Reykjavík - 30.04.1910, Qupperneq 3
REYKJAVÍK
71
NOTIÐ Pm
Þásundir húsmæðra
nota að eins Sunlight
sápu ts 1 pvotta og
ræstingar, vegna þess
að hún er hrein og
ómenguð.
1682
Hik á svörum.
Það er sitthvað, sem bendir á, að
ráðherrann, sem nú er, álíti enga al-
þingismenn vera til, nema flokksmenn
sína. Oss alþingismenn, sem erum
andstæðingar hans í skoðunum, skoðar
hann eins og loftið tómt, eða eins og
eitthvað, sem ekkisétil — ekki að minsta
kosti, neœa þegar málgagn hans þarf
að nefna okkur „minni hlutann", til
að skálda um okkur sögur.
Það virtist benda eitthvað í þessa
áttina, er hann í vetur var að senda
flokksmönnum sínum meðal þing-
manna fyrirfram glepsur úr ákærum
rannsóknarnefndarinnar gegn Lands-
bankanum, en lét þær ekki í té oss
þingmönnum, sem hann taldi ekki
flokksmenn sína. Það mál, sem hann
taldi þingmenn „sínatt varða, það
taldi hann óviðkomandi okkur þing-
mönnunum, sem hann gat ekki haft í
vasa sínum.
Er það ekki eitthvað líkt, sem veldur
því, að hann svarar ekki spurningum
þeim, sem ég beindi til hans í síðasta
bi. „Reykjavíkur“?
Sem alþingismanni er mér það ekki
óviðkomandi, að fá vitneskju um þær
stjórnarathafnir, sem þar var um spurt.
Ég spurði kurteislega um alveg ákveðið
efni, og svarið var auðvelt að gefa ör-
stutt, með neitun spurninganna, eða
játun.
Og málið er svo vaxið, að það kemur
ekki að eins þingmönnum við — öllum
þingmönnum —, heldur þjóðinni allri.
Því svarar maðurinn þá ekki?
Sér hann ekki, að honum er greiði
gerður með spurningunum, ef hann
getur svarað neitandi — og það vil
ég í lengstu lög trúa, að hann geti.
Auðvitað hlýtur það að koma í ljós
seint og síðar meir, hvernig svarið er.
Því getur enginn varnað.
En sér hann ekki, að ef hann færist
undan að svara nú, þá er hætt við,
að það geti orðið lagt svo út, að
svarið mundi verða svo lagað, að
honum þætti skiljanlega „frestur á illu
beztur"?
Eða hefir honum orðið svo mikið
um landsyfirréttar-dóminn í banka-
málinu, að hann hefir ekki gefið sér
tíma til að svara nú þegar?
Því vil ég langhelzt trúa, að sú eða
þvílík sé orsökin, en þá býst ég við
svari í næstu „ísafold".
Annars neyðist ég til að ámálga
spurningarnar aftur og aftur.
Jón Ólaf88on, alþm.
^akaþlngs-krö|nr.
Suður-Pingeyingar hjeldu full-
tiúafund að Ljósavatni 2. þ. m. Eftir
áskorun þingmannsins gengust sýslu-
nefndarmenn fvrir fulltrúakosningu
hver í sínum hreppi, og var svo til
ætlazt, að kosinn væri einn fulltrúi
fyrir hverja 15 kjósendur, eða því
sem næst, og þannig, að minni hlut-
inn gæti kornið að tiltölulegri tölu
fulltrúa.
Á fundinum mættu 31 fulltrúi úr
9 hreppum (öllum nema Flateyjar-
hreppi).
Þingmaðurinn skýrði frá tilgangi
fundarins, sagði sögu bankamálsins,
og lýsti skoðun sinni á aðförum
landsstjórnarinnar gegn t.andsbank-
anum, og á því, hverja þýðingu þær
hefðu frá stjórnarfarslegu og þing-
ræðislegu sjónarmiði.
Sigurður Friðjónsson har fram
svohljóðandi tillögu til fundarálykt-
unar:
»Fundurinn lýsir yfir þeirri skoð-
un sinni, að með skipun gæzlustjóra
Landsbankans eftir 1. janúar s. 1.
hafi ráðherrann gengið inn á vald-
svið þingsins og tekið sjer ólöglegt
og óhæfdegt einveldi yfir bankan-
um. Þetta álitur fundurinn, að
þjóðin megi alls ekki þola afskifta-
laust; enda lítur svo á, að heppi-
legast sje, bæði fyrir úrlausn banka-
málsins, og hið pólitiska ástand i
landinu yfirleitt, að þingið taki
bankamálið til athugunar og úr-
slita sem allra fyrst. — Fundurinn
skorar þvi á ráðherra íslands, að
hlutast til um, að kvatt verði til
aukaþings á næsta sumri«.
Samþykkt með 27 atkv. gegn 4.
Sami maður kom og með svo-
hljóðandi tillögu til fundaryfirlýs-
ingar:
»Fundurinn lýsir yfir, að hann
væntir þess fastlega, að stjórnar-
skrármálið verði tekið lil meðferðar
á væntanlegu aukaþingi á næsta
sumri«.
Samþykkt í einu hljóði.
Borgfirðingar hjcldu stjórnmála-
fund á Hvítárvöllum 12. þ. m. Sýslu-
fundur stóð þá yfir, og voru það
sýslunefndarmenn og fleiri fulltrúar
sem mættu á fundinum.
Þar var svohljóðandi tillaga bor-
in upp og samþykkt með 19 atkv.
gegn 3:
»Með þvi að fundurinn lítur svo
á, að ráðherra íslands hafi gengið
á rjettindi alþingis, með því að
meina gæzlustjórum Landsbankans
að gegna starfa sinum við bankann
frá byrjun þessa árs, er alþingi hafði
kosið þá til, og með því að skipa
sjálfur gæzlustjóra við tjeðan banka,
sem alþingi eitt hefir rjett til —
skorar fundurinn á ráðherra, að
hlutast til um, að alþingi verði kall-
að saman hið allra fyrsta, svo að
stjórn Landsbankans geti orðið lög-
lega skipuð, og til þess að hin leiða
þræta, er risið hefir út af aðgerð-
um ráðherra í bankamálinu, geti
orðið á enda kljáð«.
Stjórnmálafnndur í Ólafavík í
Snæfellsnessýslu hefir samþykkt á-
skorun um aukaþing. (»Vestri«).
$ TT. f i BEST og jafnframt ódýrast (j)
úrval í bænum. 0
„M i r a ix d a“ er besti
vi nd i 11, sem til landsins
flytst.
$ KHVKIIIIIH Fæsthverginemalx*á §
é flöjMU UdLJ jES zimsen. $
fiiðlinoar.
Starjræksla fanðssímans 1999.
T e k j u r :
Simskeyti innanlands . . . 21090 46 (10951 66)
-------til útlanda . . . 11426 37 (11026 22)
----frá útlöndum . . 5312 78 ( 5350 88) Kr. 37829 61 (27328 76)
Símasamtöl.....................T . . . . . . — 39949 53 (27885 20)
Talsímanotendagjald, einkaleyfisgjald o. fl........— 10409 79 ( 6973 61)
Aðrar tekjur (símnefni, vextir, seld efni o. fl.) . . . — 4249 21 ( 3857 84)
Tekjur alls kr. 92438 14 (66045 41)
Gjöld:
Laun starfsmanna (hjer eru meðtalin laun lands-
símastjórans), þóknun til landsstöðva, laun til
sendiboða o. fl. . . Kr. 29571 19 (24859 91)
Viðhald símanna . . — 7991 23 ( 7433 95)
Eyðublöð, prentkostn., ritföng 3362 82 ( 3045 91)
Önnur gjöld (húsaleiga, síma-
tæki, ljós og eldiviður, áfram-
haldsgjald, farmgjald og flutn-
ingur, ferðakostn., alþjóða-
skrifstofan í Berne o. fl. 13016 71 (10567 01) Kr. 53941 95 (45906 78)
Tekjuafgangur Kr. 38496 19 (20138 63)
Reykjavík, 26. apríl 1910.
Tölurnar sem í () standa eru fyrir 1908.
Nýju fötin ráðherrans.
Allir kannast við æfintýrið um nýju
fötin keisarans, eftir H. C. Andersen.
En nú hafa menn tekið eftir því, að
samskonar æfintýri er að gerast með
þjóð vorri: Æflntýrið um nýju fötin
ráðherrans.
— Óðara en Björn komst til valda,
leigði hann ótal vefara, og vefstólarnir
fóru af stað, — son sinn gerði hann
að yfirvefara, og eftir hans „munstriu
áttu hinir vefararnir að vinna. Yfir
allt, sem Björn gerði, var þessi dýrindis-
dúkur breiddur, og allt af gekk ráð-
herrann í nýju fötunum sínum. Það
var gert heyrum kunnugt, að dúkurinn
væri ósýnilegur hverjum þeim, er væri
óhæfur til þess að vera i embætti eða
væri ófyrirgefanlega heimskur. — Og
þeim, sem ekki þóttust, sjá dúkinn eða
skartskrúða ráðherrans, var sumum
vikið úr embættum, ef þeir höfðu þau
áður, og embættislausu mennirnir voru
brýndir á heimsku sinni. Enginn fjekk
nýtt embætti, nema hann áður hefði
lokið lofsorði á nýju fötin ráðherrans,
eða hann hefði verið með að vinna
í þau.
Og ótal hendur keppast nú við að
vefa, daginn út og daginn inn, því að
allt af er nóg til þess að breiða yfir.
Mest hefir þó verið borið í áklæðið
yfir bankafarganið. En það er eins
og það verði aldrei hulið. Það eru
svo margir, sem eru „ófærir að vera
í embættum“, og því fleiri, sem eru
„ófyrirgefanlega heimskir", og þeir eru
sífelt að hópa sig saman út um allar
sýslur landsins - og segja eins og barnið:
„Hann er ekki í neinu! — Þetta
eru blekkingar!“
Og þau hrópin eru fyrir löngu síðan
farin að yfirgnæfa dásemdaróp vefar-
anna og þessara fáu „embættishæfu"
manna.
En ráðherrann og vefararnir færast
í aukana, og „kammerherrarnir" látast
bera kjóldragið og dásama skrúðann
og dúkana. Þeir verða að reyna að
þrauka það af þangað til hátíðagangan
er á enda. [„Vestri"].
Til Brellu-Jóns.
í dag hefi eg engan tíma til
aö tauta við pig, Brellu-Jón.
en geri pér sjálfsagt síöar skil
og sýni’, aö pú ert bara flón.
J. Ól.
Seldar fasteignir. — Þingl. 14. þ. m.
Þórarinn Bjarnason skipstjóri í Hafnar-
firði selur Finnboga Finnbogasyni skipstjóra
í Reykjavík húseign nr. 24 við Ránargötu
með öllu tilheyrandi fyrir 7000 kr. Dags. 1.
april.
Lárus Benediktsson prestur selur Birni
útgerðarmanni Gíslasyni húseign nr. 50 B
við Laugaveg með tilheyrandi fyrir 6000 kr.
Dags. 2. apríl.
Björn Gíslason útgerðarmaður selur Jóni
Þórðarsyni kaupmanni húseign nr. 50 B við
Laugaveg með tilheyrandi fyrir 6000 kr.
Dags. 11. apríl.
Garðar Gíslason & Hay selja Agli Eyj-
ólfssyni skósmið í Hafnarfirði 1/* úr hús-
eigninni nr. 10 við Ingólfsstræti með tilh.
fyrir 5000 kr. Dags. 13. april.
Eiríkur H. Sigurðsson trjesmiður selur
Páli Árnasyni lögreglupjóni, Helga úrsmið
Hannessyni og Guðm. Guðmundssyni á
Vegamótum húseign nr. 12 við Skólavörðu-
stíg („Geysir“) fyrir 7000 kr. Dags. 7. apríl.
i