finnandi, skili henni til Einars Jónssonar Vesturgötu 30 gegn fundar- launum. Nfr Lax, stór og smár, verður daglega til hjá ísfélaginu við Faxaflóa. J. Nordal. verða haldnar á Melunum Suimudag'iim 11. jiilí. 3 verðlaun fyrir skeið og 3 fyrir stökk. Þátttakendur geíi sig fram á skrífstofunni í

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.