Reykjavík - 27.07.1912, Blaðsíða 4
120
REYKJAVÍK
Hinn heimsfrægi eini ekta
Kína-Lífs-Elixír
frá Valdemar Pelersen, Kaupmannahöfn, fæst alstaðar á íslandi og kostar að eins
2 krónur flaskan.
Varið yður á efttrlíkingum, gætið vel að hinu lögskráða vörumerki: Kin-
verja með glas í hendi ásamt firmanafninu Waldemar Petersen, Frederikshavn,
Köbenhavn, og á flöskustútnum merkið í græuu lakki.
Alþingi.
Þar alt með kyrð og spekt þessa
vikuna. Fundir stuttir og mest unnið
í nefndum. Færzla þingtímans til
sumarsins kom á stað nokkrum um-
ræðum í neðri deild. Þeir Sig. Sig-
urðsson ráðunautur og Einar Jónsson
1. þm. Rangvellinga lögðust mjög móti
frv.; kváðu bændum það miklu óhentugri
tíma til þingsetu. Tryggvi Bjarnason
tók í sama strenginn. Pétur Jónsson
var þar eigi á sama máli. Frv. samþ.
í neðri deild á miðvikudag með 14 atkv.
gegn 4, og sent efri deild.
Hlutfallskosningar til nefnda gjörast
nú sjaldgæíar á þinginu, ekki nema í
einstaka máli. Þetta seinkar nokkuð
störfum þingsins.
Stjórnarskrárfrumvarpið.
Bjarni Jónsson þm. Dalam. heflr
tekið frumvarpið til flutnings og var
það til 1. umr. í n. d. á fimtudaginn.
B. J. frá Vogi talaði fyrir því, kvað
kosti þess svo mikla, að galla þeirra,
sem á því væri, gætti ekki, og væri
sjálfsagt að samþykkja það á þessu
þingi. Kvaðst hafa heyrt, að konungur
hefði ekki haft nein aftök um að stað-
festa frumv., heldur hefði hann sagt
sig þurfa að setja sig inn í málið.
Talaði hann langt mál nokkuð.
Engir tóku fleiri til máls og var frv.
vísað til 2. umr. og í það sett 7 manna
nefnd. Var hún kosin hlutfallskosn-
ingu. Þessir eru í nefndinni: L. H.
Bjarnason, Guðl. Guðm., Jón Ól., Val-
týr Guðm., Sk. Thor., Jón Jónss. sagnfr.
og Kr. Jónsson. Formaður er Kr. J.
en Guðl. skrifari.
Lotterí.
í neðri deild er komið fram frv. til
laga um stofnun peninga-lotterís fyrir
ísland. Flutningsmenn eru : L. H. B.,
Pétur Jónsson, Jón Ól. og Valtýr.
Ráðh. íslands veitist heimild til að
gefa fyrv. landshöfðingja Magnúsi Step-
hensen, Sighvati Bjarnasyni bankastj.
og Knud S. Philipsen í Kaupmannah.
einkaleyfl til stofnunar íslenzks peninga-
lotterís.
Ætlast er til að leyfishafar greiði
landssjóði gjald er nemi að minsta
kosti 276,000 frönkum á ári.
Þetta er mikið mál og merkilegt og
verður væntanlega athugað af nefnd.
Það er hvað eftir annað tekið fram í
frv. og í fyrirsögn þess að lotteríið
sé íslenzkt, þó eiga drættirnir að fara
fram í Kaupmannahöfn og stjórn þess
að sitja þar. í henni eiga að sitja
6 menn, 3 íslendingar og 3 Danir.
Hvaða nauðsyn sé á, að skipa svo
marga Dani í stjórn íslenzks peninga-
lotterís er ekki ijóst. Seðlana má ekki
selja í Danmörku, og ekki gert ráð
fyrir að danska stjórnin eigi að hafa
neina hönd í bagga um þetta lotterí.
Gjaldið í landssjóð er vitaskuld álit-
leg upphæð.
Ungtyrkir útilokaðir.
Símskeyti, Khöfn 27. júlí.
AJimed el Muktar stórvezír í Tyrk-
landi — JJngtyrkir iitilokaðir. — Megnir
flolckadrœttir.
Ljósaskifti.
Guðmundur skáld Guðmundsson las
upp kvæðaflokk sinn í Bárubúð á
iaugardagskvöldið var. Áheyrendur
tóku honum með dynjandi lófakiappi,
kvöddu hann með lófaklappi og köll-
uðu fram aftur. Kvæðin ijómandi vel
gerð, bæði að efni og búningi. Ef
nokkuð mætti að kvæðunum finna,
væri það helzt það, að Þorgeir, Ljós-
vetninga Goði sér undir feldinum ó-
eðlilega skýrt sögu landsins fram á
þennan dag. Guðmundur les eigi eins
vel upp og hann yrkir, honum liggur
of lágt rómur.
Nefndir Alþingis.
í efri deild:
Sauðárkróksnefnd: Jósef, E. Br.,
Stgr. J.
Læknahéraðanefnd: Guðjón, séra
Jens og Þórarinn.
í neðri deild:
Veitinganefnd: Jón Magn., Matth.
Ól., Sig. Sig.
Skipanefnd: L. H. B., Tryggi Bj.,
Matth. 01., Jóh. Jóh., Stef. Stef. Eyf.
Ráðherranefnd (eftirlaun): L. H.
B., Jón Magn., Tryggvi Bj., Sig. Sig., H.
Briem.
Samþyktalaganefnd: Ól. Briem,
Guðl. Guðm., Pétur J., Sig. Sig., Stefán Eyf.
Sú nefnk hefir líka frv. til 1. um mótak og
ófriðun á sel.
Strandvarnarnefnd: L. H. B.,
Guðl. Guðm., Jóh. Jóh.
Strandferðanefnd: Guðl., Jón Ól.,
Ó Br., Halld. St., Jéh. Jóh.
Kjötmarkanefnd: St.St. Eyf., Pétur
J., Sig. Sig.
Hafnarfjarðarnefd: B. Kr., V. G.,
Jón Jónss., Matth. ól. og Tryggvi.
Læknaskipunarnefnd: Halld. St.,
Benedikt, Jón 01.
Styrktarsj. barnakennara: L.
H. B., J. Magn., Valtýr.
Sakamálshöfdun.
Síðastliðinn laugardag úrskurðaði
stjórnarráðið að sakamál skyldi höfða
gegn Halldóri bankagjaldkera Jónssyni,
fyrir brot gegn 13. kap. hegningarlag-
anna. Hinn reglulegi dómari, Jón
bæjarf. Magnússon, hefir úrskurðað að
hann víki sæti, þar sem hann hafi
verið endurskoðunarmaður bankans á
því tímabili er málsatvikin gerðust.
Rannsóknardómarinn Magnús Guð-
mundsson er skipaður setudómari.
Nýja atkvæðagreiðslu um bannmálið
vilja þeir fá Guðjón Guðl., Stef. Stef.
5. kgkj. og Þórarinn Jónsson. Hafa
þeir borið upp um það þingsálykt.tillögu
í efri deild, er hljóðar svo :
Alþingi ályktar að skora á stjórnar-
ráðið, að láta fara fram leynilega at-
kvæðagreiðslu allra Alþingiskjósenda á
landinu um það, hvort nema skuli úr
gildi lög nr. 44, 30. Júlí 1909, um
aðflutnings'bann á áfengi. Atkvæða-
greiðsla þessi fari fram í sveitum á
næstu hausthreppskilaþingum, en í
kaupstöðum 1. vetrardag næstkomandi.
Höínin.
6/7 Corella, Klaus Paulsen, enskur botnvörp-
ungur 142,— tn.
— Pamela, J. W. Austin, enskur botnv.,
83,83 tn.
s/7 Jamaica, Thorbjörn Vik, norskt kola-
skip til P. J. Thorst. & Co. 407,53 tn.
— Silvian, Dry ver, hollenskur botnv., 99,48 tn.
— Anna, Dryver, hollenskur botnv., 99,15 tn.
°l7 Victoria, Louise, Meyer, þýzkt skemtisk.,
8126,79 tn.
— Ocean Queen, Brooklesby, enskur botnv.,
110,03 tn.
— Vanadis, H. J. Johanson, sænskt kola-
skip til Frederiksen, 528,89 tn.
— Vilhelmina, Dryver, hollenskur botnv.,
99,15 tn.
“/7 Indian Empire, A. Byron, enskur botnv.,
113,— tn.
,2/7 Alken, M. Knudsen, norskt síldveiðask.,
23,— tn.
,6/7 Garibaldi, Leif Eriksen, norskt kolaskip,
442,— tn.
— Kong Helge, Chr. Olsen, danskt póst-
skip, 533,06 tn.
— Aalestmd, Vikse, norskt kolaskip, 248,98
tn.
— Douro, Svan, danskt póstskip, 484,97 tn.
— Sterling, E. Nielsen, danskt póstskip,
635,43 tn.
— Mjölnir, E. Olsen, danskt kolaskip til P.
J. Thorst. & Co., 329,14 tn.
,6/7 Botnia, Aasberg, danskt póstsk., 811,99 tn.
— Hercules, R. M. Fall, enskur botnvörp-
ungur, 95,— tn.
— Eros, -H. Andersen, norskt kolaskip,
263,17 tn.
— Flora, Fagstad, norskt póstsk., 494,86 tn.
Bæjargjaldkerinn biður fyrir svo-
hljóðandi leiðréttingu: í síðustu „Rvík“
stendur, að tillaga hafi komið um að stryka
út 10,000 kr. af aukaútsvörum bæjarins frá
síðustu árum, og að þetta sé um ’/« af árs-
tekjum bæjarins. Þetta er að nokkru mis-
hermi og villandi. í fyrsta lagi: Upphæðin
var tæp 9 þús., en ekki 10 þús. í öðru lagi:
Gjöldin voru frá 6 árum, þó mest væri frá
1910 og 1911, eða nær 3 þús. frá hvoru
því ári. í þriðja lagi: Aukaútsvör voru í
Rvík 1910 rúm 94 þús. og 1911 rúm 100 þús.
kr., og þó eru aukaútsvörin vitanlega ekki
helmingur af árstekjum bæjarsjóðsins þessi ár.
Liftingar j Winnipeg, meðal landa,
er stöðugt að fækka, að því er segir í „Heims-
kringlu“ nýkominni. Þar hafa ekki gengið
í hjónaband nema 6 íslendingar árið 1911
og 2 það sem af er þessu ári. Ekki er það
þó því að kenna, að hörgull sé á konuefn-
um. Eftir því sem blaðið segir, eru 1500
gjafvaxta konur íslenzkar í Winnipeg.
Tefld skák með þráðlausri firðritun.
Uppfynding Marconis hefir tekið svo
miklum framförum síðustu árin, að skipin
— einkum á Atlantshafinu — eru svo að
segja sífelt að spjalla saman á leið sinni.
Nýlega kom það fyrir, að tveir taflmenn
tefldu hvor við annan, meðan annar þeirra
var á ferð vestur til Ameríku, en hinn 4
leið til Englands með öðru skipi. Þeir sátu
hvor við sitt eigið taflborð og tilkyntu hvor
öðrum leiki sína með loftskeytum. Og þó
eru til menn, sem vilja ekki trúa á krafta-
verk. Ef menn geta gert slíkt og hér er sagt,
hvað getur Guð ekki gert? [„Norðurljösið11].
— Já, er það ekki von að maðurinn segi það.
Hlaupárið er ekki liðið.
Það eru fornhelg réttindi kvenna að mega
eiga upptökin hlaupárið. Yoru beint sett
lög um það forðum daga. Svo gerir lög-
gjafarþing Skota árið 1288, rétt á eftir að
við eignumst Jónsbók. Segir svo i hinum
skozku lögum nefnt ár:
„Svo eru lög í landi voru að á hverju
því ári sem kunnugt er um að er hlaupár,
má sérhver kona, ung og gömul, voldug og
vesæl, vera þesB frjáls og fullrétta að biðja
sér hvers þess manns er hugur hennar
girnist“.
Aftur eru engin lög fyrir því að þetta
nái bara til hlaupársdagsins. f„N. Kbl.“].
3arria$kóliriri
í Bergstaðastræti 3 hefst i. sept.
n. k. Skólinn verður fyrir börn
yngri en IO ára, þó aðeins þau, er
kunna að stafa. Námsgreinar: lestur,
skrift og reikningur. Kenslustundir
15 á viku. Kenslugjald 3,00 kr. um
mánuðinn fyrir barnið; borgist fyrir-
fram. Umsóknum um skólann tekur
á móti ekkjufrú Hólmfríður Þorláks-
dóttir, Bergstaðastræti 3.
Rvík 23. júlí 1912.
Brynleifur Tobíasson.
Litið hús til sölu með góðum borgunar-
skilmálum. Semjið sem fyrst við Jóhann P,
Guðmundsson, Vatnsstíg 10 B.
A gentur.
En i Kpbenhavn godt indarbejdet Agentur-
forretning 0nsker at repræsentere et Is-
landsk Firma for K0b og og Salg af Varer.
Billet mrk. 1690 modt. Nordisk Annonce
Bureau, K0benhavn.
Hvaða mótor er ódýrastur,
beztur og mest notadur
Gideon-mótorinn.
Einkasali
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: Yerzlun.
Verzluu Jóns ÍEoéga
selur ódýrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsími 128. Bankastræti 14.
Hvar á að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prentsm. Gutenberg