Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 15.10.1910, Blaðsíða 1

Reykjavík - 15.10.1910, Blaðsíða 1
1R k \ a\> í h. XI., 47 Laugrardaff 15. Október lí>10 XI., 47 Baðhúsið virka daga 8—8. Biskup88krif3tofa 9—2. Borgarstjóra8krif8tofa 10—3. Bókasafn Alp.lestrarfél. Pósthúsetr. 14, 5—8, Bréfburður um bæinn 9 og 4. Búnaðarfélagið 12—2. Bæjarfógetaskrifstofa 9—2 og 4—7. Bæjargjaldkeraskrifstofa 11—3 og 5—7. Bæjareiminn v.d. 8—10, sunnud. 8—7. Forngripasafnið sunnud., þrd., fmd. kl. 12—2. Islandsbanki 10—2‘/a og 67. Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. ld. 7--8 e.m. Landakotsspitalinn 10l/i—12 og 4—6. Landsbankinn 101/*—21/*. Landsbókasafnið 12—3 og 5—8. Landskjalasafnið á þrd., fmd. og ld. 12—1. Landsjóðsgj.k. 10-2, 6-6, þrjá 1. d. í m. 10-2, 6-7. Landssiminn v.d. 8—9, sunnud. 8—11 og4—6. Læknaskólinn ók. lækning þrd. og fsd. 12—1. Náttúrugripasafnið sunnud. I1/*—21/*. Pósthúsið 8—2 og 4—7. Stjórnarráðið 10—4. Söfnunarejóður 1. md. í mán. kl. 6. Tannlækning ók. í P.str. 14, 1. og 3. md. 11—12. „REYKJAYlK" Árgangurinn kostar innanlands 3 kr.; erlendis kr. 3,50 — 4 sh. — 1 doll. Borgist fyrir 1. júli. Auglýsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50; 3. og 4. bls. kr. 1,25. — titl. augl. 33*/»•/• hærra.— Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Ritstj. og ábyrgðarm. Hteífin IRunólfsson, Pingholtsstr. 3. Talsími 1 8 8. yi|geiðsla ,Reykjavíkur‘ er í Skólastræti 3 (beint á móti verkfræðing Knud Zimsen). Afgreiðsla blaðsins er opin frá kl. 9 árd. til kl. 8 síðd. — Talsimi 199. RitstjÓPÍ er til viðtals virka daga kl. 12—1. — Þinjgfioltsstr. 3. Smá-hugleiðingar um stjörnarskrár-breytingar. Eftir Jón Ólafsson. Eftirhreyta. Það vill svo til, að það þarf ekki stjómarskrárbreyting til þeirra ákvæða, sem ég ætla að ræða um í dag. Það er 19. gr. stjórnarskrárinnar, sem hér er um að ræða. Hún hljóðar nú svo: „Ið reglulega Alþingi skal koma saman fyrsta virkan dag í Júlí-mán- uði annaðhvert1) ár, hafi konungnr ekki tiltekið annan samkomudag sama ár. — Breyta má þessu með lögum*. Allri þessari grein má breyta með einföldum íögum, og ákvæðinu um samkomu-daginn liefir þegar verið breytt þannig (15, Febrúar eða næsti virkur dagur er kominn í stað 1. virks dags í Júlí). í 5. gr. stendur, að konungur skuli stefna saman reglulegu Alþingi. En samkv. 19. gr. skal Alþingið koma saman ákveðinn dag, hvort sem kon- ungur stefnir því saman eða ekki, „hafi konungur ekki tiltekið annan samkomudag sama ár“. Það ákvæði stendur í stjórnarskrám (eða öðrum lögum) nálega allra þing- stjórnarlanda, að þingið skuli koma saman tiltekinn dag. Það er til þess sett að varna því, að stjórn geti frestað þingi. Slík frestun er ekki, svo ég viti til, heimiluð í stjórnarskrá nokkurs ríkis, sem þingfrjálst er, nema 1 stjórnarskrá íslands eins. VÉaðarvörur Árni Eiríksson Hreinlæiisvörur Kjólatau Enskt leður Herðasjöl Handsápur Kvenslipsi Nanquin Treílar Kústar Silkitau, svört Sængurdúkur Axlabönd Burstar Leggingabönd Lastingur Handklæði Gólfmottur Ljerept alls konar Shirtingur Lífstykki Höfuðkambar Flúnell Millifóður Nærfatnaður fyrir Greiður Tvisttau Fóðurtau fullorðna & börn Ilmvötn Stubbasirz Hnappar Borðdúkar, hv. og Reykelsi Dagtreyjusirz Tölur misl. Rykskúffur Enskt vaðmál Tvinni, margsk. Rúmteppi ofl. ofl. o. margt íl. VÉaðarvörur Austurstræíi 6, Reykjavík. Hreinlætisvörur ru * rrrr rr 1) í stjórnarskránni stendur hér: „ann- aðhvort11, sem er vitleysa. Hitt stendur í stjórnarskrám margra ríkja, að þingið skuli koma saman þann dag, sem til er tekinn, nema konungur (eða forsetinn í þjóðveldi) hafi tiltekið annan dag fyrr á árinu. Mörg ríki hafa þó ekki það ákvæði heldur, en láta sér nægja rétt stjórn- arhöfðingjans til að kalla saman auka- þing. Ákveða þá, að ef aukaþing sé saman komið þann dag, er reglulegt þing á að koma saman, þá breytist aukaþingið þann dag sjálfkrafa í reglu- legt þing. Þetta er eðlilegt og samkvæmt til- ganginum með löggjafarþing og eftir- litsvald þeirra, að konungur megi leita þingsins aðgerða oftar eða fyrrí en lögmælt er; en megi ekki varna þing- inu að koma saman á lögákveðnum tíma. Það ei gagnstætt eðli hlutanna, gagnstætt tilgangi þingstjórnar, að stjórn, sem finnur, að hún er að fyr- irgera trausti þings, eða heflr fyrirgert því, skuli geta lengt líf sitt með því að varna fulltrúum þjóðarinnar um langan tíma að koma saman. Þegar stjórnarskrá vor var gefin út (1£74), var byrjun þingtímans ákveðin 1. Júlí, og engum hefir þá víst komið til hugar, að hér yrði háð þing að vetrarlagi. Þá vóru hér engar strand- ferðir. Og þá var þingrœði ekki viðurkent hér. Þvert á móti urðum vér að dankast með danskan ráðherra án nokkurs tillits til þess, hvort hann naut trausts eða vantrausts Alþingis. Þá hefði, eins og á stóð, varla getað verið um að ræða, að þingi gæti orðið frestað nema í hæsta lagi 3—4 vikur. Og þingfrestun var þá í sjálfu sér ekki eins viðsjál, af því að stjórnin gat þá látið sér á sama standa, hve andvígt þingið var henni. En einmitt fyrir það var heldur engin ástæða til fyrir stjórn að fresta þingi, nema einhver óvœnt knýjandi nauðsyn bæri að höndum. Engum hefði víst dottið í hug, að farið mundi fram á að fresta þingi al- veg að ástæðulausu, eða fyrir þá eina sök, að ráðgjafi (eða landshöfðingi) væru þær liðleskjur eða svo latir eða hirðulausir, að þeir nentu ekki eða hirtu um að undirbúa alþingismálin í tæka tíð, en kysu t. d. heldur að vera að flakka sér til skemtunar. Fyrir því hefir þetta ákvæði ekki þótt svo viðsjárvert þá. En þetta má ekki eiga sér stað! Rétti þjóðarinnar er misboðið með því. Þingræðinu er misboðið með því. Auðvitað getur konungur neitað að gefa út úrskurð um þingfrestun. Og þar er einmitt eitt af þeim tilfellum, er konungsvaldinu getur verið rétti- lega beitt til að varðveita rétt þjóðar- innar. En engin þjóð á &ð eiga undir því, að konungsvaldið þurfi að verja rétt hennar. Þjóðin á, svo sem auðið er, að tryggja rétt sinn með lögum. Auðvitað má breyta þessu með ein- földum lögum, með því að nema burt orðin: „hafi konungur ekki tiltekið annan samkomudag sama ár“, eða þá að breyta þeim þannig: „hafi konung- ur ekki tiltekið annan samkomudag fyrri á því ári“. En réttara og tryggara er, að setja það í stjórnarskrána, og láta svo nið- urlagsorð 19. gr. hljóða svo: „Breyta má samkomudegi Alþingis með lögum". Ég hefi vakið máls á þessu af því, að það er vitanlegt, að ráðherra, sá sem nii er, liefir þegar í sumar farið þess á leit að fá konungs-úrskurð fyrir að fresta Alþingi næsta ár, og það alla leið fram til Maí-mánaðar. Orsökin til þess, að hann var kvaddur nú út á konungsfund, var sú, að kon- ungi mun hafa þótt þetta tiltæki ísjár- vert, og er það því skiljanlegra, ef konungi hefir verið kunnugt um, að meira en helmingur allra núverandi alþingismanna hafði látið í Ijósi ósk um aukaþing, þ. e. að þing yrði saman kvatt fyrir lögmæltan tíma. Konungi, sem ann þingræði, hefir skiljanlega getað þótt það einkennilegt svar upp á málaleitun meiri hluta þingmanna, að gera alveg gagnstætt vilja þeirra — fresta þingi í stað þess að flýta því. Og þetta án nokkurrar minstu átyllu, því síður nauðsynjar. 3 P- S 2 so v. o- T1 > 2 2 r*i -< cn o o c so se _m 'i 50 í tr* frl 2 2 2 O > w m : m O o co G 2 O O o m 2 5 9' er 0- X * O- s 5 £ h 5 < 2 S- § £2 2 g o < a - § § 50 ** > Jtærfot! jfxrföt! Jlærf ot! Möt! JfærfBt! jfcerföt! Jeg leyfi mjer að mæla með mínum viðurkennda nærfatnaði, sem bæði er mjög ódýr, smekklegur og vel vand- aður að öllu leyti. Yetrar-nærfðt mín hafa ávalt hlotið lof þeirra sem reynt hafa. Hefi jeg ávalt mjög mik- ið úrval af nærfatnaði, en í ár er jeg sjerstaklega vel birgur af honum og sel hann mjög ódýrt. Nú sem stend- ur gef jeg 10°/« afslátt frá hinu afárlága verði. [3svar] Magnús Þorsteinsson, Bankastræti 12. (Á horninu að Bankastræti og Ingólfsstr ). framhalðs-funiur af siðasta fundi fríkirkjumanna verð- ur haldinn sunnudaginn 16. okt. í Frí- kirkunni kl. 4 síðdegis. Safnaðarmeð- limir áminntir um að mæta stundvís- lega. Stjórnin. Munið eftir upplestri Jóns Transta í kvöld kl. 9. Á morgun kl. <J síðd. €ggert Claessen, yflrréttarmálaflntningsmaðnr. Póstliússtr. 17. Talsími 16. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.