Reykjavík - 03.02.1912, Qupperneq 3
REYKJAVÍK
19
Glaðlyndi og ánægja eru
samfára notkun Sunlight
sápunnar. Eins og sóls-
kinið lýsir upp og fjörgar
nátturuna, eins gjorir
Suniight sápan bjart yíir
erfiði dagsins.
SUNLIGHT SÁPA
þegar birgðir stórkaupmannsins voru
rannsakaðar, reyndust þær að vera
að mestu leyti tómur trje-spíritus.
En læknarnir hjeldu því enn fram um
hríð, að sýkin stafaði af matvæla-
eitrun, og allt af hjelt fólkið áfram
að sýkjast og deyja. Loks var öllum
veitingahúsum um þessar slóðir lokað,
og trje-spíritusinn gerður upptækur,
þar sem hann fannst, og þá tók allt
í einu fyrir veikina. Urðu læknarnir
þá loksins að viðurkenna, að þeim hefði
skjátlazt, og að sýkin hefði í raun og
veru stafað af trje-spíritusnum. Voru
þá dánir milli 70 og 80 manns af eitri
þessu. — Stórkaupmaðurinn situr nú
í varðhaldi og bíður dóms. — Meðan
þetta stóð yfir urðu Berlínarbúar —
er auðvitað trúðu læknunum — svo
hræddir við allan reyktan fisk, að hann
seldist alls ekki, og segjast kaupmenn
hafa tapað um 100,000 ríkismörkum
á þeirri vöruteguud fyrir misgáning
læknanna.
í Leipzig hafa nokkrir menn dáið
úr sams konar eitrun, og hefir ýms-
um veitingahúsum þar verið lokað,
en óvíst enn, hvort þau hafa fengið
sinn trje-spíritus frá sama eiturbyrlar-
anum.
Svuntur,
hvítar og mislitar, mjög mikið úr
að velja.
Síurla Sánsson.
rVöín og- nýjungar.
Bsejarstjórnarkosningarrtar hjer í
bæ siða8tl. launardag voru fremur slælega
sóttar. Af 4300 kjósendum mættu að eins
1766. Kosningu hlutu:
Sveinn Björnsson með 493 atkv.
Knud Zimsen — 414 —
Guðrún Lárusdóttir— 373 —
Þorv. Þorvarðarson — 281 —
Hannes Hafliðason — 246*/« —
Stjórnmálaflokkarnir komu því að sinum
tveim fulltrúunum hvor, og kvenfólkið ein-
um. Um 800 kvenmenn sóttu kjörfundinn,
og hefir rúmlega helmingur þeirra slegiít í
ltð með stjórnmálaflokkunum.
Sjóföt
vönduð og ódýr seld með afslætti
Sturla Jónsson.
Slya. S íðastl. mánudagsmorgun slasaðist
maður við dráttarbrautina hjer í bænum,
Q-uðmundur Einarsson að nafni. Var verið
að setja fram vjelarbát, og varð þá maður-
inn á milli bátsins og grjótgarðs, og mjaðm-
arbrotnaði. Hann var þegar fluttur á sjúkra-
hús, og liggur hann þar mjög þungt haldinn,
en þó von um að hann lifi af.
Húsbruni. Síðastliðið sunnudagskvöld
kviknaði t fiskþurkunarhúsinu í Viðey, eign
„Miljónafjelagsins11, og brann það, ásamt á-
föstum skúrum, til kaldra kola á tæpum
sveim klukkustundum. Töluvert af fiski var
til þurks í húsinu, þegar í þvi kviknaði, og
i skúrum við húsið var afarmikið af fiski.
Miklu af fiskinum varð bjargað, en þó er
talið að brunnið hafi um 200 skippund.
Vjelar þær, sera notaðar voru við fiskþurk-
unina, voru i sjerstökum skúr, og er sagt,
að tekizt hafi að verja þær að mestu leyti.
Húsið er sagt að hafi verið vátryggt fyrir nál.
27,000 kr., en skaðinn talinn um 40,000 kr.
fþróttasamband íslands var stofnað
síðastl. sunnudag, eins og til stóð. öll í-
þróttafjelög bæjarins, níu að tölu, sendu
fulltrúa á stofnfundinn, og þrjú fjelög af
Akureyri. Bráðabirgðalög voru samþykt og
bráðabirgðastjórn kosin til þess að semja
lög og reglur fyrir sambandið. Aðalfundur
verður haldinn í sumar, og þá verða lögin
rædd og samþykt og stjórn kosin til fram-
búðar. í bráðabirgðastjórninni eru: Axel
Tulinius, fyrv. sýslum. (formaðurl, Guðm.
Björnsson, landlæknir, dr. Björn Bjarnarson,
Björn fimleikakennari Jakobsson og Halldór
Hansen stud. med.
Skógpeektarfyrirlestup hjelt hr. Ko-
foed-Hansen skógræktarstjóri siðastl. sunnu-
dag í Iðnó að tilhlutun „Alþýðufræðslu-
nefndarinnaru. Var það góð hugvekja og
þörf, og skýrð með góðum skuggamyndum.
Pyrirlesturinn var skammarlega illa sóttur,
enda mjög illa auglýstur.
Jnniskér
t
hlýir og ódýrir, stórt úrval.
Sturla Jónsson.
Hegnkápur
(Walerproof)
fyrir konur, karla og unglinga, sel-
ur enginn ódýrara en
Sturla Jónsson.
Kappglíma um Ármannsskjöldinn var
þreytt í Iðnaðarmannahúsinu 1. þ. m. Tóku
14 manns þátt i henni: Húsfylli var þar,
eins oe: ætíð við slík tækifæri. Sigurvegar-
inn varð Sigurjóti Pjetursson; lagði hanu
alla hina. Er þetta í þriðja skifti, sem hann
vinnur skjöldinn, svo að nú er hann eign
hans, og verður glímufjelagið „Ármann“
því að láta smíða sjer annan skjöld. Á hann
að heita „Reykjavíkurskjöldur Armanns11. —
Næstir Sigurjóni urðu að þessu sinni Axel
Kristjánsson með 12 vinninga, Guðm. Kr.
Guðmundsson með 11 og Bjarni Bjarnason
með 10 vinninga.
„Fjalta-Eyvindur11 hefir nú verið leik-
inn í 17 kvöld, og er aðsóknin allt af mikil.
Verður hann sennilega leikinn í þrjú kvöld
enn þá.
„Rseningjarnir11 heitir leikrit það, sem
Leikfjelag Reykjavíkur er nú að undirbúa.
Það er hið heimsfræga leikrit Schillers, „Die
Raiiber1*. Er það eitthvert stórfenglegasta
og áhrifamesta leikrit, sem hjer hetír verið
sýnt. Ætlar hr. Árni Eiriksson, sem nú
hefir hvílt sig um hrið, að leika aonað aðal-
hlutverkið í leik þessum, Franz Moor, bróð-
ur ræningjaforingjans. Fjölda af nýjum
tjöldum er verið að mála.
Sköhlíýar, stórt úrval
Sturla Jónsson.
€ggert Claessen,
yflrréttarmúlatlatningsraaðnr.
Póstliúintr. 17. Talsíml 16.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
Sveinn Björnsson
yflrdómslögmaður.
Halnaristræti 16
(ú sama stað sem fyr).
Skrlfstofutfnii 9—2 og 4—6.
Hittist venjnlega sjálfur 11—12 og 4—5.
108
». . . Hvað segirðn ? Hefir þú alls ekki sjeð fjandmenn-
ina?« Greifafrúin gerði hvortveggja í senn að brosa og gráta.
»Já, þá hlýtur það að hafa verið hann August! Elsku
blessaður hugrakki drengurinn minn«.
»August ? Hefir August . . . ?«
Greifinn varð náfölur. Hann var einmitt kominn til
þess að flýja af landi burt með fjölskyldu sina. Báturinn
lá í vikinni, allt var undir búið. Og svo — —
Meðan þau ræddu málið, kom heimilispresturinn. Hann
bað um að lofa sjer að tala við frúna undir eins.
Hann kom- með brjef, og sagði með öndina í hálsinum,
að hann hefði sjeð hermenn niðri í trjágöngunum, og hefðu
þeir tekið þar mann, ákaflega líkan herragarðseigandanum,
og haft hann á brott með sjer. En nú stóð greifinn þó hjerna !
Frúin þekkti höndina utan á brjefinu, og skildi þegar
hvernig í öllu lá.
Brjefið staðfesti grun hennar. August hafði sett á sig
lausaskegg og hárkollu, sem haun hafði fyrir löngu fengið
sjer að gamni sínu, og þá varð hann svo likur föður sínum,
að honum tókst í raun og veru að villa óvinunum sýn.
»Elsku blessaður drengurinn!« stundi gamli greifinn
upp, og komst mjög við af þessai’i fáheyrðu dirfsku. »Við
skulum hafa einhver ráð með að ná í þig aftur. Við skulum
aldrei gleyma þjer . . . það ert þú, sem hefir bjargað okkur!«
3. liapítuli.
í gistlliÚNÍnn.
Það var skömmu eftir hádegið, sem August var tekinn
höndum, og dátarnir höfðu enga von um að ná höfuðstöðv-
105
»Það eru komnir hingað hermenn, August, og þeir hafa
fengið njósnir um hann. Það hlýtur einhver að hafa ljóstað
því upp við þá, að hann hafi falið sig þarna suður undir
þorpinu, svo að nú er liann að hugsa um að flýja af landi
burt, yfir til Englands-----Ó, August, August! ... Ef við
bara hefðum svo sem eina klukkustund, til þess að komast
undan... en þvi er víst ekki að heilsa . . . hann er alveg
nýfarinn hjeðan, og óvinirnir koma vist alveg strax!«
»Ein klukkustund? Bara ein klukkustund?« endurtók
drengurinn.
»Já, hann hjelt sjálfur, að ein klukkustund mundi
nægja . . .«
August greifi kyssti móður sína.
»Vertu róleg, móðir mín! Jeg skal teQa fyrir þeim.
Bara að jeg gæti talað við hann fáein orð . . . En það tjáir
ehki að fást um það! Farðu nú inn, og vertu þar kyr I Jeg
skal bjarga honum, svo sannarlega sem jeg er sonur hans
föður mins!«
Hann kyssti hana aftur, og hljóp svo upp í herbergið
sitt. Hann tók ýmislegt dót þar uppi, og vafði vasaklút utan
um það, og svo laumaðist hann ofan með böggulinn í hend- .
inni. Hann læddist gegnum eldhúsið og út i hesthúsið. Þar
opnaðj hann böggulinn...........
★ ★ * * ★
♦ * * +
Nokkurri stundu síðar heyrðist jódynur mikill, og ljett-
vopnuð riddarasveit kom ríðandi heim trjágöngin.
»Gætið nú vel til allra hliða! Hjer hlýtur hann að hafa
falið sig einhvers staðar!« mælti foringinn.
Þeir hjeldu áfram í hægðum sínum. En allt í einu
stöðvaði einn þeirra hest sinn og rak upp fagnaðaróp.