Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 30.04.1910, Blaðsíða 2

Reykjavík - 30.04.1910, Blaðsíða 2
70 REYKJAVÍK Ekki getur það komið þessu máli neitt við, þó að hr. E. M. væri um- boðsmaður þjóðjarða, og þó að hann kynni að hafa reynst óskilvís umboðs- maður. Því að hefði einhver vanskil verið hjá lionum — sem ég fullyrði ekkert um, til eða frá —þá voru vitanlega nægar tryggingar settar lands- sjóði fyrir því fé, þinglesið veð í jörð- um, í alia staði útgengilegum, og það veð því trygt. Allir vita, að hr. E. M. var umboðs- maður yfir landssjóðsjörðum. En al- mæli er það, að hann væri líka um- boðsmaður hr. Björns Jónssonar yfir sannfæring og atkvæðum sumra kjós- enda í Snæfellsnessýslu. Og auðvitað hefði það getað valdið einhverjum van- höldum á atkvæðum ráðherra-flokksins þar í sýslu við næstu kosningar, ef stjórnin hefði gengið að þeim kjósend- um, er léð höfðu hr. E. M. jarðír að veði, og tekið þær af þeim upp í um- boðsskuld, eða neytt þá til að borga skuld hr. E. M. En ekki getur slíkt tillit til flokks- hagsmuna eða óhagsmuna gefið ráð- herra neina heimild til að láta lands- sjóð fara að kaupa óútgengilegan hús- skrokk 1 afskektu sveitakauptúni af ráðherrans pólitiska umboðsmanni, til þess að seljandinn geti með pening- unum, sem hann fær fyrir hússkrokk- inn, borgað landssjóði skuld þjóðjarða- úmboðsmannsins. Slíkt má enginn láta sér detta í hug, því síður um munn fara. En hvernig stendur þá á þessu húsakaups-bralli ? Og hvar er heimildin til þess ? 8pyr sá sem ekki veit. Jón Ólafsson, alþm. £anðsyjirrjettarðómur i bankamálinu. Fógetaúrskurðurinn staðfestur. Afsetning bankaetjórnarinnar 22. nóv. dæmd ólögleg. Eins og áður hefir verið minst á, áfrýjaði ráðherra, og Landsbankastjórn- in fógetaúrskurðinum frá 4. jan. síð- astl., ©r veitti háyfirdómara Kr. Jóns- syni aðgang að bankanum, bókum hans og skjölum, sem „löglegum gæzlu- stjóra Landsbankans". Landsyfirrjettardómur i máli þessu var kveðinn upp 25. þ. m. í stað háyfirdómara, sem hjer var málsaðiti, hafði ráðherra skipað í lands- yfirrjettinn Magnús Jónsson, sýslum. og bæjarfógeta í Hafnarfirði. Enginn ágreiningur átti sjer stað milli dómaranna. Hjer birtist dómurinn með ástæð- um öllum: »A alþingi 1905 var stefndi kosinn af efri deild gæslustjóri Landsbankans um 4 ár frá 1. Júlí 1906, og á alþingi 1909 var hann aftur kosinn af sömu þing- deild gæslustjóri bankans næstu 4 ár frá 1. Júlf 1910. En 22. Nóv. vék lands- stjórnin öilum forstjórum bankans, þar á rneðal stefnda, frá störfum þeirra við bankann, og setti aðra menn f þeirra stað. Var þessi ráðstöfun bygð á 20. gr. í lögum. nr. 14 18. Sept. 1885 um stofnun landsbanka; en með því þetta lagaákvæði var numið úr gildi með lög- um nr. 12 9. Júlf 1909 um breyting á fyr- nefndum lögum, er komu f gildi 1. Jan. þ. á., áleit stefndi að sér, þrátt fyrir téða stjórnarráðstöfun, bæri rjettur og skylda til samkvæmt kosningu alþingis og nýnefndum lögum nr. 12. 1909, að taka aftur við gæslustjórastörfum í Lands- bankanum við byrjun þ. á., og félst fógetinn á þá skoðun hans í hinum á- frýaða úrskurði. Fyrir kröfu áírýendanna um að mál- inu verði vísað frá fógetaréttinum, eru tilfærðar þær ástæður, að lagaákvæði þau, sem heimila beinar fógetagerðir, nái eigi til kröfu stefnda, og f annan stað, að stjórnarráðstöfun, eins og frá- vikning stefnda frá gæslustjórastarfinu, verði ekki ónýtt eða stöðvuð með fó- getagerð án undanfarins dóms, en það beri undir hina reglulegu dómstóla, sem fógetaréttir verði ekki taldir til, að skera úr því, hvort landstjórnin hafi með téðri ráðstöfun farið lengra en vald hennar nær; fógetinn hafi þvf með úrskurðinum seilst inn á valdsvið dómstólanna og orðið brotlegur gegn 43. gr. stjórnar- skrárinnar, enda mundu hendur vald- stjórnarinnar verða óhæfilega bundnar til framkvæmda, ef þeim yrði fyrirstaða veitt með beinum fógetagjörðum. Þetta, sem nú hefur verið tilfært, getur þó ekki heimilað frávísunarkröf- una. Það verður að fallast á það álit fógetans, að krafa stefnda sé þess eðlis, að hann hafi átt rétt á að leita aðstoð- ar fógetans, til að fá henni viðstöðu- laust fullnægt, svo framarlega sem hon- um tækist, að sýna fram á það fyrir réttinum, að krafan ætti við rök að styðjast, og f þessu efni breytir það engu, hvort heldur það eru stjórnmála- ráðstafanir eða aðrar tálmanir, sem banna gjörðarbeiðanda að neyta réttar sfns. Þá er það eigi heldur rétt skoð- að, að fyrirtekt þessa máls fyrir fógeta- réttinum og úrlausn þess þar fari í bága við 43. gr. stjórnarskrárinnar. Það leikur enginn vafi á því, að fógetavaldið er, eftir íslenskum lögum, einn þáttur dómsvaldsins, en dómsvaldið er samkv. 1. gr. stjórnarskrárinnar hjá dómendum. Orðið »dómendur« í 43. gr. ber þvl að sjálfsögðu að skilja svo, að þar til telj- ist allir liðir dómsvaldsins, og orðið »dómur« í sömu gr. svo, að það eigi við alla réttarúrskurði. Frávísunarkrafan verður því ekki tek- in til greina. Til vara er þess krafist, að úrskurður- inn verði ónýttur og málinu vísað heim, til nýrrar og betri meðferðar og úr- skurðarálagningar, fyrir þær sakir, að fógetinn hafi ekki fært greinilegar og glöggar ástæður fyrir úrskurðinum, eins og lögboðið er, að hann hafi innfært úrskurðinn í dómabókina og kveðið hann upp áður en málfærslan hófst fyrir fógetaréttinum, og því aðeins farið eftir málsástæðum annars málsaðila, stefnda, en ekkert tillit tekið til röksemda og málsútlistunar áfrýenda. Að því er til þess kemur, að úrskurð- urinn sé eigi svo rækilega rökstuddur, sem lög mæla fyrir, verður sú aðfinsla eigi talin réttmæt, en það verður að álfta, að forsendur úrskurðarins séu svo skýrar og ýtarlegar, að þær f þessu til- liti fullnægi því, sem krafist verður sam- kvæmt D. L. 1—5—13. Hinsvegar er það viðurkent, að meginhluti úrskurðar- ins hafi verið innfærður í dómabókina áður en fógetagjörðin hófst. Þessi að- ferð til að létta undir samningu úr- skurðarins í fógetaréttinum, sem fóget- inn hefur þótst geta notað við þetta tækifæri, verður eigi talin á neinn hátt ólögleg, svo að fyrir þá sök beri að 6- nýta úrskurðinn, því að það er ekki rétt á litið eða rétt hermt, sem haldið er fram af hálfu áfrýendanna, að úr- skurðurinn hafi verið upp kveðinn, þ. e. lesinn upp í réttinum, um leið og hann var innfærður í dómabókina. Fógeta- gerðin ber það með sér, að fógetinn gekk eigi til fulls frá úrskurðinum og las hann ekki upp fyr en sðkn og vörn aðila var lokið og þeir höfðu lagt málið undir úrskurð réttarins. Fógetinn gat því tekið tillit til alls þess, er fram kom, og breytt, bætt við eða ónýtt með öllu það, sem innfært var í dómabók- ina, að svo miklu leyti, sem honum þótti málfærslan gefa tilefni til þess, og það verður að telja vafalaust, að hann hefði gert það enn frekara, ef það, sem fram kom fyrir réttinum, hefði breytt skoðun hans á málinu. Þá er það enn varakrafa af hálfu á- frýendanna, að úrskurðurinn verði ó- nýttur og algerlega úr gildi feldur, sökum þess að hann sé rangur og ó- löglegur að efninu til. Er þvf f þessu efni haldið fram, að þar sem gjört sé ráð fyrir því í úrskurðinum, og hann bygður á því, að stefndi hafi þá enn verið gæslustjóri Landsbankans, þá sé þetta lögleysa, með þvf að stefnda hafi verið vikið frá gæslustjórastarfinu til fullnaðar með stjórnarráðstöfuninni 22. Nóv. f. á., og heimild fyrir þessari frá- vikningu sé í 20. gr. bankalaganna 1885 ; það sjáist af þessari grein, saman- borinni við 4. gr. í auglýsingu um verk- svið landshöfðingja 22. Febrúar 1875, ákvæðið f bankalögunum sé ekki annað en upptekning hinnar almennu reglu í auglýsingunni um vald landshöfðingja til að vfkja frá um stundarsakir öllum embættismönnum á íslandi, en öllum hinum sömu embættismönnura og starfs- mönnum, að fráskildum nokkrum dóm- urum, hafi ráðherrann, sem ber alla á- byrgð á stjórnarathöfninni, vald til að víkja frá til fullnaðar, og séu gæslu- stjórar Landsbankans einnig háðir þeirri meginreglu. Þá er það og tekið fram, þessum málsstað til stuðnings, að eftir hlutarins eðli hljóti landsstjórnin að reka ýms erindi fyrir hönd alþingis, þegar nauðsyn krefur milli þinga, einnig í þeim málum, sem beint heyra undir úrlausn þingsins, svo sem að skipa til bráðabyrgða gæslustjóra Landsbankans, endurskoðunarmenn landsreikninganna o. s. frv., þegar þessir fulltrúar alþingis falla frá eða fatlast frá, til þess að störf þeirra falli ekki niður. Áður tilvitnað ákvæði f 20. gr. banka- laganna 1885 hljóðar svo : Landshöfð- ingi getur vikið hverjum forstjóra Lands- bankans frá um stundarsakir, þegar honum þykir ástæða til; hann skal þá með næstu póstferð gefa ráðgjafa Is- lands skýrslu um tilefnið til frávikning- arinnarc. Af þessu ákvæði verður það nú ekki ráðið, að vald ráðgjafa 1 téðu efni hafi verið vfðtækara en landshöfð- ingja; niðurlag greinarinnar virðist öllu fremur benda f gagnstæða átt, þvf þar er ekki gjört ráð fyrir, að svo geti borið undir, að landshöfðingi þurfi að setja mann f stað bankaforstjóra, sem vikið er frá til fullnaðar. 4. gr. augl. 22. Febr. 1875 virðist ekki eiga skylt við þetta mál; það, sem þar er fyrir mælt um embættismenn, sem skipaðir eru á íslandi, getur ekki átt við hina þ i n g- kosnu gæslustjóra Landsbankans, enda er það eigi rétt álitið, að ráðherrann geti vikið frá til fulls öllum embættis- mönnum á landinu, nema nokkrum dómurum, þvf að embættismenn, er kon- ungur skipar, verða eigi leystir frá em- bætti nema með konungsúrskurði, og ef ályktun væri leidd af þessu um gæslu- stjóra Landsbankans, mundi hún vera sú, að til að víkja þeim frá til fullnað- ar yrði að koma úrskurður alþingis. Það verður eftir þessu ekki álitið, að bankalögin 1885 út af fyrir sig eða í sambandi við önnur lagafyrirmæli hafi heimilað landstjórninni vald til að víkja gæslustjórum Landsbankans frá til fulln- aðar, og til stuðnings því, að landsstjórn- in þó hafi þetta vald, nægir eigi að vísa til þess, að landstjórnin hljóti í viðlög- um milli þinga, að hafa rétt og skyldu til að gegna ýmsum störfum, sem bera undir alþingi, því að engin ástæða er til að teygja þann rjett eða skyldu stjórnarinnar lengra, eða skerða vald alþingis frekar, en eðli málsins og nauð- syn krefur, en þeirri nauðsyn sáu banka- lögin 1885 fyrir með því að veita land- stjórninni vald til að víkja forstjórum bankans frá um stundarsakir, þangað til fullnaðar-úrskurður væri lagður í málið af alþingi, eða, ef svo bæri undir, af dómstólunum. Með því nú að landstjórnina sam- kvæmt þessu brast heimild til frávikn- ingar stefnda frá gæslustjórastarfinu að fullu og öllu, en það getur eigi eins og málið liggur fyrir komið til álita hér, hverjar horfur þess hefðu verið, ef um frávikning ura stundarsakir samkvæmt bankalögunum hefði verið að tefla —• verður stjórnarráðstöfunin 22. Nóv. f. á., er stefnda var algjörlega vikið trá gæslu- stjórastarfi við Landsbankann, eigi álit- in lögum samkvæm, og gat hún því eigi svift stefnda rétti hans sem gæslustjóra samkvæmt kosningu alþingis; það verður af þessum ástæðum að telja rjett, að fógetinn tók kröfu stefnda til greina, og ber þvf að staðfesta hinn áfrýaða úrskurð. Krafa áfrýenda, um refsingar- og skaða- bótaábyrgð á hendur fógetanum fyrir að hafa kveðið upp úrskurðinn, verður sam- kvæmt framansögðu ekki tekin til greina Eftir þessum úrslitum málsins þykir rétt að dæma hinum stefndu endurgjald málskostnaðar fyrir yfirdómi, er ákveðst 20 kr. handa hvorum þeirra og greiðist af Landsbankanum. Því dæmist rétt að vera: Hinn áfrýaði úrskurður á að vera óraskaður, og hinn stefndi bæarfógeti Jón Magnússon vera sýkn af kærum og kröfum áfrýendanna í þessu máli. Á- frýendurnir Björn Kristjánsson og Bjöm Sigurðsson bankastjórar fyrir hönd Lands- bankans greiði stefnda Kristjáni Jóns- syni háyfirdómara og Jóni Magnússyni bæarfógeta málskostnað fyrir yfirdómi, 20 kr. hvorum, innan 8 vikna frá lög- birtingu dóms þessa að viðlagri aðför að lögum. í stað justitiarii Jón Jensson*. Sveitamenn! þegar þið komið til bæarins, þurfið þið ekki að ómaka ykkur til að fá ykkur vindla og allskonar tóbak búð úr búð, heldur farið beint í Tóbaksverslnnina í Anstnrstræti 4 því hvergi fást vindlar og allskonar tóbak betra og ódýrara en í Tóbaksverslun R. P. Levi, Austurstræti 4. Munið það!

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.