Reykjavík - 30.04.1910, Síða 1
javtft.
XI., 19
Utbreiddasta blað landsina.
Uppiafl 2,800.
Laugardag1 30. Apríl 1910
ÁBkrifendnr í b æ n n m
yfir IOOO.
XI., 19
BaðhÚ8Íð virka daga 8—8.
Biskupsskrifstofa 9—2.
Borgarstjóraskrifstofa 10—3.
Bókasafn Alp.lestrarfél. Pósthvisstr. 14, 5—8,§
Bréfburður um bæinn 9 og 4.
Búnaðarfélagið 12—2.
Bæjarfógetaskrifstofa 9—2 og 4—7.
Bæjargjaldkeraskrifstofa 11—3 og 5—7.
Bæjarsíminn v.d. 8—10, sunnud. 8—7.
Forngripasafnið sd., þrd. fimtud. kl. 12—2.
Islandsbanki 10—2'h og 5‘/e—-7.
Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. ld. 7-8 e.m.
Landakotsspitalinn 10*/s—12 og 4—5.
tandsbankinn lOVa—21/*.
Landsbókasafnið 12—8 og 5—8.
Landskjalasafnið á þrd., fmd. og ld. 12—1.
Landsjóðsgj.k. 10-2, 6-6, þrjá 1. d. í m. 10-2, 6-7.
Landssiminn v.d. 8—9, sunnud. 8—11 og4—6.
Læknaskólinn ók. lækning þrd. og fsd. 12—1.
Náttúrugripasafnið sunnud. VU—21/?.
Pósthúsið 8—2 og 4—7.
Stjórnarráðið 10—4.
Söfnunarsjóður 1. md. í mán. kl. 5.
Tannlækning ók. í P.str. 14, 1. og 3. md. 11—12.
„REYKJAYÍK* ;
Árgangurinn kostar innanlands 3 kr.; erlendis
kr. 3,f>0 — 4 sh. — 1 doll. Borgist fyrir 1. júli.
Auglýsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50;
3. og 4. bls. kr. 1,25. — Úll. augl. 33m/s°/° hærra—
Afsláttur aö mun, ef mikið cr auglýst.
fiitstj. og ábyrgðarm. Stefán RunólíHson,
Pingholtsstr. 3. Talsími 18S.
$grei8sía ,Reykjavikur‘
er í
Skóiastræti 3
(beint á móti verkfræðing Knud Zimsen).
Afgreiðsla blaðsins er opin frá kl. í)
árd. til kl. 8 síðd. — Talsimi 199.
Ritstjóri er til viðtals virka daga
kl. 12—1. — PinfflioMsstr. 3.
iöghiýini ráiherrans.
ísafold segir sjálfsagt að „hlýða vita-
skuld dóminum viðstöðulaust, eins og
fógeta-úrskurðinum áður, sem lands-
yfirréttur hefir staðfest og lýtur að því
einu, að gœdustjóri, sá er í mál fór
út af frávikningunni (Kr. J.) megi
koma í bankann og skoða þar bækur
*>g skjöl eftir vild sinni.
íað er alt og sumt!“
Þessi eru orð ráðherrablaðsins.
Þau segja: að með fógeta-úrskurð-
inum og dóminum sé „gæzlustjóra"
{hún nefnir hann þó svo!) að eins
heimilað að „koma í bankann og skoða
þar bækur og skjöl eftir vilk sinni“.
Hvað segir nú fógetaúrskurðurinn?
og hvað segir yfirdómurinn?
Fógeti segir i úrskurði sínum, að
gerðarbeiðandinn (Kr. J.) „verði að
teljast löglegnr gæzlastjóri Lands-
b»nkans“, og þyí verði að taka til
greina kröfu hans (um að fá aðgang
til að rækja starf sitt).
Yfirdómurinn segir: „Landsstjórn-
ina brast heimild til frávikningar
stefnda frá gcezlustjórastarfinu fyrir
fúlt og alt“. „ Verður stjórnarráðstöf-
línin 22. Nóv. f. á. . . . eigi álitin
lögum samkvœm, og gat hún því eigi
svift stefnda rétti hans sem gæzln-
stjóra“.
Þetta eru hjá báðum skýr orð :
Kr. J. er löglegur gæzlustjöri Lands-
bankans.
Af feirri ástæðu, og henni einni,
veitir úrskurðurinn honum aðgang til
að rækja starf sitt, og þann úrskurð
staðfestir yfirdómur.
Það hefði líka verið algerlega ólög-
legt að veita óviðkomandi manni að-
t
tíjörnstjerne Björnson
skáldmæringur Norðnrlanda
andaðist í París kl. 9 á þriðjudagskvöldiÖ, 26. þ. m., segir símskeyti
til „Reykjavíkur" á miðvikuaagsmorguninn.
Hann varð hættulega veikur síðastl. haust, og ljet þá flytja
sig til Parísar, í þeirri von, að læknum þar myndi takast að lækna
sig. Fyrri hluta vetrar var hann hvað eftir annað talinn af, en í
miðjum febrúar fór honum smám saman að skána, og í marzmán-
uði var hann orðinn svo hress, að hann var farinn að klæðast, og
jafnvel að hugsa um að taka aftur til ritstarfa sinna. Og síðustu
fregnir á undan skeyti þessu sögðu, að hann væri að hugsa um að
fiytja sig norður á bóginn með vorinu, þó ekki heim til Noregs,
heldur til Danmerkur, því að þar ætlaði hann að dvelja í sumar.
En nú kemur andlátsfregn hans eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Kona Björnson fór með honum til Parísar og hefir verið þar
hjá honum í vetur, og börn þeirra voru þar og framan af vetrinum.
Björnson var á 78. ári, er hann Ijezt. Hann var fæddur 8.
desbr. 1882 í Kvikne í Austurdal i Noregi, sonur sóknarprestsins þar.
Hann byrjaði snemma á ritstörfum. Árið 1857 var fyrsta
leikrit hans, „Milli bardaganna“, leikið í Kristjaníu-leikhúsinu. Hann
var þá nýskeð orðinn stúdent. Og eftir það rak hvert skáldverkið
annað, sjónleikar, smásögur og kvæði. Yoru þeir Ibsen og hann
taldir langfremstu skáld Norðurlanda um sína daga. Hjer er ekki
rúm til þess, að lýsa skáldritum Björnsons, eða áhrifum þeirra. En ritstörfum hjelt hann áfram svo að segja
til síðustu stundar. • Hann hafði og lifandi áhuga á þjóðmálum föðurlands síns, sem og á ýmsum helztu mann-
fjelagsmálefnum, og Ijet þau oft til sín taka. Plann var hugsjónamaður mikill og ræðuskörungur, og hafði einkar-
gott lag á því, að hrífa hugi áheyrenda sinna. — Norðmenn sækja lík hans á herskipi til Frakklands.
gang að öllum skjölum og munum
bankans. Að eins stjórnendur og
starfsmenn bankans geta haft þennan
aðgang, og meira að segja að eins
stjórnendurnir ótakmarkaðan aðgang.
En heflr þá fógetaúrskurðinum verið
hlýttí
Nei og nei, og aftur nei! Honum
hefir verið óhlýðnast og það svo greini-
lega, að síðan 22. Nóv. f. á. til þessa
dags hafa verið tveir ólöglegir
„gæzlustjórar" við bankann.
Hvergi í nokkrum lögum er heimilað,
að gæzlustjórar sé fleiri en tveir.
En ina tvo lögUgu gæzlustjóra, sem
Alþingi hefir kosið, neitar ráðherra og
bankastjórn að viðurkenna.
En jafnframt skipar ráðherra í heim-
ildarleysi allra laga tvo „gæzlustjóra®
auk inna löglegu, þingkosnu; og án
allrar lagaheimildar — og þvert ofan
í reglugerð bankans — hleypir hann
óviðkomandi mönnum að því, að nasa
í öllum skjölum bankans.
Þetta er að brjóta lög, on ekki halda
þau.
Þetta er að óhlýðnast löglegum úr-
skurði og dómi.
Þetta er að traðka dómsvaldi lands-
ins og ræna Alþingi rétti þess.
Það er þetta, sem gerir nauðsyn-
iegt, að Alþingi komi saman og taki
í taumana.
Eini mismunurinn á milli fógetans
og yfirdómsins (auk þess að ástæður
yfirdómsins eðlilega eru enn rækilegri
og fjölorðari) er sá, að fógetinn telur
frávikning gæzlustjóranna ólöglega frá
Nýjári, frá því að nýju bankalögin
komu í gildi — gengur að því vfsu,
að frávikningin 22. Nóv. hafi átt að
vera um stundar sakir að eins.
En yfirdómurinn tekur fram, að ekk-
ert sé i frávikningarskjalinu, er tákni
LÁRUS FJELDSTED,
yflrréttarmálallatiiingsmaðnr
Lækjargata 3.
Heima kl. 11—12 og 4—5.
frávikning um stundarsakir. Frávikn-
ingin 22. Nóv. hafi verið frávikning
að fullu og öllu þ. e. afsetning; en
til hennar hafi ráðherra enga heimild
haft eftir lögunum; ekki heimild til að
afsetja framkvæmdarstjórann heldur.
Þeim mátti öllum víkja frá „um stund-
arsakir “' samkv. lögunum frá 1885, og
framkvæmdarstjóra mátti seg,ja upp
með missiris fyrirvara. En til að setja
þá af brast ráðherra alla heimild.
En sjálfur hefir ráðherra játað und-
ir rekstri málsins (látið málflytjanda
sinn játa), að frávikningin hafi verið
fullnaðar-afsetning.
Játað hefir hann og í málsskjölun-
um, að fógetaúrskurðurinn úrskurðaði
Kr. J. löglegan gœzlustjóra.
Svo að hann veit vel, að hann er
að óhlýðnast úrskurði dómstólanna, er
hann neitar að viðurkenna Kr. J.
gæzlustjóra.
Áfrýjendur fógetaúrskurðarins vóru
tveir aðilar: ráðherra íslands og banka-
stjórarnir.
Það eina. sem ég skil ekki í dómi
yfirdómsins, er það, að hann dæmir
að eins annan áfrýjandann (Landsbank-
ann) til að greiða málskostnað. Hví
hlífði hann ráðgjafanum? Hví dæmdi
hann ekki landssjóð til að greiða hálf-
an kostnaðinn ?
Jón Olafsson alþm.
„3pyr sá sem ekki veit“.
n.
Þó að enn hafi ekki tekist að fá
noitt svar frá ráðherra upp á mínar
einföldu spurningar í síðasta bl. „Rvk“,
Nlarkús Porsteinsson
Frakkastíg 9 — Reykjavik
selur hljómfögur, vönduð og ódgr
Orgel-Harmonia.-------
dirfist ég samt að bera enn fram nýja
spurningu — í trausti til alkunnrar
ljúfmensku og lítillætis ráðherrans,
sem ég veit, að ekki muni telja eftir
sér að svara stutt og ótvírætt og skarp-
lega, þó að mjúklega sé spurt.
Það vita allir, að landssjóður getur
ekki keypt fasteignir né aðrar eignir —
eða réttara sagt: ráðherrann getur
ekki keypt þær handa landssjóði —,
nema Alþingi hafi gefið til þess laga-
heimild og veitt til þess fé.
Nú hefi ég kvisað það, að ráðherra
hafi keypt landssjóði til handa hús-
skrokk vestur í Ólafsvík, keypt hann
af fyrverandi verzlunarstjóra og þjóð-
jarða-umboðsmanni Einari Markússyni.
Er þetta satt ?
Hefir ráðherra látið landssjóð kaupa
hús af hr. E. M. þar vestur í Ólafsvík?
Og ef svo er, hvar hefir þá ráðherr-
ann lagaheimild fyrir slíkum húsa-
kaupum eða neinu þvílíku fasteigna-
bralli ?
Og af hvaða lið fjárlaganna er borgun
ávísað fyrir húsið?
Eg spyr ekkert um það — fer ekkert
út í það hér —, hvort slíkt kaup sé
af nokkru viti gert, fjárhagslega skoðað,
— hvort nokkur líklegur markaður
muni vera fyrir húseignir í Ólafsvík.
Um það gæti að eins verið að ræða,
ef Alþingi — löggjafarvald og fjár-
stjórnarvald landsins — hefði afráðið
eða væri að hugsa um, að fara að
láta landssjóð takast fasteignaverzlun
á hendur.
En ekkert slikt á sér hér stað.
Hér er að eins að ræða um heimild
ráðherra til að bendla landssjóð við
slíkt brall.