Reykjavík - 30.04.1910, Page 4
72
REYKJAVIK
Þeir Reykjavikurbúar, sem vilja gerast fastir kaupendur við
MjólkurbúiÖ á Laug'aveg' 1S,
frá 1. maí þ. árs, til 1. maí 1911, með þATí að kaupa af því
(búinu) minst 1 pott af nýmjólk daglega, fá pottinn fjTÍr 18
aura, þó því að eins, að búið fái fastar pantanir að ákveðnu
pottatali á dag.
Þeir, sem viija sæta þessu, verða að hafa gefið sig fram við
forstöðukonu búsins, frú Lilju Olaísdóttur, fyrir 5.
mai næstkomandi. ^
Mjólkurbúið á Laugaveg 12.
Stjórmn.
Kinni ftangárvallasýslu.
Flutt í samsæti á »Hótel ísland« í Eeykjavík
á Sumardaginn fyrsta 1910.
1 átthögunum er það helzt á vorin,
sem andans hörpustrengur Ijettast slær,
og þar, sem lágu lifsins fyrstu sporin,
mun lifa mörg ein endurminning kær:
því dreymir oss svo lengi liðna daga
og laufin græn, sem klæddu engin frið,
og fuglasöng og sólargylta haga
og sumarkvöldin friðarmild og blíð.
Nú heili sje þeim, sem hjerna mætast inni,
og hafa unnað Rangár- fögru -byggð.
Því áform vort er einmitt þetta sinni,
að endurvekja með þvi forna tryggð.
Yor hugur þangað leitar enn þá lengi,
sem lifað höfum marga fagra stund,
og búendanna blómlegt tún og engi,
því biðjum vjer að signa drottins mund.
Þá æskuvinir fá nú hjer áð finnast
og fagna glaðir nýrri suinar tíð,
oss er svo kært á margt hið liðna’að minnast,
því mörg þess stund var sólarhýr og blið.
En það, sem okkur þótti falla miður,
mun þarflaust vera’ að rifja upp i kvöld,
þvi hugarvil til heilla cngan styður —,
þótt hafi þjóð vor liðið örlög köld.
En það er eitt, sem vseri þörf að vekja :
þið vitið það er aflið kærleikans,
en sundrung alla’úrhugum manna’að hrekja,
sem hefir valdið böli þessa lands.
Það er ei nóg, að ekrafa’ um það og skrifa,
hvern skaða við það líði íslands þjóð; —
nei, fólkið þarf að læra svo að lifa,
að iífið fái hreint og óspillt blóð. —
Nú vorsins harpa vinarkveðju flytur
á vorar fornu stöðvar þennan dag.
A meðan Hekla há og tignleg situr
og horfir á hvert faeurt sólarlag,
um Rangársveitir blíður bróðurandi
með björtu vori hefji sigurför,
8Ú heillavættur vaki yfir landi,
og veki drengskap, manndóm, táp og fjör.
Jón Pórðarson
úr Kljótshliö.
grjcf 3óns Siguríssonar.
Hið íslenzka bókmenntafjelag hefir
afráðið að gefa út safn af brjefum Jóns
Sigurðssonar á aldar afmæli hans næsta
ár, óg hefir það falið okkur undirskrif-
uðum að sjá um útgáfuna; en við
höfum tekizt starfið á hendur í von
um aðstoð góðra manna. Eru það
því virðingarfyllst tilmæli okkar til
allra þeirra utanlands og innan, er
kynnu að hafa í höndum brjef frá Jóni
Sigurðssyni eða önnur skjöl eða skil-
riki viðvíkjandi æfi hans, að gefa okk-
.ur kost á að fá þau Ijeð til afnota á
einn eður annan hátt, eftir því sem
umsemst í því efni; en við munum
fara með brjefin nákvæmlega eftir því
sem fyrir verður lagt.
Þeir sem vilja verða við þessum til-
mælum okkar eru beðnir að gera það
hið bráðasta að unt er, með því að
tíminn er mjög naumur. Við skulum
geta þess, að brjefin mætti senda
Landsbókasafninu eða Bókmentafjelag-
inu, ef menn kysu það heldur en að
senda þau öðrum hvorum okkar.
Reykjavík 29. apríl 1910.
Jón Jensson. Þorleifur H. Bjarnason.
Þeir kaupeudur blaðsins,
sem skifta um bústað, eru vinsam-
lega beðnir að gera afgreiðslunni
aðvart, svo það verði leiðrjett í
útsendingabókunnm.
leikjjela; Reykjavikur.
íipðuamilii
í síéasta sinn
Ntmnndag 1. Maí
í Iðnaðarmannahúsínu.
leikurinn byrjar kl. 8‘|^.
Tekið á inóti pöntnnum í afgr.
ísafoldar.
cSqgi *3írynjóifsson
yfirróttarmálaflutningsmaður.
Bankastræti 14.
Heima kl. 1*1 og 4* 1/,—ftVi.
€ggert Claessen,
yflrréttarmálaflntningsmaðnr.
Pósthússtr. 17. Talsími 10.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
Iðnskólinn.
Sýning á teikningum
nemenda verður opin í Iðn-
skólahúsinu sunnudag, mánudag,
og þriðjudag I.—3. maí, kl. 12—3
alla dagana.
Uppboð
verður haldið á Reykjum í Mos-
fellssveit þann 11. rnaí n. k., kl. 11
árdegis, og þar seld ýms áhöld og
vjelar, bækur og rit o. 11. [—2s
TIl leigu 1 eða 2 herbergi með húa-
göguum frá 14. maí eða fyrri. Upplýsingar
á Grettisgötu 38.
stúlka óskast í ársvist frá 14. maí, til
útiviimu. Ritstj. ávísav.
Tvö herbergl til leigu frá 14. maí -
1 Lindargötu 19.
HMBWBMWBBBIBMHBMBMBMBHMBBMBBni^MBBMMBBMHBMMBBMM
Af inum mikils metnu neyzluföngum með malt-
efnum, sem DE FORENEDE BRYGGERÍER framleiða,
mælum vér með:
er framúrskar-
andi hvað
snertir mjúk-
an og þægileg-
an smekk.
Hefír hæfiiega
mikið af ,ex-
trakt* fyrir
meltinguna.
Hefir fengið
meðmæli frá
mörgum mik-
ilsmetnum
læknum.
Bezta meðal við
hista, hæsi og öðrum kælingarsjúkðómum.
Nautakjöt
og ii a u t á fæti kaupir hæsta verði
P. J. Thorsteinsson & Oo.,
Reykj avík.
Særlig at anbefaleReconvalescenter ogAndre^som trængor
til let fordejelig Næri ng. Det er tiJlige et udmærket Mid-
del mod Hoste Jlæshed og andre lette Hala-og Brystonder.
hef jeg ætíð fyrirliggjandi af ýmsri
gerð. Skorið eftir því sem.hver óskar.
Mestar birgðii* ogl
_ , _[á öllu landinu.
lang-besta verðj
Fljótt og vel af hendi leyst.
Jes Zimseii.
Jeg undirskrifaður útvega staði handa ungum piltum sem hafa
löngun til að læra landbúnað í Danmörku. Sjerstakt tillit tekið
til þess ef viðkomandi hefir góð vottorð.
Sömuleiðis útvega jeg staði handa ungum stúlkum sem hafa
löngun til að læra innanhúss-störf í Danmörku. Að eiiis
ágætir staðir, hvar góðir siðir um hönd hafast, og gott fæði og öll
umhyggja mjög góð.
Þetta tilboð gildir að eins til síöasta | ú n í 1010. Bezt að
koma frá 1. á g ú s t að telja.
Greir Guðmundsson.
Adr.: Smerupij>;aard pr. Hvidbjærg;,
Thyholm, Daninark. [—4s.
pjrifin og stúlka getur
fengið vist á litlu heimili í Reykjavík frá
14. maí n. k. Upplýsingar á afgr. blaðsins.
aW” Til leigu er nú pegar eitt her-
bergi á góðum stað. Uppl. í Gutenberg.
Atvinna. 6—8 karlmenn og 2—3
kvenmenn geta fengið atvinnu á Austfjörð-
um í sumar. — Upplýsingar gefur Benjamín
Einarsson, skósmiður, Njálsgötu 48.
Til leigu 1 stofa í miðbænum með
forstofugangi frá 14. maí. Upplýsingar á
Bókhl.st. 11.
Herbergi til leigu í Þíngholtsstræti 22.
Til leigu nú þegar 2 berbergi
móti sól í nýja húsinu mínu, hentug fyrir
einhleypa. 3 herbergi moð eldhúsi og
geymslu eru eínnig til leigu.
Árni Nikulásson, rakari.
Ihomsens
prima
vinólar
Hvar á að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prentamiðjan Gutenberg.