Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 30.03.1912, Qupperneq 2

Reykjavík - 30.03.1912, Qupperneq 2
50 REYKJAVÍK Fiskiskipið ,Eeir‘ talið frá. 27 menn farast. Nú er það talið víst, að fiskiskipið »Geir“, eign hlutafjelagsins „Sjávar- borg“, hafi farizt. Skipið fór út frá Hafnarfirði 11. febrúar, og hefir ekki komið inn síðan. Haft var eftir mönn- um á þilskipum, sem inn komu snemma vertíðar, að þeir hefðu sjeð „Geir“, og hefði hann aflað vel. Og eftir ofviðrin miklu kringum 23. febrúar, þóttust einhverjir hafa sjeð „Geir“ nálægt Vestmannaeyjum, og voru menn því í lengstu lög vongóðir um þáð, að hann kæmi fram. En nú eru allir orðnir úrkula vonar um það. Á skipinu voru 27 menn, og er hjer listi yfir nöfn þeirra, ásamt skýrslum þeim, sem þégar hafa fengizt um hagi þeirra: 1. Sigurður Þórðarson skipstjóri. Lætur eftir sig ekkju og 4 börn í ómegð. 2. Halldór Jónsson stýrimaður, ó- kvæntur. Faðir hans heilsulítill ekkju- maður með 4 börn í ómegð. 3. Sverrir Guðmundsson frá Harð- bala í Kjós; ókvæntur maður. 4. Guðjón Magnússon úr Hafnar- firði. Hann var einkaaÖ3toð uppgefins föður og heilsulausrar móður. 5. Guðmundur Árnason frá Bíldu- dal í Arnarfirði. 6. Jón Jónsson frá Skógum í Arnar- firði. 7. Jóhann Guðmundsson úr Arnar- firði. 8. Ólafur Sigurðsson frá Langholti í Flóa; ókvænt.ur. 9. Magnús Pjetursson úr Reykjavík. t Lætur eftir sig ekkju og ungbarn, og auk þess fósturbarn og aldraðan tengda- föður. 10. Kristján Einarsson úr Hafnar- firði. Lætur eftir sig ekkju og 3 eða 4 ungbörn. 11. Þörður Ingimundarson frá Tjörn á Vatnsleysuströnd. Lætur eftir sig ekkju og 1 barn. 12. Ólafnr Nikulásson úr Hafnar- firði. Lætur eftir sig ekkju og 2 börn í ómegð. 13. Guttormur Einarsson úr Hafnar- firði. Lætur eftir sig ekkju og 2 börn í óm«gð. 14. Guðni Benediktsson úr Hafnar- firði. Lætur eftir sig ekkju og 3 eða 4 börn í ómegð. 15. Þorvaldur Jóhannsson úr Dýra- firði. 16. Þorkell Guðmundsson úr Hafn- arfirði. Lætur eftir sig ekkju og 3 börn á ungaaldri. 17. Böðvar Jónsson úr Hafnarfirði, ekkjumaður, og 18. Halldór Böðvarsson, sonur hans. önnuðust bláfátæka ekkju. dóttur Böðv- ars, og 3 börn hennar í ómegð. 19. Helgi Árnason frá Eiði á Sel- tjarnarnesi. Lætur eftir sig ekkju, heilsutæpa, 2 börn á ungaaldri, og auk þess blindan tengdaföður á átt- ræðisaldri. 20. Sólon Einarsson úr Hafnarfirði. Lætur eftir sig ekkju og 2 eða 3 börn. 21. Ingvar Pjetursson úr Hafnar- firði. Lætur eftir sig ekkju og 2 eða 3 börn í æsku. 22. Jóhannes Jóhannesson úr Hafn- arfirði. Ókvæntur maður, en styrkti aldraða foreldra sína. 23. Marteinn Guðlaugsson úr Hafn- arfirði., Lætur eftir sig ekkju með barni. 24. Sigurður Jónsson bóndi í Ási í Garðahreppi. Lætur eftir sig ekkju og 8 eða 9 börn í ómegð, og auk þess háaldrað vandabundið gamalmenni. 25. Magnús Sigurgeirsson úr Hafn- arfirði. Ókvæntur vinnumaður. 26. Vilmundur Jónsson úr Hafnar- firði. Einkabarn og einkastoð uppgef- ins föður og heilsulausrar móður. 27. Guðjón Jónsson frá Biidudal í Arnarfirði. Lausamaður. * * * Um mennina af Vestfjörðum eru skýrslur enn þá ókomnar, og því ó- kunnugt um ástæðurnar á heimilum þeirra, en þó er íuliyrt um einn þeirra, að hann láti eftir sig ekkju og 11 börn. Það eru þá að minnsta kosti 14 konur sem orðið hafa ekkjur við fráfall þess- ara manna, og um 60 börn í ómegð, sem misst hafa. föður sinn; auk þess eru 11 eða 12 gamalmenni, flest heilsu- lítil, sem misst hafa stoð sína og einka- athvarf. Þeir eru því margir, sem eiga um sárt að binda eftir þetta sviplega áfall, margir, sem þarfnast þess sárlega, að þeim sje rjett hjalparhönd, enda hafa nú þegar nokkrir menn úr Rvík og Hafnarfirði gengið í nefnd til þess að gangast fyrir samskotum, til að reyna að bæta ofurlítið úr bráðustu neyð ekknanna og munaðarleysingj- anna. Útgerðarfjelag skipsins gaf þegar 2 þús. kr. til samskota þessara, og 1000 kr. hafa sýslumanninum í Hafnar- firði borizt nafnlaust. „Söngfjelagið 17. júní“ söng í fyrrakvöld til ágóða fyrir samskotin, og fleiri fjelög hjer í bæ hafa í hyggju að efna til kvöld- skemmtana í sama skyni. En sain- skotin þurfa að verða almenn. Allir, sem nokkuð geta, verða að láta eitt- hvað af hendi lakna. Þörfin er svo mikil og sár, bágstöddu heimilin svo mörg. Hjer hafa og fleiri manntjón oiðið í vetur, en þetta, þótt þetta sje þeirra stórfenglegast. •;-----------------------------------• I tfaMmtzlnn Jóas Stelánssonat Laugaveg 14 gerast þau beztu kaup, sem hægl er að l'á i bænum, T. d.: Kvenstíirvjel á 5 kr. Karlm.stigvjel á 6 kr. 50 a. í samskotanefndinni eru þeir Pall Eínarsson borgarstjóri, Magnús Jónsson sýslumaður í Hafnarfirði, Jens Pálsson prófastur í Görðum, Ólafur Ólafsson fríkirkjuprestur, Hannes Hafliðason, Ásgeir Siguiðsson kaupm. og Aug. Flygenring kaupm. Þurfa menn ekki annað en snúa sjer til einhvers þeirra með framlög sín. Friðþjóíur Nansen hjelt nýlega hjer í Vínarborg fyrir- lestur um niðurstöðu ranDSókna sinna á því, hvort afkomendur Norðmanna, íslendingar, hafi fundið Ameríku á nndan Kolumbusi. í bók sinni um þetta efni rjeðst hann á þá skoðun, sem hingað til hefir venð fylgt, og tekin er eftir fornsögunum, sem sje þá, að íslendingar hafi komizt frá Grænlandi til Ameríku og fundið þar Helluland, Markland og Vínland hið góða, hafzt þar við um tíma og átt í höggi við þjóð þá, er þar bjó, og þeir nefndu Skrælingja. En nú. í þessum fyrirlestri er hann farinn að linast. Hann lætur það nú gott heita—sýni- lega vegna hinna öflugu andmæla, er fram hafa komið í norskum fræðirit- um — að íslendingar hafi fundið Markland og Helluland, sem víst hljóti að vera í Norður-Ameríku. En hann stendur einungis fast á því, að „vin- land hið góða“ sje ekki að finna í Ameríku, heldur sé þar átt við „insulæ fortunatæ"* (sælueyjar), það er að segja afríkanskar eyjar nálægt hinu vestræna meginlandi, sem Grikki dieymdi um endur fyrir löngu. Margar skuggamyndir voru sýndar til skýringar þessum fróðlegafyrirlestri. Áheyrendur voru nálægt 1500, og á eftir fyrirlestrinum hafði norski ræð- ismaðurinn í Vin, Thorleif von Paus, boð inni í Imperial-gistihöllinni, og sat það m. a. ein íslenzkra manna barónsfrú Ásta v. Jaden, ásamt manni sínum. Þar voru og í boði ýmsir kennarar við háskolann í Vinarborg. Sama fyrirlesturinn hjelt Nansen og í Múnchen, Graz, Brornberg, Dresden, Königsberg o. fl stöðum, en fyrir það á hann að fá 50,000 ríkismörk frá fjelagi einu í Beilín. 10h — ’12. Dr. Hans barón v. Jaden. Oít hafa enskar kvennrjettindakonur látið illa, en aldrei hafa þær þó látið jafn óðslega og 4. þ. m. Þá hópuðust þær saman á götunum, brutu rúður og höfðu ótal önnur spellvirki í frammi, Þær ætluðu að ryðjast inn i þinghúsið og halda þar áfram spellvirkjum sín- um, en lögreglan varnaði þeim inn- göngu. 96 konur voru handsamaðar fyrir rúðubrot og önnur spellvirki, og dæmdar til hegningarvinnu. Ólæti þessi áttu að vera til að styrkja k"enn- rjettindamáiið, en uiðu auðvitað til þess, að vekja sterka hreyfingu gegn því, að konur fengju jafnrjetti við karlmenn. Og nú er símað frá Khöfn í gær- kvöld, að frumvarpið um kosninga- rjett kvenna hafi verið fellt í neðri málstofunni. *) í raun og veru eru slíkar sælueyjar, svo 8em Schlaraffenland, Mellouta, Frei- land o. fl., hvergi til. en menn hafa ætíð haft gaman af því að gera sjer það í hug- arlund, að til væri land, þar sem lifa mætti áhyggjulausu lífi, og skemmta sjer fyrir- hafnarlaust. Kr. 15.00 til Kr, 50,00. jilýkomií mikíð af Karlmannsfötum Slaufur — llálwlía — Skyrtur og margt fleira, og flest allt, er karlmenn með þurfa til klæðnaðar, er lang-hrzt að kaupa hjá <Zfí. áfíorsieinsson & Qo. Xolaverkjallið. Samkomulagshorfur. I siðasta blaði var skýrt frá því, að enska stjórnin hefði lagt fyrir þingið lagafrumvaip, sem kvæði á um það, hvert vera skyldi lágmark á verka- kaupi í kolanámum, og væri búizt við að fiumvaipið yiði afgreitt sem lög þá um helgina. Á þriðjudagskvöldið var símað, að horfurnar sjeu þá enn óbreyttar, og lágmaikslaunin eigi enn afgreidd frá þinginu. í því skeyti er og sagt, að daglegt tjón af verkfallinu sje þá metið 10 miij. sterlingspunda (180 milj. kr), að 3 milj. manna sjeu vinnulausir, og að hungursneyð vofi yfir. En í gærkvöldi er símað frá Khöfn: „Lágmarkslaun samþýkkt. Gerðarmenn (hafa) ákveðið lágmarks- laun í einstökum hjeruðum. Atkvæðagreiðslu veikanna (um þau) væntanlega lokið á miðvikudag. Sáttahorfur". Mkur orð m markaðsliöld. Eftir Jón Ólafsson á Bústöðum. Það hefir kveðið töluvert að hvarfi á hrossum hjer undanfarin ár, og hefir t. d. þrjú síðustu árin horfið eitt hross á mark- aðsaldri á hverju sumri af afrjettarsvæði því, sem nefnt er Fóerluvötn, eða þar úr grenndinni, og má geta þess, að þar eru engar hættur, jem talizt geti. En hvernig stendur þá á hvarfi þessara hrossa? verður mönnum ósjálfrátt að spyrja. Þeim er stol- ið, mæla margir, enda er full sönnun fyrir þvi, að svo er, þar tem fullyrt er, að hið fyrsta þessara þriggja hrossa hafi sjest um borð í hrossaútflutningsskipi —eigandi þess hvergi nærri, — og annað þeirra í röðinni fannst við útskipun við bryggjuna, með klipptu innkaupsmerki. Þriðja hrossið, sem tapaðist síðastl. sumar, hefir enn þá hvergi fundizt. Það yrði langt mál, ef telja ætti upp hversu oft töpuð hross hafa fundizt við útskipun. ýmist með innkaupsmerki eða án þess. Hjer er því um skæðan bitref að ræða, sem gerir meira tjón þeim sem fyrir verða, heldur en flestar skollatófur. Mjer virðist þetta málefni alvarlega at- hugavert, og álít nauðsynlegt, að allt, verði gert sem mögulegt er til þess að koma í veg fyrir það, að menn verði ár eftir ár fyrir slíku tjóni, því að ef ekkert er gert, má búast við að þessu haldi áfram. Hvort nokkuð þessu líkt kemur fyrir annarstaðar á landinu, kann jeg eigi um að segja. Nú vil jeg minnast á það, sem mjer þykir stór-ábótavant, þegar um innkaup hrossa á mörkuðum eða utan þeirra er að ræða, en það er bókfœrsla hrossakaupendanna. Þeir kaupendur munu vera til, sem skrifa ein- ungÍB hjá sjer tölu hrossa þeirra, sem þeir kaupa, en hirða ekki um að skrifa hjá sjer nafn og heimili seljandans. Ekki verður kaupendum þessum þetta til sakar fært, þar sem þeim munu engar reglur vera settar f'rir bókfærslu sinni. Hjer skal þess getið, að hr. Guðmundur Böðvarsson og hr Tómas Gunnarsson færa jafnhliða til bókar nafu seljanda og heimili við markaðshöld sín. En slíkt þurfa allir hrossakaupendur að gera, ef að fullu gagni á að koma Ein afleiðingin af ófullnægjandi bókfærslu á mörkuðum er sú, að þegar maður finnur hross, sem hann á, og hefir ekki selt, í keyptum markaðshrossum, og hirðir eign sína, þá verður markaðshrossakaupandinn fyrir tapi, og getur ekki sjeð í bókum sín- um, hver það er, sem þannig hefir á hann leikið. Hitt fnun þó oftar eiga sjer stað, að hroBS, sem á óráðvandlegan hátt eru seld og flutt af landi burt, hverfi svo, að /

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.